Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 7. JULI1994
25
>WÍ<<
tónli0i:
Ykt rokk í Reykjavík
- útgáfutónleikar í kvöld
Safnplötuútgáfa Islenskra hljóm-
plötnfyrirtækja hefur sjaldan veriö
eins öflug og það sem af er þessu ári
þrátt fyrir samdrátt í verslun. Þann
fyrstajúlí síðastliðinn gafSpor hf. út
plötuna Ýkt böst sem inniheldur
átján lög af ýmsum stærðum og
gerðum. Hlutdeild íslenskra sveita
eykst með hverri útgáfu og er hér
komin í 13 af 18. í tilefni þessarar
útgáfu verða haldnir sérstakir út-
gáfutónleikar í kvöld á Tveim vinum
og síðan verður endurtekning
daginn eftir í Rósenberg-kjallaran-
um.
Á tónleikunum koma fram 5
hljómsveitir sem allar eiga lög á
plötunni. Þessar sveitir eiga það
sammerkt að kenna sig við rokk og
hafa tónleikarnir því fengið
yfirskriftina Ýkt rokk í Reykjavík.
Tónleika-
sveitirnar
Til þess að glöggva lesendur aðeins
á þeim hljómsveitum sem fram koma
ætla ég að renna yfir liðskipan þeirra
í stuttu máli. Fyrsta skal telja
hljómsveitina In Bloom sem á lagið
Pictures á nýju plötunni. Sveitin er
sjö mánaða gömul og hana skipa:
Sigurgeir Þórðarson (söngur),
Sigurjón Brink (trommur/raddir),
Albert S. Guðmundsson (bassi/
raddir), Úlfar Jacobssen (gítar) og
Hörður Þór Torfason (gítar). Næsta
skal telja Lipstick Lovers sem á lagið
On My Way to Paradise á nýju
plötunni. Hljómsveitin hefur áður
gefið út stóra plötu sem ber nafnið
My Dingaling og hana skipa Bjarki
Kaikumo (söngur/gítar), Anton M.
Gylfason (gítar), Ragnar Ingi
(trommur) og Sævar M. Kristinsson
(bassi). Þá er það Rask. Hún á lagið
Þrá á nýju plötunni. Hljómsveitin
hefur áður geflð út eitt lag á safnplötu
og hana skipa Sigríður Guðnadóttir
(söngur) og Bergur Morthens (gítar).
Blackout skipar síðan fjórða sætið í
þessari upptalningu. Hún á lagið
Days á nýju plötunni en hefur áður
gefið út lag á safnplötu. Blackout
skipa Jóna de Groot (söngur), Ólafur
Kristjánsson (bassi), Leifur „Hamm-
er“ (gítar) og Hreiðar Júlíusson
(trommur). Síðast en ekki síst skal
telja hljómsveitina Dead Sea Apple.
Hún á lagið Mist of the moming og
hefur ekki gefið út áður. Hljómsveit-
ina skipa: Steinarr Logi Nesheim
(söngur), Haraldur Vignir Svein-
björnsson (gítar), Hannes Heimir
Friðbjarnarson (trommur), Carl
Johan Carlsson (gítar) og Arnþór
nafn
vikunnar
Islenskar hljomsveitir eiga 13 lög af 18 á plötunni Ykt böst
Þórðarson (bassi). Tónleikarnir í
kvöld hefjast klukkan 22.00 en það
verður frítt inn bæði kvöldin.
Aðrar sveitir á plötunni eru:
Alvaran sem á þama tvö lög (Hvað
er að ske og Leikur að vonum),
Fantasía sem á einnig tvö lög (Negli
þig næst - sérstakt liðsinni Stefán
Hilmarsson - og Enn einn hring),
Vitrun (Child), Valgerður Guðna-
dóttir (Touch Me) og Jet Black Joe
(Running out of time). Þar með em
íslensku hljómsveitimar taldar upp.
Af erlendri grund fáum við að heyra
lög með Primal Scream (nýja
smáskífan frá Jailbird), íslandsvin-
unum í Saint Etienne (Like a
Motorway), Erasure (Always), hinni
snoppufríðu Misty Oldland (A fair
Affair), rokkurunum í Inspiral
Carpets (Uniform) og Oasis
(Supersonic). Eins og áður segir em
þetta heil átján lög á Ýkt böst og í
þetta skiptið blandar Spor hf.
ísframleiðendum ekki í málið.
GBG
4.
W
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikur inn fer þannig fram að í hverr i
viku eru birtar þrjár léttar
spurningar um tónlist. Fimm
vinningshafar sem svara öllum
spurningunum rétt hljóta svo
geisladisk i verðlaun frá fyrirtækinu
Japis. Að þessu sinni em verðlaunin
geisladiskurinn Egg ‘94.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað heitir nýr íslenskur
danslagasafndiskur frá Smekk-
leysu?
2. Hvað heitir söngvari Manna-
koma?
3. Hvernig tónlist spilar Snoop
Doggy Dogg?
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
14. júlí og rétt svör verða birt í
tónlistarblaðinu 21. júlí.
Hér em svo svörin úr getrauninni
sem birtist 23. júní.
1. Something Stupid.
2. Kombóið.
3. Rúnar Júlíusson.