Alþýðublaðið - 25.08.1967, Page 9
KÓ.feAMfaiCSBÍO
Nábúarnir
Snilldar vel gerð nýs dönsk
gamanmynd í sérflokki.
John Price
Ebbe Rode
Sýnd kl 5. 7 og 9.
Allra síðasta sinn.
Ný dönsk mynd, gerð eftir hinnl
umdeildu metsölubók Siv Holms
„Jeg en kvinde".
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 9.
Þota
Frh. af 3, sfðu.
Ingólfur Jónsson ræddi af-
skipti ríkisvaldsins af flugmálum
og byggingu flugvalla, sem óhjá-
kvæmilega kostuðu mikið fé,
gott samstarf við þá’ sem störf-
uðu að flugmálum og farsæld ís-
lenzkra flugmanna, sem margir
liverjir væru frá Akureyri, þar á
meðal yfirflugstjóri F. í., Jóhann-
es Snorrason, sem var flugstjóri
í þessari ferð.
Þá talaði Örn Johnson, fram-
kvæmdastjóri og þakkaði Akur-
eyringum móttökur, og fagnaði
malbikun vallarins og sagði að
slæmir vellir hefðu kostað félag-
ið of fjár í hjólbörðum og skemmd
ir af grjótkasti hefðu einnig orð-
ið því dýrar. Þakkaði hann ráð-
herra þátt hans í að stuðla að
bættum flugsamgöngum,. en hinu
sagðist hann heldur ekki vilja
leyna því, að hann væri ósam*
mála sumum ráðstöfunum rikis-
stjórnarinnar í þeim málum. Að
lokum þakkaði hann flugvallar-
stjóra, Kristni Jónssyni, verk-
stjóra og verkamönnum við flug-
vallargerðina frábært starf.
Á meðan þessu fór fram skoð-
aði fjöldi fólks flugvélina og var
gizkað á að þarna hefðu verið
samankomnir á milli 3—4000
^mannas, bæði austan úr Þingeyj-
arýsslum og utan frá Dalvík og
Svarfaðardal.
Var nu haldið suður yfir fjöll
og sagði Guðmundur Snorrason,
yfirflugumsjónarmaður á heim-
leiðinni, að í flugtakinu hefði
vélin farið með milli 6—700 km
hraða á klst. og hækkað flugið
um rúmlega 4000 fet á' mínútu.
Hraðinn á suðurleið var annars
850 km á klst. og flogið var í 28
þús. feta hæð. Auk Guðmundar
og Arnar Johnsen voru þarna með
frá Flugfélaginu sörustjóri þess,
Birgir Þorgilsson, Sverrir Jóns-
son og Sigfús Elíasson. Jóhannes
Snorrason var eins og áður getur
flugstjóri, aðstoðarflugstjóri Guð-
jón Ólafsson og Ásgeir Magnús-
son yfirvélstjóri. Kristín Snæ-
hólm yfirflugfreyja F. í. og fjór-
ar flugfreyjur báru gestum veit-
ingar á Ieiðinni.
Þrettán farþegar, sem biðu fars
á Akureyri nutu þeirrar óvæntu
ánægju að verða hinir fyrstu til
að fljúga með þotu í innanlands-
flugi. Þeir lögðu af stað frá Ak-
ureyri kl. 21.40 og voru komnir
á Reykjavíkurflugvöll kl. 23.15,
en milli flugvita Akureyri—Kefla
vík tók ferðin aðeins 20 mínútur.
Flugmálastjóri, Agnar Koefoed-
Hansen, kvaddi sér hljóðs í bíln-
um, er komið var á Reykjavíkur-
flugvöll og sagðl að einhver
skekkja hlyti að vera í „dæminu",
sem þyrfti athugunar við. Fyrir
30 árum, sagði flugmálastjóri,
flutti ég farþega milli Ákureyrar
og Reykjavíkur í eins hreyfils flug
vél á 2 mínútum skemmri tima
en ferðin tók nú.
Þóttust þá sumir skilja til hvers
refirnir væru skornir, en það er
alkunna, að ýmsir eru óánægðir
með skilyrði ríkisstjórnarinnar
fyrir lánsfjárheimild til kaupa á
flugvélinni, að aðalflugvöllur
hennar sé Keflavíkurflugvöllur,
en ekki Reykjavíkurflugvöllur.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI S2-101.
Alþýðuhlaðið
vantar börn til blaðburöar viö
Miðbæ I. og II.
Laugaveg efri og neðri.
Tjarnargötu
Seltjamarnes II.
Talið við afgreiðsluna. — Sími 14900.
Alþýöublaöiö
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sjónarhóli við Breiðholtsveg, hér í borg,
talin eign Stefaníu Sigurjónsdóttur, fer fram á eigninnl
sjálfri, fimmtudaginn 31. ágúst 1967, kl. 10,30 árdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Eftirtalin verka-
Nauðungaruppboð
á hluta í Miklabraut 18, hér í borg, þingl. eign Árna Jóns-
sonar, fer fram á eigninni sjálfri, miðvikudaginn 30. ágúst
1967, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík,
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40. 41. og 43. tbl. Lögbirtingablaðsins
1967 á hluta í Hátúni 4, hér í borg, þingl. eign Hermanns
Haraldssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í
Reykjavík á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 31. ágúst 1967,
kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík,
N auðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Engihlíð 8, hér i borg, þingl.
eign Brynhildar Berndsen, fer fram á - eigninni sjálfri,
fimmtudaginn 31. ágúst 1967, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
flytja skrifstofur sínar frá Skipholti 19 aÖ Sköla-
vöröustíg 16 frá og með laugardeginum 26. ágúst
1967.
Afgreiðslutími og símanúmer félagsmanna eru óbreytt.
Félag bifvélavirkja Félag blikksmiða
Félag ísl. kjötiðnaðarmanna Félag járniðnaðarmanna
Flugvirkjafélag íslands Iðja, félag verksmiðjufólks
Málm- og skipasmíðasamband ísl.Sveinafélag húsgagnabólstrara
Sveinafélag húsgagnasmiða Sveinafélag skipásmiða.
Iðnemasamband íslands
25. ágúst 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÖ £