Alþýðublaðið - 06.09.1967, Side 4
»t»yðrl; Uenedlkt Grðndal. Slmar 14900-14903. — AuglýaJngasbnfc
1008. — AOsetur: AlþýOuhúslS vlO Hverflsgötu, Rvflt. — PrentsniSJa
AQtfSublaOsins. Síml 14905. — Aakrlítargjald kr. ÍOÖÆO. — 11ao»
sölu kr. 7jOQ etntalcið. — Útgeíandi: AlþýSuflokkwlnu.
Næsta verkefni
'j ÞAÐ ER aldagömul reynsla íslendinga, að fisk-
veiðar og heyskapur séu mjög háð náttúruöflum hvað
árangur snertir. Verða þeir, sem á þessum atvinnu
greinum iifa að vera viðbúnir allmiklum sveiflum í
tekjuöflun sinni. Nútíma tækni hefur að vísu bætt til
muna aðstöðu fiskimanns og bónda, en þó ekki eytt
sveiflunum. Þeim til viðbótar geta komið duttlungar
markaðsins eftir lögmálum þeirra viðskiptahátta, sem
mannfólkið hefur tamið sér.
Langt er síðan tekjusveifla hefur verið eins mikil
og nú, frá árinu 1965 með metafla og hámarksverði
afurða til ársins 1967 með margföldum aflabresti
og verðhruni afurða. Er því von, að venju fremur sé
hugsað til hvaða úrræði þjóðin eigi til aS skapa meiri
tekjuöflun sína.
Ekki verður um það deilt, að hér verði að rísa nýjar
framleiðslugreinar til viðbótar þeim eldri. Mestir mögu
leikar eru á sviði stóriðju og hafa þegar verið stigin
þýðingarmikil skref á þeirri braut. Getur enginn mót
mælt þýðingu þeirra framkvæmda, sem nú standa yf-
ir, og hefur þegar komið á daginn, að margvísleg gagn
rýni á þeim hefur ekki átt við rök að styðjast.
Sjálfsagt er að sækja fram á sviði stóriðju og leita
að mýjum verkefnum til að hrinda í framkvæmd á
næstu árum. Hins vegar er rétt að fara varlega í notk
un erlends fjármagns, eins og Alþýðuflokkurinn hefur
lagt til í stefnu sinni. Ýms verkefni á þessu sviði eru
viðráðanleg með lánsfé einu og oft má fá tæknihjálp
án þess að hleypa inn fjármagni um leið.
Þessi nýja sókn má þó ekki draga athygli frá hinum
eldri atvinnugreinum íslendinga. Aflatregða og iverð
hrun spilla ekki því trausti, sem sjávarútvegur hefur
byggt upp með þjóðimni um aldir, og kalin tún í nokkr
um sveiíum megna ekki að eyðileggja það grundvallar
traust, sem íslenzkur landbúnaður býr við. Loks er
íslenzkur iðnaður að ganga í gegnum hreinsunareld
eins og iðnaður margra annarra landa) og mun koma
út úr honum sterkari og þróttmeiri en nokkru sinni
fyrr.
Íslendingar þurfa nú að hefja mikla sókn til að koma
rekstri fyrirtækja sinna á betri grundvöll, gera þau
hagkvæmari og lækka allan tilkostnaS. Slík hagræð
ing er lögmál okkar samtíðar — án hennar getur eng
inn atvinnuvegur lifað. Tími brjóstvitsins eins og
rassvasabókhalds er liðinn. Nútíma rekstur og
framleiðsla krefjast tæknikunnáttu og fyllstu hagræð
ingar.
Skrifstofur okkar eru fluttar að
LAUGAVEG 18
EVEREST TRADING COMPANY.
Eldhúsvaskar
með boltafestingum í stálborðum
16 staðlar gerðir.
Sérsmíði.
Vatnslás fylgir hverjum vaski.
Blöndunartæki
vönduð og ódýr
RafsuÖupottar
75 og 90 lítra
Eldhúsáhöld
úr ryðfríu stáli
Murðastál
og margt fleira.
SMIÐJUBÚÐIN við Háteigsveg.
Sími 21222.
TILKYNNING
Athygli skal vakin á því, að þeir, sem enn hafa eigi sótt gjaldeyris-
leyfi fyrir ferðakostnað, sem gefin voru út fyrir 1. spt. sl., verða að
sækja þau í síðasta lagi föstudaginn 8. þ. m. Að öðrum kosti verða
leyfin lækkuð til samræmis við hinar nýju reglur um gjaldeyrisveit-
ingar til ferðamanna.
Reykjavík, 4. sept. 1967.
LANDSBANKI ÍSLANDS
UTVEGSBANKI ÍSLANDS
SKÓÚTSALAN
Skóverzlunin
Framnesveg 2.
Stórkostlegt
tækifæri
Skóverzlun
Péturs Andréssonar
Laugaveg 17.
V8
4 6. ágúst 1967 —
ALÞÝÐUBLAÐIÐ