Alþýðublaðið - 11.11.1967, Page 1
ÍSLENZK
SÖGUSKOÐUN
Á fimmtudaginn kemur flytur
Lúðvík Kristjánsson rithöfundur
þriðja erindi sitt um íslenzka
söguskoðun. Full ástæða er til að
vekja athygli á þessum erinda-
flutningi Lúðvíks. Umræðuefninu
hefur verið lítill gaumur gefim
til þessa. Þó hafa þau tíðindi nú
orðið, að Háskóli íslands hefur
auglýst laust til umsóknar em-
bætti prófessors í nútímasagn-
fræði, en hún hefur ekki verið
kennd áður við skólann. Lúðrik
ræðir um þau verkefni er bíða
þess, sem embættið hlýtur og
einnig fjallar hann nokkuð um
ýmsa atburði þessarar aldar og
hvernig beri að meta þá í ljósi
söguskoðunar.
NÍ KVÖLD-
SAGA
Á miévikudaginn kemur hefst lest
ur nýrrar kvöldsögu í hljóðvarp-
inu. Sagan heitir „Undarleg er
manneskjan“ og er eftir Guð-
mund G. Hagalín. Höfundur ann
ast sjálfur lesturinn. Sagan er
stutt, aðeins 3 lestrar. Hún ger-
ist í kaupstað úti á landi snemma
á þessari öld og er hent nokkuð
gaman að hógómahætti íbúanna,
sem temja sér í nokkrum mæU
danska siði. Skömmu eftir að
lestri þessarar sögu lýkur mun
Guðmundur taka til við lestur
annarrar sögu. Hún heitir „Forn
ar dyggðir" og er saga verkalýðs
baráttunnar í kauptúni einu. Sög
Guðmundur G. Hagalín
o
ur þessar eru báðar úr bókinni
„Gestagangur" og munu vera um
20 ára gamlar,
DA6SKRÁIN
ÍDAG
í dag kl. 5 endurtekur sjón-
varpið fyrsta þáttinn um þau
Walter og Connie, sem sýndur
var fyrir viku. Síðan verður ann
ar þátturinn sýndur. Að kennsi-
unni lokinni verður kvikmynd
Ásgeirs Lopg „Labbað um Lóns-
öræfi“ endurtekin. Ásgeir
GERÐI MYNDINA SUMARIÐ
1965 og lýsir hún ævintýraríkú
ferðalagi 12 manna hóps um ei:t
hvert hrikalegasta fjalllendí ís-
Innds. Myndin var áður sýnd 13.
október. íþróttaþátturinn hefst
kl. 18.10 og er þá sýndur leikur
Coventry City og Wolverhampton
úr ensku bikarkeppninni.
Af efni hljóðvarpsins má nefna
liðinn „Minnisstæður bókarkafli“
kl. 15,10, cn þá les Gskar J.
Þorláksson, dómkirkjuprest ur
sjálfvalið efni. Kl. 16.00 velur
Guðmundur Jónsson, söngvari, sér
hliómplötur. Árni Gunnarsson.
fréttamaður, stjórnar þættinum
„Daglegt líf“ kl. 19,30. Laugar-
dagsleikritið heitir að þessu
sinni „Ásýnd ófreskjunnar“ og er
eftir Edorado Anton.
Ileimir Áskelsson leiöbeinir nemendum í enskukennslu sjónvarps-
ins. (Ljósmynd, sjónvarp, Sigurliði Guðmundssoa).