Alþýðublaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 11
Skólairsál
Framhald úr opnu.
bekkjardeildir beggja árganga.
Framfarir barnanna voru kann
aðar með skyndiprófum, og um
sjónarkennari hefur ritað
skýrslu um starfsemina síðast-
liðið skólaár.
3. Námsefni og n'ámsskrá.
Hér hafa itveir málaflokkar
verið teknir fyrir:
a) Skipuð hefur verið nefnd
til þess að semja námsskrár —
drög fyrir eðlis- og efnafræði-
kennslu upp að gangfræðaprófi.
Formaður nefndarinnar er
Sveinbjörn Björnsson, eðlis-
fræðingur. Nefndin skal skila
greinargerð og tillögum fyrir 1
«iaí 1968.
b) Tveir sérfróðir kennarar
hafa verið fengnir til að rann-
saka og gagnrýna kennslubæk-
ur í félagsfræði, sem notaðar
eru í gagnfræðaskólum Grein
argerð og tillögum um nýskip
an skal skilað snemma á næsta
ári.
4. Próf og einkunnto.
Hafinn er ta’cverðup undir-
buningur að athugun þessa mála
flokks, og hefur undirbúningur
inn einkum miðast við eftirtal
in atriði:
a) Tilgangur prófa og notkun
í kennslustarfi.
b) Upplýsingagildi einkunna.
c) Aukning á samræmi, raun-
gildi og áreiðanleika prófa og
einkunna.
5. Forskóli.
Hafinn er undirbúningur að
athugun. þessa máiaflokks, eink
um skólagöngu 6 ára barna Und
irbúningurinn hefur hingað til
miðazt að mestu við könn-
un erlendrar reynslu.
6. Þá Má get.a þess. að for-
stöðumaður skólarannsókn-
anna, Andri ísaksson, fór ný-
iega í nokkurra vikna náms-
ferð til Frakklands, Þvzkalands,
Svíþjóðar og Noregs. í ferð þess
leitaðist hann við að kynna
sér skólarannsóknastofnanir í
fyrrgreindum löndum, skipu-
lagningu starfs þeirra og verk-
efnaval. og auk þess að athuga
hvort hugsaniegt væri, að ís-
lendingar gætu fengið ein-
hverja sérfræðilega hjálp tii
rannsóknarstarfs hér að skóla-
málum.
Varðandi næstu störf og verk-
efni skólarannsóknanna er þess
fyrst að geta. að 11. - 16 des-
ember n.k. verður haldinn fund
ur forstöðumanns og ráðu-
nauta skólarannsókna. Verður
þá tekin endanleg ákvörðun
um vinnuáæ'tlun ársins 1968.
Undirbúningur þeirrar áætlun
ar er langt kominn, svo að unnt
cr að gefa nokkra hugmynd um
þau verkefni, sem væntanlega
yerður fyrst og fremst unnið
að. Þeim verkefnum sem Iþegar
eru hafin, verður haldið áfram.
Mætti í því sambandi nefna:
1. Viðhorfakönnunin.
Efnislegar niðurstöður við-
tala þeírra, sem tckin hafa ver
ið við skólamenn og ýmsa
fieiri, verða notaðar til að
sþmja spurningaskrá um við-
horf til skóla og skólakerfis.
Yerður skráin send stórum
þópi skólamanna, svo og vænt
anlega nokkrum öðrum aðilum.
2. Tilraunir og nýjungar.
Þeim nýjungatilraunum sem áð
ur voru nefndar verður haldið á
fram. Tilraunastarfsemi verður
aukin, og byrjað á nýjum. Er
undirbúningur að einni slíkri
tilraun hafinn. Fylgzt verður
og með nokkrum tilraunum,
sem þegar eru hafnar, og má í
starfrænt lesgreinanám í 4., 5.
og 6. bekk Laugalækjarskóla,
svo og tungumálastofu á Blönd
ósi. Samdar verða nákvæmari
reglur um mat á árangri til-
rauna, bæði almennt og í ein-
stökum tilvikum.
3. Námsefni og námsskrá.
a) Rannsökuð verða álit
nefnda þeirra og sérfræðinga,
sem þegar eru að störfum, og á
kvörðun tekin varðandi tillögur
um framkvæmd, svo og skipun
nýrra nefnda.
b) Unniö verður að álitsgerð
með tillögum um reglur og að
ferðir, sem heildarendurskoðun
námsskrár á íslandi mætti
miða við.
4. Próf og einkunnir.
Aukin áherzla verður lögð á
þennan lið, og mun rannsókn
að öllum líkindum taka bæði til
barnar qg gangö'a\5astigs. í
þessu sambandi hefur komið til
greina að reyna að fá til að-
stoðar eriendra sérfræðinga
5. Rituð verður skýrsia um
tilhögun forskólahalds í nokkr
um nágrannalönd'um. Unnið
verður síðan að frekari könn-
un þessa vandamáls hérlendis
og undirbúningur að tillögu-
gerð um lausn þess. Hins vegar
mun áætlun um framkvæmd og
tilhögun þeirrar könnunar ekki
liggja fyrir fyrr en að nokkr-
um vikum liðnum.
Méðal nýrra rannsóknarliða,
sem teknir verða upp á næsta
ári, er rétt að geta um tvo.
1. H-afin verður athugun ?
ýmsum þáttum skólahalds í
dreifbýli, og er í ráði að vinna
að þeirri rannsókn í samvinnu
við nefnd þá, sem starfar nú
að menntaáætlun á vegum Efna
hagsstofnunarinnar og fleiri
stofnana, með styrk frá Efna-
l agssamvinnustofnuninni í Par
ís. Athugun þessi verður vænt
anlega tvíþætt:
a) Rituð verði skýrsla um til
högun dreifbýliskennslu í nokk
rum nágrannalöndum. Hefur
þegar verið safnað heimildum,
sem verða lagðar til grundvall
ar skýrslunni.
b) Gerð verði áætlun um til
raun, sem miða skal að því,
að bera saman sérstakar, ólíkar
leiðir til þess að leysa skóla
vandræði i dreifbýli. Verður
væntanlega reynt að hefja til-
raun þessa þegar iá árinu 1968.
2. Hrundið verður í fram-
kvæmd rannsókn á sambandi
námsárangurs nemenda við fé
lagslegan uppruna þeirra, en
rannsókn þessi hefur þegar ver
ið undirbúin nokkuð.
Að sjálfsögðu eru skólarann-
sóknir énn á byrjunarstigi hér
á ísiandi. Enn er verlð að lelta
að heppilegum starfsaðferðum,
og er eflaust þörf á mun meiri
samvinnu við skólastjóra og
kennara, en komizt hefur á enn
þá. En skólarannsóknir hafa
þegar sannað gildi sitt og þurfa
því að vaxa og stækka, bæði að
fé og mannafla. Hins vegar er
vafasamt, að það, sem þeim
sé nú nauðsynlegast, sé að ráða
mikinn fjölda sérfræðinga að
rannsóknunum. Mikilvægast er
hitt, að verkefnin séu vandlega
skynsamlega valin og að
jafnan séu nægir starfskraftar
og nægilegt fjármagn til þess a®
vinna að kerfisbundinni rann-
sókn þeirra viðfangsefna, sem
viðróðanleg eru talin og brýn
ust þörf er á að sinnt sé hverju
sinni.
Að lokum má geta þess, að
árlega er rituð skýrsla um
störf skólarannsóknanna, og
kemur sú skýrsla út í janúar-
mánuði ár hvert.
Með þessu vona ég, að ég
hafi veitt fyrirspyrjanda full-
nægjandi svör við spurningum
hans.
íþróttir
Framhald af 10. síðu.
uðu sig loks. Beztu menn liðs-
ins eru án efa Agnar og Birgir,
enda hættir liðinu til að leggja
of mikið traust á langskot þeirra,
en leggur ekki nægilega áherzlu
á að komast að körfunni. Agnar
var stigahæstur með 17 stig, Birg
ir skoraði 15 og Tómas og Anton,
sem báðir áttu mjög góðan leik
skoruðu 14 og 13 stig.
ÍS hefur bætzt liðsauki frá því
í vor, en lelkur liðsins og geta
er með svipuðu móti og verið hef
ui’. Jónas Haraldsson var stiga-
hæStur með 16 stig, og Brynjólf-
ur skoraði 14.
Dómarar voru Haraldur Har-
aldsson og Marinó Sveinsson.
Álagning
Franhiald af l. síðu.
1. Að þeir hafa lagt fram Leild
artillögur, sem tryggt hefðu hags
muni launþega mun betur en sú
lausn, sem að lyktum hefur orðið
samkomulag um við oddamann
nefndarinnar, eftir að þraut-
reynt var, að tillögur undirrit-
aðra gátu ekki náð samþykki
meirihluta hennar né aðrar, sem
nær. hefðu legið sjónarmiðum
launþega en í samkomulagslausn
inni felst.
2. Að þeir telja augljóst að
samkomulagslausnin feli í sér að
verzluninni er gert að itaka á sig
umtalsvei-ðan hluta þess fjár-
magnstilflutnings til útflutnings
atvinnuveganna, sem af gengis-
fellingunni leiðir.
3. Að fyrir liggur yfirlýsing frá
ríkisstjórninjni sem tryggir at-
hugun alls verðmyndunarkerfis-
ins og verzlunarmála í landinu.
4. Að tryggt er af hálfu við-
skiptamálaráðuneytisins, að nauð
synleg aukning verði á starfsliði
verðlagseftirlitsins, meðan þær
verðbreytingar, sem af gengis-
fellingunni leiða, ganga yfir.
5. Að þeir telja að 'án gerðs
samikomulags við oddamann
nefndarinnar hefði sú hætta vof
að yfir að framlagðar tillögur
fulltrúa verzlunarinnar í nefnd-
inni hefðu náð fram að ganga,
en slíkt hefði þýtt mjög stórfellda
dýrtíðaraukningu umfram þá,
sem gengisfellingin óhjákvæmi-
lega hefur í för með sér, en sam
komulagslausnin liggur mun nær
tillögum okkar undirritaðra en
þeim tillögum, sem fulltrúar verzl
unarinnar hafa leitazt við að
knýja fram og studdar voru af
fulltrúum vinnuveitenda.
Fulltrúar launþegasamtakanna
í verðlagsnefnd voru: Björn Jóns
son, Hjalti Kristgeirsson, Jón Sig
ui’ðsson, fyrir hönd A. S. í., en
Svavar Helgason fyrir B. S. R. B.
Sú tillaga fulltrúa launþega,
sem um getur í bókunt.ini hér á
undan, gekk töluvert lengra til
lækkunar en sú tillaga, sem end-
anlega var samþykkt, en eins og
áður segir, náðist ekki samkomu
lag um þá tillögu.
Við afgreiðslu tillögunnar, sem
samþykkt var, óskaði formaður
verðlagsnefndar, Þórhallur Ás-
geirsson eftir því, að eftirfarandi
yrði bókfært:
„Ég hefi gerzt meðflutnings-
maður fyrirliggjandi tillögu til
að firra frekari vandræðum, sem
myndu af því hljótast, ef það dræg
ist lengur að setja ný verðlagsá-
ákvæði.
Mér er fyllilega Ijóst, að heil-
brigð verzlun getur ekki til lengd
ar búið við þessi verðlagsákvæði,
og hefi ég því aðeins getað sam-
þykkt þau, að fyrir liggur yfir-
lýsing flutningsmanna um, að
þetta séu bráðabirgðaákvæði, sem
verði endurskoðuð m. a. með hlið
sjón af fyrii’huguðum tollalækk-
unum eigi síðar en í febrúarbyrj
un 1968“.
Alþýðublaðið hafði í gærkvöldi
samband við Jón Sigurðsson, en
hann er einn af fulltrúum laun-
þega í verðlagsnefndinni. Sagði
hann um samþykktina í gær: —
,,Get sagt að ég sé tiltölulega á-
nægður með, að málið skyldi
leyst með okkur — fulltrúum
launþegasamtakanna — þó ég
telji, að verzlunin hefði átt að
lækka vöruvei’ð mun meira en
felst í þessaii tillögu".
SNITTUR - ÖU - GOS
Opið frá 9-23,30. — Pantlð
tímanlega veizlur.
BRAUÐSTOFAN
'esturgötu 25. Síml 16012.
SMURT BRAUÐ
ÁR
OG DAGAR
eftir GUNNAR M. MAGNÚSS
Um alþýðusamtök á íslandi. Saga þeirra í máli og myndum. Saga
af baráttu og sigrum. Saga mikilla framfara. Saga okkar tíma. —
Bók sem á e rindi við alla.
Verð ib. kr. 450,00 + söluskattur.
HEIMSKRINGLA
Krossgötur
Framháld af 4. síðu.
Þeir hljóta þó að gera sér grein fyrir því, að hnatt-
staða íslands er óbreytt frá því sem hún var fyrir
fimmtíu árum, og tíðarfarið i landinu ákvarðast
ekki á skrifstofum Reykjavikurbprgar. Nú vH ég
spyrja þessa ágætu embættlsjnenn, sem stjórna hita
veitumálum okkar Reykvíkinga: Hvernig haldið
þið, að ástandið yrði í borginni, ef tíðarfarlð frá
1918 endurtæki sig núna eftir áramótin? Mundl
hitaveitan geta séð bæjarbúum fyrir eðlilegri UPP-
hitun í 20-30 stiga samfelldu frosti um fjögra tU
fimm vikna skeið? Er ekki kominn timi til að taka
til cndurskoðunar grundvöll hitaveitukerfisins?
— Stelnn
því sambandi nefna tilraun með
og
13. desember 1%7 - ALþÝÐUBLAÐIt)