Alþýðublaðið - 29.12.1967, Síða 9

Alþýðublaðið - 29.12.1967, Síða 9
Njósnari í misgripum DEN FORRYGENDE DANSKE I.YSTSPILFARCE i FARVER MORTEN GRUNWALD OVESPROG0E POULBUNDGAARD ESSY PERSSON IVIARTIIM HANSEN m.fl. INSTRUKTION: ERIK BALLING Bráðsnjöli ný dönsk gamanmynd í litum. , Sýnd kl. 9. ÓTTARYNGVASON héraðsdómslögmoSur MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA BLÖNDUHLÍÐ 1 • SÍMI 21296 BÍLAKAUP 15812 — 23900 Höfum kaupendur aS fleai- um tegundum og árgerSum af nýlegum blfrelðum. Vinsamlegast látiS skrá bti- reiðina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 58 yIS KauBará Simar 15812 - 2S90S. Hjólbarðaverk- stæði Vesturbæjar Annast allar viðgerðir á hjól- törðum og slöngum. Við Nesveg. Sími 23120. ÖKUMENN Látið stilla í tíma. Hjólastillingar Mótorstiiiingar Ljósastillingar Fljót og örugg þjón- usta. BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 Sími 13-100. launum fyrir þetta og orð Tonys voru lög. ei fyrir aftur, var það eins sem ungfrú að koma fram við mig eins og þú gerir. Þú verður að standa við hliðina á mér og horfa á hvað svo sem þér finnst um hlutina! Hann ók gegnum Shere á leið- inni til Guildford, og nam stað- ar fyrir framan fallegt hús með rauðu þaki. Hann tók hlægjandi um úlnliðinn á Irene og fór með hana inn í húsið. Garðurinn minnti á ævintýraland, konan, sem stóð í gættinni átti heima í ævintýri. Hún var lítil, augu hennar leiftruðu, kinnar henn- ar voru eplakinnar og hár henn- ar var snjóhvítt. — En gaman að sjá þig aft- ur, Tony! Hann hljóp til hennar, faðm- aði hana að sér og kyssti hana. Svo gretti hann sig framan í Ir- ene. — Komdu og heilsaðu Bridg- et frænku sagði hann. Horfðu á hana frænka og segðu mér, hvernig þér lízt á hana! Hún virti Irene vingjarnlega fyrir sér. — Segðu mér ekki hver hún er. Ég ætla að geta mér þess til sjálf. — Þú getur það ekki! hló Tony. Bridget frænka hallaði undir flatt. — Hún er úr móðurætt þinni, það sá ég strax. Hún er Chesterton. — Heyrðirðu þetta? spurði Tony hlægjandi. — Þú ert Chest- erton eins og mamma. — En dóttir hvers þeirra? sagði Bridget frænka. — Ekki er hún dóttir Eleanors því er hún er eldri og væri ekki svona falleg. Ekki er hún dóttir Art hurs. Ég á mynd af henni og Klara á aðeins þrjá syni, enga dóttur. — Ég skal hjálpa þér. Brid- get frænka. Hún er alls ekki skyld okkur. — Þú getur ekki gabbað mig þannig. Hve gömul er hún? — Það myndi hjjálpa mér.Hvenær áttu afmæli, vina mín? spurði Bridget frænka. — Hún er tuttugu og eins árs gömul og 'á afmæli sextánda febrúar sagði Tony, sem hafði frétt það allt í starfsmanna- haldi búðarinnar. — Þú heitir þó ekki Irene? spurði Bridget frænka eftir smá umhugsun. — Hvernig vissurðu það? ln-ópaði Tony. FJÓRTÁNDI KAFLI. — Segið honum það ekki, sagði Irene. — Hann veit ekki neit.t. — Hvað gengur á? spurði Tony. Hann leit reiðilega á Ir- ene. — Þú ert þó ekki skyld okkur eða hvað? Irene vissi ekki, hverju svara skyldi. en Bridget frænka bjargaði henni. — Manstu eftir næturgala- hreiðrinu frá því í fyrra, Tony? Það eru ungar í því núna. Farðu og líttu á þá og við I- rene hitum teið á meðan og það verður tilbúið, .þegar þú kemur heim aftur. Vertu nú ekki að rífast, farðu. .................................... íiiiiiiiiiiiiiitfiiiiiimiifmiiimuimiiiumiH -ni iiiuiiiifiiiiii;ti IIIIIUIIIIIUUHIIIHIIIIHIHIIIIIMIMIIIRMIHIIIIIIUHIIIIIUHIIIIIIUt 1 LAUSALEIKS- = BARNIÐ 13 ---------------------------- eftir I — J. M. D. Young ^ 111111111111111111 ii ii iii mi ni ti ii ii m m mimiiimmiimm iiiiiiiiimu 11111111111111111111 imi 111111111111111111111111111 iiiiiiiimiiiiiiiiuiiiiuiiiiimitii 111 tiiiiitiiiiiiimtiiiimiiiitimiim'^/ Bridget frænka fór með Ir- ene inn og þar settust þær nið ur. — Segðu mér, hvernig á því stendur að þú ekur utn Surrey með Tony Harridge. — Svo þér vitið, hver ég er! sagði Irene. — Vitanlega, það veizt þú líka sjáif. Á skírnarvottorðinu stend- ur, að þú sért dóttir Irene Bru- ton, en þú ert Cheston. Þú ert dóttir Emily. — Þú mátt ekki segja honum það, hvíslaði Irene. — Það veit móðir hans ekki heldur. — Og ég vil ekki, að hún fál nokkru sinni að vita það! — Ég held að ég kunni bara vel við þig, sagði gamla konan. Þú ert falleg, fallegri en Emily var á þínum aldri og hún þótti falleg. En þú kemur mér á ó- vart. Hvernig hittirðu Tony? Irene langaði minnst af öllu til að minnast á morðið á Frank Weston, en hún sagði gömlu kon- unni frá æskuárum sínum í „Galt- arhausnum” og hve illa henni hefði samið við Rod Bruton, Hún sagðist alltaf hafa þráð að sleppa að heiman. — Við rifumst voðalega, sagði hún, — og við mamma fórum bara. Við fórum til London og á leiðinni sagði mamma mér, hver ég væri. Nú er mamma ráðs- kona hjá Bramley Burt og við búum lijá' honum. Hann vill það helzt ekki, en ég kann vel við hann og ég vona .. hún and- varpaði og yppti öxlum. — Ég held, að mér lílist bara vel á þig, endurtók Bridget frænka. — En þú leikur þér að eldinum. Þú varst falleg, 'pegar þú varst lítil og ég grét fögrum tárum, þegar ég varð að skilja við þig. — Þér? — Já, ég! Ég hugsaði meira um þig en Emily! Hún ól þig af sér, og ég var piparmeyjan, sem allar áhyggjur fjölskyldunnar voru lagðar á. Ég fór í burtu á- samt Emily og var hjá henni, þangað til að þú fæddist, Það vissi enginn um það. Þú varst óskilgetin og það var erfitt að fá þig skrifaða barn hr. og frú Bruton. En þegar þú fæddist og ég hélt þér í faðmi mér var erfitt að sleppa þér. Emily, móðir þín leit ekki við þér. Ég sagði henni ekki heldur hvað ég hefði iátið skíra þig. Ég gerði mitt bezta til að fæðingin minnti hana mest á slæman draum. Og nú áttu heima hjá Bramley Burt? — Já, sem dóttir ráðskonu hans. — Hann var góður maður og ég hef alltaf kunnað vel við hann. Ég ætla að skrifa fáein orð til hans. Settu ketilinn í samband á meðan. Þegar Tony kom aftur, var bú- ið að leggja á borð og fyrir óvið- komandi hefði virzt sem þetta unga fólk hefði komið til að drekka te hjá eftirlætisfrænku sinni sem talaði og talaði og kom þeim báðum i gott skap. Það var ekki fyrr en þau óku heimleiðis sem Tony minntist á að eitthvað dularfullt væri við Irene. — Fæ ég ekki að vita, hvað er á seyði? spurði hann. — Það er bezt svona, Tony! Irene kenndi í brjóstj um hann og augu hennar fylltust tár- um. — Mér finnst leitt, að það skuli vera svona, hvíslaði hún. Seinna um kvöldið fór Irene með bakka með mjólkurglasi og smákökum á diski inn til Bram- ley Burt. Það var afsökun fyrir því að geta afhent honum bréf Bridget frænku. — Hvernig stóð á því, að þú heimsóttir Bredget Cheston? spurði hann. — Ég var í ökuferð með Tony Harridge og hann fór með mig til hennar. — Sagðir þú henni, hver þú ert? — Nei, hún gat sér þess til. Hann stökk reiðilega á fætur og krumpaði bréfið saman. — Þá fá allir að vita það! sagði hann. — Hún segir það ein- hverjum, sem segir öðrum það og eftir smástund veit öll Lond- on það! FIMMTÁNDI KAFLI, Með hverjum deginum varð fólk í Thickey Warren meira undrandi og fullt efasemda — Þegar Rod Bruton opnaði „Galt arhausinn” á kvöldin fjölgaði spurningunum sifellt. Loks tók hann ákvörðun. Hann gat ekki verið án Mary. Hann fór niður í kjallarann, lagði hrúgu af gömlu rusli yfir gröf Franks Westons, læsti og stakk lyklinum í vasann. En hann var ekki ártægður með þetta, heldur tók hann fram verkfærakassann sinn, boraði þrjár holur á kjall- arahurðina og skrúfaði skrúfur í þannig, að hurðin var föst vi® karminn. Hann talaði þvi næst við Tom Landon og bað hann um að líta eftir kránni fyrir sig og lagði svo af stað í bílnum sín- um. Tom Landon fannst skemmti- legt að líta eftir kránni af og til og hann hafði margsinnis óskað sér að eiga hana. Þar sem hvorkl Mary né Irene voru heima, var óhreint og hann fór að safna saman tómum kössum og flöskum og bar það að kjallaranum. Þegar hann kom þar.gað mcð íangið fullt, reiddist hann yfir að kjallaradyrnar voru læstar, en. það var ekki fyrr en hann ætlaði að snúa við og ganga upp aftur, sem hann sá, að dyrnar voru skrúfaðar aftur. Hann klóraði sér i hárinu. — Hann hefur ekki aðeins læst, heldur skrúfað dyrnar fast- ar lika, sagði hann hálfhátt við sjálfan sig. — Því í ókjörunum " hefur hann gert það? Eina svar- -... ið, sem hann vissi var, að Rod hefði falið eitthvað þar inni. Exi hvað? Rod Bruton ók til London snemma um daginn og beint að húsi frú Harridge í Hampstead. Þó hann heíði viljandi ákveð- ið stundina, hefði hann ekki verið heppnari. Hann ltom augna- bliki eftir að bíll Tony kom og þau sátu þar í framsætinu, Tony og Irene. Þegar guli billinn nam staðar, sat Irene enn og reyndi að fá Tony til að útskýra, hvers vegna hann hefði ekið með hana heim til sín. — Þú bauðst mér í ökuferð. — Já', hef ég ekki ekið með þig frá Regent Park til Hampstead? — Áttu við að við förum ckki lengra? — Það var nú ætlunin, viður- kenndí hann. — Mamma bað mig um að bjóða þér í te, en þú skalfc ekki ásaka hana, heldur mig. — Hana langar til að fá þig, en það er aðeins vegna þess, að einka- barnið hennar talar ekki um ann- að en þig. Hana langar til að 29. desember 1967 • ALÞÝÐUBLAÐIÐ §

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.