Alþýðublaðið - 07.02.1968, Qupperneq 4
Miðvikudagur 7. febrúar
Miðvikudagur 7. febrúar
Keppnin í hraðhlaupi á skautum verður vafalaust iörð og skemmtileg í Grenoble. Það verða Norð-
menn, og Hollendingar, Rússar og Svíar sem berj :st um verðlaunin. Hér eru skautamenn á æfingu
í Grenable.
ooo
HHUPID UORUNR HJO ÞEIM SEM HRFfí
REVNZIU í NOTHUN HENNBR
FRÁ CHAMONIX TIL . . .
Framhald af 1. síðu.
umir fjórir voru: Guðmundur
Guðmundsson, Jónas Ásgeirsson,
Magnús Brynjólfsson og Þórir
Jónsson. Fararstjóri íslenzka
flokksins var Einar B. Pálsson,
en þjálfari Hermann Stefánsson.
Jónas Ásgeirsson náði bezt-
um árangrj íslendinga, hann
varð 37. í skíðastökki af 49
keppendum. Svíum tókst naum
lega að skáka Norðmönnum í
stigakeppninni, hlutu 21 stig,
en Norðmenn 20.
Vetrarleikarnir 1952, sem háð
ir voru í Osló og nðgrenni voru
á margan hátt merkilegir. Met
þátttaka var í leikunum. tænlega
1000 keppendur frá 30 hjóðum.
Það sem mestan svip setti
samt á leikana, var hinn mikli
áhorfendafjöldi, sem fylgdist
með keppninni, því að hann var
meiri en á nokkrum fyrri Vetr-
arleikum. Það sannaði hinn
mikla áhuga Norðmanna á vet’--
aríþróttum. Alls komu 150 þús-
und áhorfendur til að fvlgjast
með stökkkeppninni í Holmen-
kollen. íslendingar sendu 11
keppendur, en þeir voru Ari
Guðmundsson, Ásgeir Eyjólfs-
son, Ebenezer Þórarinsson. Guna
ar Pétursson, Haukur Sigurðs-
son. ívar Stefánsson, Jón Krist
jánsson, Jón Karl Sigurðsson,
Matthías Kristjánsson, Odd Pét
ursson og Stefán Kristjánsson.
Leikarnir fóru fram 14. til 25.
febrúar. Norðmenn voru mjög
sigursælir í stigakeppninni og
hlutu 32,5 stig. en næstir voru
Bandaríkjamenn með 25 stig.
Hetja þessara leika var norski
skautahlauparinn Hjalmar Anl
ersen, sem hlaut gullverðlaun
7. Vetrarleikarnir- voru háðir
í bænum Cortina á Ítalíu 26.
janúar til 5. febrúar. Fram-
kvæmd leikanna tókst með á-
gætum. Enn fjölgaði þátttöku-
þjóðunum, þær voru 32 og sendu
um 1000 keppendur. Sovétríkin
voru nú í fyrsta sinn með flokk
á Vetrarleikum og fóru vel á
stáð, hlutu flest stig eða 32. Sví
ar voru í öðru sæti, en Norð-
menn 6. í röðinni. Átta íslend
ingar tóku þátt í leikunum í
Cortina, þau Jakoþína Jakobs-
dóttir, Einar Valur Kristjánsson,
Eysteinn Þórðarson, Jón Krist-
jánsson, Oddur Pétursson, Stef-
án Kristjánsson Steinþór Jakobs
son og Valdimar Örnólfsson.
Austurrískj skíðakappinn Toni
Sailer hlaut þrenn gullverðlaun
á þessum leikum.
Bandaríkjamenn sáu um Vetr-
arlejkana 1960, sem fram ióru
tvær síðustu vikurnar í febrú-
ar, en vettvangur þeirra var
Squaw Valley í Kaliforniu.
Alls kepptu um 1200 íþrótta-
menn frá 32 þjóðum á leikun-
um. Fjórir íslendingar tóku
þátt í iejkunum, þeir Eystejnn
Þórðarson, Jóhann Vilbergsson,
Kristinn Benediktsson og Skarp
héðinn Guðmundsson.
Mikia athygli á Vetrarleikun
um vöktu Sixten Jernberg frá
Svíþjóð í skíðagöngunni og
Knut Johannesson, skautahlaup
ari frá Noregi. Sovétríkin sigr
uðu með yfirburðum í stiga-
keppni leikanna í Squaw Vall-
ey, en Bandaríkjamenn voru í
öðru sæti.. Eysteinn Þórðarson
náði bezta árangri íslendinga
á Vetrarleikunum varð 3 2. í
tvíkeppni (svigi og stórsvigi).
Níundu Vetrarleikarnir voru
háðir í Innsbruck í Austurríki
og þeir hófust 29. janúar. Alls
voru keppendur um 1300 frá 37
þjóðum. ísland átti fjóra kepp
endur á leikunum, þá Árna Sig
urðsson, Jóhann Vilbergsson,
Birgi Guðlaugsson og Þórhall
Sveinsson.
Sovétríkin hlutu flest stig í
greinum karla og kvenna sam-
anlagt, en Norðmenn voru betri
í karlagreinum.
ií dag verður m. a. keppt í bruni á Olympíuleikunum í Grenoble.
’Helzta sigurvon Frakka er Jean CiaudeJtilly, en hann sezt liér á
mynd'inni.