Alþýðublaðið - 09.02.1968, Side 2

Alþýðublaðið - 09.02.1968, Side 2
(2) ÍÞRÓTTABLAÐ Fimmtudagur 8. febrúar ' mm Hér er yfirliísmynd frá Grenoble tekin að sumarlagi, FLUTNINGAR ÁHORFENDA innan svæðisins, þar sem vetrarólympíuleikarnir fara fram : Sérstök stofnun annast flutning áhorfenda á vetraról- ympíuleikunum frá Grenoble til þeirra staða, þar sem keppt er hverju sinni. Stofnun þessi nefnist „Transolympe.” „Transolympe” hefur 800 vagna, sem geta flutt hver um sig 45 farþega. Þeir eru búnir sérstökum tæknilegum þægind- um með tilh ti til þessa hlut- verks. Transolympe er ábyrgt fyrir öllum mannflutningum inn- an ólympíusvæðisins á meðan Vetrarolympíuleikarnir fara fram. í Grenoble fara áhorfendur 1 þessa vagna við gríðarmikla vagnstöð, sem byggð hefur verið nálægt Olympíu-brautarstöðinni. á gamla flugvellinum í Grenoble. Geysistórt svæði, þar sem áður- greíndir vagnar hafa aðalstöðv- ar, hefur verið útbúið í þessu til- liti nálægt vagnstöðinni, stræt- isvagnar á leið til og frá Gren- oble og sömuleiðis lestir, en reist hefur verið ákveðin braut- arstoð í tilefnj vetrarólympíu- leikanna. Á hverjum stað, þar sem keppt er, hafa verið byggð- ar vagnstöðvar. Við þessar stöðv- ar fara áhorfendur í og úr vögn- unum. A meðan leikarnir standa yfir eru skipulagðar ferðir í lofti fyr- ir hjúkrunarfólk, lögréglu og aðra þá, sem gæta öryggis á ól- ympíusvæðinu. ★ FLUTNINGAR íþróttamanna og starfsmanna. Renault verksmiðjurnar, sem eru ríkisreknar, hafa lánað fjöl- marga hvíta eða ljóslita bíla til að annast nauðsynlega flutn- inga starfsmanna, íþróttamanna, blaðamanna og tæknimanna. Þessir bílar og fjölmai-gir aðr- ir — eða 830 bílar alls :— sjá um nauðsynlega flutninga bæði til og frá Grenobie og á milli þeirra staða, þar sem keppt er hverju sinni og svo innan svæð- anna, þar sem keppt er. ★ EINKABÍLAR : Umferð einkabíla til og frá þeim stöðum, sem keppt er á, er stjórnað af lögreglu. Yfirvöld hafa áskilið sér rétt til að loka alveg fyrir alla umferð einka- bíla til þeirra staða, þar sem bú- ast má við mestu viðburðum Vetrarólympíuleikanna 1968. Er það gert til þess að forðast al- gjört umferðaröngþveiti á þess- um stöðum. Fjölmörg bílastæði hafa verið gerð víðs vegar um ólympíu- svæðí í Grenoble. Nú eru alls bílastæði fyrir 23.200 bíla í Gren- oble. Bandaríska stúlkan Pegg; meistari í listhlaupi á skaui um loknum nær tryggt sér arleikunum í Grenoble- Þá fram átti að fara í gær, fi Peggy Fleming er frábær list- hlaupari og yfirburðir hennar eru gífurlegir. Hún hefur hlotið 77,2 stigum meira en næsti keppinaut-

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.