Alþýðublaðið - 11.08.1968, Síða 13
Hljóðvarp og, sjónvarp
Sunnuðagur, 11. 8. 1968.
SjónvarpiS
18.00 Helgistund.
Séra Jón Bjarman.
18.15 Hrói hottur.
íslenzkur texti: Ellcrt Sigur.
björnsson.
18.40 Lassie.
íslenzkur texti: Ellert Sigur.
björnsson.
19.05 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Samleikur á tvö píanó.
Gísli Magnússon og Stcfán Ed
elstein leika „Scaramouch" eft
ir Milhaud.
20.30 Myndsjá.
Umsjón: Ólafur Ragnarsson.
21.00 Maverick.
Aðalhlutverk: Jack Kelly.
íslcnzkur texti: Kristmann Eiðs
son.
21.45 Frúr og fégræðgi.
Brezk sjónvarpskvikmynd
gerð eftir þremur sögum
franska rithöfundarins Guy
de Maupassant. Aðalhlutvcrk.
Milo O Shea, Bryan Pringle,
Barbara Hicks, Clare Kelly,
Kcith Marsh og Elizabeth Beg
ley.
Leikstjóri: Gordon Flemyng.
íslenzkur texti: óskar Ingimars
son.
22.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur, 11. ágúst.
8.30 Létt morgunlög.
Pro Arte hljómsveitin lcikur
brczka tónlist frá okkar
öld.
8.55 Fréttir. Utdrátur úr forustu
grcinum dagblaðanna.
9.10 Morguntónleikar.
(10.10 Veðurfregnir).
a. Orgelverk cftir Bach.
Helmut Walcha leikur Fanta-
síu í G.dúr og Passacaglíu i
c_moll.
b. Concerto grosso i A.dúr op.
6 nr. 11 eftir Handel
Hátíðarhijómsveitin í Bath
leikur; Ychudi Menuhin stj.
c. Tilbrigði op. 56a eftir
Brabms um stcf eftir Haydn.
Sinfóníuhljómsveit Lundúna
leikur; Pierrc Monteux stj.
d. Fiðlukonsert nr. 2 í g.moll
op. 63 eftir Prokofjeff.
David Oistrakh og liljómsveitin
Philharmonia lcika; Alceo Galli
era stj.
11.00 Hátíðarmessa i Hóladómkirkju.
Hljóðrituð á Hólahátíð s.l.
sunnudag. Biskup íslands herra
Sigurbjörn Einarsson, prédikar.
Með honum þjóna fyrir altari
séra Ingþór Indriðason i Olafs
firði og séra Sigfús J. Árna-
son á Miklabæ.
Kirkjukór Ólafsfjarðarkirkju
syngur. Söngstjóri og organ-
leikari: Magnús Magnússon.
Stólvers syngur Ólafur Þ. Jóns
son ópcrusöngvari við undir
lcik Ragnars Björnssonar. Á
undan messunni vígir biskup
kirkjuklukkur, sem kirkju
málaráðherra Jóhann Hafstcin,
afhendir sem gjöf frá ríkinu.
J2.15 Hádegisútvarp.
Dagskráin. Tónleikar. 12.25
Fréttir og veðurfrcgnir. Tilkynn
ingar. Tónleikar.
13.30 Miðdegistónleikar.
Sinfónía nr. 3 eftir Gustav
ðlahler.
Flytjendur: Maureen Forrestcr
aitsöngkona, kvennakór
hollenzka útvarpsins, drengja.
kór Willibrords kirkjunnar í
Amstcrdam og Concertgebouw
hljómsvcitin. Stjórnandi: Bcrn
ard Haitink.
15.10 Endurtckið efni.
a. Laufey Sigurðardóttir frá
Torfufelli les kvæði eftir Hjalta
Finnsson bónda í Ártúni í Eyja.
firði og einnig sín eigin
(Áður útv. 16. maí s.l.)
b. Gissur Ó. Erlingsson flytur
frásöguþátt: „Með Selfossi yfir
hafið“. (Áður útv. 12. jan s.l.)
15.40 Sunnudagslögin.
16.50 Veðurfrcgnir.
Útvarp frá Akureyri. Akureyr
ingar og KR.ingar keppa í
knattspymn.
Sigurður Sígurðsson lýsir síðari
hálfleik í keppni stigahæstu
liðanna í islandsmótinu eins
og stendur.
17.40 Barnatíminn:
Einar Logi Einarsson stjórnar.
18.00 Stundarkorn með Victor Iler.
bert. Hljómsveit Fredcricks
Fcnnclls leikur nokkur lög.
19.30 Einsöngur í útvarpssal:
Erik Warburg frá Danmörku
syngur við undirleik Guðrúnar
Kristinsdóttur.
a. Tvö Iög eftir Peterson.Berg
er: „Nár jag för mig sjalv i
mörka skogen gaar“ og
„Blandt skogens höga furu-
stammer.“
b. „Sa tag mitt hjerte" eftir
Hugo Alfven.
c. Aría úr „Faust“ eftir Gou
nod.
d. Aría úr „Perluköfurunum"
eftir Bizet.
e. Aría úr „Fedoru" cftir Gior
dano.
f. Turnaarían úr „Toscu" eftir
Puccini.
19.50 Kirkjulcg vakning, kirkjuleg
endurreisn.
Séra Kristján Róbertsson á Siglu
firði flytur erindi á Hólahátíð
s. 1. sunnudag.
Á undan erindinu flytur ávarp
formaður Hólafélagsins, séra
Þórir Stephensen á Sauðárkróki.
20.20 Píanósónata nr. 5 i C-dúr eft
ir Baldassare Galuppi.
Arturo Benedetti Michelangelo
leikur.
20.35 Spunahljóð.
Þáttur í umsjá Davíðs Oddsson
ar og Hrafns Gunnlaugssonar.
21.10 Lög af léttu tagi.
Hljómsveitir Kurts Rclifelds
og Gerhards Wehners leika.
21.40 Þá uxu blóm.
Vilhjálmur frá Skálholti les
nokkur kvæða sinna.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.15 Danslög.
23.25 Fréttir í stuttu máli.
Mánudagur, 12. 8.
20.00 Fréttir.
20.30 Apaspil.
Skemmtiþáttur The Monkeys.
íslenzkur texti: Júlíus Magnús-
son.
20.55 Dropi í hafi.
Mynd þessi fjallar um sjö.
fuglana, sem lifa við strend
ur Perú. Þcim hefur fækkað
mjög á undanförnum árum og
kenna sumir þar um togurun
um og hinni miklu fiskvinnslu
Perúmanna, en aðrir telja að
þar liggi fleiri orsakir að
baki, m. a. breytingar á haf.
straumum.
Þýðandi og þulur: Jón B. Sig
urðsson.
21.20 Hljómleikar unga fólksins.
Leonard Bernstein stjórnar
Fílharmóníuhljómsveit New
York borgar.
íslenzkur texti: Ilalldór Har.
aldsson.
22.10 Haukurinn.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds.
fslenzkur texti; Kristmann
Eiðsson.
Myndin er ekki ætluð börnum.
23.00 Dagskrárlok.
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir. Tónlcikar. 7.30
Fréttir. Tónleikar. 7.55 Bæn.
Séra Ólafur Skúlason. 8.00
Morgunleikfimi: Þórey Guð
mundsdóttir fimleikakennari
og Árni ísleifsson pianóleikari.
8.10 Tónleikar. 8.30 Fréttir og
veðurfregnir. Tónleikar. 8.55
Tilkynningar. Tónleikar. 10.05
Fréttir. 10.10 Veðurfrcgnir. Tón
leikar. 11.30 Á nótum æskunn
ar (endurtckinn þáttur).
12.00 Hádegisútvarp.
Dagskráin. Tónleikar. 12.15 Til.
kynningar. 12.25 Fréttir og veð
urfregnir. TUjfynningar. Tón.
leikar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.40 Við, sem heima sitjum.
Inga Blandon les söguna „Einn
dag rís sólin hæst“ eftir Rum.
er Godden í þýðingu Sigurlaug
ar Björnsdóttur (31).
15.00 Miðdegisútvarp.
Fréttir. Tilkynningar. Létt lög.
Paul Weston. Dave Brubeck,
Mike Leander og Henry Man.
cini stjórna hljómsv. sinum.
16.15 Veðurfregnir.
íslenzk tónlist.
a. Tónlist eftir Pál ísólfsson
við „Veizluna á Sólhaugum".
Sinfóniuhljómsvcit fslands leik
ur; Bohdan Wodiczko stj.
b. Hljómleikar eftir Jón Leifs
við „Galdra Loft“. Sinfóníuhljóm
sveit íslands og félagar úr
Þjóðleiklmskórnum flytja; Páll
P. Pálsson stj.
17.00 Fréttir.
Tónlist efUr Mozart.
Fílharmoníusveit Berlínar leikur
Sinfóniu nr. 38 (Prag-hljóm.
kviðuna); Karl Böhm stj.
Philippe Entremont leikur
Píanósónötu í Es.dúr (K282)
17.45 Lestrarstund fyrir litlu börnin.
18.00 Óperettutónlist.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfrcgnir. Dagskrá kvölds.
ins.
19.00 FrétUr.
Tilkynningar.
19.30 Um daginn og veginn.
Haraldur J. Hamar ritstjóri tal
ar.
19.50 „Fagurt er á sumrin.“
Gömlu lögin sungin og leikin.
20.15 Yaltaráðstefnan 1945.
Jón Aðils les kafla úr ævi-
sögu Winstons Churchills eftir
Thorolf Smith.
20.40 Mcndclssohn og Tsjaíkovskí.
a. Konsertforleikur op. 27 eftir
Mendelssohn. Fílharmóniusveit
Vínarborgar leikur; Karl Minc
hinger stj.
b. „Rómeó og JúUa“, fantasíu-
forleikur eftir Tsjaíkovskí.
Iiljómsveitin Philharmonia leik
ur; Carlo Maria Giulini stj.
21.10 „Hið versta sem fyrir hann
hafði komið“, smásaga eftir AI
an Patoi. Málfríður Einarsdótt
ir íslenzkaði. Sigrún Guðjóns.
dótUr les.
21.20 F.insöngur: Rita Gorr syngur.
Óperuaríur eftir Mascagni,
Saint- Saens, Gluck og Wagn.
er.
21.45 Búnaðarþáttur.
Jónas Jónsson ráðunautur talar
um fóðurverkun.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
.22.15 íþróttir.
Örn Eiðsson segir frá.
22.30 Frá tónlistarhátíð í Helsinki.
Sinfóniuhljómsveitin þar I borg
leikur. Stjórnandi; Jorma
Panula.
a. Sinfónia nr. 99 í Es.dúr eftir
Haydn.
b. „Anadyomene“, efUr Einoju.
hani Rautavara (frumflutUing
ur).
23.10 Fréttir í stuttu máli.
Bréfakassi
Framihald af 2. síðu.
farrými á M/S Esju væru eins
og verstu klefar á þriðja far-
rými í járnbrautarlesum er-
lendis, en þar værj víst ekki
vöntun á lofti.
Það er ef til vill hægt að bjóða
íslendingum upp á allt, þeir eru
nógu fínir í fötunum, en um-
gengni þeirra og sóðaskapur er
fyrir neðan allar hellur. Á sal
ernum skipsins hengu uppi hand
klæði, sem voru eins og gólf-
tuskur eða eins og skóþurrkur
og ekkj einu sinni skolað niður
' úr salemisskálinni eftir notkun
Þetta var mín fyrsta ferð til
Vestmannaeyja og verður sú síð
asta með M. S. Esju. Fólkið,
sem ég heimsótti í Vestmanna-
eyjum, var mjög vingjarnlegt og
gott og móttökurnar voru mér
ógleymanlegar.
— Ég hef ferðazt með M/S
Gullfossi og er það allt annað;
þar fær maður það sem maður
borgar fyrir, en á M. S. Esju
voru klefarnir verri en fanga-
klefar, því fangarnir fá þó
hreint loft til þess að anda að
sér.
Þá vorum við svikin um Surts
eyjaferð, sem var á dagskránni,
en menn vita hve fljótt tíðarfar
breytist hér á landi og áttum
við að nota tækifærið að koma
við á leiðinni til Vestmanna-
eyja, því á leiðinni heim var
þoka svo ekkert var hægt að
sjá, en hljómsveit um borð, sem
þurfti að flýta sér í land til þess
að spila á dansleik um kvöldið
og var það álitið þarfara.
Heilbrigðiseftirlitið ætti að at
huga klefa og aðbúnað farþega
á M. s. Esju.
Svanhild Guðmundsson.
Opna
Framhald af bls. 8.
— Eruð þið ekki með einhverj
ar hugmyndir um nýja mögu-
leika?
— Það eru uppi hugmyndir
um að reyna að auka bátaflot-
ann, fá stærri bát, helzt 250 tn.
skip, en hvort staðurinn ræður
við það ævintýri vil ég láta ó-
sagt fyrst um sinn. Slíkt skip
- væri þá látið vera þar sem afl
inn er beztur hvort sem er fyrir
sunnan eða norðan, og þá aðal-
lega verið með troll.
— En eruð þið ekki að hugsa
um að reyna við rækju eða eitt-
hvað þess háttar.
—Það hefur verið ágæt rækju
veiði á Hrútafirði að undanförnu
en ísinn hamlaði auðvitað í vor
að hún nýttist til fulls. Hún er
unnin í Hólmavík. Ég mundi telja
að það væri engin frágangssök
að bátar héðan gætu stundað þá
veiði, en til þess þyrfti að hafa
hér skilyrði til að verka hana og
nýta til fulls. Bezt væri að
sjóða hana niður, en við höfum
ekki niðursuðu. Við höfum held
ur aldrei komið nálægt rækju.
— Eitthvað fleira úr atvinnu-
málum?
__ Hér skapast náttúrlega
nokkur vinna af því að þetta er
bezta höfnin við Húnaflóa. Hér
er oft skipað upp miklu af vör-1
um fyrir sveitirnar. Hér er líka
nokkur iðnaður, aðallega verk-
stæði, vélaverkstæði og trésmíða
verkstæði. En þetta er fyrst og
fremst sjávarþorp, reist vegna
þess að menn trúðu á síld sem
aldrei kom.
— Hvernig er afkoma sveitar
félagsins?
— Það er nú saga út af fyrir
sig. Sá útsvarsstigi sem er í gildi
nægir ekki nema að hálfu leyti,
miðað við þarfir sveitarfélags-
ins. Ef við notuðum hann óbreytt
an fengjum við ekki nema helm
inginn af því sem sveitarfélagið
þarf. Það sýnir hve tekjustofnar
eru hér geysilega miklu lægri
heldur en t.d. á Suðurnesjum og
Vestmannaeyjum þar sem gefinn
er 10-20% afsláttur af útsvars-
upphæðum sem fengjust ef stig-
inn væri notaður óbreyttur. En
við höfum þurft að bæta 20%
við og þó vantar helming.
— Þetta talar nú sínu máli.
— Meðallaun voru hér fyrir
tveimur eða þremur árum sam
kvæmt athugun milli 80 og 90
þúsund á mann, á sama tlma og
ég held að þau hafi verið í
Grindavík og Vestmannaeyjum
um 250 þúsund. Þetta sýnir hve
við erum langt á eftir. Hins veg
ar má segja að það hjálpar fólki
hér mikið að það á yfirleitt sín
hús, og skuldar ekki mikið í
þeim því það er það langt síðan
þau voru byggð. S. H.
BREYTTUR VIÐTALSTÍMI
Frá og með mánud. 12. ágúst 1968 vairður viðtalsitími
minn á læknastofu kl. 2-3,30 alla virka daga, nerna laugar-
daga kl. 1-2. Auk þess kl, 5-6 á fimmtudögum.
Símaviðtalstími kl. 1-2 í síma 11680 (ekki 20119).
Stefán Bogason, læknir
Auglýsingasíminn er 14900
11. ágúst 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |3'