Alþýðublaðið - 17.08.1968, Qupperneq 1
ÚTVARPSVIKAN
18.-24. ágúst
1968
Sunnudaginn 18. ágúst kl.
20.20 syngja hjónin Sieglinde
Kahman og Sigurður Björns-
son lög úr óþerettum.
Sigurður Björnsson hóf söng
nám sitt hjá ýmsum kennurum
hérlendis. Árið 1956 hélt' hann
til Miinchen, og stundaði nám
við tónlistarháskólann þar í 6
ár.
Strax að loknu námi var hann
ráðinn við óperuna í Stuttgart,
en mun nú að hausti hefja starf
við óperuna í Kassel, þar sem
hann er ráðinn sem fyrsti lýr-
ískur tenór.
Sigurður Björnsson hefur
sungið í flestum löndum Evrópu
og á Norðurlöndunum. Má og
nefna að á síðastliðnu ári fór
hann sem einsöngvari með
Karlakór Reykjavíkur á heims
sýninguna í Montreal.
Sigurður Björnsson hefur
sungið undir stjórn margra
frægra liljómsvieitarstjóra og
með frægum söngvurum, má
þar nefna hljómsveitarstjór-
ann Carl Böhm og ítalska
tenórinn Mario del Monaco.
Siegiinde Kahmann er fædd
í Austur-Þýzkalandi, en flýði
vestur fyrir árið 1947, þar er
henni var ekki heimilað söng-
nám. Hún stundaði nám við
tónlistarháskólann í Stuttgart
í 4 ár, en var síðan boðin staða
við óperuna í Stuttgart, strax
að löknu námi.
Sieglinde Kahmann hefur
sungið viða um lönd, m.a. 1
Frakklandi, Egyptalandi og á
tónlistarhátíðinni í Salzburg.
Hún hefur haft mörg stór
hlutverk með höndum, og má
þar nefna Pamínu í Töfraflaut-
unni og Adele í Leðurblökunni.
1