Alþýðublaðið - 10.12.1968, Síða 10

Alþýðublaðið - 10.12.1968, Síða 10
10 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 10. desember 1968 HEYRT & SÉÐ Hin þrigrgja vikna gamla Hazel Duncan vóg rétt tæp 1400 grömm þegar hún fæddist. ÞaS varð að pakka hana inn í alúminíumpappír til að halda á henni hita. Hér er litla telpan, greindarleg að sjá; í örmum hjúkrunarkonu. Drukku klóróform og lentu I dauðans grelpum Við erum gamlir drykkju- menn og hefðum átt að vita, að þetta var hættulegur drykk ur, sagði 57 ára gamall maður, sem stal fyrir nokkfcu flösku með klóroformi, sem innihélt etanol, og bauð nokkrum félög um sínum að smakka. Þeir voru allir fluttir á sjúkrahús, og var jafnvel tvísýnt um líf sumra þeirra. Maður þessi var ákærður fyrjr þjófnað, 'en hann vill milda á- kæruna með því að hann vísaði lögreglunni á flöskuna með því, sem eftir var af klóróforminu, svo auðveldara værí að bjarga mönnunum. Maðurinn sagðjst hafa farið út í búð að kaupa líkjör þennan dag. Hann stanzaði í gangi apót- eks nokkurs og hitti þar eina starfsstúlkuna, sem spurði hann, hvað hann væri að gera þar. Hanþ svaraði, að hann ætti að vinnft niðri í kjallara, og til þess að sannfæra stúlkuna, hélt hann áfram niður í kjallarann þar til hann kom að hillu þar sem marg- ar flöskur stóðu í röðum. Ég tók eina, sem hafði grænan miða, stakk hennj í vasann og fór út. Þar sem ég var gler- augnalaus, gat ég ekki lesið það, sem stóð á miðanum, en bað ung- an mann, sem sat í bil fyrir ut. an apótekið að lesa það fyrir mig. Hann sagði, að þar stæði spritt, blandað með etanoli. Seinna blandaði ég hluta af þessu með vatni og faldi leifarn- ar. Síðan hitti ég nokkra kunn- ingja mína, sem ég bauð að smakka. Tjl að sýna, að þetta væri hættulaust, drakk ég fyrst. Ég var með tvær flöskur, í ann- arrj var óblandað klóróform, og vegna mistaka rétti ég einum kunningja mínum þá flösku. Hann fékk sér góðan sopa, en féll síðan í götuna. Ég hélt að hann hefði bara dáið venjuleg um brennivínsdauðdaga og vildi Framhald á 14. síðu. Fallegasta stúlkan í Eng- landi, sú mest myndaða, hæst launaða og frægasta fyrirsæta heims, er Jean „Rækja” Schrimpton. (Eftirnafnið Schr impton þýðir rækja). Hún er óskastúlka ljósmyndaranna og í ágústhefti Vogue eru mynd- ir af hennj á 11 síðum blaðs- ins. Þessi fræga fyrirsæta er fædd í High Wycombe 6. nóv. 1942. Faðir hennar starfaði þá í brezka flughernum, en átti einnig bændabýli í Burn- ham Beeches. Jean ólst upp sem sveitastúlka og hafði dá læti á hestum og hundum. Hún átti sina eigin smáhesta og tók þátt í kappreiðum. Hún segjr að fyrstu verðlaun. in, sem hún vann í kapp- reiðunum, hafi vakið hjá sér meiri gleði en fyrsta forsíðu- myndin í Vouge. Hún gekk í st. Bemhards-klausturskól- ann í Sough og eftir skóla- gönguna byrjaðj hún á einka- ritaranámskeiðí. Það var 6 mánaða strit að ná 35 orðum á mínútu, svo að hún gafst upp. Hún taldi foreldra sína á' að leyfa sér að taka þátt í námskeiði fyrir sýningarstúlk ur. Þar var henni sagt að lík- lega hentaði henni bezt að vera „lifandi model”, en sjálf vildi hún helzt verða Ijósmyndafyrirsæta. Hún var kynnt fyrir umboðsmanni, en hann sagði að hún líktist hrossi. Þá byrjaði Jean að hlaupa milli myndastofanna; dag einn hitti hún ungan ljósmyndara, sem var ný byrjaður að taka myndir fyr- ir Vouge. Fyrjrsætan, sem hann hafði pantað, brást á síðasta augnabliki og Jean fékk starfið. Samstarfið tókst vel. Daily Express tók myndirnar til birtingar og þar með Var „Rækjan” dottin í lukkupott- inn. Nú eru liðin 7 ár frá þess- um atburði og í dag vinnur hún sér inn 8.500 krónur á klst. sem fyrirsæta og þegar hún er á sýningarferðum í Bðrum löndum fær hún allt að 100 þúsund krónum á dag. Rækjan, segir umboðsmað- ur hennar er góð og falleg stúlka, óvenjulega heilsteypt og hún veit hvað hún vill og hvað hún vill ekki. Hún talar lágt, næstum hvíslandi, en það þýðir ekki að hún hafi ekkj sína skoðun á málunum. Jean telur það heimskulegt af konum að hafa áhyggjur af pilslengdinni. Sjálf getur hún ekki þolað að fara í búðir, hefur ekki næga þolinmæði. Ég máta eitt og annað, segir hún, ef það passar ekki, þá gefst ég upp á því. í frístund- um sínum gengur Jean mest í síðbuxum, og sportskyrtu, berfætt og með band um sítt hárið. Stutta tízkan er eigin- lega hennar uppfinning. Þag gerðist með þeim hætti að hún fékk sér kjólaefni, henni fannst þau ekki vei'a nógu góð, og kjól- SVIÐSLJOSI: fc Frægasta fyrirsæta heims... ... og sú bezt launaða arnir ekkert sérstakir á að líta. Svo hún reyndi að hressa upp á útlit þeirra með því að klippa neðan af pilsun- um. Fólkið í Melbourne varð stórhneykslað og blöðin skrif. uðu um hræðilega tízku. Þeg- ar hún kom til London fékk tízkufrömuðurinn Mary Qu- ant áh.uga á málinu og varð mjög hrifin af þessu fyrir- brigði. Þannig byrjaði það. Fyrsta utanlandsferð Jean var fyrir fyrirtæki í Ham- borg. Síðan hefur hún sýnt fatnað í Frakklandi, Kanada, Grikklandi, Marokó, Ameríku, séu nefndir. Nokkur ár í röð svo aðeins nokkrar stærðir var hún kjörin vinsælasta sýningarstúlka Englands. í London hefur Jean keypt sér stórt hús í Viktoríustíl, en síðari 1967 hefur hún dvalið mest í Ameríku. Hún hefur samt alltaf heimþrá og kemur til London a.m.k. annan hvem mánuð til að heimsækja for- eldra sína. Jean hefur fest kaup á' landssvæðj á eyju í Indverska hafinu, mest til að festa peningana, en hún hef. ur aldrei komið þangað. Síð- astiiðið vor lék hún í sinni fyrstu kvikmynd. Myndin fékk heldur lélega dóma og leikstjórinn, Peter Watkins, sagði, að „Rækjan” væri enn- þá móðguð við gagnrýnend- urna og jafnframt leið yfir frammistöðu sinni. Jean held- ur því fram að hún hafi ekki hæfileika sem leikkona, og hefur heldur engan áhuga á að verða það. Þó getur verið að hún reyni aftur, ef hún fær hlutverk sem henni líkar og leikstjóra, sem hún treyst- ir. Því má bæta við að ekki hefur vantað tilboðin. í september tók brezkur blaðamaður eftir því að Jean bar hring á baugfingri, en hún hélt fast við að það það merkti ekkert sérstakt, hún tryði ekki á trúlofanir. Samt héldu menn einu sinni, að hún myndi giftast David Baily, ljósmyndaranum sem uppgötvaði hana, en sú róm- antík endaði fyrir fjórum ár- um. Þá gerðist hún vinstúlka leikarans Terence Stamp, en það samband lognaðist líka út af. í dés. í fyrra var Jean orðuð við ameríska ljósmynd- arann Jordan Kalsus en ekki lítur út fyrir að „Rækjan” hafi nokkur áform um að gift- ast. Hún er nú 26 ára. — Ég trúi á hjónaband að lokum, segir hún, bara ekki ennþá.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.