Alþýðublaðið - 31.12.1968, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 31.12.1968, Blaðsíða 12
A wgmM) } r : (r ! íiíkl: VIÐ MOTMÆLUM Ár hinna mörgu mótmæla er bráðum á enda, en mótmæli viljum við þó að endingu senda til frekari áherzlu guði og góðum mönnum, þótt guð og menn séu sjálfsagt á kafi í önnum. Við höldum okkur við mikilsverðustu málin, en mótmæli eru í rauninni lífið og sáli, í baráttu presta og peláta af ýmsu tagi og pipar og salt í okkar þjóðfélagi. Við mótmælum allskonar málningarkrassi á veggjum og misnotkun jafnt á nýjum sem gömlum eggjum og hverskonar setum - ágötum og gatnamótum, en gert er þá ráð fyrir skepnum á tveimur fótum- ■m Við fordæmum innbrot og útbrot af sérhverju tagi, en einkum mótmælum við og sér í lagi, að viðvaningsflón skuli iðka þá íþrótt að stela, sem alveg skortir þá kunnúttu, er þarf til að fela. Við mótmælum reykvískum rollum, hundum og köttum, og reyndar fljúgandi diskum frá öðrum hnöttum, sem hér eru á ferð og flækingi út og suður og flestum til leiðinda, réttnefndur ófögnuður. Og skyrinu nýja við mótmælum, mysunni og súrnum, því margsinnis hefur það komið upp úr dúmum, að þetta er óæti og eitur í maga og görnum á ungum sem gömlum, fullorðnum jafnt sem börnum- í laganna nafni við mótmælum mótmælagöngum manna sem dýra, bæði stuttum og löngum, en þó mætti veita sauðfé í heimahögum hópgönguleyfi á stundum með sérstökum lögum- Við mótmælum hverskonar meiðingu og spörkum hörðum á milli fóta á göfugum laganna vörðum og erum þess fýsandi að friðlýsa viðkvæma bletti og framfylgja til hins ýtrasta lögum og rétti. Lómur. Árið líður i ðlddnna skaut Þegar árjð líður í aldarma skaut fyrir fullt og allt, kepp ast menn við að skjóta í loft upp desemberkaup.nu sínu, eða þá janúarkaupinu sínu, Ihafi þeir tekið út fyrirfram, börnin keppast við að brenna rusli og allir keppast við aö halda uppá áramótin. Skipin flauta í höfninni og í útvarp inu fáum við að heyra hve mörg skip hafi siglt inn og út um hafnarkjaftinn á árinu, ítem pistil um kal í túnum fyrir norðan. Þegar árjð líður í aldanna skaut fyrir fullt og allt, kepp ast vertarnir við að skenkja glaumgosum í glösin og sumir líða inn í nýja árið á vængj- um óminnishegrans. Og svo eru það börnin í Hafn arfirði sem velta bílum og sprengja sprengjur. Vonandi láta þau ekki heldur á sér standa. Þegar árið líður í aldanna skaut fyrir fullt og allt, kepp ast allir við að vona að nýja árið verði betra en hjð fyrrR, því mikið vill meira og aldrei er nokkur mannskepna á. nægð með hlutskipti sjtt. Og svo eru allir nýjárskossarnir, smjtberar innflúensunnar miklu. Þegar árið 1968 líður í ald anna skaut fyrir fullt og allt þá tekur vjð árið 1969. Fróð ir menn segja að það ártal sé nokkuð merkilegt, því sama sé hvort það snýr rétt eða á hvolfi, nema hvað ártalið 6961 komi upp ef það er á hvolfi. Segja þeir einnig að þeirri tölu séu tengd mikil undur og nokkrir hafa lesið úr stjörnunum hvað það boði okkur íslendirigum. Satúrnus V. Plútó, himin- tunglaspámaður Bak-síðunn- ar, hefur les.ð út úr himin- tunglunum hvernig árið 1969 verður ökkur íslendingum og verður ekki annað sagt en menn hafi efni á því að brosa. Satúrnus segir: ,Árið 1969 verður merki- legt ár í íslenzkri sögu. Síld Og nú er svo komið um þessi áramót að enginn þorir leng- ur að óska öðrum góðs geng- is veður þá um allan sjó um sumarið og mikil verðhækk- un verður á íslenzkum sjávar afurðum á heimsmarkaðinum Togarar fylla sig af þorski hver í kapp við annan og raunverulega verður ekki séð fyrir endann á því ofsa magni fiskjar, er úr sjónum strevmir áö árinu. íslenzkar iðnaðar- vörur fá mjög skyndilega und ir fótinn og öðlast mikla frægð erlendis fyrir atbejna ferða- manna, sem verða fleiri en elztu menn muna. Gull fjnnst og olía í sex fjallgörðum víðs vegar um landið og postulin í einum. Álít ég að meðalfall þungi íslendinga hækki um 6 kíló á árinu. Loks skal þess getið að sennilega finnast salt fjskmið í Kollafirði í apríl”. ew 'O !-< PH 71 - I O 1/3 K3 K3 xn u u a "3 & a> eú w «2 •55 s s? O £ Nýjársmorgun

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.