Alþýðublaðið - 21.02.1969, Blaðsíða 3
ALÍ-ÝÐUBLAÐIÐ 21. febrúar 1969 3
Björgvin Guðmundsson í ræðu á borgarstjórnarfundi i gær:
NAUÐSYN AÐ
TOGARAFLOTA
Reykjavík — VGK,
í gærkvöldi fóru fram umræð
ur í borgarstjórn um álit nefnd
ar Jíeirrar, er skipuð var 23. 5.
1967 til að gera tillögur um
rekstur Bæjarútgerðar Reykja-
víkur. Stóðu umræður enn yfir
er blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi. ,
Formaður nefndarinnar, Birg
ir Isleifur Gunnarsson, borgar
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
fylgdi nefndarálitinu úr hlaði
og skýrði frá .. áliti nefndarinn
ar í smáatriðum, en meginhluti
þess álits birtist í Alþýðublað-
inu s.l. sunnudag.
Næstur Birgi talaði Björgvim
Guðmundsson, borgarfulltrúi A1
þýðuflokksins, Rifjaði Björgvin
upp í ræðu sinni, að-frá því að
BÚR var stofnað hafi það verið
stefnumál Allþýðuflokksins að
'hlúa að vexti og viðgangi útgerð
arinnar, en áður en BÚR hafi
verið stofnað hafi Alþýðuflokk-
urinn oftsinnis flutt tillögur
um það í borgarráði, að bæjar-
félagið léti byggja og gerði út
togara.
Björgvin sagði það ánægjuefni
Alþýðuflokksmönnum að fulltrúar
alíra flokka hefðu komizt að þeirri^-
niðurstöðu að reka ætti BÚR áfrám
og efla hana. Teldu Alþýðuflokks-
menn mikilvægt að hefja þegar • í
stað endurnýjun á skipastóli Baq-
arútgerðarinnar. I sambandi við
kaup á nýjum skipum sagði Björg-
vin, að það væri skoðun Alþýðu-
flokksmanna, að opinber fyrirtæki’
sætu fyrir um ný skip.
HÆTTULEGT
UNDRALYF
HEMINEVRIN heitir lyf, sem
notað lrefur verið handa drykkju-
sjúklingum. I Aftonblaðinu sænská
var fyrir skömmu grein, þar sem
bent -var á hættuna við þ.etta
„undralyf" eins og það var kall-
að.
Lyfið er mjög vanamyndandi;
þegar eftir viku notkun hefur
sjúklingurinn ánetjast því og getur
verið orðinn enn háðari því en á-
fengi.
Lið ibrótta-
frétfamanna
gegn MK 31
Iþróttafréttamenn hafa valið
úrvalsliðið, sem leikur fyrsta
leikinn gegn danska liðinu M-
K-31. Liðið er þannig skipað:
Hjalti F.inarsson, FH
Emil Karlsson KR
Geir Hallsteinsson FH
Örn HalJsteinsson FH
Auðunn Óskarsson FH
Einar Sigurðsson FH
Sigurður Einarsson Fram
Ingólfur Óskarsson Fram
Sigurbergur Sigst. Fram
Olafur H. Jónsson Val
Bjarni Jónsson Val
F.inu breytingarnar frá leikj
unum við Svía og Dani eru, að
Jón Karlsson og Olafur Ol-
afsson eru settir út, en Ing-
ólfur Oskarsson og Einar Sig-
urðsson koma í staðinn.
Á drykkjuhæium er heminavrin
aðeins gefið eftir ströngustu regl-
um, og í hæsta lagi 3 daga í senn,
en sjúkrahús taka næstum daglega
við sjúklingum, sem hafa fengið
resept upp á mörg hundruð he-
mincvrintöflur hjá heimilislæknum
sínum. Og aðeins í Stokkhólmi
eru nú mörg hundruð hemine.vrin-
neytendur. Það er jafnerfitt að
meðhöndla þá og venjulega eitur-
lyfjaneytendur og þeir flokkast
undir sama þjóðfélagsvandamálið.
Blaðið hafði samband við Bjarna
Arngrímsson, lækni á Flókadeild-
inni og spurðist fyrir um, hvort
lyf þetta væri notað hérlendis.
Hann sagði lyfið ekki vera flutt
inn og það væri því alls ekki á
markaði hér. — En ef ég man rétt
var einhverntíma pantaður smá-
skammtur af því inn á Klepp til
að nota í sértiifellum, eins og við
flogaveiki eða delerium tremens.
Ég man ekki eftir, að það hafi
verið neitt notað.
VERKFALU
LOKIÐ
ÞÓRSHÖFN í FÆREYJUM.
19. febrúar. (ntb-rb): — Sá hluti
færeyska fiskiskipaflotans, sem
stundar veiðar á miðunum við
Grænland og Nýfundnaland lét úr
höfn á þriðjudagskvöld að loknu
verkfalli, sem staðið hafði hálfan
þriðja mánuð. Fiskimennirnir, sem
nr. a. liöfðu farið fram á hækkun
launa, fengu kröfum sínum að
nokkru leyti framgengt. Þetta var
fyrsta verkfall færeyskra sjómanna
síðan 1954.
Það efni, sem mestum ágreiningi ►
olli í nefndinni, kvað Björgvin vera
rekstrarform Bæjarútgerðarinnar;
hvort reka ætti fyrirtækið sem hluta-
félag, sem þýddi breytingar á hluta-
fjárlögunum. Sagði Björgvin Al-
þýðuflokksmenn einungis fylgjandi
þessu, ef um yrði að ræða stórfellda
endurnýjun á skipastóli Bæjarút-
gerðarinnar. Væri nijög nauðsynlegt
að ráðast þegar í kaup nýrra skipa
. með aðstoð ríkisvaldsins.
Umræður um
atvinnumál
RF.YKJAVÍK. — H.P.
Er þing hófst að afloknu jóla-
leyfi fór stjórnarandstaðan fram á
að ríkisstjórnin gerði grein fyrir
ákvörðunum í atvinnumálum og á-
standi þeirra mála. Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra, kvaðst
vilja gangast fyrir að svo yrði gert.
Verða umræður um þessi mál í
sameinuðu þingi í dag og hefjast
kl. 2. Má þar búast við að fram
fari miklar umræður um efna-
hags- og atvinnumál.
Sæluríkib sýnt á mánudag
Leikfélagið GRÍMA frumsýnir
næstkomandi mánudagskvöld kl. 21
í Tjarnarbæ, nýtt, íslenzkt leikrit,
Sæluríkið, eftir Guðmund Steins-*-
son. Þetta er fyrsta nýja íslenzka
leikrilið, sem sett er á svið hjá leik-
húsunum á þessu ári, séu barnaleik-
rit talin frá.
arsson og Sigurður Karlsson. Jóhannsson semur tónlist og effekta
Kristbjörg Kjeld stjórnar uppsetn- og Messíana Tómasdóttir gerir leik-
ingu á leikritinu, Magnús Blöndal myndir.
F.LOKKSSTAKF1P BM
F.U.J. í Reykjavík
Myndin er tekin á æfingu á Sælu-
ríkinu og fremst á henni er Jón
S. Gunnarsson í hlutverki sínu, en
í baksýn eru, talið frá vi.nstri: —
Björg Davíðsdóttir, Kjartan Rágn-
efnir til almenns félagsfuntlar sunnudaginn 23. febrúar kl.
e.h. í félagsheimili Tannlæknafélags íslands Bolholti 4
Fundarefni: Stjérnarsamvinnan í ljósi síðustu viðburða.
Frumælandi: ICarl Steinar Guðnason ritari S.U.J.
Félagar fjölmennið! Stjórnin.
2
Trúnaðarráð AlþýðufíokksféSags Reykjavíkur
KAFFBFUNDUR
verður haldinn laugardaginn 22. febrúar kl. 3
—-———— e.h. í Ingólfs-Café.
..... Ráðherrarnir Gylfi Þ. Gíslason og Eggert G:
—... Þorsteinsson mæta á fundinum.
Áríðandi að allir trúnaðarmenn mæti.
STJÓRNIN