Dagur - 22.05.1918, Síða 1

Dagur - 22.05.1918, Síða 1
DAGUR kemur út tvisvar í mán- uði og kostar 2 kr. árg. Gjaldd. 1. júlí. AFGREIÐSLU- og innheimtumaður: Lárus J. Rist. Talsími31. Ráðhússtíg 4. Ritstjóri: Ingimar Eydal. I. ár. Akureyri 22. maí 1918. 8. blað. Sam/eíðin. Eitt af mörgu, sem borið hefir á góma í ritdeilunum milli kaup- mannablaðanna annarsvégar og mál- gagna samvinnumanna hinsvegar nú upp á síðkastið, er það atriði, hvort verkalýðsfjelög í baejum og sjóþorpum geti átt nokkra samleið með samvinnukaupfjelögum bænda eða haft nokkurt gagn af sambandi við þau. Kaupmannablöðin halda því hátt á lofti, sem von er, að þessir tveir aðilar standi á öndverðum meiði, eigi enga samleið. Bændur sjeu kúgarar verkamanna og sjó- manna, selji þeim framleiðsluafurð- ir við okurverði og svo frv. Pað er ofur eðlilegt að kaupmenn og þeirra fylgismenn vilji ekki samein- ing þessara tveggja fjölmennustu stjetta þjóðarinnar á framfarabraut- inni. Hópur þeirra verður svo á- takanlega fámennur til samanburðar. Hitt er verra að vita, að sá hugs- unarháttur virðist töluvert rótgróinn bæði hjá bændum og verkamönn- um, að hjer sje um tvo andstæða flokka að ræða, sem eigi og verði að plokka hvor annan eftir bestu föngum. Pað er leitt til þess að vita að verð á ísubandi, smjörpundi eða lambsblóði skuli valda sundr- ung og vekja ríg milli þessara stjetta, sem þó þurfa töluvert hvor til annarar að sækja og gætu átt sam- leið í ýmsu, ef öfugur hugsunar- háttur og þekkingarskortur á fram- faraskilyrðum hverrar stjettar fyrir sig væri því eigi til fyrirstöðu. Hjer verður ekki ritað um þetta mál — yfirleitt. Eitt atriði, sam- leið í kaupfjelagsstarfsemi, vildi jeg gjöra hjer að umræðuefni þótt í fám orðum verði. Verkalýðshreyfingin er ung og hefir enn sem komið er lítið not- að kaupfjelagsskapinn í þarfir sín- ar, þótt hann hljóti að verða aðallyftistöng verkamanna og sjó- manna í framtíðinni. Eins og nú standa sakir er mismunurinn á kaupfjelögum bænda og bæjar- búa sá, að bændur hafa fjelagsskap utn sölu á framleiðslu sinni í satnbandi við samkaup á útlendri vöru. Kaupfjelagsmenn í bæjum eru aftur á móti fæstir framleiðend- ur og hafa engan fjelagsskap um sölu á þeirri vöru, sem-þeir fram- leiða, fiskjarins. En þetta breytist fljótlega eftir að stríðinu lýkur, ef dýrtíðin verður þá ekki búin að draga kjark og dáð úr verkalýðnum. Þeir, sem beitast fyrir verkalýðs- hreyfingunni og hugsa dálítið fram í tímann, hafa þegar sjeð, að fram- tfð sjómanna og verkamanna í kaup- stöðum hlýtur að byggjast á því, að þeir taki þátt í framleiðslunni — sjávarútveginum. Og aflið, sem þessu á að koma í framkvæmd, er samvinnufjelagsskapuránn. Sjómenn og verkamenn stofna hlutafjelög með 10—20 manns hvert —, þessi fjelög kaupa fiskiskip og halda þeim út. Svo mynda þessi smáfjelög sam- band sín á milli. Verka og selja aflann í fjelagi, kaupa alt, sem til útgerðarinnar þarf, í fjelagi, og s. frv. Hvert skip, eða hvert hluta- fjel., hefir sinn reikning við kaup- fjelagið alveg einsog hver einstakur bóndi hefir nú. í þessum fjelags- skap geta líka verið einstakir menn, bæði þeir sein eiga skip eða báta og halda þeim út, og einnig há- setar á skipum útgerðarmanna, er ekki eru í slíkum fjelagskap, og ráðnir upp á hlut. Þvi það er ekki ætlun hinnar uppvaxandi sjómanna- stjettar, að láta þá reglu gilda ei- líflega, sem ríkt hefir hingað til, að útgerðarmenn hafi umráð, og ráði verði, á öllu því er til útgerðar þarf, kaupi hlut háseta fyrir það verð, er þeim þóknast að gefa í þann og þann svipinn. Sú regla hlýtur að gilda í framtíðinni, að hásetar fái hlut sinn til umráða og komi honum í verð á þann hátt, er þeim er mestur hagnaður að. ÖIl þessi fjelög, samvinnufjelög bænda og kaupstaðarbúa, ganga eðli- lega inn í Samband íslenskra Sam- vinnufjelaga, og Sambandsskrifstofan annast um sölu á afurðunum og útvegun á útlendri vöru. Það er engin ástæða til að efast um það, að Sambandsskrifstofan geti útveg- að góðan markað fyrir sjávarafurðir, þótt hún til þessa tíma hafi ekki starfað að því. a Eins og það er óeðlilegt að bænd- ur leggi stund á sjávarútveg og sjómenn á Iandbúnað, eins er það sjálfsagt að þessar tvær stjettir noti báðar sama milliliðinn, til að ann- ast sölu afurða sinna. Sú samleið er sjálfsögð fyrir báða málsparta. Sama aflið, samvinnufjelagsstarfsemi, er tengibandið. F*egar verslunarástandið kemst aftur í eðlilegt horf, hlýtur útlent markaðsverð á afurðum lands og sjávar að gilda manna á meðal hjer

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.