Dagur


Dagur - 05.02.1919, Qupperneq 1

Dagur - 05.02.1919, Qupperneq 1
/ DAGUR kemur út einusinní í vihi Árgongurínn kosiar 3 kr. Gjalddagi 1. iúlí. II. ár. Akureyri, 5. febr. 1919. RitstjóríjjJI lngim|ar.§ Eydal.g®^! AFGREIÐSLA og innheimta hjá Jórti P. Pór. Norðurgötu 3. Talsimi 112. 5. blað. Hrafnagilssalan. í Akureyrarblöðunum frá í desember er þess getið, að jörðin Hrafnagil hafi verið seld nýlega fyrir rúmr. 41 þús. kr. Það er tekið fram um leið, að land- sjóður hafi selt jörðina fyrir fáum árum á 4500 kr. Fleiri orð eru ekki um þetta höfð, sem máli skifta, svo ekki verður sagt, að talað sje af sjer þar um þetta atvik. Sú þögn verður ekkert átalin sjerstaklega, því auðvitað tekur þetla meira til annara en ritstjóra, en þessi fáorða frásögn er aðeins glögg ímynd þess tómlætis, sem allur almenningur sýnir slíkum fregn- um. Ekki svo að skilja, að ekki sje töluvert um þetla talað frá vissum hliðum: hvað verðið sje afskaplega hátt; hvað seljandinn græði mikið o. s. frv. En hve margir athuga málið frá almennings — frá jrjóðfje- lagsins hlið? Jeg á ekki svo mjög við það, liver lít- ilsvirðing starfi eiðbundinna matsmanna fyrir lands- sjóðs hönd er sýnd með þessum geypilega verðmun, frá hinu fyrra söluverði, og sennilega frá nýafstöðnu mati, því enda þótt þetta nýja söluverð muni vera töluvert ofan við alla svokallaða »sanngirni« þá get- ur munurinn ekki allur legið þar, heldur og í ófull- nægjandi mali við fyrri söluna. Ekkert orð fer af því heldur, að jörðin hafi getað hækkað til muna í verði við umbætur á þessu árabili. Ekki er það heldur aðalalriðið frá almennu sjónar- miði, hvílík burst er dregin úr nefi landssjóðs fjár- hagslega með sölu hinna oþinberu jarðeigua, en hjer er þó glögt dæmi þess — og jafnframt hins, hve framsýnir forgöngumenn þess máls voru, eða hitt þó heldur, en það mun þó betur á daginn koma, og mest eftir að hið fjárhagslega stundartap á jarðasöl- unni er gleymt. Nei, athugaverðasta hliðin fyrir almenning á þess- um og öðrum slíkum sölutilfellum eru áhrif þeirra á alt jarðarverð nceríendis í framiiðinni, og þeir örðugleikar, sem slíkur óþarfur verðspenningur Iegg- ur á leið allra þeirra, sem sinna ætla landbúnaði, eða þurfa á einhverskonar jarðarafnotum aðhalda,— Petta er sennilega ekki öllum ljóst. Mjer leikur næst- um grunur á, að margir álíti að verðhækkun jarða sje gróði fyrir iandbúnaðinn, þvílíkt sem verðhækk- un búfjárafurða er það. Petta getur nefnilega virst svo í einstök'um tilfellum, einangruðum. Það er t. d. eðlilegt, að þeim, sem getur eða þarf að selja jörð, finnist það. Pað kann líka að vera, að mörgum óð- alsbónda virðist það ekki svo fráleitt, ef hann þarf á jörðinni að halda til tryggingar láni. En þessi dæmi eru einstök, og geta ekki orðið almenn, nema þá ef það væri hugmyndin að þjóðin tæki sig upp íeinu lagi, og flytti búferlum til Grænlands að ráðum Jóns Dúasonar! Fá væri auðvitað almennur hagur að því að fá hátt verð fyrir hinár yfirgefnu jarðir — en hver myndi þá kaupa? Að þessu gamni sleptu getur hver og einn leitt hugann að því, hvílíkur gæfuvegur það myndi vera fyrir komandi kynslóð, að þurfa að inna af hendi hlutfailslegt verð við þetta til að eignast jarðeignir. F*að verður nefnil. óvíða, sem jarðir koma óskiftar í arfahluta þeirra setn upp vaxa, svo annaðhvort verður einn erfinginn að kaupa hina út — sennilega með lánsfje — eða jörðin að skiftast, en fyrir því eru nú fljótt takmörk er frá líður. Af þessum ástæðum má því svo að orði kveða, að hver kynslóð þurfi að endurkaupa jarðeignirnar, og jarðirnar yfirleitt að bindast nýjum og nýjum veð- fjötrum, til lúkningar hinu uppskrúfaða gróðabralls- verði einstakra eigenda, er ástæður hafa til að selja. Þá skilst mönnum væntanlega hver hagur er að háu jarðeignaverði! í því tilfelli sem hjer um ræðir, hefði þó orðið sök sjer, að greiða hæfilega leigu af jafnmiklum höf- uðstól, til að fá jörðina bygða með erfðafestu, eða á annan álíka tryggan hátt, af hendi þess opinbera, sem jörðina átti fyr. Þá hefði þó ábúandinn ekki þurft að kasta út meiru fje, en hann getur búist við að græða í meðallagi Iöngum búskap, fyrir það eitt að heita óðalsbóná\ á eilíflega veðsettri jörð! En þess er jafnframt að gæta í sambandi við þetta, að ef fast hefði verið haldið á þeím jarðeignum, sem þjóðfjelagið átti fyrir eina tíð, þá hefði þess orðið langt áð bíða, að jarðeignir eða afnotarjettur þeirra hefði komist í slíkt ofurverð, og þegar að því hefði komið, þá hefðu þær Iíka óefað svarað betur til verðsins. Pað er yfirskinsala íslenskra þjóðeigna til jþáver- andi ábúenda, sem hjer á mestan hlut að, af því við það hafa jarðirnar, margar hverjar, lent—áverðgang. Hjer sjáið þið því, bændur góðir, og yfirleitt allir setn á landi þurfið að halda, sýnitegan ávöxt þjóð- jarðasölulaganna — en þau eru aftur órækur vitnis- burður þess, hvernig skammsýn kynslóð getur notað skammsýnt löggjafarvald til að veita sjer stundarhagn- að, sem öllum ófæddum blæðir fyrir. Nú sem oftar er meiri vandi að leysa en hnýta — og þó mun það hægt. Búandi. Er sócialisminn í aðsigi? Niðurlag. Þá er og í ritgerð þessari gerð nokkur grein fyrir húsabyggingum, er hið opinbera hefir ’naft með höndum, bæði í Ziirich í Sviss, París, Sydney í Ástralíu og víðar. Ber þar að sama brunni og með landakaupin. Húseignir borganna bera af húsum ein- stakra -manna, þó er húsaleigan lægri í þeim fyr- nefndu, og tekjurnar af þeim hafa samt reynst næg- ar til að borga rentur og afborganir, skatta og skyld- ur, er á húsunum hvíla, og viðhaldskosnað. Um þetta atriði farast Á. H. B. svo orð: »F’essi húsagerð ætti nú ekki síður en landa- og lóðakaupin að geta orðið íhugunarefni fyrir Reykja- víkurbæ og aðra smákaupstaði út um land, undir eins og byggingarefni og verkalaun fara að lækka í verði aftur.« Fleira er nú nefnt sem dæmi fjelagslegra fram- kvæmda og fyrirtækja af hálfu hins opinbera, svo sem gasið í Parísarborg, neðanjarðarbrautin þar og hagnýting vatnsaflsins víðsvegar um lönd og jafn- framt sýnt fram á blómgun þeirra fyrirtækja. Um öll lönd eru menn nú farnir að láta sjer skiljast, hve ágætlega vatnsaflið er til þess failið að framleiða raf- magn, ljós, hita og hverskonar vinnuafl og hve heimskulegt það er að gefa einstökum mönnum eða fjelögum ótakmarkaðan eignarrjett á þessum upp- sprettulindum afls og orku. í sambandi við þetta segir höfundurinn: »Petta ætti að gefa oss íslendingum ærið umhugs- unarefni, setn undanfarin ár höfum verið að glopra hverjum fossinum á fætur öðrum í hendur einstakra manna og fjelaga utan lands og innan, án þess að löggjöf og landsstjórn hafi tekið verulega í taumana, meðan tími var til. Petta getur orðið oss til hins mesta miska í framtíðinni, eins og á hinn bóginn eignarhaldið og hagnýting fossanna af hálfu hins opinbera gæti orðið til hinnar mestu blessunar, ef því væri stýrt með viti og fyrirhyggju, til þess að leiða Ijós og yl og óþrjótandi vinnumagn inn á svo að segja hvert heimili í landinu.* »Dæmi þau, sem nú hafa verið nefnd, ættu að geta sýnt, hvað hægast muni að starfrækja af hálfu hins opinbera, sem sje lönd og lóðir, hús og íbúð- ir, vatn, Ijósmagn og vinnumagn. Er það og nægi- leg vísbending um, hvað tiltækilegast muni að leggja undir yfirráð lands- og hjeraðsstjórnar, þótt stofnun og starfræksla slíkra fyrirtækja yrði fyrst um sinn falin einstökutn mönnum eða hlutafjelögum um á- kveðið árabil. En einmitt það, sem nú heíir verið nefnt, snertir helstu lífsnauðsynjar manna, og þær ættu síst að geta orðið að fjeþúfu einstakra manna. Engum ætti að leyfast að okra á lífsnauðsynjum annara manna, og því ætti flest slíkt að leggjast sem fyrst undir yfirráð ríkissins eða einstakra hjeraðs- stjórna, en þó því aðeins, að þær hafi svo valin- kunnum og þrautreyndum mönnum á .að skipa, að þeim sje trúandi fyrir slíkum fyrirtækjum, er varða heill og velferð almennings og ef til vill alls lands- ins, bæði í bráð og lengd.« Mál sitt endar prófessorinn á þessa leið: »En með þessu, sem nú hefir verið nefnt, er það sýnt, að sócialismusinn er í aðsigi, og því ættu menn, í stað þess að fjargviðrast gegn einstökum kenning- um hans, að reyna að fara að kynna sjer hann ná- kvæmlega og búa sig undir komu hans.« Hjer er aðeins drepið lauslega á meginatriðin í grein próf. Á. H. B., en það ætti* að nægja til þess að vekja Iöngun manna til að lesa greinina sjálfa með glöggri eftirtekt. Væri þeim þess ekki síst þörf, sem hæst æpa gegn öllum sócialisma af lítilli góð- girni og því minni skilningi, svo og þeitn, sem gleypigjarnastir eru á alt það er sócialismi nefnist. Kaupfjelögin fjölga. Myndarlega fara Vopnfirðingar á stað. Hafa keypt verslun Örutn & Wulfs þar með lóðum, húsum og öllu tilheyrandi og stofnað kaupfjelag, er tekur til starfa á næsta vori. í stjórn þess eru helstu bændur sveitarinnar, en framkvæmdarstjóra hafa þeir ráðið Martein Bjarnarson gjaldkera á Eskifirði, sern er þaul- æfður verslunarmaður og sömuleiðis’í öllum kaupfje- lagsstörfuni. — Vonandi rís þarna upp öflugt kaup- fjelag, því Vopnafjörður er stór sveit og landbún- aðarafurðir þar tniklar og góðar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.