Dagur - 05.02.1919, Síða 2
10
DAGUR.
Utan úr heimi.
Járnbrautir á Englandi verða undir eftir-
liti ríkisins tvö ár eftir endanlegan frið.
Bandaríkin draga úr herskipasmíðum sín-
um um iiðugan þriðjung.
Hvert ríki hefir eitt atkvæði á friðarfund-
inum, þó fulltrúar sjeu mismargir.
Vilhjálmur keisari hefur verið hyltur á
stöku stjórnmálafundum í Berlín.
Hert er á vopnahljesskilmálum við fram-
lenging þeirra. Þjóðverjar láti af höndum
kaupskipaflota sinn.
Inflúensudauði í stórborgum á Englandi
hefir verið mestur 3 þúsundir á tímabilinu
frá 26. okt. til 14. desember.
(Frjettarilari Dags, Rvik.)
Úr Reykjavík.
Guðmundur Hjaltason er dáinn.
Sóttvarnarhúsið í Reykjavík hefir verið
tæmt.
Landburður af fiski er í Vestmannaeyjum,
svo að hann hefir aldrei verið meiri.
(Frjettaritari Dags, Rvík.)
Kaupmannablaðið.
»íslendingur,« er út kom mánudaginn 27. jan.
þ. á., villir ekki á sjer ;heimildir. Blaðið var mor-
andi í ósannindum um menn og máiefni. Pað
ræðst með frekju og ósannindum á Kaup-
fjelag Eyfirðinga og bændur þá, sem í því fjelagi
eru. Er þetta gert í sambandi við bæjarstjórnar-
kosningarnar á Akureyri og í þeim tilgangi að afla
kaupmannaliðinu fy'gis. Svo afglapaleg er framkoma
blaðsins, að það telur þá menn óhæfa til að eiga
sæti í bæjarstjórn, sem beri hag Kaupfjelagsins fyrir
brjósti. Af því og' öðru fleiru er auðsýnn fjand-
skapur íslendings gegn fjelaginu.
Nú þurfa kaupfjelagsmenn ekki lengur að ganga
þess duldir, hvar íslendingur stendur í fylkingu. Er
það og stórum betra fyrir fjelagið að eiga í íslend-
mgi opinberan óvin en falskan vin.
„Bniðlunarmenn",
Blaðið íslendingur flutti nýlega merkilega ritgjörð
um framtíðarhorfurnar alment, og sjerstaklega þessa
bæjar. Pykir blaðinu mjög uggvænt um heill bæj-
arfjelagsins á komandi tímum, og spyr: »Eiga bylt-
ingamenn að skapa meiri hluta bæjarstjórnarinnar?*
Er ótti blaðsins ekki að ófyrirsynju nú, þegar alt
leikur á reiðskjálfi um víða veröld vegna byltinga
og óróaseggja, er vaða yfir IöndöII með báli og brandi.
Spartausar brenna og bræla í Pýskalandi og Synd-
ikalistar í Kaupmannahöfn, Bolshevikar á Rússlandi
og Bruðlunarmenn á Akureyri. Harmar blaðið mjög
hina gúllnu tfma, sem nú eru liðnir, þegar kosninga
barátta öll snerist um menn en ekki málefni, og
leiðir athygli að þeim ískyggilegu táknum tímanna
og spillingariunar, að nú sje farið að brydda á stefn-
um í bæjarstjórn Akureyrar. »Stefnur komu eigin-
lega fyrst fram greinilega í bæjarmálum í fyrra
vetur,« segir blaðið. Rá gaus upp »Bruðlunar«stefn-
an annarsvegar, en til allrar hamingju risu þá líka
upp hinir gætnari menn og hófu íhaldsbaráttu móti
bruðlun og byltingum. Nefnir blaðið ýms dæmi
þess, hve Bruðlunarmenn sáust lítt fyrir og víluðu
ekki fyrir sjer umrót og gjörbyltingar, sVq sem það
að þeir keyptu upp á bæjarins reikning rúgmjöl svo
skifti tugum sekkja, til þess að bruðla í fólkið. Reynd-
ar var mjölið selt út fullu verði, bænum að skað-
lausu, en sama er, bruðlun er bruðlun og slíku
er ekki bót mælancTi.
En livað er þetta hjá því »stóra stökki,« sem
bíaðió néfriir líka, þegar Bruðlunarmenn keyptu kol
og seldu bæjarbúum með dýrtíðarverði. Að vísu
var þetta líka gjört bænum að kostnaðarlausu, því
að mismunur verðsins var greiddur úr landssjóöi sam-
kvæmt kröfu Bruðlunarmanna, vegna þess að Akur-
eyrarbær hafði orðið mjög afskiftur við úthlutun
dýrtíðarkola landssjóðs. En söm var gerðin Bruðl-
unarmanna fyrir því. Sá blettur verður ekki af máð-
ur, að bæjarstjórnin hefur með þessu tiltæki gefið
almenningi í bænum tækifæri til að bruðla með ó^
dýr kol síðastliðinn vetur, víst framt að 80 pundum
af kolum á mann, ef jeg man rjett. Tveir gætnir
bæjarfulltrúar, ritstjóri íslendings og Júlíus Havsteen,
höfðu rjelt áður gengið um bæinn og rannsakað
eldiviðarbirgðir fólks. Lýstu þeir að vísu ástandinu
hroðalega á einum bæjarstjórnarfundi, höfðu sjeð
ýmsar hörmungasjónir meðal lýðsins vegna fátæktar,
kulda og eldiviðarskorls, og heimtuðu að hjer yrði
tekið f taumana til að bæta úr neyðínni. En þeir
hafa náltúrlega ekki ætlast til neinnar bruðlunar eða
gjörbyltinga, lieldur viljað bæta úr neyðinni með
einhverju hófi, t. d. láta 10 pund af kolum á heimili þar
sem vérst var ástandið, og þá eitthvað minna þar
sem ekki voru allar aðrar bjargir bannaðar.
Rað er ekki láandi þó að blaðið hafi.þungar á-
hyggjur útaf því, þegar slík stökk og byltingar í
bruðlunaráttina eru farnir að eiga sjer stað, enda lýk-
ur blaðið máli sína með þeim ályktunarorðum að
»öllutn eðiilegum og nauðsynlegum umbótum verð-
ur að taka með lipurð, í þá átt eiga allir að vinna,
en stóru stökkin, byltingarnar, á aðvarast.«
Svo mörg eru blaðsins orð og munu þykja í
títna töluð. Hve mjög byltiugar- og bruðlunarstefn-
an hefir þegar grafið um sig í bænum og eitrað
hugsunarhátt fólks,má best ráða af því að gætnu menn-
irnir, íhaldsflokkurinn, sá sjer alls eklci fært að ganga
til bæjarstjórnarkosninga öðruvísi en að hafa einn
hinn ötulusta forvígismann Bruðlunarmanna efstan á
sínum lista. Peir voru neyddir til að sigla þannig undir
fc-Isku flaggi, vegna fólksins, en höfðu aftur á móti
samtök sín á milli, bak við tjöldin, um að strika
efsta manninn, Bruðlunarmanninn, út af listanum,
hvað auðvitað etigan árangur bar, þar eð »hinir
gætnu« eru þegar orðnir svo sorglega fáir. Rað sýndi
sig við talning atkvæðanna að í þessari Sódóma-
borg finnast nú þegar varla þrjátíu rjettlátir, og má
þar af gjöra sjer hugmynd um hver örlög þessi
bruðlunar- og spillingarbær muni eiga í vændum,
Gœtinn.
Úr bænum.
Upplestur hafði Theódór Friðriksson (Valur) hjer í
Bio á surnudaginn. Las hann kafla úr nýsaminni
skáldsögu eftir sig, er hann nefndi »Út!agana«. Er það
sönn lýsing af sjómannalífi hjer norðanlands, sjer-
staklega við hákarlaveiðar, er þar birtist, og kæmi
mjer eigi á óvart að sú saga mundi talin hans veiga-
mesta saga, svo vel er þar af stað farið þ.
Lokun sölubúða. Á bæjarstjórnarfundi í gær kom
fram frumvarp til samþyktar um lokun sölubúða á
Akureyri. Hafði þar til kosin nefnd úr bæjarstjórn-
inni samið frumvarp þetta í samráði við nefnd úr
Verslunarmannafjelaginu. Satnkvæmt frumvarpinu á
að loka búðitm kl. 7 síðd., nema mánuðina júnf —
október kl. 8, og opna þær kl. 9 að morgninum ár-
ið í kring; þó skulu þær ekki opnaðar fyr en kl.
12 á hádegi á mánudögutn mílli kaupiíða á sumrin.
Búðunum skal lokað kl. 4 á aðfangadag og gamlárs-
dag og allan daginn 1. desember, 17. júní og á
sumardaginn fyrsta.
Frumvarpinu var vísað til annarar umræðú.
Akureyrarkaupsíaðar,
er gildir frá 1. júií 1919 til 30.
júní 1920, liggur frammi á skrif-
stofu bæjarfógeta kjósendum til
sýnis dagana 3. til 18. þ: m.
Kærur yfir skránni sendist
bæjarfógeta fyrir 25. þ. m..
Bæjarfógeti Akureyrar, 3. febr. 1919.
Páll Einarsson.
Kaupfjelag
Eyfirðinga
hefir nú fengið
talsverðar birgðir
af ýmsum vörum, svo sem:
Sagogrjón
(seld án kornvöruseðla),
síangasápu, sódá, bláma,
SMJ0RSALT,
skósveríu í dósum, mjög góða,
o. fl. o. fl.
íbúðarhús
ásamt útihúsum
er til sölu á góðum stað í bænum.
Ritstjóri vísar á seljanda.
Prentsmið|« Björns Jónssonar.