Dagur - 29.10.1919, Blaðsíða 2
96
«
DAOUR.
Baðhús fyrir bæinn.
Eitt af því, sem Akureyri þarfnast allra mest og
sem allra fyrst, er gott, opinbert baðhús. Eins og
flestir vita, er hreinlæti eitt aðalskilyrði fyrir góðri
heilsu, enda er talsverðu fje og erfiði nu varið hvar-
vetna, bæði til sveila og í kaupstöðum, til þess að
hafa hrein húsakynni, hreint loft og hreinan klæðn-
að. Menn vita nú betur en fyrir nokkrum tugum
ára, að fjöldi hættulegra sjúkdóma, einkum húð-
sjúkdóma, eiga upptök sín í eitrun, sem stafar ann-
aðhvort af óhreinum mat eða drykk, stundum af
óhreinu Iofti, en einnig og ekki sjaldnast af óhrein-
um nærfatnaði og um leið óhreinum líkama, enda
eru nú baðhús til á öllum heilsuhælum, sem bygð
hafa verið og einnig í nokkrum húsum hinna efn-
aðri manna, en því miður eru þau ekki til alstað-
ar, og þau vanlar einmitt þar, sem þeirra er mest
þörf, á heimilum fátæklinganna, en þeir eru ætíð
fleiri en hinir efnuðu, og heilsa þeirra ekki minna
verð; óþarfi að fjölyrða meira um þetta.
Pað er öllum Ijóst, hvað mikið er í húfi, einkum
þegar veikindi eða hættulegar farsóttir koma upp.
Pá er of seint að sjá við þeirri hættu, en af skað-
anum geta menn ef til vill lært að setja veikindun-
um skorður, og af öllum meðulum til að verjast
veikindum, eru heit og köld böð, eins og þau tíðk-
ast víðast í útlöndum og sumstaðar hjer á landi,
talin einna óbrigðulust, kostnaðarminst og best.
Kostnaðurinn við að koma upp góðu baðhúsi,
fer auðvitað eftir stærð þess, en það ætti ekki að
vera örðugt fyrir kaupstaðinn, sem telur yfir 2000
íbúa, og á fjölda verklæginna manna, að koma upp
sæmilegum kofa úr steini, klæddum innan með timbri,
svo stórum að nægði bænum með segjum 6 — 8
baðkerum, fyrir einar 6 til 8 þús. kr. Jeg hygg, að
hús, 5 metrar á hlið og 2]/2—3 m. á hæð, með
tvöföldum veggjum 2 fet á þykt, steindu gólfi, 6—
7 baðkerum og stað fyrir ofn og vatnsgeymi, ætti
ekki að fara langt fram yfir 6 þús. kr., þó vandað
væri að öllu Ieyti, eða rúmum 3 krónum á hvern
bæjarbúa.
Peim krónum væri vel varið, og er votiandi að
þcss verði ekki langt að bíða, að þær væri lagðar
fram og húsið bygt, annaðhvort á kostnað bæjarins
eða einstakra bæjarbúa, sem hafa vilja, dugnað og
efni til þess.
Bæjarbui.
Lög frá Aiþingi 1919.
52. — — breyting á yfirsetukvennalögum, nr. 14,
22. okt. 1912.
53. — — skipun barnakennara og laun þeirra.
54. — — laun embættismanna.
55. — — stofnun lífeyrissjóðs fyrir embættismenn
og um skyldu þeirra til að kaupa sjer
geymdan lífeyri. f
56. — — ekkjutrygging embættismanna.
57. — — breytingu á lögum nr. 1, 3. jan. 1890,
um lögreglusamþyktir fyrir kaupstaðina.
58. — — skrásetning skipa.
59. — — breytingar á siglingalögum ftá 30 nóv.
1914.
60. Frumvarp til stjórnarskrár konungsríkisins íslands,
61. Lög um hækkun á vörutolli.
62. — — breyting á lögum nr. 1, 2. jan. 1917,
[Hækkún ráðherralaunaj.
63. — — húsagerð ríkisins.
64. — — breyting á 55. gr. laga nr. 16. 11. júlf
1911, um aukatekjur landssjóðs.
65. — — aðflutningsgjald af kolum.
66. — — breytingar á lögum nr. 30, 22. nóv.
1918, um bæjarstjórn á Siglufirði.
67. Fjárlög fyrir árin 1920 og 1921. «.■
19 þingsályktunartillögur.
I Kaupfjelag Eyfirðinga
er nýkomið:
JÁRNVARA ýmisleg,
t. d. Taurúllur, Prímusar, Kjötvjelar og margt fleira.
LEIRVARA.
svo sem: Diskar, könnur, vatnsglös, sykurker og rjómakönnur
og margt fleira.
Ferðamenn atliugi,
að sökum skólahaldsins í Skógum í Fnjóskadal frá miðjum nóvember n. k. og til apríl-
loka verður þann tíma eigi tekið á móti ferðamönnum þar, nje þeiin veittur beini á einn
eður annan hátt. *e/i»’19.
Frœðslunefnd Hálshrepps.
Páll V. Jónsson,
verslunarstjóri
hjer í bæ, andaðist í Reykjavík í gærkvöldi, eftir
holskurð, er á honum var gerður.
Leiðarþing
og framboðsfundi hafa þingmenn Eyfirðinga hald-
ið víðsvegar í kjördæminu undanfarna daga, byrjuðu
á Siglufirði og enduðu í innfirðinum. Eftir frjettum
af fundum þessum, hafa þeir farið friðsamlega fram,
og kjósendur tekið þingmönnum sínum vel.
Frambjóðendurnir Björn Líndal og Páll Bergsson
stofnuðu til fundar á Siglufirði og var þeim fundi
nýlokið, er þingmennirnir komu þangað. Ennfremur
voru þeir Líndal og Páll á fundum þeim, er þing-
mennirnir boðuðu til á Litla-Arskógssandi og Dal-
vík, en sfðan ekki, þar til þeir mættu á fundi á
Grund í gær. En heyrst hefir að Líndal ætli hjer
eftir að fara í slóð þingmannanna með fundahöld.
M. J. Kristjánsson,
þingmaður Akureyrar, er væntanlegur hingað til
bæjarins með »fslandi« um næstu helgi
Fáein börn
geta enn komist að undirbúningskenslu við
barnaskólann; verða að gefa sig fram strax
við
Steinþór Guðmundsson.
Prjónles.
Alsokka, hálfsokka og
vetlinga
kaupir
VESLUN
KRISTJÁN= SIGURÐSSONÆ
Brúkaður ofn til sölu
. hjá
Kristjáni Helgasyni, Akureyri.
Athugið!
Sökum þess að 42. tbl. Frams þ. á. flytur ritgerð
eftir B. P. á Siglufirði, sem að dæmi verkfræðinganna
J. Porl. og G. Hlíðd. kveður húshitun með rafmagni
ómögulega nú og um langa tíð vegna kostnaðarins
og um leið fordæmir það mál í bráðina, þá mun
undirritaður gefa mönnum hjer í bæ kost á að heyra
rökstuddan fyrirlestur um þetta efni nú um næstu
helgi, ef möguleg er að fá Samkomuhús bæjarins,
annars hið allra fyrsta er kringumstæður leyfa.
Akureyri, 29. okt. 1919.
F. B. Arngrímsson.
úr svörtum spansreir,
VClloVI |J<8.9 mcð tveimur silfurhólk-
um, tapaðist nú fyrir skömmu á leið frá Akureyri út
að Moldhaugum. Finnandi beðinn að skila til ritstj.
þessa blaðs, gegn góðum fundarlaunum.
Fjármark
undirritaðs er:
sneiðrifað framan hægra og stýft vinstra.
Arni Kr. Jakobsson
Skriðutandi í Aðaldœlahreppi.
Auglýsing.
Mjer undirrituðum hefir verið dregið lamb í haust
með mínu marki — blaðstýít traman hægra og biti
framan vinstra, sem jeg tel mig ekkí eiga.
Rjettur eigandi vitji andvirðis þess, að frádregn-
um áföllnum kostnaði, til mín, og semji um markið.
Vatnsenda í Eyjafirði 27. okt. 1919.
Viktor A. Kristjánsson.
Prentsmiðja Björns Jónssonar-
f