Dagur - 28.07.1920, Qupperneq 3
DAGUR.
55
Verzlunarmannafélagsins
vrrður frestað vegna sérstakrar ástæðu
tií sunnudagsins 8. ágúst. Verður þá
farin samkvæmt áður auglýstu.
Skemtinefndin.
að spara, þar sem það má, fara skyn-
samlega að ráði okkar, sýna sjálfsafneit-
un og kunna að haga okkur eftir kring-
umstæðum eins og bezt á við,
En hvar má þá ekki spara?
F*ví er fljótsvarað. — Allur sá sparn-
aður, sem gerður er á kostnað heilsu
okkar og sem hindrar andlegan og lík-
ainlegan þroska og varanlega vellíðan,
er hættulegur, og hann eigum við að
forðast á meðan nokkur tök eru á.
En öll sú eyðsla, sem fer út fyrir
þessi takmörk, er spiilandi — er frá
hinum vonda.
Ef við leggjum ætíð þenna mæli-
kvarða á alla okkar eyðslu og sparnað,
þá verðum við gæfunnar börn.
Akureyringur.
Símskeyti.
Rvík 21. júlí.
Konungur vor hefir meiðst í
fæti og sent forsetisráðherranum
skeyti þess efnis, að hann komi
ekki hingað til landsins í sumar.
Kokkar og þjónustufólk, sem
hingað var komið, verður að fara
heim aftur.
Frakkar hafa sent Feycal sendi-
manni Sýrlands ultimatum.
Branting hefir lagt Álandseyja-
málin fyrir Millerand.
Nýr fundur með Bandamönn-
um og Þjóðverjum væntanlega í
í Geneve um skaðabæturnar.
Manndráp hafa farið «fram í
Cork út af morði lögreglustjór-
ans.
Benedikt Gíslason frá Skriðu-
klaustri, kaupamaður á Hesti í
Borgarfirði fórst ásamt hesti sín-
um í kíl við Hvítá, ungur efnis-
maður.
Tugum þúsunda kastað í sjó-
inn vegna konungskomunnar.
\
Rvík 27. Júlí.
Deilur Itala og Jugo-Slava
harðna stöðugt.
Frakkar hefja stríð í Sýríu.
Hafa sent þangað 80 þús. her-
menn og unnið einn sigur.
Rúmenar hafa boðið að friða
Litlu-Asíu. Það ekki Jiegið.
Norðurlönd styðja heimflutn-
Kennarastaðan
í fræðsluhéraði Á r s kógs h r e p p s
er laus. Peir, sem hafa í hyggju að sækja um stöðuna, sendi
umsóknir sínar til fræðslunefndarinnar fyrir 1. Sept. 1920.
I.aun samkvæmt fræðslulögunum.
Frœðslunefndin.
ing herfanga úr Síberíu með fjár-
lánum.
Grikkir herja Þrakíu. Hafa
tekið Adríanopel.
Bandaríkjaher hjáipar kínversk-
um stjórnarher að friða landið.
Blóðsúthellingar í Belfast.
Ll.oyd George fús til að semja
um ýms mál Ira. Ekki að tala
um sjálfstæði.
Teleki orðinn forseti Ung-
verja.
Krassin synjað aðgöngu í
London vegna afgtöðu Bolse-
vika til Póllands.
Bolsevíkar aðhyllast að friðar-
samningar viðPólland verði gerðir
í London með því skilyrði að
Wrangel gefist upp,
Bolsevíkar hafa gersigrað Pól-
verja. heir beiðast friðar og flýja
hópum saman úr Varsjá.
Pýzkaland hefir lýst yfir hlut-
leysi sínu og bannar Banda-
mönnum að flytja her yfir Iandið.
Bandamenn hafa hafnað her-
styrk Ungverja til að hjálpa Pól-
verjum.
Jón Jónsson prófastur fráStafa-
felli er nýlátinn.
Kolaprammur sökk á fimtu-
daginn með 150 tonnum af
landsverzlunarkolum. Ofhleðslu
kent um.
Fyrsti hestafarmurinn fór héð-
an í gær.
Alþýðublaðið hefir afhjúpað
íslenzka fiskihringinn.
íbúðarhús Jónatans Porsteins-
sonar, ásamt úthýsi, brann í gær-
kvöld til kaldra kola. Skaðinn
mörg hundruð þúsundir. Hús
í grendinni skemdust mikið.
Fréttar. Dags, Rvik.
Akureyri.
Síra Gunnar Benediktsson,
seltur prestur í Grundarþingum, kom
hingað til bæjarins í síðustu viku, ásamt
konu sinni, ungum syni og tengdamóð-
ur. Hann er nú seztur að í Saurbæ og
tekur þegar við embætti sínu.
Síra Gunnar er nývígður, enda korn-
ungur maður, aðeins 27 ára gamall.
Hann er yfirlætislaus maður, greind-
ur vel og góður drengur. Væri gottað
Eyfirðingar nytu hans bæði lengi og vel.
Barnaskólinn.
Stjórnarráðið hefir nú veitt skólastjóra-
og kennarastöðurnar við hann. Skóla-
stjóri verður áfram Steinþór Guðmunds-
son og kennarar hinir sömu og áður:
Páll J. Árdal, Ingimar Eydal, Kristbjörg
Jónatansdóttir, Ingibjörg Benedíktsdóttir
og auk þess Kristján Sigurðsson frá
Dagvérðareyri, er var kennari við skól-
ann í mörg ár, en lét af því starfi fyrir
nokkru.
Knattspyrna.
Á sunnudaginn var fór fram knatt-
spyrna á leikvangi Ungmennafélags Ak-
ureyrar. Keppendur voru nokkrir Ak-
ureyringar og skipverjar af »Itarian« og
»Aspasia«. Fyrri hálfleikurinn fór svo,
íslendingar höfðu 6 vinninga en Eng-
lendingar engan. Dálítil norðan gola var,
og áttu Englendingar á móti henni að
sækja; hugðu sumir af áhorfendunum, að
þeir ensku myndu rétta hlut sinn í síð-
ari hálfleiknum, er þeir hefðu vindstöð-
una sér hagstæðari, en í seinni lotunni
höfðu íslendingar 3 vinninga en hinir 1.
Leikslokin urðu því: 9 íslendinga megin
móti 1.
Áhorfendur voru margir. Aðgangur
kostaði 15 aura fyrir þá, er komu norð-
anmegin leikvangsins, en ekkert fyrir þá,
er komu úr suður átt.
Eversen
útgerðarmaður stundar síldveiði í sum-
ar frá Oddeyrartanganum. Heldur hann
út til veiða tveim enskum botnvörpung-
um »A^pasia« og »Itarian«, og ennfrem-
ur e. s. Eirík. •
Watne og Godtfredsen halda og út
sjnu skipinu hvor frá tanganum.
Trjáviður
hefir komið rnikill til bæjarins nú
nýlega; tvö timburskip til Kaupfélags
Eyfirðinga, eitt til Sigurðar Bjarnasonar
og eitt til sameinuðu verzlananna.
Steinolíuskip
tvö hafa komið hingað nýlega. Annað
til Ragnars Ólafssonar, hitt til Karls
Nikulássonar.
Gestir og' ferðamenn.
Síra Pórarinn á Valþjófsstað og frú
hans hafs dvalið hér í bænum að und-
anförnu.
Gunnlaugur Claesen geislalæknir var
hér á ferð ásamt frú sinni. Fóru þau
landveg til Reykjavíkur nú fyrir skömmu.
Hér hafa og verið staddir í bænum
Marino Hafstein fyrv. sýslum., Eyjólfur
Jónsson bankastjóri á Seyðisfirði og frú
hans, Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur
og fleiri.
Póststaðan
tniili Akureyrar og Staðar er veitt
Guðmundi Ólafssyni Siglufjarðarpósti,
frá 1. okt. næstk.
Guðmundur flutti búferlum hingað til
bæjarins í vor.
Kuldatíð
fyrir síðustu Irilgi og stijóaði í fjöll.
dágóður þurkur síðuStu daga.
í handvefstóla, 100 á kr. 1,50
selur
jónas Pór,
verksmiðjustjóri.
Manngildið.
Gildi hvers manns fer ekki, eins og
sumir virðast álita, eftir stöðu eða lær-
dómi, heldur ekki eftir gáfum eða þekk-
ingu og því síður eftir auðlegð. Mað-
ur getur haft alt þetta til að bera, ver-
ið í hárri tignarstöðu, sprengfullur af
lærdómi vitað ekki aura sinna tal, og
þó verið gildisrýrari en fátækur, treg-
gáfaður og þekkingarlítill götu- eða reyk-
háfasópari.
Pó að margar stoðirrenni undir mann-
gildið, þá er þó ein veigatnest. Hún er
í því fólgin að leysa starf sitt vel af
hendi. Hvert starfið er, kemur ekki mál-
inu við, ef það aðeiris er e'tthvað, sem
nauðsynlega þarf að gera. Hvort sein
þú því starfar að vísindum eða listum,
moldarmokstri eða grjótvinnu eða hverju
sem vera skal, þá leystu starfið af hendi
eins og hamingja alls mannkynsins væri
undir því komin, hvernig þér ferst það
úr hendi. Með því að vinna hvert starf
á þenna hátt, finnurðu að þú ert stöð-
ugt að stækka, að manngildi þitt er að
vaxa, og þú hefir góða samvizku.
Petta eru engin ný sannindi. Margar
aldir eru síðan sagt var: »Vertu trúr
yfir litlu, þá mun eg setja þig yfir mikið«.
En það er eins og ekki veiti af að
vera altaf að minna menn á það, sem
allir vita í raun og veru.
í Ójafsfirði
segja metin dágóða grassprettu orðna
og langt komið að slá tún þar. Pö má
enn líta 6njó þar á túnum í stöku stað.
Um síðustu helgi var sláttur ekki
byrjaður sumstaðar í Fijótum. Snjóinn
leysti þar svo afarseint.
íbúðarhús
úr staini er verið að reisa á þessum
bæjum hér í Eyjafirði í sumar: Syðri
Varðgjá, Kaupangi, Litla-Hamri, Möðru-
felli og Kroppi.
Athugasemd.
Úr hefir fallið við tal höfuðskálda á
íslandi fyrst og fremst Ijóða og ritsniil-
ingurinn Porsteinn Gíslason, Sigurður
frá Arnarholti og Stefán frá Hvítadal.
Allir þessir rnenn hafa gefið út ljóða-
bækur. Fleiri Ijóðaskáld mætti nefna,
sem eg sleppi að sinni.