Dagur - 11.08.1920, Qupperneq 3
DAGUR.
63
Halldór Kolbelns cand. theol.
flytur erindi um
bindindi og hugsjónir
í kvöld 11. ágúst kl. 9 síðd.
í Ooodtemplarahúsinu á Akureyri.
Umræður á eftir. Allir velkomnir!
Mæiið stundvíslega!
Kennara vantar
til 4 mánaða kenslu i Tjörnness fræðsluhéraði. Umsóknarfrestur
til 1. okt. n. k. Laun samkvæmt fræðslulögunum.
Fræðslunefndin.
unar á götum Akureyrar, þar sem í-
búar þessa bæjar standa jafnframarlega
í dýrum klæðaburði sem raun er á, og
gera háar kröfur hver til annars í því
efni.
Nú átti maðurinn um sárt að binda.
Hundrað og tólf krónum ver varið,
en þó þeim hefði verið fleygt í sjóinn.
Tók hann nú sjalið undir hönd sér,
gekk til kauptnanns og sýndi honum
hvernig komið var. Krafðist haun þess,
að þar sem þetta væri auðsæilega svik-
in vara, yrði hún tekin aftur og and-
virðið greitt. Kaupmaðurinn tók því
mjög fjarri. Taldi hann sig vera á-
byrgðarlausan gagnvart kaupendum, því
verksmiðjur og vörusalar erlendis væru
ábrygðarlausir gagnvart sér. Taldi að
slíkt tíðkaðist ails eigi meðal kaupmanna,
að þeir tækju aftur sviknar vörur, því
þeir gætu ekki gert að því, þó vara
reyndist svikin.
Pegar þess var enginn kostur, að
skila sjalinu, fór kaupandi fram á það,
að fá það fyrir það verð, sem það hafði
kostað kaupmanninn. Pyrfti kaupmað-
urinn þá engu að tapa, en hinsvegar
gerði kaupandinn sér þá von um, að
tap sitt mundi minka svo sér munaði
um. Kaupanda fanst þétta sanngirnis-
krafa. Kaupmaðurinn tók því einnig
mjög fjarri, og kvað það mjög fjarri sér
að sýna nokkura miðlun.
Á leiðiuni heim hugsaði maðurinn
sem svo. Ætli það sé satt, að við ís-
lendingar eigum almennt við svona
löguð kjör að búa í verzlunarsökum ?
Hverjum ber skylda til þess að sækja
sök fyrir þannig löguð svik á hendur
réttum aðilum, þ. e. verksmiðjum er-
lendis ef ekki kaupsýslumönnum, sem
hafa það fyrir atvinnu sína að selja
vörur þeirra. Œtli það sé satt, að
kaupsýslumenn álíti það ekki skyWu
sína, að vernda viðskiftavini sína fyrir
svona skakkaföllum? Og ætli þeir
vildu allir hirða verzlunarágóða sinn,
þegar svona vildi til ? Þessum og því-
líkum spurningum velti hann í huga
sínum. Honum var kunnugt um, að
langstærsta verzlunarhúsið í Kanada
»The Eaton’s« tók umyrðalaust vörur til
baka, ef þœr voru ekki -að öllu leyti
eftir óskum kaupenda. í því lá styrk-
ur þess mikla verzlunarfélags meðal
annars. Hann komst seinna að því,
að Þorvaldur Sigurðsson kaupmaður hér
í bænum fékk fyrir nokkuru svikinn lit,
sein hann var búinn að selja allmikið
af, þegar svikin komu í ljós. Auglýsti
hann þá jafnskjótt, að hgnn tæki litinn
til baka og greiddi andvirðið. Einnig
komst hann að því, að kaupfélag verka-
manna hér í bænum fékk eitt sinn svik-
inn skófatnað, sem það gerði afturreka,
og fékk andvirðið endurgreitt frá út-
löndum.
Pví er alls ekki haldið fram hér, að
Christensen kaupmaður sé öðru vísi, en
honum segist sjálfum frá, strangheiðar-
legur maður. Pví er alls ekki heldur
haldið fram, að hann verzli yfirleitt
með sviknar vörur, þótt svona vildi til
um þetla sjal, 0g hætt sé við að þau
séu fleiri varasöm, ef þau eru frá sömu
verksmiðju. En það er bent á þetta
dæmi sem eitt af því, sem er miður
æskilegt að komi fyrir í verzlunarsökum.
Lað á að vera bending fil kaupsýslu-
mannarma yfirleitt nm það, að eigi
verzlunarskiíti þjóðarinnar að komast í
gott horf, þurfa þeir að taka tillit til
viðskiftamanna sinna, og vernda þá af
ítrasta megni fyrir svikum og féflett-
ingu af hendi erlendra verksmiðja og
vörusala.
Símskeyti.
Rvík 4. ágúst.
Grikkir hafa hertekið Þrakiu
alt að Tchatalcha.
Breska þingið hefir samþykt
Spasamningana.
Krassin kominn til London.
Harðar orustur milli Bolsévíka
og Pólverja.
Bolsévíkar neita að stöðva fram-
rásina fyr en vopnahlé sé undir-
skrifað.
Heil héruð á Grænlandi hafa
eyðst af hungri, vegna þess að
vistfanga flutningur þangað var
bannaður síðastliðið haust sök-
um innfluenzuhættu.
Brauð hækkar í verði í Rvík.
Sýslumanni Dalasýslu vikið frá
embætti um stundarsakir vegna
embættisvanrækslú.
Rvík 10. ágúst.
Nefnd Ira komin til London, til
þess að semja við Breta um sjálf-
stæði Irlands.
Vopnahléssamningar milli Pól-
verja og Rússa ganga tregt. Bol-
sévíkar halda áfram framrásinni
og neita að stöðva hana nema
Pólverjar leggi niður vopnin. So-
vetstjórn mynduð í þeim héruð-
um Póllands, sem Bolsévíkaherir
fara um. Rýzkaland, Austurríki
og Rúmenia hafa lýst yfir al-
gerðu hlutleysi.
Enskir, franskir og þýzkirverka-
menn mótmæla að bandamenn
herji á Rússa með Pólverjum.
Bolsévíkar vilja semja sérfrið
við Pólverja strax án íhlutunar
bandamanna en bandamenn synja.
Utanríkisráðherra Rjóðverja vill
taka upp fullkomið stjórnmála-
samband við Bolsévíka. Pólverjar j
hafa beiðst friðar. Heimta sjálf-
stæði og að Rússar láti innan-
landsmál þeirra hlutlaus.
Bandamannafundur í fyrradag
vísaði Póllandsmálum til herstjórn-
anna. Rjóðverjar banna herflutn-
ing um lönd sín.
Fjöldi tundurdufla á reki fyrir
Austurlandi, 3 dufl hefir rekið á
land. Eitt færeyskt fiskiskip hefir
farist á tundurdufli.
Sighvatur bankastjóri hefir feng-
ið sex inánaða hvíld frá banka-
störfum. Tofte sagður heilsubil-
aður. Islandsbanki hættur að yfir-
færa fé til Landsbankans.
Peningakreppan eykst.
, Fréttarii. Dags.
Ur öllum áttum.
Fru Margrete Loebner-Jörensen
í síðasta blaði var þess getið, að
hún væri komin til Reykjavíkur, en nafn
hennar var ranghermt. Hún hefir gefið
sig við íslenzkum bókmentum, þýtt á
dönsku sögur Jónasar Jónassonar og
fleira. Islendingar sem verið hafa í As-
kov, hafa kynst konu þessari, mun hún
því eiga hér ekki fáa kunningja. Fer
vel á því, að góður gestur komi ekki
að lokuðum dyrum.
Töður
munu nú vera hirtar því nær hver-
vetna hér norðan lands og víða nokk-
uð af útheyi. Óljósar fregnir um gras-
sprettu. F*ó mun hún vera tæplega eins
góð og búist var við, vegna kuldakasts-
ins í síðasta mán. Engjar hafa og verið i
mjög blautar að þessu. j
Mokfiski
af síld er nú í öllum verstöðvum við
Eyjafjörð og grend. Síldin gengur ó-
venju grunt. Mestur afli á skip nú orð-
inn um 2000 tunnur. Meira berst á land
en hægt er að verka. Mikil þorskganga
inn á fjörðin. Tveir drengir reru með
færi út á Hörgárgrunn og komu með
1000 pund fiskjar.
Purkar
og bezta heyskapartíð síðast liðna
viku.
Símskeyti
kom til allra póstmeistara fxrir fáuin
dögum, sem bannar að selja hærri ávís-
anir á útlönd í einu en 50 krónur.
Steinþór Guðmundsson
skólastjóri og frú hans Ingibjörg Bene-
diktsdóttir komu úr Reykjavíkurför með
skipinu »Dana« 4. þ. m.
Nýkomið í verzlun
Tr. Reykdals
Oma-Smjörlíki — Ostar — þurkaðir á-
vextir, svo sem: Epli — Aprikósur —
Rúsínur — Sveskjur. — Einnig Choco-
lade o. fl.
Kúahey
fæst keypt. Ritstjórinn vísar á
seljanda.
Tveir
Aladínlampar
200 ljósa — með tilheyrandi —
til sölu með tækifærisverði, hjá
M. H. Lyngdal.
Ódýrir ostar:
Mysuostur kr. 2,00 kg.
Guida ostur — 3,80 —
Schweizerostur — 4,00 —
Kúrenur og sveskjur mjög ódýrar.
Lárus Thorarensen.
Frímann B. Arngrímsson
hinn alþekti áhuga og fræðimaður
hefir í sumar verið á ferðalagi um Vest-
firði til þess að rannsaka bergtegundir.
Hann er nú aftur kominn heim úr þeirri
för og hefir lofað Degi greinarstúf um
ferðalagið.
Nú strax vantar
10 stúlkur og 3-4 karlmenn
(helzt beykira) til Wallens á Hjalteyri.
Talið við
Trausta Reykdal,
Oddeyrargötu 6.