Dagur - 27.10.1920, Blaðsíða 4
108
DAGUg.
ast saman í leiguhýsin, þar sem alt hef-
ir skort, til að skapa sönn heimili.
Verkefni félaganna er að bseta úr þessu,
í samvinnu við stjórnir borganna, og
aðferðin er sú að dreifa bygðinni í stað
þess að hækka húsaskrokkana. Fá hverri
fjölskyldu eigið hús til íbúðar og frið-
helgan blett við heimilið, þar sem verka-
fólkið getur í frístunduin skemt sér við
garðrækt og blóma. Pá fyrst verður
heimilið vígi þjóðfélagsþrifa og þroska,
þar sem heilbrigði og lífsgleði býr,
hreinlæti og hreirHífi.
Verstur þrándur í götu þessara um-
bóta er skammsýni og stirfni borgar-
stjórnanna, sem ráðið hafa um stræta-
skipun og húsa, auk þess sem borgar-
grunnarnir hafa í öndverðu lent í klóm
spekúlanta, sem halda þeim í geypi-
verði, byggja sem þéttast, sem hæst og
sem ódýrast, til þess að græða sem
mest. En þrátt fyrir mikla örðugleika
hefir byggingafélögunum tekist að koma
fram miklum umbótum.
Nú er hér, eins og áður er sagt,
verið að leitast við að mynda eitt slíkt
félag. Pað er komið undir stjórn bæj-
arins og almúganum í bænum, hvort það
tekst. Málið er áreiðanlega þess vert,
að því sé gaumur gefinn. Hér er ekki
um að ræða gróðafyrirtæki einstakra
manna, heldur samtakastarfsemi húsviltra
fjölskylda og einstaklinga um að tryggja
sér ánægjuleg heimili í framtíðinni.
Sveinbjörn Jónsson, byggingafræð-
ingur, sem mun vera aðalhvatamaður
enda málinu kunnugastur af þeim, sem
beita sér fyrir, heldur fyrirlestur um
málið næsta föstudagskvöld. í sambandi
viðfyriciesturinn sýnir hann fjölda skugga-
mynda, sam »Umbótafélag byggiriga
Noregs* heíir íánað honum. Auk þeirra
allmargar, sem hann hefir sjálfur tekið
hér á Akureyri, í Gautaborg og Stock-
hóimi. Parf ekki að efa að fyrirlestur-
inn verður fróðiegur og skemtilegur.
Ágóðanum verður varið til þurftar
málefninu.
Akureyri.
Jarðarför
Björns Jónssonar fór fram í gær. Lík
hans kom með Sterling. Lúðrasveitin
blés við móttöku iíksins og jarðarför-
ina. Iðnaðarmenn báru Björn inn í
kirkjuna en bæjarstjórnin úr henni.
Bæjartulltrúinn
einn biður þess getið að tillaga sín í
í kúaberklamálinu hafi verið misskilin
og ranghermd. Hann hafi ekki lagi það
til, að þeir einir, sem neytt hefðu mjólk-
ur úr veikum kúm, tækju þátt í skað-
anum við niðurskurð þeirra, heidur allir
bæjarbúar yfir höfuð.
Skipin
hafa rekið hvort annað þessa dagana,
Lagarfoss, Villemoes, Sterling, Kora og
Gullfoss. Má segja að jólin beri upp á
páskana fyrir Norðlendingum í sjósam-
göngum, þegar skipin koma svona í
bendu, Aftur þykir þeim stundum líða
nokkuð langt á milli slíkra stórhátíða.
Til útlanda
taka margif sér far með Gullfossi.
Otto Tulinius kaupm. og fölskyida héð-
an úr bænum. Þau hjónaleysin ungfrú
Unnur Jakobsdóttir, Hólum, Reykjadal í
Þingeyjarsýslu og hr. Sigurgeir Friðriks-
son, Skógarseli sðmu sveit. Ennfremur
þau ungfrú Sigrún Guðlaugsdóttir
Fremstafelli Þing. og hr. Valdemar Hall-
dórsson, Kálfaströnd í Mývatnssveit. Um
erindi þessa fólks er Degi ókunnugt,
nema Sigurgeirs, hann fer á nýsfofnað-
an bókavarðaskóla í Kaupmannahöfn.
Sigurgeir er drjúgur maður í vitsmun-
um og góðum áhuga.
Bíó
Fyrirlestur.
Bíó
Sveinbjörn Jónsson heldur fyrirlestur um mál, sem alla varðar og sýnir 50
skuggimyndir. Sjá grein hér í blaðinu og götuauglýsingar.
Munið eftir "VI
—= að vátryggja eignir yðar. —■ .-
The Eagle Star & British Dominions Insurance Co.
t
Fyrirlestur er mjög áreiðanlegt félag og iðgjöld hvergi lægri.
Sveinbjarnar Jónssonar er anglýstur
annarsstaðar í blaðinu. Páll Skúlason.
Húsbruni
varð í Flatey á Skjáifanda. Brann hús
Jóhannesar Bjarnasonar hreppstjóra og
föðursystir hans Þorgerður Bjarnadóttir
brann inni. Hjónin mistu þarna allar
eigur sínar. Verður nánar í næsta blaði
getið um þennan sorglega atburð.
Kolaverkfallið á
Englandi.
Nú er það dunið yfir eftir því sem
íregnir herma.
Það er engin ný bóla þó fréttist um
verkföll út í heimi, en þetta verkfall er
þó eftirtektarverðara en flest önnur verk-
föll. Það er nierkilegt vegna þess fyrst,
að með kolaframleiðslu og kolaverði í
Bretlandi stendur og fellur atvinnurekst-
ur og skipagöngur Breta og hagur
mvgra annara þjóða er mjög háður
kolamarkaðinum brezka. í öðru lagi
vegna þess, að ástæðan fyrir verkfall-
inu eru ekki almennar kaupkröfur og
ðnnur vinnukjör verkamanna, heldur
krafa um þjóðrekstur námanna. Sú krafa
á hendur afturhaldsvaldinu í Bretlandi
er ekki lítilvæg og erfitt að geta sér
til, hverjar afleiðingar hún kann að hafa.
Takist verkamönnum að knýja hana
fram, er þar með hróflað æfagömlu
skipulagi rótgrónu í auðvaldi og aftur-
haldi Breta. Það væri ekki ósvipað
því að losa nndirstöðustein úr kínversk-
um múr, og mörgum þykir, sem nú
muni vera reitt það högg að þjóðskipu-
lagi Breta, sem felli stofninn svo grein-
arnar hrökkvi af, þ. e. borgarastyrjöld
rísi upp og rílþð liðist í sundur meira
eða minna. Þetta er að vísu getgátur,
en mörg vandræði munu nú steðja að
Bretlandi hinu mikla innan lands og úr
austri og vestri, og furðu taugaseigt má
afturhaldið vera í því víða heimsveldi,
ef það stenzt óhaggað gegn þeim bylt-
ingastraumum, sem styrjöldin hefir vak-
ið um heim allan.
Slíkt er ástandið orðið að mestu öfg-
ar fortíðarinnar eru orðnar að raun-
veruleika. Kínversk kol eru ódýrari
brezkum kolum í sjálfu Bretlandi. Það
er ekki lengur nein fjarstæða að flytja
kol til New Castle.
Leðarskæði
' fást hjá __ ;
Jóni í Möðrufelli.
ÁLNAV0RU
alla, HÖFUÐFÖT, tilbúinn FATNAÐ og til FATA svo sem
tölur, tvinna etc., sel eg til áramóta með
15°[0 af s 1 æ11i.
Otto Tulinius.
„Colman's" línsterkja
fæst í
Kaupfélagi Eyfirðinga.
P
i
Sonora-gr ammófónar
amerísku eru heimskunnir sem beztu og fullkomnustu
grammófónar, er hugvitsmennirnir hafa búið til.
Pantið einn slíkan grammófón hjá kaupfélagi yðar, eða
kaupmanni, með nokkrum plötum, og þér munuð undr-
ast hve mikill ánægjuauki það verður fyrir heimili yð-
ar, þegar þetta snildar áhald lætur þar til sín heyra.
&
mmm*0»itw**i***m imfQS\
Prjónles.
Alsokka, hálfsokka og
vetlinga
kaupir
Verz/un Kr. Sigurðssonar.
*
Mér undirskrifuðum var í haust
dregið hvítt hrútlamb með mínu fjár-
marki, heilrifað hægra og biti aftan
vinstra. Lamb þetta á eg eklci og getur
réttur eigandi vitjað andvirði þess til
mín.
Torfufelli 20. okt. 1920.
LHjit dal Sigurðsson.
Nýkomið
í bókaverzlun Kr. Guðmundssonar
Har. Níelsson: Árin og eilífðin.
Jónas Guðlögsson: Sólrún og biðlar
hennar.
01. Daníelsson: Reikningsbók.
Ármundur Gíslason: Breyttir litir, kvæði.
Guðm.Hannesson: Samræðissjúkdómar.
Tr. Sveinbjörnsson: Myrkur (leikrit).
Tracy: Heillastjarnan.
Verzlunarskýrslur 1919.
Iðun VI. ár. I. —II.
Bsrnabækur ýmsar.
Skólabækur.
Einnig útlendar bœkur.
Rifstjóri: Jónas Þorbergsson.
PreRtsmiðín Bjöms Jénisenar.