Dagur - 10.12.1921, Blaðsíða 3
49. tbl.
DAGUR
195
J ö r ð i n
Ytra Kálfskinn á Arskógsströnd er til sölu og Iaus til ábúðar
á fardögum 1922. Jörðin er í góðu standi og vel ræktuð.
Semja ber við annanhvorn undirritaðann, sem gefa allar frek-
ari upplýsingar.
jón Guðjónsson, Freymöður fóhannsson,
Kálfskinni. málari, Akureyri.
Bændanámsskeid.
Ræktunarfélag Norðurlands gengst fyrir báendamámsskeiði í
Oróðrarstöðinni á Akureyri dagana 9.—15. jan. n. 'k. Verða þar
fluttir fyrirlesfrar og haldnir búnaðarmálafundir. Pess skal getið,
að Búnaðarfélag Islands sendir tvo ráðunauta sína til fyrírlestra-
halds á námsskeiðimi;
Þeir, sem sækja námsskeiðið, sjái sér sjálfír fyrir fæði og
húsnæði.
Umsóknir sén komnar til Ræktunarfélagsins fyrir 1. jan. n. k.
Akureyri 9. des. 1921.
Stjórnin.
herskipa náð fram að ganga.
Nýtt bandalag rís upp úr pess-
um samningum milíi Frakka,
Breta, Bandaríkjanna og Japana.
Hlu'abréf íslandsbanka í Khöfn
hafa hækkað upp í 65 kr. hvert
hundrað. Heima fyrir engin
breyting. Talið að bankinn hljóti
að gefa sumum fisk- og síldar-
kaupmönnunum upp stórkost-
legar upphæðir. Einn sem talið
er að skuldað hafi 850 pús.
telur sig ekki geta borgað nema
15% af skuldinni. Prátt fyrir
petta virðist stjórnin ekkert vera
nær peirri tillögu Tímans að
kaupa forgangshluti í bankanum
svo fyrstu 8—10 milljónirnar,
sem kunna að tapast, Iendi á
hluthöfunum, sem grætt hafa
hingað íil, en ekki á Iandsjóði.
60 ára afmælis Hannesar
Hafstein hefir nýlega verið minst
Iofsamlega í hægrimannablöðum
Dana.
Benedikt Á. Elfar hefir sung-
ið hér nokkrum sinnum fyrir
fullu húsi.
Farmgjöld
lækka um nýár.
Spánverjar láta undan Norð-
mönnum. Banninu borgið.
Fréttaritari Dags.
Kol auglýsir Landsverzlunin áöðrum
fékk kolafarm. fyrir nokkru sfðan og
seldi á 8o kr. á bryggju. Þá brá svo
við, að kol Ragnars Ólafssonar, sem
áður höfðu verið seld á ioo kr. féllu
ofan f 8o kr. úr húsL Kol þau, sem
Landsverzlunin auglýsir, eru góð og
brenna í hvaða eldsíæði sent er.
Karíöflur
með góðu verði fást
í VERZLUNINNI
BRATT^HLÍÐ.
Brynj. E. Stefánsson.
stað f blaðinu. Verðið er kr. 72 00' úr
Eimskipafélagsins húsi og er það mun lægra en áður
hefir verið hér f bænum. Espholin Co.
sér það, að almenningur er kaupfélags-
skapnum trúr, verða til þess að vekja
slfkan misskilning hjá almenningi. Skal
svo ekki fjölyrt um þetta meira.
Eg held mér sé óhætt að segja, að
býsna almenn óánægja með stjóinar-
far landsins geri vart við sig hér um
slóðir. Mönnum ógar við lántökunni
og fjárreiðum íslandsbanka, sem að
sögn hefir fengið mestan hluta brezka
Iánsins upp á einhverjar spýtur. Enginn
hávaði er þó hér í syslunni. Menn eru
orðnir þvf svo vanir hér, að látast
vera dauðir í pólitfk. Þó hefir brytt
á viðbragði við bankastjóraskipunina
og er óhætt að segja, nð þingmaður-
inn okkar hefir aflaö sér nokkuð ai-
mennrar andúðar með þessu sfðasta
stjóinarafteki sínu.
Argæzka hefir verið hér undanfari*
tvö missiri. Búfé gekk vel íram al-
staðar og sumarið var að vfsu mjög
óþurkasamt og kalt en þó mun hey-
skapur hafa orðið í meðaiagi viðast
hvar og sumstaðar vel það. Heilsufarið
bærilegt nema bvað infiuenzan flakkaði
hér um sumar sveitir um sláttinn og
veitti mönnum þungar búsyfjar.
Eg skal svo ekki hafa þetta lengra
að sinni, en er vís til þess að senda
þér Ifnu seinna. Vona eg að þú takir
því ekki illa, þó eg leýsi oían af
pokanum þegar mér ógnar þögn og
fálæti sýslunga minna eða langar til
að gera lítilsháttar athugasemdir við
hugsunarhátt eða þá hugsunarleysi
Þineyinga. Bið þig svo að fyrirgefa.
Þingeyingur.
Simskeyti.
Reykjavik, 9. des.
Hungraðir verkamenn í Vínar-
borg hafa rænt matsöluhús og
gistihús.
Enska stjórnin reynir að sann-
færa Frakka um að veita purfi
Pjóðverjum greiðslufrest. Frakkar
eru dræmir, en gefa pó vonir
um frest á janúargreiðslu, ef
Pjóðverjar greiði vexti af er-
lendu láni er peir sjálfir purfi
að taka í staðinn.
Sættir eru komnar á milli
Englendinga og Ira og samn-
ingar eru undirskrifaðir. Stór-
kostlegur fögnuður yfir pessu í
Englandi. Öll blöð pakka Lloyd
George sættina nema versta
afturhaldsmálgagnið The Morn-
ing Post. Margir kveða svo að
orði, að pessí sætt sé meira
virði fyrir England, heldur en
sigur pess í stríðinu. Með henni
sé endi bundinn á 7 alda blóð-
uga deilu. Irland verður frjálst
ríki í brezka heimsveldinu með
sama konungi og England.
Á Washington fundinum hefir
tillaga Bandaríkjanna um fækkun
Aureyri.
Skemtiíamkomu hélt hjúkrunar-
félagið Hlff s. I. sunnudagskvöld. Þorst.
M. Jónsson alþm. flutti erindi og
leikinn var kafli úr einu leikriti Hol-
bergs. Og að lokum var dansað.
Einar Sigfússon kennir stefnu-
vottunum um rangan málatilbúnað sinn.
Mundu þeir eiga að útbúa málskjölin
f málum, sem Einar hefir höfðað og
færir sjálfur ? Lögin kveða skýyrt á
um það, að afrit af stefaum skuli af-
hent, en samkvæmt eldri lögum var
það skyldugt aðeins, ef stefndur æskti
þess. Yfir þetta sást Einari og kennir
svo stefuuvottunum um, sem áreiðan-
lega eiga ekki að sjá um tilbúning
skjala f málum hans. Ennfremur notar
Einar sér prentvillu eða ritvillu, sem
slæddist inn f Dag, þar sem vitnað
var í Mbl. Þar stóð 30. okt. fyrir 20.
okt. Má segja, að »litlu verður Vöggur
feginn.«
Sakleysi Júlíusar bankastjóra.
Eftir þvf sem íalendingi segist frá, er
Júlfus bankastjóri Kklega einhver sak-
lausasti maðurinn hér í bæ. Hann er
alsaklaus af þvf, að hafa skrifað nokk-
urn staf í íslending og er varað við
að drðlta slíku að honum og hann er
saklaus af þvf að veia við málaferli
Einars á Stokkahlöðum riðinn. Sakleysið
hans Júlfusar rfður ekki við einteyming
og væri ástæða til að gefa þvf gaum.
Frímann B. Árngrímsson hefir
skrifað grein f íslending, þar sem hann
heldur því fram, að verkið sem fram-
kvæmt var við rafveitu bæjarins sé
að ýmsu leyti svikið. Er sú ásökun
viðurhlutamikil og lfklegt að rafveitu-
nefndin liggi ekki undir henni þegjandi.
Sandell varkfræðingur, sem stóð fyrir
stíflugerðinni, var af öllum álkinn
samvizkusamur og íær í sfnu starfi
og er því þetta mjög ósennilegt.
Reynist ásökun þessi á engum rökum
bygð, er ástæða til að vlta hana
harðlega.
Fullveldisdans var háður hér í
Samkomuhúsinu 1. des. Þegar sú
réttarbót íékst, að æðsta stjórn allra
mála, önnur er konungur, fluttist inn
f landið, héldu menn hátíð til minn-
ingar um það áilega t. d. f Þingeyjar-
sýslu og lfklega vlðar nokkur ár á
eftir. Var þá mikið um ræðuhöld og
ýmsan fagnað. Nú er öldin önnur og
verður ekki séð, að íilendingar þykist
vera færir um að sýna nokkur merki
þess, að þeir get.i staðið á eigin fótum
öðruvísi en dansandi.
0fugmælí. Rltstj. Dags var íyrir
skömmu síðan staddur í vinahóp, þar
sem við voru staddir Björn Lfndal og
Einar á Stokkahlöðum. Varð þá meðal
annars tilrætt um samvinnumál. Út úr
þeim umræðum lýsti Björn Lfndal yfir
þvf, að hann væri einhver bezti sam-
vinnumaður á landinu,— »og þar næst
eg,« gall við Einar á Stokkahlöðum.
KvÖldsKemtun til ágóða fyrir
sjúkrahús bæjarins verður haldin f
kvöld kl. 9 f Samkomuhúsinu. Stein-
grfmur læknir segir frá ferð sinni til
Kíná og sýnir skuggamyndir þaðan.
Frú Júlfana Friðriksdóttir leikur smá-
leik (Hjartslátt Emilíu) Kvartett verður
sungið og að lokum dansað. Skemtunin
hefst kl. 9. e. h.
Bókasafnið er opið á þriðjudögum,
fimtudögum, föstudögum, og laugar-
daginn kl. 5 — 8 e. h.
Gjafir til nauðstaddra barna í
Austurríki.
Framhald.
Frá Nesi í Fnjóskadal 1 kr., frá
Skógum 2, Lundi 1, Vöglum 2, S. og
V. Hálsi 5, Birningsstöðum 2, Kambs-
stöðum 1, Sigríðarstöðum 2, Forna-
stöðum 3.50, Hallgilsstöðum 5, Drafla-
stöðum 4, Vestari Krókum 3, Austari
Krókum 12, Garði 6, Böðvarsnesi 9,
Hóli 5, Végeirsstöðum 5, Vatnsleysu 2,
V. D. Siglufirði 10, S K Mógili 10,
Onefndur á Ak. 10, Ónefnd Ak. 5,
N. N. 5, Kristjana Árnad. Hellulandi
5, Frá Fagranesi 10, Frá Hellul. 10,
Elfsabet Jónsdóttir Grenjaðarstað 5,
Elfsabet H Jónsdóttir s. st. i, P. Helgi
Hjálmarsson s. st. 5, Soffía Helgad.
s. st. 2, Karen ísaksdóttir 8. st. 5,
Vilborg Jónsd. s. st. 2, Þórhálla Jónsd.
s. st. 2, Helga Sigurjónsd. Kraunast. 2.