Dagur - 09.03.1922, Blaðsíða 4
38
DAQUR
10. tbl.
SKINN SKINN | SKINN SKINN
Sútunarverksmiðja okkar hefir nú tyrirliggjandi miklar birgðir
af sútuðum sauðskinnum, bæði með ull, og eins Iituð og ólituð
skinn ullarlaus, ætluð til söðlasmíðis. VERÐIÐ ER LÁQT. Pant-
anir út um landið afgreiddar með fyrsíu ferðum;
Haraldur Guðnason & Co., Akureyri.
réýni jafnt og þétt að tortryggja fjár-
hagsástæður félagsins og lama láns-
tráust þess. Engir menn á landinu
nema Einar og örfáir aðrir áhangendur
íslendings meta sóma sinn svo lftils,
að beita sllkum vopnum. Og engu
málgagni eru sllk skrif samboðin
nema íslendingi.
Brotfrekstur Einars á Stokkahlöð-
um úr Kf. Eyf. er honum að vonum
þyrnir í holdi. Dagur hefir hlífst við
að skýra frá þeim atburði vegna Ein-
ars. Formaður félagsins hefir í grein
sinni hér f btaðinu minst á hann. í
stað þess að þegja það mál fram hjá
sér, hefir Einar í io tbl. ísl. ýms
digurmæli á takteinum. Hann spyr
hver sé hinn rétti vettvangur að leita
réttar sfns, en svarar þvf sjálfur á
þá leið, að réttur vettvangur séu
dómstólarnir og segist geyma sér rétt
sinn. Til skýringar má geta þess að
þeir, sem sæta brottrekstri, geta skotið
máli sfnu til næsta aðalfundar félags-
sins. Geta má nærri, hvort Einari
hefði verið það á móti skapi, að aðal-
fundur heíði ónýtt þessa ráðstöfun
stjórnarinnar, ef hann hefði treyst á
málstað sinn! Enginn vafi er á því
að réttur Einars verður vel geymdur
undir lás hans eigin sektarmeðvitundar.
Æran hans Einars, eigi sfður en annara
manna, er svo bezt geymd, að ekk-
ert sé við henni hróflað. Ritstj. Dags
hefir f málaferlum sfnum við Einar
komist f talsvert náin kynni við hana
og veit, að hún er ofur-viðkvæm, eins
og móðursjúk kona, sem ekkert má
fyrir koma.
Opið bréf
til
sambandsfélaga Iþróttasambands
Islands innan Norðlendinga-
fjórðungs.
Ein af hinum mörgu fþróttum, sem
mjög er að ryðja sér til rúms er hið
svo nefnda viðavangshlaup.
Eins og allir fþróttamsnn vita, þá
er þetta gagnleg og afar skemtileg
fþrótt, fþrótt sem margar þjóðir og
þá einkum Englendingar hafa iðkað
marga mannsaldra og hefir hún átt
afarmiklum vinsældum hvarvetna að
mæta. Og þótt undarlegt megi heita,
þá er þeasi ágætis fþrótt mjög Htið
iðkuð hér á landi. En við svo búið
finst öllum áhugasömum fþróttamönn-
um eigi lengur megi una og er
það þessvegna að fþróttafélagið »Þór«
Oddeyri, hefir ákveðið að halda vfða-
vangshlaup hér við Akureyri sumár-
daginn fyrsta n. k. og býður það þv
hér msð öllum íþrótta- og ungmenna-
félögum í Norðlendingafjórðungi, sem
eru í í. S 1, að taka þátt f hlaupi
þessu.
Hlaupið höfum við hugsað okkur
um 4000 metra. Verður sumt af
þessari veg lengd hlaupið eftir dá-
góðum vegi og sumt yfir holt og hæðir
og tii tálmana; garðar, skurðir og
girðingar. Kept verður f fimm manna
sveitum og væri það æskilegast, að
allir þátttakendurnir f sömu sveitinni
væru úr einu og sama félaginu, en
sé þess eigi kostur þá geta tvö félög
f sameiningu sent eina sveit.
Og að endingu er fastlega skorað
á öll þau fþrótta- og ungmennafélög,
(sem eru í í. S. í) hér f nágrenninu
og eins á þau sem Iengra eru til, ef
þeim er það eigi mjög miklum erfið-
fleikum bundið, að senda menn á þetta
yrsta vfðavangshlaup, sem háð verður
hér á Akureyri.
Eftir svari frá félögunum óskum við
svo fljótt, sem frekast er unt.
Akureyri, 16. febr. 1922.
í útifþróttanefnd íþróttafélagsins
»Þór« Oddeyri -
Ingðlfur Guðmundsson,
Karl Hallgrímsson,
Sieindór Hjalialín.
Gjafir til nauðstaddra barna
Austurrfki.
Jónas Jónasson Sílaiæk 2.00, Þór
Jónasson s. st 5 00, Jónas Andrés-
son s. st. 5.00, Laufey Indriðadóttir
s. st. 2 oo, Helga Jónasdóttir 3. st,
1 00, Margrét Sigurðardóttir s. st.
1 00, Þórh. Andrésson s. st. 2 oo,
Hámundur Jónasson s. st. 2 00, Þor-
geir og Gyða á Sandi 3 00, Guðrún
Oddsdóttir s. st. 5 00, Iogibjörg Hall-
grímsdóttir s. st. 3 oo, Sigfríður
Kristinsdóttir s. st. 2 00, Baldur
Guðmundsson s. st. 1 00, Heiðrekur
Guðmundsson s. st. 1.00, Þurfður
Hallgrímsdóttir s. st. 3 00, Hólmfr.
Friðjónsdóttir s. st. 5 00, Bjartmar
Guðmundsson s. st. 5.00, Þorgnýr
Guðmundsson s. st. 1 00, Völundur
Guðmundsson s. st. 1 00, Auður
Friðbjarnardóttir Hranast. 5 00. Her-
borg Jónsdóttir s. st. 5 00, Halfdánía
Jóhannesdóttir s. st. 2 00, Sigurjón
Ármannsson s. st. 3 00, Sigrún Jónas-
dóttir s. st. 5 00, Friðrikka Eyjólísd. s.
st. 1.00, Frá Hellnaseli 3 00, Hallfrfður
Sigurbjörnsdóttir Skriðuseli i.oo,
Illugastaðasókn 20 00, Steingrfmur
1000, í S. Akureyri 5 oo, Frá Sjúkl-
ingi 2 00, Helga Jósepsdóttir Svæði
Grenivík 10.00.
*
*
KarlmannasokKar
úr ull, með ýmsum litum.
Kvenpeysur
mjög hlýjar með mismunandi gerð og'Jitum.
Sjalklúfar
úr ull, smáir og stórir, fæst í
KAUPFÉL. EYFIRÐINGA.
• •••• •• • ••
Verzlunii) ,Braffahlið‘
gefur 25—50°|0 afslátt
til 15. þ. m. af skófatnaði, ýmsum tegundum og mðrgu fleiru.
NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ!
8. marz 1922.
Brynjólfur E. Stefánsson.
Samband Islenzkia
Sam vinn ufélaga
hefir fyrirliggjandi og útvegar alls konar
LAN DBÚN AÐARVERKFÆRI:
Sláttuvélar, Milwauke.
Rakstrarvélar, Milwauke.
Snúningsvélar, Milwauke.
Brýnsluvélar fyrir sláttuvélaljái.
Plóga frá Kyllingstad Plogfabrik, er hlutu fyrstu viður- ^
kenningu á landbúnaðarsýningunni í Rvík 1921.
Oarðplóga, Pinneberger.
Rótherfi, Pinneberger.
Tindaherfi, Pinneberger.
Arfaplóga, Pinneberger, með tilheyrandi hlújárnum, sem
hlutu. sérstaka viðurkenningu á fyrnefndri sýningu.
Rófna sáðvélar.
Forardælur.
Vagnhjól frá Moelvens Bruk.
Skilvindur, Alfa Laval.
Strokka, Alfa Laval o. fl. o. fl.
Ennfremur verkfæraskápa með öllum algengum smíðatólum.
Tilbúinn áburö, gaddavfr o. m. fl.
Flest verkfærin hlutu viðurkenningu á landbúnaðarsýn-
, ingunni í Reykjavík 1921 og eru valin í samráði við 4»
'tít Búnaðarfélag íslands, sem einnig gefur upplýsingar um pau. #
í
Ritstjóri: JÓNAS
Prentari: OODUR BjÖRNSSON
E-G-G
daglega keypt f
Sjúkrahúsi Akureyrar.