Dagur - 30.03.1922, Síða 2
48
DAOUR
13. tbl.
Uþpboð.
Mánudaginn 1. maí næstkomandi verður opinbert uppboð haldið að
Ytra Kálfskinni á Árskógsströnd og þar seldir ýmsir innanhóssmunir s. s. :
rúmfatnaður, borð, eldavél, pottar, skæðaskir.n og ýmisl. fl. Sömultiðis
ýms útanhússverkfæri og áhöld s. s. reipi, sleði, aktýgi, mylnukvörn og
margt fieira.
Ennfremur 2 hryssur, 8 og 4 vetra, og 10-20 ær, ef viðunanleg boð
fást.
Uppboðið hefst kl. 12 á hádegi og verða uppboðsskilmálar birtir á
uppboðsstaðnum.
Kálfskinni 22, marz 1922.
jón Guðjónsson.
Samband Isl.
Sam vinn ufélga
útvegar beint frá verksmiðjunni
hið viðurkenda, ágæta
Mc. Dougall’s
BAÐLYF.
Bókasafnið
verður fyrst um sinn opið, þriðju-
dögum, fimtudögum og laugar-
dögum kl. 5 — 8 síöd.
Bókavörður.
Uppboð.
Laugardaginn 22. apríl n. k. verður
opinbert uppboð haldið að Hvamm-
koti í Arnarneshreppi og þar selt
ef viðunandi boð fæst: 1 kýr ung,
1 hestur 5 vetra öjf veturgamalt
tryppi, 20 ær og 10 gernlingar^
einnig nokkuð af dauðum munum
Söluskilmálar verða birtir á upp-
boðsstaðnum.
Hvammkoti 20. marz 1922,
Magðalena Sigurðardóttir.
Þipgfréttir. Átta lög eru afgreidd
og eru það flest sroámál. Þar á meðal
eru lög um að prestmata sá, 2 hundruð
á landvfsu, sem goldin hefir verið af
Grund í Eyjafirði, til prestanna í
Grundarprestakalli og Akureyri, falli
til Grundarkirkju gegn því að kirkju-
bóndinn gefi kirkjunni upp skuld þá,
sem hún er nú i við hann, 3. uror.
fjárlaganna er búin að standa yfir (
3 daga og stendur yfir enn f dag.
Margar breytingartiliögur. Eftir 2. umr.
var tekjuhallinn orðinn 140.000 og
búist við að hann vsxi. Feld tillaga
fjárhagsnefndar um afnám styrksins til
barnafræðslu. Fræðslumálin verða tekin
fyrir í Nd. að loknum fjárlagaumr.
Ekkert heyrist frá viðskiftanefnd og
sagt að mjög gangi þar í þófi. A
laugardaginn var lokaður fundur hald-
inn um Spánarsamningana og er öllu
um það mál haldið leyndu að svo
stöddu.
Símskeyti.
Reykjavlk, 29. niarz.
Bretar og Bandaríkjamenn
vilja að bandamenn gefi hvor
öðrum upp ailar hernaðarskuldir
og felli skaðabætur Þjóðverja
um 2/s hluta. Enn er ófrétt
hversn Frakkar taka þessu.
Friður saminn milli Tyrkja og
Orikkja. Tyrkir fá, Litlu-Asíu og
að líkindum Miklagarð.
Þjóðabandalagið undirbýr
Qenúafundinn í Paris.
Lloyd George er talinn Iíkleg-
ur til að semja fullan frið við
Rússa hvað sem Frakkar og
Bandaríkjamenn gera.
Bannmenn héldu hér öflugan
mótmælafund gegn afnámi bann-
laganna síðast liðinn sunnudag.
Norðmenn láta ekki( undan og
mikil ástæða til að óttast að
afleiðingarnar komi niður á
aðalkjötmarkaði íslenzkra bænda
í Noregi ef við í hagsmunaskyni
svíkjumst undan merkjum í bar-
áttunni við Spánverja.
Fréttaritari Dags.
Fólkráðningastofa
Norðurlands
ræður fólk tii sveita- og sjávarvinnu
yfir lengri og skemmri tíma. —
Sanngjörn ómakslaun. — Sími 110.
. Halldór Friðjónsson.
M j ó I K
fæst hjá
Árna Jóhannssyni.;
Kf. Eyf.
Þrjár endur
til sölu
R. v. á.
Nýkomiö í
bókaverzlun
Sig. Sigurðssonar:
Jón Björnsson: Sóldægur (Ijóö).
Ibsen: Pétur Gautur (leikr.).
Jón Thoroddsen: Maiía Magðalena
Jón Leifs: Tónlistarhættir.
CRitstjóri: JÓNAS ÞóRBERGSSOjTS
Prentari: OPDUR BjÖRNSSON þ
Kosningar.
(Oreinarkafli úr skrifuðu sveitar-
blaði.)
.Framh.
2 Þá telja menn vfst að fram koroi
listi frá bandalagi kaupmanna, auð-
manna og broddborgari um land alt.
Væri þá næst að kenna þann lista
við Morgunbladið I Reykjavfk, sem
eflaust ytði málgagn listans.
3. Sjálfstœðisflokkurmn kemur Iík-
lega fram með lista, þó sá flokkur
eigi kyrra tvo landkjörna menn á
þinginu.
1. Jafnaðarmenn má telja víct að
kömi fiam með lista. Þeir geta eigi
gengið fram til bardaga undir neinu
öðru merki en sfnu cigin.
Ekki er lfklegt að hinar litlu leifar
Heimastjórnaiflokksins komi fram með
sérstakan lista Stefnumaiki þess flokks
er náð fyrir nokkru sfðan og flokk-
urinn því eðlilega sundraður, sem
slíkur.
Ef(ir þessu yrðu listarnir jafnmargir
og við landkjörið 1916 og frá sömu
flokkum, nema hvað Morgunblaðslist-
inn kemur ( stað Heimastjórnarlistans.
Að vfsu er ekki gott að vita hvaða
nafn hinn nýji, blandaði flokkur kann
að velja sér, en undir hvaða grímu
sem listi þeirra kann að birtast, mun
mega telja svo, að að honum standi
þeir stórlsxahópar, sem hér hafa
verið nefndir.
Um hvaða aðalstjórnmálastefnur
verður svo kosið ?
Þungaraiðjan I allri okkar innan-
landspólitfk, nú sem stendur, er aðal-
lega sú: hvcrjir það eigi að vera, sem
hafi mest að segja f löggjöf og stjórn
þessa lands og þá hvort heldur land
búnaðarmenn jafnframt smærri sjávar-
útvegsmönnum og smáatvinnurekend-
um, éða stórlaxar kaupstaða og kaup-
túna, með sfnum áhangendum. Með
öðrum orðum: hvort hér eigi að verða
raungæft lýðveldi eða höfðingjaveldi
'{ landinu.
Segja má að ýmislegt komi hér
fleira tll skjalanna, en það eru þá
aðallega greinar út írá ssroa megin-
stoíni. Þannig má segja að samvinnu-
íélagsskapurinn, vínbannsmálið, sparn-
aðarstefnan og alvarleg viðleitni þess,
að koma þjóðinni sem íyrst út úr
fjárhagsvandræðunum eigi sfnar aðal-
stoðir bjá Framsóknarflckki þingsins.
Nokkrir þingmenn f öðrum flokkum
munu að vísu líta svipað á málin, en
þeir njóta sfn miður, œeðan þeir
standa dreifðir/ og andstæðum öflnm
háðir, að of miklu leyti.
Þetta er vitanlega stutt skýring á
mikílvægu og tnargbrotnu máii, en í
litlu skriíuðu blaðkrýli er ekki unt að
rekja ýtarlega alla þætti í stjórnmála-
sögu vorri.
Aí þvf, sem að framan greinir, er
það auðsætt að aðalkosningabarátta,
bæði við landskjörið nú I sumar og
við kjördæmakotningarnar 1923 hlýtur
að verða milli ands/ceðustu flokkanna:
Framsóknarflokksias og Morgunblaðs-
flokksms.
Hér haía þá verið leidd fram nokkur
rök til þess, hvers vegna þess ætti
að mega vænta, að sveitamenn o. fl.
fylki sér avo fast undir merki Fram-
sóknarlÍBtans, að sá listi fái langsam-
lega flest atkvæði kosningadaginn 1.
júlf þ. á.
Allir þeir, sem vilja að þvf hlynna
að fslenzkur landbúnaður leggist ekki
I kaldakol, eiga að kjósa þann lista.
Allir þeir, sem vilja hindra það, að
ættlandið okkar verði fljótlega aðeins
• kríusker* og »skarfasetur« ciga að
kjósa þann lista.
Þér konur sveitarinnar, sem hafið
kosningairétt, gerið nú það sómastryk
að fjölmenna jafnskörulega á kosninga-
fundinn 1. júlf f sumar eins og þér
gerðuð eitt sinn áður. Munið það
meðal annars, að vínbannslögin eiga
afna mestu andstæðinga f höfðingja-
flokknum. Munið það einnig, að Fram-
sóknaiflokkurinn vill öfluglega styðja
að hollri og þjóðnýtri menningu barna
yðar og að það er sá flokkurinn, sem
yfirleitt skilur bezt, hvar skórinn
kreppir að almenningi f sveitunum.
Vera má, að sumir menn kalli þetta
»lögeggjan« eins og Skarphéðinn
nefndi hvatningsrorð móður sinnar,
forðum daga. En þess ber vel að
gæta, að hálfkveðnar vfsur og vetlinga-
tök duga hvorki við lsndkjörið f sumar
né við kjördæmakosningarnar næsta
ár.
Ritað 5. janúar 1922.