Dagur - 12.04.1922, Síða 1

Dagur - 12.04.1922, Síða 1
' I DAQUR kemur út á hverjum fiintudegi. Kostar kr. 6.00 árg. Ojalddagi fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast ritstjóri blaösins. AFGREI ÐSLAN er hjá Jóni í>. I>6r, Norðurgötu 3. Talsími 112-, Uppsögn, hundin við áramót, sc koniin til afgreiðslumanns fyrir;l. des. V. ár. Akureyri, 12. apríl 1922. 15. blaö. 0-F-N-R-Ö-R og R-Ö-R-H-N-É flestar teg. einatt fyrirliggjandi. Ennfremur þvoffapoffar, sjálfstæðir með eldhólfi, er kosta 100—560 kr. Jón Stefánsson. Talaírai 94. Xkureyri. Fáum við þúfnabana ? Fyrir nobkru birtist skeyti hér í blaðinu þess efnis, að Sig. Sigurðs- son forseti Búnaðarféiagsins vildi að inn yröu fluttar 3 þúfnabanar á næsta sumri. Minna mætti gagn gera og því betur eru horfur á, að eitthvað verði gert, til þess að ryðja til rúms meira en orðið er þessari langsamlega stórstigustu umbót í fslenzkum landbúnaði. Hér norðanlands er mikill áhugi fyrir þessu og gengst Rf. Nl. fyrir málinu. Dagur hefir fengið eftirfar- andi upplýsingar hjá framkvæmda- stjóra félagsins, hr. Einari J. Reynis: Sú hugmynd, að fá eina þessa vél hingaö norður, hefir vakað fyr- ir félaginu síðan í fyrra. Og þar sem margt mælir með þvf, að und- inn sé að þessu bráður bugur, er það um þessar mundir að gangast fyrir samtökum hér nyrðra, til þess að hrynda málinu fram nú þegar í vor. Hugsun þess er sú, að þaö sjálft, Akureyrarbær og Eyjafjarðar- sýsla kaupi vélina að þriöjungi hvert. Síðan séu teknar til brots um 100 dagsláttur í Iandi kaupstaðarins og pöntunum í vinnu vélarinnar safnað hjá bændum í nærsveitun- um. Máliö hefir þegar verið lagt fyrir sýslunefndina og hún hefir tekið því og næstu daga segir bæjarstjórn- in til fyrir sitt leyti, hvað hún vill í málinu. Er lftill vafi á, að hún veiti því einhuga fylgi. Kemur þelta vel heim við það áhugamál bæjar- atjórans, sem um var getið hér f blaðinu fyrir skömmu, að koma upp kúabúi fyrir bæinn. Tveir menn á landinu kunna að fara með vélina: þeir Árni O. Ey- land ráðunautur og Sigurður Egils- son frá Laxamýri. Hefir Siguröur verið ráðinn af Rf. Nl., til þess aö stjórna vélinni, ef til kæmi. Einn stjórnarnefndarmaður Rf. Nl,, kennari Brynl. Tobiasson, skýrði málið fyrir bændum á aðalfundi ► Kf. Eyf. og voru undirtektir ein- Y ^ rómagóðar. Skrifuöu nokkrirbænd- ur sig þegar fyrir pöntunum f vinnu vélarinnar, ef til kæmi, eða fyrir um 80 — 90 dagsl. Það, sem einkum gefur ástæðu til þess, að hiaða framkvæmdum, er f fyrsta lagi, að aldrei hefir ver- ið meiri þörf en nú, að auka fram- leiösluna I landinu og koma land- búnaðinum til hjálpar með ein- hverjum þeim ráðum, sem eru hon- um ekki ofurefli. í ööru lagi, að vélina er hægt að fá í Treliaborg á Skáni f Svíþjóð og að hún er nú 10000 kr. ódýrari í innkaupi, en hún var i fyrra, eða 35 þús. sænsk- ar kr. í þriðja lagi, að nú býðst Ræktunarsjóöslán, til þessa fyrir- tækis, en litlar eða helzt engar Ifk- ur til, að það fáist næsta ár, vegna annara lánbeiðenda. Vegna hins lága gengis islenzku krónunnar, er gert ráð fyrir, að vél- in kosti hingaö komin um 60 þús. kr. Með tilskildri afborgun af láni og þeim reksturskostnaði, sem bú- ist er við, ar gert ráð fyrir aö hægt veröi að vinna dagsláttuna fyrir um 100—120 kr. Og þó gert væri ráð fyrir, að kostnaðurinn yrði nokkru meiri, ef um langa flutninga væri að ræða, má búast við að vinsian kosti upp og ofan ekki meira en V* af því, sem hún hefir kostað meö þeim aðferðum, sem tíðkast hafa hingað til. Líklegt má telja, að Rf. Nl. verði falin framkvæmd á fyrirtækinu. Pess má enn geta, að vél sú, sem nú er í boði, er sterkari þeirri sem kom upp til Suðurlandsins síð- astl. sumar, því að þeir vélarhlutar, sem helzt vildu bila, hafa verið styrktir til muna. Vonandi er að allir, sem hiut eiga að máli, leggist á eitt um að hrynda málinu fram og að fyrirtæk- ið gefi betri raun en HArður« sál- ugi, enda er nú reynsla fengin fyr- ir ágæti umræddrar vélar og frum- kvæðiö f þessu máli eiga menn, sem fremur má treysta í þessum efnum, heldur en þegar HArður" var á upp- siglingu. Um bókasöfn. V. Það verður næst fyrir að athuga Bókasafn Norðuramtsins og ástæðurn- ar þar. Það mun óhætt að segja, að safnið sé tiltölulega auðugt af bókum og hefir áhugasaman bókavörð, en allir munu ljúka upp sama munni um það, að ástæðurnar séu að öðru leyti svo hraklegar, sem verða má. Bóka- safnið hefir sem stendur yfir svo litiu húsnæði að ráða, að þar er með naum- indum hægt að hrúga bókunum sam- an. Aðstaðan við útlán bóka langt. fyrir neðan það, að sæma bænum og sýalunni. Mikið af bókum óbundið vegna fátækíar. Enginn lestrarsalur fyrir þá, sem f ró og næði vilja hag- nýta sér safnið til lestrar og vísinda- iðkana og loks má telja það, sem er alls ámælisverðast, að yfir safninu vofir glíurleg eidhætta í kjallaranum undir Samkomuhúsi bæjarins, þar sem gálaus Iýður dansar og ryðst um margar nætur. Það bregður ömurlegu Ijósi yfir menningarástand þessa bæjar, að þær fáu sálir, sem ieita til safns- ins, heyra ekki hverjar til annara oft og einatt íyrir glamri og fótasparki íjöidans, sem í rúmum sal treður þetta menningartæki bæjarins, í þröngri kjall- araholu, undir fótum. Það mun vera erfitt um það að dæma, hvort er meira skaðinn eða skömmin, sem bærinn hcfir af slfkri meðferð á svo dýru safni. Gera má ráð fyrir, að safnið sé um 50000 kr. virði og mun vera vátrygt mjög lágt. Þess er og að gæta að engin vátrygg- ing gæti bætt þann skaða, sem yrði við bruna, þar sem safnið á vitanlega margar fágætar bækur og að ekki yrði unt að fá þær aftur. Það verður því að gera þá kröfu, að safninu verði trygt ekki einungis rúmt húsnæði með góðum lestrarsal, heldur eldtrygt hús- nœði. VI. Tæplega mun hægt að koraa við sumum nauðsynlegum umbótum í með- ferð safnsins og útlánum bóka, nema til betra skipist um húsnæði safnsins og fjáihag, en verði nokkru hægt um að þoka, liggur þetta verkefni fyrir Jónasi Sveinssyni bókaverði: 1. Raða bókunum eftir efni sam- kvæmt bókaflokkunarskrá og festa númer bæði á kjöl og innan á spjaldið. 2. Skrifa spjaldaskrá og útvega skáp fyrir hana. 3 Skrifa aðfangabók eftir þar til gerðri fyrirmynd. 4 L&ta lántakendur kaupa lánaspjöld, er þeir framvísi f hvert sinn, sem þeir fá bók og skrifa á það eða stimpla dagsetninguna, þegar bókin er lánuð. Láta hvern lántakanda hafa númer og skrifa það á lánaspjaldið. 5. Setja spjald á hverja bók, — bókarspjald, sem tekið er og geymt meðan bókin er í láni. Skrifa á það númer lántakanda og skrifa á það eða stimpla dagsetninguna, þegar bókin er lánuð og henni skiiað. 6. Skrifa lista fyrir lántakendur með númeri fyrir hvern. 7. Auglýsa í víðiesnu blaði eða fjöl- rita og útbýla árlega lista yfir nýjar bækur, sem safnið hefir eignast o. s. frv, Það tíðkast nú mjög á Norðurlönd- um, að ungt fólk myndar námsflokka, en það eru hópar manna, sem hafa það augnamið, að leggja stund á sér- stakar fræðigreinir í senn og verða sem bezt að sér í þeim. Aðferð þeirra er sú, áð bera ráð sín saman hverjar muni vera beztar bækur í þeirri grein, afia sér þeirra, lesa rækilega, koma siðan saman og ræða viðfangsefnið frá sem flestum hliðum. Ekki er ólíklegt að fslenzk ungmenni taki upp þenna vænlega sið og verður þá verkefni bókassfna og bókavarða, að lána þess- um námsflokkum bækur og leiðbeina þeim um val á bókum. Þá liggur og fyrir að samræma smærri og stærri bókasöfn og koma á samvinnu með þeim þannig, að stærri bókasöfnin láni þeim smærri og svo námsflokkunum bækur í slött- um og smærri bókasöfnin hvert öðru. Séu bækurnar fluttar á milli f þar til gerðum kössum, sem um leið eru skápar. Vegna samræmisins á hver bók sð eiga sinn bás, hvðr sem hana ber að garði. VII. Jónas Sveinsson hefir beðið blaðið að votta Sigurgeir Friðrikssyni fylsta þakklæti sitt fyrir alúð og lipurmensku í þessu máli og áhuga um að láta för sfna verða sem árangursmesta. Sömuleiðis cr hann forstöðumöanum Bókmentafélagsins þakklátur fyrir alúð þeirra og aðstoð. Sjálfur er Jónas fullur áhuga fyrir því að safnið kom- ist f gott lag og að hagur þess vænk- ist hvað húsnæði og fjárhag snertir. Má vænta þess að áhugi hans komi safninu að góðu liði, því áhuginn verður jafnan þyngstur á árum, f hvaða átt sem róa skal. Nýlega hefir komið út í Andvara og er sérprentuð ítarleg ritgerð um »Bókasöfn og þjóðmenningc eftir Pál Eggert Ólason. Er það útdráttur úr bók um þetta efni, eftir sænska menta- konu Valfrid Palmgren að nafni. Þar er gerð ítarleg grein fyrir starfsemi annara þjóða f þessá átt og getum við íslendingar vafalaust mikið af þvf lært. En sérstakir staðhættir okkar krefjast að sjálfsögðu sérstakra að- ferða og er þar mikið verkefni fyrir þá sem áhuga hafa fyrir bókvfsi og sjálfsmentun. Margt fleira mætti um þetta efni skrifa, en hér skal staðar numið. Grein

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.