Dagur - 04.05.1922, Qupperneq 2
62
DAOUR .
18. tbl.
Landssíminrv
Frá 1. maí fellur niður stofngjaldið á símskeytum innanlands.
Verður gjaldið pví aðeins 10 aurar fyrir orðið. Minsta gjald 1
króna. Innanbæjarskeyti helmingur almenns símskeytagjalds. Póst-
ávísanasímskeyti innanlands 2 krónur fýrir skeyti.
Ritsímastjórinn á Akureyri 2, maí 1922.
Halldór Skaptason.
Sfór jörð til sö/u.
Jörðin Mjóidalur í Húnavatnssýslu er laus til kaups og ábúð-
ar í næstu fardögum, 1922. Jörðin gefur af sér minst 300 Iiesta
af töðu, 1000—1500. hesta af útheyi. Jörðinni fylgja: ágætt íbúð-
arhús úr tímbri, útihús, öll í góðu lagi, og girðing um tún, sem
er að meiri hluta slétt. Jörðin verður seld með vildarkjörum.
Upplýsingar gefa: Stefán Sigurðsson, Mjóadal, skólameistari
Sigurður Guðmundsson, Akureyri og Jónas Sveinsson, Uppsölum,
sem semur um verð á jörðinni.
^ðalfundur
Verksmiðjufélagsins á Akureyri'
verður haldinn mánudaginn 12. júní n. k., í Sam-
komuhúsi Akureyrarbæjar og hefst kl. 1 e. h.
Dagskrá samkvæmt félagslögunum, ennfremur
breytingar á lögum félagsins og ýms fleiri áríð-
andi málefni.
Akureyri 1» maí 1922.
U p p b o ð.
Priðjudaginn hinn 9. maí n. k. verður haldið opinbert uppboð
að Ásláksstöðum í Glæsibæjarhreppi og par selt, ef viðunandi
boð fæst: nokkrir búshlutir, mikið af ska?ðaskinni, nokkrar kind-
ur, ein ágæt kýr og ef til vill 2 hross.
Uppboðið hefst kl. 12 á hádegi og verða söluskilmálar birtir á
uppboðsstaðnum.
Ásláksstöðum 28. apríl 1922.
Steingrímur Sigvaldason.
Framkvæmdarstjórn Verksmiðjufélagsins.
Ragtiar Ólafssoti. P. Pétursson.
Sigtryggur /ónsson.
Símskeyti.
Reykjavík, 3. maí.
Tyrkir hafa enn hafið ákafa
sókn í Litlu-Asíu og tekiö tvö
porp af Grikkjum.
Borgarastyrjöld hafin í Kína.
Peking í umsátursástandi.
Deschanel fyrverandi forseti
Frakka er látinn.
Alpjóðaverkalýðsráðstefna í
Róm hefir sampykt að beitast
fyrir allsherjarverkföllum , til að
afstýra stríðum, hvenær sem er.
GenúaráðStefnan klofin í Rúss-
Iandsmálum. Italir og Englend-
ingar vilja hliðra til við Rússa,
en Frakkar, Belgir og Japanir
vilja ekki vægja.
Páfinn hefir viðurkent Sovét-
stjórnina í Rússlandi, gegn pví
að jesúítar og franciskanmunkar
fái að starfa í Rússlandi.
Sterling strandaði við Brim-
nes eystra. Skipið talið eyðilagt.
Var vátrygt fyrir eina miljón
og 50 pús. kr.
Fálkinn tók 9 togara í land-
helgi á útleið. Sektir alls 31
, pús. kr.
Sundkensla.
Eins og að undanförnu, Iætur U.
M. F. „Framtíð* í Hrafnagilshreppi
kenna sund í sundstæði sínu við
Kristnes. t>eir, sem ætla að njóta
kenslunnar, sendi umsóknir til ann-
arshvors okkar undrirritaðra fýrir 25.
maí n. k.
Halldór Quðlaugsson,
Hvammi.
Júlíus Ingimarsson,
Litlahóli.
Aðalfundi sambandsins er
lokið. Ólafur Briem kosinn for-
maður. Stjórnin að öðru leyti
endurkosin.
Fréttaritari Dags.
F r étt i r.
Sterling sfrandaður. Á mánudags-
morguninn var strandaði Sterling á
Brimnesi í Seyðisfirði. Kafþoka var á.
Mönnum og pósti var þegar bjargað.
Sagt er að sjór sé kominn f skipið
og líkur fyrir að það sé ónýtt.
Fullyrt er að skipið sé vátrygt fyrir
rúma eina miljón kr.
Söngpróf barnaskólans fór fram f
Samkomuhúsi bæjarins á mánudags-
kvöldið. Húsfyllir var og voru raenn
ánægðir með söng barnanna.
Samband Isíenzkia
Sam vinn ufé/aga
hefir fyrirliggjandi og útvegar alls konar
LAJ^DBJJNAÐARVERKfÆRn
Sláttuvélar, Milwauke.
Rakstrarvélar, Milwauke.
Snúningsvélar, Milwauke.
, Brýnsluvélar fyrir slátíuvélaljái.
• Plóga frá Kyllingstad Plogfabrik, er hlutu fyrstu viður-
kenningu á Iandbúnaðarsýningunni í Rvík 1921. cL,
Garðplóga, Pinneberger.
Rótherfi, Pinneberger.
Tindaherfi, Pinneberger.
Arfaplóga, Pinneberger, með tilheyrandi hlújárnum, sem
hlutu sérstaka viðurkenningu á fyrnefndri sýningu.
Rófna sáðvélar.
Forardælur.
Vagnhjól frá Moelvens Bruk.
Skilvindur, Alfa Laval.
J Strokka, Alfa Laval o. fl. o. fl.
T Ennfremur verkfæraskápa með öllum algengum smíðatólum.
X Tilbúinn áburð, gaddavír o; m. fl.
d-, Flest verkfærin hlutu viðurkenningu á landbúnaðarsýrw»njv
4> ingunni í Reykjavík 1921 og eru valin í samráði við
Búnaðarfélag íslands, sem einnig gefur upplýsingar um pau.
Sýslufundur Eyjafjarðarsýslu hófst
á mánudaginn var og stendur yfir
þessa dagana,
CRitstjóri: JÓNAS ÞORBERGSSOÍl’S
Prentari: Oddur Bjöbnsson A