Dagur - 31.08.1922, Síða 2
114
DAGUR
35. tbl.
Ásigling varð hér á firðinum í
íyrri viku skamt frá Svalbarðseyri og
sigldust á vélskipið »Hrönn« eign
Ragnars Ólafssonar, hlaðið af nýveiddri
sfld og norskt flutningaskip að nafni
»Blidensol.« Hrönn brotnaði mikið og
varð siglt með naumindum í strand
við Hlaðhamar skamt fyrir utan Sval-
barðseyri. Sjóréttur v r settur daginn
eftir hér á Akureyri og urðu sættir í
málinu og engar skaðabætur. Hefir
heyrst að ásiglingin hafi verið fremur
sök norska skipsins en málstaður
Hrannar spiltist mjög, er það vitnaðist
við próf, að hvorugur, skipstjóri eða
stýrimaður, höfðu verið á stjórnpalli,
þegar slysið vildi til.
Jónas Jónsson landskj. þingm.
kom með Lagarfossí til Siglufjarðar
og þaðan með Gullfossi. Hann fór á
laugardagskvöldið austur í Þingeyjar-
sýslu, til þess að heimsækja ættfólk
sitt og tók sér aflur far suður með
Gullfossi.
Mikil leit var gerð á sunnudaginn
að manninum, sem getið var um slð-
ast, að horfinn væri. Enn sú leit varð
árangurslaus.
SKógarför. Mesti fjöldi af farþeg-
um og skipverjum úr GulHossi ásamt
rnörgu bæjarfólki fóru skemtiför austur
í Vaglaskóg á sunnudaginn.
Koparnámu þykist Björn Kdstjáns-
son Alþm. hafa fundið nálægt Svínhól
f Lóni f Austur Skaftafellsýslu. Telur
hann vafalaust, að svo mikið sé þar af
kopar, að vel borgi sig að vinna hann.
Þýzkt vínsKip kom til Hafnarfjarðar
fyrir nokkru, sem þóttist ætla til
Newfoundland. Framferði skipstj. þótti
grunsamlegt og var hann tekinn fastur.
Sannaðist að tilgagurinn var sá, að
smygla víni þessu hér á land. Farm-
urinn var gerður upptækur, skipstj.
sektaður og dæmdur í eins mánaðar
einfalt fangelsi.
SKipaskaðar. Þann 17. þ. mán.
strönduðu tvö norskt skip við Langa-
nes. Annað var eimsk. »Varö«, en hitt
var þrímöstruð skonnorta að nafni
»Maxine Elliot« Skip'shafnirnar björg-
uðust.
Gullfoss fór aftur á þriðjudags-
morguninn til Húsavíkur til móts við
Goðafoss. Með skipinu voru fjöldi far-
þega, þeir sem með. þvf komu og
áður voru taidir og ýmsir sem verið
bafa á ferð hér nyrðra. Meðal þeirra
var Hallgr. Kristinss. forstjóri og séra
Jakob Kristinsson, sem hafa dvalið
hér nyrðra nokkra hríð.
Söngskemtun hélt ungfrú Helga
Bjarnadóttir frá Húsavfk í Samkomu-
húsinu á sunnudagskvöldið. Létu þeir,
sem á hlýddu, allvel af söng hennar.
Gagnfrœðaskólinn. Stórkostlegar
umbætur er verið að gera á skólanum
Veggir að innan eru allir strigalagðir
og málaðir, gert við gólf og glugga.
Uppi á háalofti er útbúin stofa íyrir
eðlisfræðíáhöldin og þau flutt úr kjall-
aranum, en bókasafnið flutt f kjallar-
ann, Sfðan verður gerð kenslustofa
úr bókassfnsstofunni. Miðstöðvarhitun
verður komið fyrir í skólanum og hann
raflýstur. Verður sfðar minst á þessar
mikilsverðu umbætur.
Blómasala Hjálpræðisherinn selur
blóm laugardaginn 2. september til
styrktar lfknarstarfsemi sinni, sem nú
er orðin mikil, þar sem hann hefir bygt
sjómannaheimili á fjórum stöðum á
landinu og auk þess sjúkrahús í
Hafnarfirði og gamalmennahæli á ísa-
firði. Allir bæjarbúar þurfa að kaupa
þessi blóm. Þau eru ekki dýr, Þeir,
sem vilja taka að sér að selja blómin,
gefi sig fram á Lsxamýri.
Oddur Björnssoí) prentmeistari
var meðal þeirra er tóku sér far með
Gullfossi. Flytur Oddur alíarinn úr
bænum, eins og kunnugt er orðið.
Á víðavangi.
Effirlitið í bænum. Mjög virðist
það fara í vöxt, að lögreglu- og
heilbrigðissamþyktir bæjarins séu alla
vega þverbrotnar. Bflarnir aka harðar
um göturnar, en leyfilegt er, að dómi
margra. Stundum hafa þeir ekkert ljós
aftan á, sem þó er lögboðið. Menn
stökkríða um göturnar og ganga um
þær ölvaðir með hávaða og dónalátum.
Þó það séu ef til vill eingöngu út-
lendingar, er slíkt framferði með öllu
ósæmilegt og óleyfilegt. Þá virðist
mönnum heilbrigðiseftirlitið ekki vera
á marga fiska. Sóðavík er kallaður
hluti af Strandlengju Akureyrar, — f
Oddeyrarbótinni. Þaðan leggur megnan
óþef fyrir vit manna, er fram hjá
ganga. Kamrar á bryggjum og al-
mannafæri eru þannig um gengnir, að
einungis er samboðið verstu sóðum.
í síðasta blaði var heilbrigðisfulltrúan-
um bent á, að athuga hvernig um
væri að litast undir stiganum, þar sem
fjöldi bæjarbúa og aðkomumanna þyrp-
ast inn í annað samkomuhús bæjarins
tvisvar í viku. Verði hann ekki við
þessari kröfu og geri þær ráðstafanir,
sem honum bera, verður að skora á
lögreglustjóra, að banna samkomur f
húsi þessu, þar til þeir, sem hlut eiga
að máli, sjá um, að betur sé umgengið
á þessum stað. Aðfinslur, sem þessar,
eru ekki vinsælar á prenti, en þeir
menn, sem þola, að fegurð þessa
bæjar sé þannig svlvirt og sóma hans
misboðið með sóðaskap, eru ekki of
góðir, til þess að lesa línur þessar.
Jóns-raunir. Tveir atburðir hafa
nýlega gerst á íslandi, sem kunnugir
menn segja, að mjög hafi tekið á
Kkama- og sálarkralta Jóns E. Berg-
sveinssonar. Eru það kosning Jónasar
Jónssonar á þing og ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um einkasölu á steinolfu.
Er það eitt dæmi þess, hvað veröldin
er oft harðleikin við góðláta menn,
að stefnur og atburðir þjóðíélaganna
íara sfnu fram, þó vissar persónur
eldist við það óeðlilega snemma, eins
og sagt er, að Jón geri þessi dagana.
Sterk bein þarf, til að þola sllka með-
ferð, þegar svo þungir atburðir bætast
við mikið annrlki, þvl Jón á mjög
annasamt um þessar mundir, meðal
annars við að útbúa málssókn á hendur
ritstj. Dags og safna drögum að
»Svartalista Landsverzlunar,* sem
hann hótaði að birta, ef einkasalan
yrði lögfest.
VínsKip. Fyrir skömmu var birt
hér í blaðinu frásögn »Verkamannsins«
um ferð þeirra Hjalteyrarfélaganna,
eftir steinafræðingnum út í Fjörðu, en
sem snúið var upp í ferð út að þýzku
skipi á Grímseyjarsundi og ónýttist
fyrir tregðu bátsformannsins, að sigla
annað en upphaflega hafði verið ákveð-
ið. Sagan var með þeirri frásögn ekki
meira en hálfsögð. Olfunni vár skipað
upp í Hrísey og fengu þeir félagar,
að sögn, bát þar, til að flytja hana
út í skipið. Nú ganga ýmsar sögur
um erindislok þar við skipshlið og
eftirköst þeirra, en þar sem sllkar
sögur eru óstaðfestar, þykir ekki
hlýða, að segja þær hér. Það er á
almæli að skip þetta hafi verið eitt
af hinum mörgu þýzku vínskipum, sem
sigla til bannlandanna og hafi legið
hér úti fyrir, til þess að selja skipum
vfn utan landhelgi og innan. Ekki
er vitanlegt, að nein tilraun hafi verið
gerð, til þess að hafa hendur f hári lög-
brjótsins, né rannsaka orðróm þann,
sem gengur um vínkaup manna f
skipi þessu.
Frá bæjarsfjórn. Það hefir komið
til orða, að byggja stfflu f Glerá hjá
Rangárvöllum og gera þar geymslu-
þró íyrir vatn árinnar, því hún gerir
meira, en að fylla þróna við neðri
stífluna þann tfma sólarhringsins, sem
rafmagnið verður lítið notað. Fengist
þá alt að V3 meiri kraftur að við-
bættri einni turbinu. Það, sem mælir
með þessu, er, að verkfræðingurinn er
ráðinn og yrði að standa fyrir þessu
verki án aukaborgunar og að áhöld
og trjáviður til steypugerðar er nú
fyrir hendi. Á þessum og fleiri for-
sendum hvíldi tillaga bæjarstjórans á
bæjar3tjórnarfundi 22. þ. m. um að
hafist yrði handa um verk þetta nú
þegar, en hún var feld f bæjarstjórn-
inni, eða ákvörðun frestað, sem gerir
sama gagn. Á fundi þessum kom fram
erindi írá lögreglustjóra um fjölgun
lögregluþjóna í bænum um 1 — 2 mán-
uði og var samþ. að veita honum
heimild, til að ráða 2 lögregluþjóna
um alt að tveggja mánaða tfma. —
Símskeyti.
Reykjavik, 31. ágúst.
.Afarmikil pátttaka í bannlaga
atkvæðagreiðslu í Svípjóð.
897521 atkvæði með 937423 á
móti banni. Dálítið ótalið, sem
breytir varla.
Skaðábótanefnd bandamanna
býður fiýzku stjórninni að senda
fulltrúa til Parísar, til samninga
um gjaldfrest.
William Cosgrane kjörinn for-
sætisráðherra Irlands.
Sorgarhátíðir um alt Iandið
við jarðarför Collins.
Austurríki vill sameinast ein-
hverju nágrannaríki.
Franska stjórnin vill útkljá
málið fyrir 15. september.
Bankahrun yfirvofandi í Pýzka-
landi.
Fréttaritari Dags.
Veski og Vasabók,
tapaðist síðastl. sunnudag frá
Qrund fram að Skjóldalsá eða kring-
um Qrund.
Finnandi er vinsamlega beðinn
að skila því til ritstjóra þessa blaðs
gegn sanngjörnum fundarlaunum.
Námsskeið
í kjólasaum, Iínsaum og útsaum hefi
eg n. k. vetur eins og að undan-
förnu frá 20. okt. til 20. jan. og
frá 1. febrúar til 30. apríl.
Sömuleiðis geta bæði stúlkur, sem
á námsskeiðinu verða, og eins utan-
námsskeiðs, fengið tilsögn í að taka
mál og sníða eftir því í sambandi
við kjólasaum. Tímar í baldering,
teikning og dönsku fást einnig, ef
óskað er eftir. Ykkur sem ætlið að
sækja um námsskeiðin annað eða
bæði, bið eg vinsamlega um, að
senda skriflegar umsóknir eða tala
við mig helzt fyrir 25. sept. n. k.
Akureyri 27. ágúst 1922.
Ánna Magnúsdóttir
Lækjargötu 3. Akureyri.
Fæði og húsnæði
fyrir einhleypa fæst nú þegar með
góðum kjörum í Lækjargötu 3.
Akureyri.
JjUktir, larripar, lampapartar og
lampaglös
nýkomið í verzlun
Kristjáns Sigurðssonar.
Hertur steinbitur.
Undirritaður hefir til
sölu ágætan, hertan stein-
bít.
E. Einarsson.
Nýtt í bókaverzlun
Sig. Sigurðssonar.
Matth. Jochumss. Sögukaflar af sjálf-
um mér (Æfisöga).
Minningarrit og Ijóð sr. Jóns í Stafafelli.
Þorst. Gíslason: Heimsstyrjöldin I.
Þórbergur Þórðarson: Hvltir hrafnar.
Arni Möller: Passionssálmar.
Trúmálavika Stúdentafélagsins.
Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar i—2.
Áskriftir teknar af Gyldendalsbók-
um með góðum borgunarskilmálum.
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson.
Prentsmiðja Odds Björnssonar,