Dagur - 08.02.1923, Qupperneq 2
22
DAOUR
6. tbl.
■4
florsk
FurusKíði
4-6>/2 fet. Verð
*
VERZL UN.
5 til 12 kr.
Barnasleðar kjelker
fást bezt og ódýrast
í
BRAUNS
Fundargjörð
þingmálafundar
Aku rey rarkaupstaðar
4. Febrúar 1Q23.
Ár 1923, hinn 4. Febrúar var að
áður undangengnu fundarboði, þing-
málafundur haldinn af þingthanni Ak-
ureyrarkaupstaðar, í Samkomuhúsi bæj-
arins.
Fundurinn var settur kl. 4 s. d. af
þingmanni kjördæmisins hr,- lands-
verslunarstjóra M. J. Kristjánssyni.
Stakk hann upp á að kosinn yrði tii
fundarstjóra, bæjarfógeti Steingrímur
Jónsson, og var það samþykt með al-
mennu lófaklappi.
Tók hinn nýkjörni fundarstjóri við
stjórn fundarins og benti á sem vara-
fundarstjóra hr. kennara Inginiar Eydal,
og var það samþykt með lófaklappi.
Fundarskrifara tilnefndi hann, þá, skóla-
stjóra Steinþór Guðmundsson og Ein-
ar J. Reynis, framkvæmdastjóra og var
það samþykt.
Lagði fundarstjóri fram dagskrá fyr-
ir fundinn.
Þar næst gaf hann orðið ti! þingm.
kjördæmisins, til þess að skýra fyrsta
lið dagskrárinnar.
1. Stjórnarfrumvörp 1923. Fram-
sögumaður M. J. Kristjánsson.
Framsögumaður skýrði frá, að ríkis-
stjórnin legði fyrir næsta þing, þessi
frumvörp til laga:
1. Frumvarp til fjárlaga árið 1924.
2. frunivarp tii laga um nýja
enibættaskipun ríkisins. 3. frum-
varp um breyting á tekjuskattslögunum.
4. frumvarp um breyting á fátækralög-
unum. 5. frumvarp til hjúalaga. 6.
fruntvarp um vitabyggingar. 7. fru’m-
varp til vatnalaga. 8. frumvarp unt
vatnsorkuleyfi. 9. frumvarp um varnir
gegn kynsjúkdómum. 10. frum-
varp um undanþágu frá iögum um
aðflutningsbann á áfengi.
Skýrði framsögumaður frumvörþ
þessi fyrir fundinum, en dvaldi eink-
unt við 1., 2., 3., og 10. frv., en
drap lauslega á hin.
Að því búnu gaf framsögumaður
yfirlit yfir fjárhag iandsins eins og
hann er nú.
Þá fór þingmaður all ítarlega út í
hag bankanna og tilraunir til að jafna
gengismun og bæta úr gjaldeyrisvand-
ræðum.
2, Fjárhagsmál. Þingmaður kjör-
dæmisins lagði fram nokkrar tillögur
um fjárhagsmál.
Eftir allmiklar umræður voru tillög-
urnar samþyktar svohljóðandi:
»Fundurinn skorar á Alþingi og
ríkisstjórnina, að ltaga starfsemi sinni
þannig, að hún, fyrst og frenist, geti
orðið til þess að efla og viðhalda hinu
efnalega sjálfstæði ríkisitts:
1. Með því að viðhafa hinn ítrasta
sparnað unt allar fjárveitingar, án þess
þó, að algerð kyrstaða eigi sér stað
um hinar nauðsynlegustu verklegar
framkvæntdir.
Samþykt með öllum atkvæðum.
2. Að hlynna að þeim ríkisrekstri,
sent fyrirsjáanlegt er, að geti orðið
þjóðinni til liagsmuna, en hætti frekari
verslunarrekstri.
Síðasta setning þessarar tillögu var
frá Jónasi Jónassyni frá Flatey, sem
viðaukatillaga og var lttín sérstaklega
samþykt með 77 atkv. gegn 73, og
tillagan síðan samþykt með áorðnum
breytinguni, með öllum þorra atkvæða.
3. Að taka föstum tökum á öllu
eftirliti nteð peningastofnunum í land-
inu og tryggja það, að bankarnir
framvegis leggi kapp á að hækka og
festa gengi hinnar íslensku krónu meira
en verið hefir.
Samþykt í einu ltljóði.
4. Að varna því að nokkrar lántök-
ur erlendis, fyrir hönd ríkisins, eigi
sjer stað. Hinsvegar sé það trygt að
allar núverandi útlendar ríkisskuldir,
aðrar en þær sem bundnar eru við
legnri tíma, verði að fullu greiddar fyr-
árslok 1943.
Samþykt nteð öllum atkvæðum.
3. Bankamál. í því var svohljóðandi
tillaga samþykt í einu hijóði:
Fundurinn vítir harðlega eftirlits-
leysi ríkisstjórnarinnar með Islands-
banka, og drátt þann, sem orðið hefir
á umbótum á stjórn bankans af ríkis-
stjórnarinnar hálfu. Sérstaklega skorar
fundurinn á þing' og stjórn að rann-
saka ítarlega hvernig varið er trygg-
ingum fyrir láni ríkissjóðs til bankans,
og ganga ríkt eftir því að trygging-
arnar séu ábyggilegar og verði vel
haldið við. Fundurinn mælir eindregið
móti því, að ríkið kaupi hluti í bank-
anum, eins og nú stendur,«
4. Eftirlit með ppinberum starfs-
mönnum.
Svohljóðandi tillaga samþykt í einu
hljóði:
»Fundurinn skorar á Alþingi, að
herða alvarlega á stjórn landsins unt
eftirlit með opinberum stofnunum og
opinberri starfrækslu í iandinu, svo
sem með því: að gera róttækar ráð-
stafanir til þass að koma í veg fyrir
sjóðþurðir hjá opinberunt stofnunum,
að læknum landsins geti ekki haldist
uppi að misnota þann rétt, er þeiin er
veittur í áfengismáiinu, að eftirlitinu
sé þannig fyrir koinið, að hver starfs-
maður ríkisins verði að vera við því
búinn, hvenær sem vera skal, að rann-
sakað sé, hvernig hann leysir starf sitt
af hendi og að tekið verði hart á því,
ef vanræksla kemur í ljós.«
5. Áfurðasala.
Svohljóðandi tillaga samþykt itieð
öllum þoira atkvæða :
»Fundurinn skorar á þing og ríkis-
stjórn að láta einkis ófreistað til þess
að útvega nýjan ntarkað fyrir íslenskar
afurðir, sérstaklega saltfisk og skera
ekki við neglur sér fjárframlög til
þess«.
6. Bannmál.
Svohljóðandi tillögur saipþyktar nieð
því nær öllunt atkvæðum :
»Fundurinn lýsir megnri óánægju
yfir því, að síðasta alþingi var kúgað
til að veita undanþágu frá aðflutnings-
bannslögúnuin og væntir þess fastlega,
að næsta aiþingi framlengi ekki und-
anþáguna, nema einkis annars sé úr-
kosta.
Verði ekki hjá því komist að fram-
lengja nefnda undanþágu, skorar fund-
urinn á alþingi:
a. Að afnema leyfi til innflutnings á
áfengi handa erlendum ræðismönnum,
banna vínsölu á íslenskum skipum og
leyfa þeim eigi að hafa önnur vín inn-
anborðs, en heimilt er að flytja til
landsins.
b. Að takmarka að miklum mun
innflutning á áfengi til lyfja og iðnað-
ar og láta sérfróða menn rannsaka
hve miklar byrgðir landið þarf árlega
til þeirra hluta.
c. Að leggja niður áfengisverslun
ríkisins, eins og hún hefir verið og er
rekin, og láta Landsverslun annast inn-
flutning og afhendingu áfengis eftir
pöntunum einstaklinga.
d. Að setja inn í banulögin þung
sektarákvæði við því að menn séu
ölvaðir á almannafæri.
e. Að herða á eftirliti með gildandi
bannlögnm og ganga ríkt eftir að lög-
reglulið landsins geri skyldu sfna.
7. Skölamál. Svohljóðandi tillögur
komu fram:
a. »Fundurinn skorar á Alþingi, að
gera Gagnfræðaskólann á Akureyri að
almennum mentaskóla, er standi mála-
deild »Hins alm. mentaskóla* í Reykja-
vík, algerlega jafnfætis, og að þegar
á næsta vetri verði byrjað á kenslu í
fjórða bekk skólans.«
Tillagan samþykt með öllum atkv.
b. »Fundurinn skorar á ríkisstjórn-
ina, að gera þegar á þessu ári nauð,
synlegar ráðstafanir til undirbúnings
því, að húsmæðraskólinn fyrir Norð-
urland verði reistur, eigi síðar en árið
1924, á þeim stað, sem bæjarstjórn
Akureyrar leggur til.«
Samþykt með öllum greiddum atkv.
8. Takmörkun alþingiskostnaðar\og
breyting þingtímans.
TiIIaga þessi kom fram og var sam-
jjykt í einu hljóði:
»Fundurinn skorar á Alþingi, að gera
ítarlegar ráðstafanir til að draga úr
þingkostnaðinum, meðal annars með
því að halda alþing aðeins annaðhvort
ár, og að sumrinu til.«
Þá var dagskrá fundarins þrotin og
ekki önnur mál komin fram, er óskað
var að taka fyrir.
Fundargerð upplesin og samþykt.
Þingmaður kaupstaðarins óskar þess
getið f fundargerðinni, að hann telur
atkvæðagreiðsluna um viðaukan, sem
hnýtt Var aftan við 2. lið fjármálatil-
lögu, algerlega óábyggilega og mót-
mcelir þvl eindregið að nefndur við-
auki verði skoðaður sem samþykt frá
fundinum og það því fremur, sem
fundarstjóri neitaði að viðhafa nafna-
kall um þetta atriði.
Fundarstjóri fullyrðir að atkvæða-
greiðslan sé rétt tilfærð, enda atkvæð-
in talin mjög nákvæmlega af þar til
nefndum raönnum. — Allmargir kjós-
endur greiddu ekki atkvæði, en auk
þess var fjöldi manna í salnum, sem
ekki hafði atkvæðisrétt. Nafnakall hlaut
því að taka afarlangan tfma, en orð-
ið áliðið. Alþingiskjörskrá engin við
hendina.
Símfréttir.
Rvth 5. febr.
Frakkar biðja Englendinga
að hœtla kolajlutningi til
Pýskalands, en þvi hefir verið
neitað. Kyrð komin á Ruhr,
en héraðið gersamlega ein-
angrað frá Pýskalandi. Óhliðn-
um prússneskum embœttis-
mönnum visað úr embœtlum
af Frökkum og hergæslan
aukin.
Tyrkit\samþykkja ekkitfrið-
arskilmála Breta og Frakkar
hafa gert sérsamning j0.
Tyrki. Viðbúíð að samoandi
Frakka og .Breta sé þar með
slitið, og iil ófriðar dragi milti
Tyrkja og Breta.
31. Janúar komu verkamenn
í Vestmannaeyjum þrem full-
trúum að í bœjarstjórn, en
kaupmenn einum.
Verkbanni útgerðarmanna
hér var frestað til 5. Febrúar.
Afli togaranna selst óvenjulega
vel l Englandi.
fens Waage og Oddur Her-
mannsson hafa verið settir
bankastjórar við Islandsbanka.
' (Eftir Vm.)