Dagur - 29.11.1923, Side 2
194
DAOUR
54 tbl.
>*■ **************
að, að ekki háði þeim annar sjuk-
dómar, en viljaleysi til að kjósa, þó
þeir fyrir ákafar og heitar bænir létu
til leiðast, úr því læknisvottorðið og
miðinn var kominn heim á borðið,
enda stóð vfst ekki á aðstoðinni til
þesB að koma nafninu (Jóh. Jóh.) á
seðiana. —
Atkv.talning v&r þannig hagað, að
fyrst voru þau atkv. talin er greidd
höfðu verið á kjörstað. Niðurstaða
þeirrar atkv.greiðslu var sú, að K. F.
hafði 12 atkv. fleiri en Jób. — En er
afli læknisvottorðanna var á land
dreginn, varð niðurstaðan sú, sem
kunn er orðin. — Það er þannig séð
með hverjum hætti sigrinum varð náð
nú til handa Jóh. Jóh. — Meir en
verður sjúkravottorðs má sá maður
vera ef honum þykir virðing sfn vaxa
af verkum vina sinna hér á Seyðis-
firði. -
Ut af þessu, og ýmsu fleira, sem
kámugt var við kosninguna hér, voru
gerðar athugasemdir f gerðabækur
undir- og yfirkjörstj. af frambjóðand-
anum K. F. og verður málið alt lagt
í gerð þingsins á sfnum tfma, en lfk-
urnar eru að vfsu mestar til að ætla
að sú samkoma gefi sjálfri sér álfka
sjúkdómsvottorð, með úrBlitum máls-
ins, og þau, sem útbýtt var hér um
þessar kosningar. —
Seyðfírðingur.
Símskeyti.
Rvík 26. Nóv.
ítalir fá Fiume, Jugoslavar Poto
Boros.
Bandalagið milli Frakka og Eng-
iendinga treyst að nýju. Frakkar hafa
tekið f sínar hendur sfðasta járn-
brautarsambandið milli Ruhrhérað-
anna og annara hluta Þýskalands.
Refsiráöstafanir undirbúnar i her-
gæsluhéruðunum, ef Þjóðverjar neita
að fallast á kröfur sendiherraráð-
stefnunnar.
Stiesemann hefir sagt af sér, þar
sem ríkisþingið feldi traustsyfirlýs-
ingu með 230 gegn 155 atkv. Búist
við þingræðisstjórn undir forustu
Alberts stjórnardeildarstjóra, eða ein-
ræðisstjórn þjóðernissinna undir for-
ustu Seeckts hershöföingja, er bann-
ar samtök kommunista og facista
og sundrar þeim harðri hendi.
Traustsyfirlýsing samþ. f franska
þinginu til Poincares með 500 gegn
70 atkv.
Verkbann í Kristjaníu á 25000
verkamenn í sögunar-, tóbaks,
sukkulade og pappfrsverksmiðjum.
Samningar höfðu ekki komist á.
Atvinnurekendur vilja engar at-
vinnuframkvæmdir byrjaðar, en bönk-
unutn kent um tregðu að lána fé.
Ástandið mjög slæmt hjá fólki hér.
(sfiskssalan er $gæt.
-s* Sparnaður
er það, að nota hið ágæta
«Reform«-hálstau.
sem aitaf er hægt að hreinsa
með sápu og köldu vatni,
og aldrei þarf að sterkja.
Brauns Verzlun.
Páll Sigurgeirsson.
Rvik 28. Nóv.
Stinnes og Thussen hafa bundist
samningum við bandamenn um 90%
af iðnaði Ruhrhéraðanna í samvinnu
við Frakka. lðnaður Ruhrhéraðanna
greiði 15 miiljónir. dollara kola-
skatt fyrir 10 liðna mánuði, fram-
vegis 10 franka fyrir eimlest að við-
bættum 18% framleiðslunnar. Hern-
aðareftirliti komið á f Bayern í
december. Poincare lýsir yfir, að
verði þjóðlegt einræði lögleitt í
Þýzkalandi, þá verði Berlín og
Munchen herteknar.
ftalir og Spánverjar ræða um
bandalag til yfirdrottnunar Miðjarð-
arhafsins.
Búist við að skaðabótanefndin
Ieggist niður. Talað er um að stofna
sérstakt Rínarlandsríki undir yfir-
stjórn þýzka ríkisins.
Verkbanninu lokið f Kristjaníu,
kaupsamningar hafa tekist..
Danska gjaldeyrislánið, 5 mill-
jónir sterlingspd., hefir verið fest.
Fréttarltari Dags.
Herra Sig. Skagfeldt,
sém verið hefir við söngnám hjá Vilh.
Herold í Kaupmannahöfn sfðastl. vet-
ur, hefir sungið hér tvisvar nú und-
anfarandi. Hið fyrra sbiftið f Nýja
Bfó en f Samkomuhúsinu sfðara kveldið.
Aðsókn minni en átt hefði að vera,
en mátti þó tefjast sæmileg sfðara
kveldið. Herra Skagfeldt hefir háan
og óvenju blæfallegan tenór, og fer
yfirleitt vel og látlaust raeð það er
hann syngur. Framburði hans á út-
lendum textum getur máske verið
áfátt, en fslenzku fer hann vel með f
eöng. Eg ætla mér ekki að skýra
neitt frá meðíerð hans á hverju ein-
stöku viðfangsefni. Get þó ekki stilt
mig um að minnast á einstöku. T. d.
Vidmung eftir R. Fracz Það litla
undurfallega lag fanst mér hann syngja
yndislega. Söoouleilia emálagið ein-
kennilega Willemo Willemo. Mörgum
mun hafa fundisl hann fara öðruvfsi
með Sverii konung en ’venja hefir
verið til Mun bann þó hafa góðar
heimildir fyrir þvf þar sem prófessör
Sv. Sveinbjörnsson hefir sjálfur kent
honum að syngja þ&ð lag. Og óneit-
anlega söng bann það glæsjlega,
einkum slðara kveldið. Hr. Kurt Haeser
lék undir. Hefði þar mátt vera meira
samræmi f undirspili og söng. Fanst
það einkum á um tvö hin undurfögru
og sáiviðkvæmu lög Griegs, er sung-
in voru, sem, eins og annað eftir
hann, eru samin af hans sérkennilegu
vandvirkni. Krefjast þau skilyrðis-
lausrar nákvæmni f meðferð bæði hvað
söng og undirspil snertir. 1 laginu
Ved Ronderne kom undirspilið vart
nálægt söngvaranum utan f npphafi
og endi. Og hálf óviðkunnantegt er
að heyra mömmulofsönginn — Gamle
Mor — hamraðan undir eins og her-
göngulag.
Bas.
Vinrii~>*>'i ■ !*■ ■*!'»*»~ i*i ri»—■—r*i n'~Tr-«— i*n rm—M-iir—>i~ii~ií ■
Sjóvetlinga
og fingravetlinga viljum við sérstaklega fá
fyrir 6. desember n. k.
Kaupfélag Eyfirðinga.
E. s. Goðafoss
fer frá Reykjavík 1. Des, n. k. í stað 4. s. m.,
sem áætlunin mælir fyrir, verður því á undan
áætlun til útlanda.
Næsta ár byrjar skipið ferðir sínar frá Kaup-
mannahöfn 8. janúar.
Akureyri 27. Nóvember 1923.
Afgreiðsla h.f. Eimskipafélags lslands.
Nýkomið:
Mjólkurostar,
Mysuostur,
Oráöaostur,
„Spegepylsur",
Reykt flesk,
,, Rulleskinke",
Hvítkál,
»Gulerödder«,
»Rödbeder«,
' Laukur.
Ketbúðin.
Smásöluverð á tóbaki
má ekki vera hærra en hér segir:
REYKTÓB AK:
Mix
Peinrichender Shag
Qolden Bell
Marigold (Dobbelm.)
Qolden Shag: (do )
Old Friend
pr. kg. kr. 12.65
— — — 13.80
---------- 15-55
------— 14.95
------— 17.25
— lbs. — 9.20
Utan Reykjavfkur má verðið vera þvf hærra, sem nemur fiutcinggkostnði
frá Reykjavfk til sðlustaðar, en þó ekki yfir 2 %.
Landsverzlun.
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson.
Fréntsmiðja Odds Bjfimssonar.