Dagur - 26.02.1925, Qupperneq 3
9. tbl.
DAOUR
35
{ dag og aðra í nótt. Síðasta Ijóðlfnan
er svo ný endnrtekning á öllu þvf,
sem margbúið var að segja áðnr.
G. F. þykir (yrsta vísan f Dettifoss-
kvæði Kristjáns mjög gölluð, meðal
annars byrjunin:
>Þar sem aldrei á grjóti gráu
gullin mót sólu hlæja blóm «
»Sú mynd áf landslagi er ekki góð,
sem máiar það, sem ekki er til,« segir
hann, A hann þar við »gullin blóm
á grjóti gráu.« En ef svo er um
landslagið, mun hin sama regla gilda
um alt annað, að það sé lélegur
skáldskapur, sem lýsir þvf, sem ekki
er til. Flettum þvf enn upp kvseðabók
Guðm. »Úr heimahögum.« Þar verður
fyrir kvæðið »Beta« á bls. iii. Næst
sfðasta vfsan endar svona:
»Á krossgötum sólar er kerlaug þér
gerð
úr kvöldroðans puipuralegi.*
Er h£r verið að draga upp mynd
af þvf, sem til er, bókstaflega talaðf
Hvar eru krossgötur sólar? Þær eru
hvergi til nema f huga skáldsins. Á
krossgötum f himingeimnum, sem engar
eru til, er þá héldur ekki nein kerlaug,
þar sem hægt sé að baða sig. Hér
er því máluð mynd af þvf, sem ekki
er til, Sfðasta vfsa kvæðisins er svo:
»Eg lft þig f anda f ljósgrænum kjól
með lýsigullskniplinga um brána
hjá ungbörnum konungsins austan
við sól
f álfunni vestur af mána.«
Skáldið sér Betu f anda f álfunni
austan við sól og vestur af mána, með
öðrum orðum: G, F. bregður f skáld-
móði sfnum upp heilii álfu, sem ekki
er til.
Eg er ekki að finna að þessu. Eg
sé ekkert á móti þvf að skáldin skapi
sér heima, álfur og hallir, sem ekki
eru til, enda væri til lftils að banna
þeim það, þau gerðu það jafnt fyrir
þvf. En það er G. F., sem er að fetta
fingur út f þetta. En hversvegna
breytir hann sjálfur f kveðskap sfnum
öfugt við það, sem hann kennir?
En lega álfunnar, sem skáldíð skap-
aði parna, er dálftið brosleg. Vitan-
lega eru engar áttir til frá sólinni út
f geiminn, það er þvf ekkert annað
en barnaskapur áð segja að eitthvað
sé austan við sól. Látum það nú samt
vera. Það er hægt að hugsa sér ein-
hverja stefnu frá sólinni og kalla hana
áustur. Þá er álfan f þá stefnu frá
sólinni, en hinumegin við álfuna er
máninn, þ. e. f austur frá sólinni. Nú
ber þess að gæta að máninn er reiki-
stjarna og breytir þvf stöðugt afstöðu
sinni til sólar. En með þvf að ákveða
legu álfunnar eins og G. F. gérir,
lætur hann tunglið vera fastastjörnu,
og er það óneitanlega nokkuð bfræfið
skáldaleyfi, að breyta gangi himin-
tungla.
Þá þykir G. F. »Börnin í Hvamm-
koti,« eftir Matthfas, illa valið kvæði,
og finnur að upphafinu: »Dauðinn er
lækur, en lffið er strá.« Lfkar honum
það illa, að Matthfas lét lækinn tákna
dauðann, þvf að »skáldið mikla frá
Nazaret lfkti Ufinu við vatn« segir
hann. Og ennfremur: »Lækur, sem er
gerður af óhreinum uppsprettum, er
Kaupfélaq Eyfirðinga.
Sement
fáum við að forfallalausu í byrjun marz-
mánaðar.
Peir, sem vilja tryggja sér sement af
sendingu þessari, ættu að gera pantanir
strax, því töluverður hluti er þegar seldur.
Xaupjélag $yf.
óheppiiegt tákn dauðans, þrátt fyrir
það, þó að gott skáld tvfstigi á lækjar-
bakkanum með snjöllum orðum.« Menn
athugi það, að Matth. segir hvergi, að
uppspretta lækjarins sé óhrein. Það
er Bkáldskapur G. F.
Ef Guðm. getur fæit rök fyrir því
að »móða« dauðans sé gerð af óhrein-
um uppsprettum, þá hefir hann nokkuð
til sfns máls. En það held eg lé
ósannað mál. Auðvitað getur hann
gripið til syndafallssögunnar og haldið
þvf fram, að dauðinn sé »laun syndar-
innar« og syndin sé óhrein, en eg
efast um, að hann treysti sér til eða
vilji fara út í þá sálma. H. C. Ander-
sen lætur f einu æfintýra sinna engil
dauðans segja, að hann sé send boði
guðs og frámkvæmi hans vilja. Sé
svo, þá er uppsprettan ekki óhrein.
Eg skal nú játa, að um þetta þýðir
vfst lítið að deila, þvf að dauðinn er
okkur flestum að minsta kosti, meiri
eða minni ráðgáta. En annað er hægt
að gera. Við skulum enn lfta f áður-
neína kvæðabók G. F.
í fallegu kvæði um skólabróður
okkar Guðm. Björn Sveinbjarnarson,
sem fórst með skipi milli Bretlands
og íslands, segir G. F.:
»Dauðinn vírð að einu auga,
ógurlega grænum hyli.«
Hér lætur skáldið sævarhyl tákna
dauðann. Hér ber enn að sama biunni
og áður. Kvæði Guðm. þola það ekki,
að hans eigin mælikvarði sé lagður á
þau. Þegar hann er að brégða fæti
fyrir önnur skáld, þá fellur hann á
eigin bragði.
Ef það er leyfilegt að láta sjóinn,
þcnna >hreina, tæra, salta lög« eins
Og Steingrfmur læknir kemst að orði
einhverstaðar, tákna dauðann eins og
G. F. gerir, þá sýnist mér samltking
Matthfasar eiga fullan rétt á sér.
G. F. niðrar Bólu-Hjálmari fyrir
áreitni, sem hafi valdið honum óvin-
sælda. En þetta réttlætir engan veg-
inn framkomu sveitunga Hjálmars við
hann, að neita honum hálfáttræðum,
hungruðum, örvasa og uppgefnum um
hjálp, sú neitun var Iftilmannleg hefnd
óþroakaðra manna fyrir áreitnina. Og
þegar hin beizku lffskjör Hjálmars,
þessa Btórbrotna andans risa, eru
skoðuð niður f kjölinn, verða þau
nokkur afsökun þess, að hann »ei
æpti eftir nótum« öllum stundum.
G. F. minnir á það, að Hjálmar
hafi orkt »nfð um Sölva prest lifandi,
en lofkvæði um hann látinn.« >Þar
sézt bardagaaðferðin og lundarfarið,*
bætir hann við. Það er nú engin ný
saga, þó að menn séu lastaðir lffs en
lofaðir dauðir. Það mega nærri því
heita daglegir viðburðir. En að sjálf-
sögðu hefir löf og last Hjálmars verið
því þyngra á metunum en annara
manna, sem hann var þeim fremri að
andlegri atgerfi.
G. F. er hræddur um að J. J. muni
græða á bókum sfnum. Það er skáld-
inu sár tilhugsun. Og hvað sem um
»Nýju skólaljóðin« er að segja, þá er
það eitt, sem gerir ritdóm G. F. með
öllu ómerkan: Persónuleg óvild greinar-
höfundar til J. J. kemur bersýnilega f
IjÓB og sterk tilhneiging f þá átt, að
mannskemma útgefánda bókarinnar.
Þess vegna er ádeila G. F. nær f
öllum atriðum mishepnuð og þannig
vaxin, að mér finst að ekki megi láta
henni ómótmælt. Þess vegna gloprast
allur rökstuðninpur úr höndum honum
og fer f mola. M kið af þvf, sem hann
færir máli sfnu til stuðnings, er mann-
last, bein og óbein brigzlyrði til út-
gefanda bókarinnar eða rökvillur.
Dómur, sem bygður er á megnum ó-
vildarhug eða hatri, er og verður
aldrei annað en sleggjudómur.
Ingimar Eydal.
A víðavangi.
Jáfningar fslendings Fyrirskömmu
játaði íslend:ngur hver tilgangurinn
ætti að vera með ríkislögreglunni og
ljóstraði upp því, sem ekki átti að
vitnast, meðan verið væri að smeygja
lögunum gegnum þingið. Nú gerist
hann hreykinn yfir því, að Dagur gat
þess til, að Jón Þorláksson myndi
eigi vera ófús að gerast þvílíkur maður
hér á landi sem Mussolini er á Ítalíu.
Að hann myndi vilja svifta þing og
þjóð ráðum, gerast alræðismaður og
hafa her til aðstoðar, sem einvalds-
herra. íslendingur segir að slík til-
gáta sé hinn mesti sómi og viður-
kenning fyrir J. Þ. Þar sést hvert
hugur þeirra herra ste'nir. Þeir búa
yfir þeirri þrá að eignast, þar sem J.
Þ. er, annan Hundadagakonung og
þá dreymir um örugga sæludaga bak
við vopnaðar hersveitir. En raunin
kynni að verða nokkuð önnur en
draumarnir. Ef ný Sturlungaöld á að
renna upp í landinu, er hugsanlegt
að ritstjóra íslendings kynni að verða
færður heim sannurinn um það, að
jafnvel stuttir menn geta orðið höfðinu
styttri.
Lögvísi Björns Lfndals íslend-
ingur símaði í Björn Líndal, til þess
að minna hann á, að hann hefði ekki
svarað áskorun Jónasar Jónssonar í
Tímanum að færa sönnur á fleipur
það, sem hann fór með hér nyrðra
um J. J. og kettollsmálið. Björn Lín-
dal afsakaði sig með því að orðalag
þessarar áskorunar hefði ekki verið
eftir sínu höfði og teldi sig ekki þurfa
að sanna orð sín af þeím ástæðurrí.
»Orð sín stæðu enn óhrakin®. Aður
var það sumum mönnum kunnugt, að
lögvísi Björns Líndals er dálítið skringi-
leg. Nú kemur ný hlið á henni í Ijós
þar sem hann telur að sönnunarskyldan
í þessu máli hvíli á Jónasi Jónssyni.
Samkvæmt því á sá, sem logið er upp
á, að bera ábyrgð á lýginni. Það er
búið að lýsa Björn Líndal opinberan
ósannindamann í þessu máli og skal
það hér endurtekið. Og það er búið
að skora á hann að sanna mál sitt,
en hann þegir. Betri sönnun fæst ekki
fyrir sekt hans og minkun.
F r é 11 i r.
Jdnas Gunnlaugsson frá Þrastar-
hóli er 89 ára gamall í dag. Hann er
elzti maður í bænum. Jónas er ern vel,
gengur teinréttur og heldur vel sjón
og heyrn. Hann hefir alla sína daga
verið mesti fjör- og dugnaðarmaður,
viðræðugóður, minnugur og margfróð-
ur.
Tengdapabbi verður leikinn f kvöld
og í siðasta sinni annað kvöld. Leik-
urinn er mjög fjörugur frá upphafi til
enda og flestar persónurnar mjög vel
leiknar.
Frá Alþingi. Björn Líndal berfram
frv. um breytingu á bæjarstjórnarlög-
um Akureyrar þess efnis, að nefndir
skulu kosnar hlutfallskosningu, ef 4
bæjarfulltrúar óska þess. Er þetta kom-
ið fram samkvæmt ósk bæjarstjórnar-
innar. Varalögreglufrumvarpið kom til
umræðu í gær. Forsætisráðherra lagði
málið fyrir þingið. Á móti töluðu
Tryggvi Þórhallsson og Jón Baldvins-
son. Bernharð gerði fyrirspurn. Frv.
kemur ekki á dagskrá fyr en á mánu-
daginn kemur. í Ed. var til umræðu
frumvarp frá stjórninni um að stofna
dosentsembætti í íslenzku við háskól-
ann handa Alex. Jóhannessyni. Jónas
Jónsson talaði á móti frv.