Dagur - 26.02.1925, Blaðsíða 4
32
DAOUR
8. tbL
Beizlissfengur,
góðar og ódýrar, — fást hjá
Sambandi ísl samvini)ufelaga.
Kjöttunnur,
alt til beykisiðnar, smjðrkvartél o. s. frv. frá stærstu beykissmiðjum
i Danmörku.
L. Jacobsen,
Kebenbavn. Valby.
Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup-
manna. Símnefni: .Cooperage0,
Pingmálafundur.
Ár 1925 þ. 12. janúar var þing-
málafundur haldinn f þinghúsi Hrafna-
gilshrepps.
Aiþingismaður Bernharð Stefánsson
setti (undinn. Gat hann þess, að sam-
þingsm. sinn Einar Árnason myndi
ekki geta mætt sökum veikinda. —
Til fundarstj. tilnefndi hann Davfð
Jónsson á Kroppi og samþykti fund-
urinn það. Stakk fundarstj. upp á
skrifurum Stefáni Stefánssyni, Varðgjá
og Hólmgeir Þorsteinssyni, Grund og
voru þeir samþyktir.
Var þá fyrir tekið:
1. Launamdl: í málinu kom fram
svohljóðandi tillaga: »Fundurinn skorar
á Alþingi að fresta endurskoðun launa-
laganna til ársins 1927.«
Við tiilöguna kom fram Bvohljóð-
andi breyting:
»í staðinn fyrir 1927 komi 1926 «
Voru tillögurnar bornar undir
atkvæði, og var breytingartillagan feld
með 11:8 atkv. en aðaltiilagan sam-
þykt með 13:2 atkv.
2. Búnaðarlánadelld: Svofeld tillaga
kom fram: »Fundurinn áfellir lands-
stjórnina harðlega fyrir að virða að
vettugi skipun Alþingis um stofnun
búnaðarlánadeildar við Landsbanka
íslands og skorar á Alþingi að knýja
málið fram.<
Tillagan samþykt f einu hljóði.
3. Heilsuhœll Norðurlands : í málinu
samþykti fundurinn f einu hljóði svo-
felda tillögu:
»Fundurinn skorar á næsta Alþingi
að veitá fé til að reisa berklaveikra-
hæii f Eyjafírði, er sé að m.k. 2h
stofnkostnaðar og felur þingmönnum
kjördæmisins að fylgja þvf fast eftir,
4. Vegamál: Svofeldar tillögur komu
fram: »Fundurinn krefst þess, að
rfkissjóður taki áð sér viðhald flutn-
ingarbrautarinnar frá Akureyri að
Sáurbæ eins og annara flutningabrauta «
Samþykt f einu hljóði. Ennfremur kom
fram svohljóðandi tillagá: »Fundurinn
skorar á þingmenn kjördæmisins, að
koma þvf til vegar á næsta þingi, að
byrjað verði á Vaðlaheiðatveginum á
næsta sumri.« Tillagan samþykt.
5. Innflutnlngshöft: Fram kom þessi
tillaga: >Fundurinn lýsir yfír þvf, að
hann telur hið mesta óhspp að hafta-
frumvarp Framsóknaiflokksins var felt
á sfðasta þingi. Jafnframt átelur fund-
urinn framkvæmd núverandi stjórnar
á insflutningshöftunum.« Tillagan sam-
þykt með 25:5 atkv.
6. Jarðrœktarlögln: Lögð var fyrir
fundinn svofeld tillaga: »Fundurinn
skorar á þingmenn kjördæmisins að
beita sér fyrir þvf, áð jarðræktarlög-
unum verði breytt þannig, að f staðinn
fyrir helmild komi skylda til að styrkja
búnaðarframkvæmdir.« TiIIagan sam-
þykt f einu hljóði.
7. Krossanesmálið: Þar kom fram
Bvofeld tillaga: »Fundurinn Bkorar á
Alþingi að taka Krossanesmðlið til
ftarlegrar rannsóknar, og komi það f
Ijós, að þar sé um lagabrot eða fjár-
drátt að ræða þá séu aðilar saka látnir
sæta fullri ábyrgð.« Samþykt með
22 : 2 atkv.
8. Bannmálið: Fram komu þessar
tillögur: >Fundurinn skorar á Alþingi
1925:
/ að fella úr núgildandi lögum heim-
ild lyfsala og lækna, að selja mönnum
áfengisdrykki eftir lyfseðlum samkv:
tillögu læknafundarins á Akureyri f
sumar.
2 að gera alvarlegar og ftarlegar
tilraunir til að losa landið undan áhrifum
Spánverja á áfengislöggjöf vora, sem
allra fyrst, og fela þeim mönnum einum
trúnaðarstörf f þvf efni, sem eru bann-
Btefnunni fylgjandi.« Samþykt með
25 samhljóða atkv.
9. Bankavextlr: Svofeld tillaga kom
fram f málinu: »Þar sem vel hefír
látið f ári undanfarið og hagur bank-
anna hlýtur að hafa batnað stórlega
skorar fundurinn á Alþingi, að gera
þær ráðstafanir, sem hægt er, til þess
að forvextir bankanna lækkt.« Samþykt
f einu hljóðl. —
Fleíra ekki fyrir tekið. Fundargerðin
upplesin og samþykt. Fundi slitið.
Davíð Jónsson.
Stefán Stefánsson Hólmgelt Þorstelnsson.
íbúðarhús
I innbænum, hæfilegt til íbúðar iyrir 1-2 fjölskyldur, er til sölu.
Húsinu fylgir gripahús og stór eignarlóö meö kartöflugarði.
Undirritaöur gefur upplýsingar.
Vilhjálmur Pór.
Landbúnaðarverkfœrii)
ódýrustu og beztu eru:
Milwaukee rakstrarvélar,
— snúningsvélar.
Brýnsluvélar,
Garðplógar
og Forardælur.
Fyrirliggjandi hjá
Samb. isí samv.fél.
Staða laus.
Bókavarðarstaðan við Amtsbókasafnið á Akureyri veiður Iaus
og veitist frá 1. júní p. á. Umsóknarfrestur til 30. apríl.
Umsóknir um stöðu pessa sendist bæjarfógetanum, og fást
par upplýsingar allar um starfið og launakjör bókavarðar.
Akureyri 26. febrúar 1025.
Bæjarfógetinn.
Alfa-Laval
skilvindur
reynasí bezt.
Pantanir annast kaupfélög út um land, og
Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Bezt að auglýsa íDegi.
Ritstjóri Jónas Þorbergsson.
Prentsmiöja Odds Björnssonar,