Dagur - 03.06.1927, Page 1
DAGUR
kemur út á hverjum íimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Innheimtuna annast Jónas
Sveinsson bóksali, Eyrar-
landsveg 3 (Sigurhæðir).
X. ár.
Af g r e ið s Ian
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri, 3. júní 1927.
23. tbl.
Gengismálið.
Gengismálið er eitt af mestu á-
greiningsefnum stjó«imálaflokka
landsins. Mun það koma til umræðu
nú um kosningarnar. Verður hér
gerð tilraun að skýra lielztu drætti
málsins til glöggvunar fyrir kjósend-
ur.
Eins og fyr hefir verið vikið að
hér í blaðinu, eru peningar ekki hið
eiginlega verðmæti sjálft, heldur á-
vísun á verðmæti. Seðlafúlga hverr-
ar þjóðar á því, að réttu lagi, að
vera í beinu hlutfalli við efnahags-
ástæður hennar. Út af þessu hefir
borið og sumstaðar stórkostlega.
í löndum, þar sem lággengi hefir
þjakað mest, hefir, þegar um þver-
bak keyrði, verið tekið það ráð, að
gefa því meira út af seðlum, sem
meira féll verðmæti gjaldeyrisins.
Hefir jafnvel sumstaðar rekið svo
langt, að ávísanir á þjóðarauðinn
hafa orðið nálega verðlausar.
Aldrei hefir stappað nærri þvílík-
um öfgum hér á landi. Samt á fall
krónunnar rætur sínar að rekja til
sömu orsaka. Þjöðin hefir gefið út
hærri ávísanir á auð sinn og eigin-
legt verðmæti en rétt var. Áhalli í
verzlunarjöfnuði og aðstöðu gagn-
vart öðrum og betur stæðum þjóð-
um, hefir valdið slíkum óheillaráð-
stöfunum. Einn af stjórnmálamönn-
um þjóðarinnar, Ásgeir Ásgeirsson,
hefir skýrt gengismálið á frumlegan
og ljósan hátt. Er skýring hans á
þessa leið:
FÍestir kunna skil almennra brota,
sem eru samsett af teljara og
nefnara. Nefnarinn gefur til kynna
stærð þess brot-hluta, er telja á, en
teljarinn tölu brot-hlutanna. Tökum
til dæmis brotið j/3. Nefnarinn 3
gefur til kynna, að heildinni er skift
í þrjá hluta. Teljarinn 1 gefur til
kynna, að aðeins einn hluti af þrem-
ur er talinn. Einn þriðji er því þriðj-
ungut af heilli tölu. Setjum nú svo,
að teljarinn tákni þjóðarauðinn, en
nefnarinn seðlafúlguna og að ]h þ.
e. einn heill tákni gullgengi. Setjum
ennfremur svo, að þjóðarauðurinn
á móti seðlafúlgunni sé eins og
i°o/i2o þ. e. hundrað á móti hundrað
og tuttugu. Þjóðin gefur þá ávísun
á verðmæti, sem hún telur nema 120,
en sem ekki nemur meiru en 100 í
raun og veru. Hið raunverulega gildi
krónunnar verður reiknað með svo-
feldu dæmi '^i5?=83.3,
þ. e. krónan er í raun réttri virði
83.3 aura.
Eins og kunnugt er, féll íslenzk
króna gífurlega í eftirköstuin heiins-
styrjaldarinnar. Verðfallið 1920 og
1921 orsakaði þjóðinni gífurlegt
fjármunatap. íslenzk króna féll þá
niður fyrir hálfvirði miðað við fult
verð eða gullgengi. Fyrir ráðstafan-
ir íhaldsstjórnarinnar hækkaði krón-
an á hálfu öðru ári svo, að hún nem-
ur nú rúinum 80 aurum miðað við
gullgengi. Andvirði allrar fram-
leiðslu landsmanna, sem flutt var á
erlendan markað, féll að sama skapi,
talið í krónum. Er sú megin orsök
þess, að* atvinnuvegir landsmanna
eru nú soknir í meiri ófarnað en
nokkru sinni fyr.
Ágreiningur Framsóknarflokksins
og andstöðuflokka hans í þessu máli
er sú, að Framsóknarflokkurinn vill
láta festa gengið, þar sem það er
komið. Andstöðufhokkarnir, einkum
kaupmenn og verkamenn vilja láta
hækka gengið enn upp í gullgildi.
Hvorirtveggja miða við sérást&ður
og stundarhagsmuni. Afstaða Fram-
sóknarflokksins styðst við þau rök,
að þjóðarauðurinn muni ekki svara
til þess verðs, sem nú er skráð á ís-
lenzkri krónu, hvað þá meira verðs.
En í von um batnandi þjóðarhag
vill flokkurinn láta festa gengið, þar
sem það er nú, jafnvel þó það sé
hæi^a, en raunverulegar ástæður
þjóðarinnar kunna að benda til.
Andstöðuflokkarnir vilja láta hækka
verð krónunnar hvað sem líður hag
þjóðarinnar og hinum raunverulega
verðgrunni gjaldeyris þjóðarinnar.
Hækkunarmennirnir hafa slegið á
strengi. Þeir hafa sagt: Það er sið-
ferðileg smán gagnvart viðskifta-
þjóðum okkar, að koma ekki krón-
unni í fult nafnverð. Þetta er í raun
réttri alveg öfugt. Það eru ótvíræð
viðskiftasvik, að skrá krónuna fullu
verði, meðan þjóðin er sokkin í
skuldir og hinar raunverulegu efna-
hagsástæður svara ekki til þess
gjaldeyris, sem hún hefir í umferð.
Kröfur Framsóknarflokksins um
festing gengisins eru reistar á tveim-
ur ástæðum: Annarsvegar á þeirri
siðferðislegu kröfu að gengisskrán-
ingin sé ekki falsmynd af efnahags-
ástæðum þjóðarinnar; hinsvegar að
gjaldeyrir þjóðarinnar sé stöðugur
en ekki eins og sviksamlega gerður
grunnur, sem þegar minst varir
hrynur undan athöfnum og við-
skiftalífi landsmanna.
Hjá Ungmennafélögum.
Jóhannes Jósefsson íþróttakappi,
frumkvæðismaður og frumherji
Ungmennafélaga íslands var meðal
gesta á fundi U. M. F. Akureyrar á
þriðjudagskvöldið var. Hafði og
verið auglýst, að Jóhannes inyndi
flytja ræðu um stefnu Ungihennafé-
laganna.
Ræða Jóhannesar var merkileg á
fleiri vegu en einn. Málið var hið
fegursta, meitlað og hljómsterkt,
eins og heitur ungmennafélagi, full-
ur vandlætingar um meðferð tung-
unnar, myndi frainast kjósa. Meðferð
efnisins bar vott um, að það væri
gerhugsað. Rakti hann frumhugsun
stofnendanna. Var hún sú, að Ung-
inennafélögin yrðu uppeldisstofnan-
ir, þar sem upp yxu sterkir dreng- >
skaparmenn, en umfram alt, íslenzk-
ir drengskaparmenn og sterkir ís-
lendingar. Þessi var umgerð allrar
starfsemi Ungmennafélaganna, eins
og hún var hugsuð í öndverðu. Rakti
ræðumaður nánar ýmsa þætti hins
fyrirhugaða verkefnis glögglega en
í stuttu máli. Var ræða Jóhannesar
heit og hispurslaus.
Eftir 19 ára fjarveru kemur Jó-
hannes Jósefsson heim jafnheitur og
hann var, þegar hann hvarf af landi
burt og hefir á loft að nýju merki
frumhugsjóna Ungmennafélaganna.
Og hvernig er erindi hans tekið?
Aðeins einn af þeim mönnuin, sem
tóku til máis, greip á sjálfum kjarn-
anum. Allir hinir gengu á bug við
höfuðefni ræðu hans og tóku til að
pexa um aukaatriði eins og Spánar-
samningana, bindindisheit, sund-
pollsbyggingu,' stjórnmálahræðslu
og þar fram eftir götunum. Jafnvel
þótti tveimur mönnum ástæða til að
andæfa þjóðerniskendinni í ræðu
frummælanda með sterkum viðvör-
unum gegn því, að vera ekki nógu
móttækilegir erlendum straumuin og
stefnum o. s. frv. Eins og þjóð, sem
á 2—3 tugum ára hefir umbylt at-
vinnuvegum sínum, bygt stærri
borgir hlutfallslega en nokkur önnur
þjóð á sama tíma, reist alla nýbygð
sína á erlendum grunni í hugsun og
' háttum sé ekki nógu gleypigjörn á
erlend áhrif!
Vafalaust hefir Jóhannes orðið
fyrir vonbrigðum, er hann nú heim-
sótti, eftir 19 ára fjarveru, þessa
frumstofnun hreyfingarinnar, þetta
Hjartans þakkir vottum við öllum
þeim, sem á einn og annan hátt
vottuðu okkur hluttekningu sína við
fráfall og jarðarför Páls litla, drengs-
ins okkar.
Hvarami 1. júni 1927.
Guðný Páisdóttir.
Halldór Guðlaugsson.
fóstur sinna eigin hugsjóna. En
margs ber að gæta.
Jóhannes Jósefsson er i fyrsta
lagi yfirburðamaður um hugsjóna-
hita og þrótt. í öðru lagi hafa æsku-
hugsjónir hans haldið áfram að
vaxa í bláma fjarlægðarinar. í fjar-
veru hans hefir gengið ný bylting
jfir þjóðina í hugsun og í háttum og
í atvinnuskipulagi. Ný þjóð með
nýjum stefnumiðum er vaxin upp á
ströndum landsins. Nýbygðin er
frumsmíð, unnin með hröðum hand-
tökum og ómótuð af íslenzkri hugs-
un. Með atvinnubyltingunni höfum
við fengið inn í landið stéttabaráttu
nútímans. Þetta alt ber nonum að
taka til greina, er hann lítur á ást-
fóstur sitt, Ungmennafélögin. Þau
hafa átt að sækja á móti straumi,
sem hefir reynst þeim ofurefli. En
þessar staðreyndir styðja verulega
kenningu Jóhannesar um megin
þeirrar hugsunar, sem Ungmennafé-
lögin voru reist á: — þjóðernis-
kendina. Hún getur alstaðar komist
að, í stuðningi við góð málefni, í
breytni til orðs og æðis. Samt hafa
félögin ekki megnað að reisa
neinar skorður gegn fiaumi þeirra.
áhrifa, sem hafa ekki reynst holl þó
þau væru erlend.
Kvartað var um það, að félags-
mennirnir yfirgæfu félögin, þegar
lifsstarfið kallaði. Er það ekki vegna
þess, að þeir bera á braut of lítið
veganesti? — Ennfremur var kvart-
að um það, að félögin mæti ekki
mótspyrnu. En er það ekki vegna
þess, að þau séu hætt að vekja
á sér eftirtekt? Jóhannes Jósefsson
kemst hjá þessum vanda. Hann hef-
ir átt á för sinni um heiminn ríku-
legt veganesti frá ættstöðvum hug-
sjóna sinna. Hann hefir að vísu unn-
ið sér heimsfrægð með íþróttum.
Þó hefir hann fyrst og fremst verið
íslendingur. Hitt er og líklegt, að
hann með eldmóði sínum og hisp-
ursleysi ávinni sér mótspyrnu.