Dagur - 21.07.1927, Síða 3
31. tbi.
DAGUR
117
^•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*4.
4T ■■ ■■■■■■■■■■■■■£)■■■■■!■■&■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■hhbjbb■■■□■■■■■■■■■■■ ■■■■!■■■■■ V
W ■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■41 ■■■■■SB ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>•■ ■■■■■ ■
■■■
iii Ryels Verzlun.
:s: ■■■
--- Lilið inn í Ryels B-Deild, því að þar er nú margt á boð- S-S
stólum Barnavagnar, með og án skýlu. Garðstólar. Strástólar.
Borð. Legubekkir. Blómsturborð. Brauðkörfur. Leðurtöskur og
Veski í ótal tegundum. Ferðatöskur, stórar og smáar. Skraut-
skálar. Krúsir og Vasar. Andlitsduft (púður). Andlitssmyrsl
(créme). Andlitsfarði (smynke). Sápur, margar tegundir. Mynd-
jr innrammaðar. Speglar og Rammar, mikið úrval. Kústar.
Burstar og Leikföng allskonar. Hitageymar, þrjár stærðir. Pur-
spritt. Suðuvélar, ómissandi á ferðalögum.
■ ■■
■ ■■
■■■
■ ■■
■■■
■■■
■■■
■ ■■
■ ■■
■ ■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■ ■■
■ ■■
■■■
■■■
■ ■■
Baldvin Ryel.
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^p
I ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Jt
^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•^
■■■
■■■
■■■
En ekki er fornyrðislag Jóhann-
esi ofurefli. Ekkert verður út á
háttalykilinn sett, fyr en kemur
nokkru aftar. Klifað kallar skáld-
ið 7. vísuna (sbr. klifstuðlan).
Vísan er ekki einu sinni samhend,
hvað þá iðurmælt, og getur því
ekki með nokkru móti kallast klif-
uð (sjá 48. vísu í háttatali Snorra-
Eddu). Vísa Jóhannesar er draug-
hent. Orðið roði kemur raunar
fjórum eða fimm sinnum fyrir í
vísunni, en það er ónóg, enda er
þessum orðum ekki þánnig skipað,
að það geti klifað kallast, ekki
einu sinni liðhent.
Næstu vísu segir skáldið orta
undir álagshætti. Einkenni þess
háttar er það, þegar rétt er ort,
að 2. og 4. vísuorð í báðum vísu-
helmingum hefst á einnar sam-
stöfu orði, »ok leiðir þat orð af
hinu fyrra vísuorði, en þær V
samstöfur, sem þá eni eptir, eru
sér um mál«. (Háttatal Snorra-
Eddu, bls. 316). Hefir þannig 1.
og 3. vísuorð í báðum vísuhelm-
ingum lagt einnar samstöfu orð
af sínu máli á 2. og 4. vísuorð, og
greinir það háttinn. En hjá Jó-
hannesi er að ræða um alt annan
hátt, samanber 27. vísu háttatals
Snorra Sturlusonar og vísurnar
40a og 40b í háttalykli Rögnvalds
jarls kala Kolssonar og Halls Þór-
arinssonar breiðmaga, en þar eð
þessi tvenn háttatöl eru elst allra
háttalykla (háttalykill Rögnv.
kala ortur um 1145, og háttatal
Snorra um 1220), verður að fara
eftir þeim, svo langt sem þeir ná.
Ekki verður að því fundið, þó að
nýir hættir sé gerðir, en þá má
ekki velja þeim nöfn annara eldri
hátta, sem eru þeim í engu líkir.
Þá blandar Jóhannes saman
stamhendu og dunhendu, kallar
þann hátt stamhendu, sem er rétt
ort dunhenda (samlanber 24. og 45.
vísu háttatals Snorra Sturlusonar,
og vísur nr. 33. í háttalykli Rögn-
valds kala). Stamhendu meiri
nefnir Jóh. næstu vísu, sem ort er
undir réttum stamhendum hætti.
Einnig nefnir hann hátt þann
rétthendu, sem heitir réttu nafni
alhenda, en rétthenda er sem
dróttkvæður háttur, nema alstað-
ar eru aðalhendingar í stað skot-
hendinga, svo að í öllum vísuorð-
um eru aðalhendingar, og settar
sem í dróttkvæðu (samanber 42.
Ungmennafélag Akureyrar
fer skemtiför fram í Leyningshóla
næstkomandi sunnudag þ. 24. júlí.
Lagt verður af stað frá Bifreiðarstöð
Akureyrar kl. 8 árdegis. Farmiðar
á kr. 2.50 fást í verzlun »Geysir«.
og 44. vísu háttatals Sn. Sturlu-
sonar).
Þá er rangt ort undir því af-
brigði dróttkvæðs háttar, sem átt-
mælt nefnist (sbr. 10. vísu hátta-
tals Sn. Sturlusonar og vísu nr. 38
í háttalykli Rögnv. kala). í átt-
mæltu á vitanlega hvert vísuorð
að vera sér um mál (sbr. sextán-
mælt og fjórðungalok). Fyrri
hluti vísu Jóhanhesar er rétt ort-
ur, en í seinni hlutanum eru fjórð-
ungalok, þ. e. að eitt og sama mál
eru bæði í 5. og 6. vísuorði, og svo
annað mál í 7. og 8. vísuorði, svo
að í rauninni hefði þessi háttur
átt að nefnast sexmælt, þó að eigi
sé til háttur með slíku nafni, svo
að vitanlegt sé. —
Fleira mætti út á háttalykiliiin
setja, og víða verður vart við smá-
ónákvæmni. óneitanlega hefði Jó-
hannes mátt vanda sig meira með
háttalykil sinn, en hinsvegar verð-
ur ekki til þess ætlast, að jafn-
mikil bragþraut verði af hendi
leyst, svo að gallalaus sé. Jóh.
hefir ort undir mörgum mjög dýr-
um og erfiðum háttum, sem finna
má í háttalykli hans, og gefst hon-
um þar gott tækifæri til að sýna,
hve rímhagur hann er, því að
margt er þar vel ort.
öll eru kvæði skáldsins alþýðleg
og auðskilin, og einnig háttalykill-
inn, því að hvergi kennir hann,
eða rekur eða yrkir nýgörvingvm
sér til hægðarauka, og má það ný-
stárlegt kallast. —
Yfirleitt er bókin hin ágætasta,
og Jóhannes eitt af efnilegustu
yngri skáldum, sem nú eru uppi á
landinu.
Steingrínmr.
-------o-------
— Sigurður Guðmundsson skólameist-
ari og frú hans lögðu af stað landveg
suður til Rvíkur 17. þ. m. Einar Olgeirs-
son kennari fór með þeim vestur í
Húnavatnssýslu.
F r é 11 i r.
— Rauðakrossdeild Akureyrar heldur
skemtisamkomu næstkomandi sunnudag,
24. þ. m., í Vaglaskógi, og hefst hún kl.
12 á hádegi með guðsþjónustu. Sr. Sig-
urður P. Sivertsen prófessor prédikar.
Ásmundur Guðmundsson, skólastjóri á
Eiðum, flytur erindi. Söngur og margs-
konar skemtun og dans að lokum.
— Goðafoss kom frá Hamborg austan
um land 18^þ. m. og fór héðan að kveldi
19. Meðal farþega suður var Jón Sveins-
son bæjarstjóri, til Rvíkur í erindum
fyrir bæinn.
— Ásmundur Jóhannsson frá Winni-
peg dvaldi nokkra daga hér í bænum í
vikunni. Kom sunnan úr Rvík af fundi
Eimskipafélagsins. Mætti hann þar sem
fuiltrúi Vestur-íslendinga. Héðan fór
hann vestur í Miðfjörð á æskustöðvar
sínar. í för með honum var sonur hans
Grettir.
— Mannalát. Frú Kristín Jóhanns-
dóttir, kona Helga Guðmundssonar
læknis á Siglufiiöi, andaðist aðfaranótt
14. þ. m. — Nýlátin er hér í bænum
ekkjan Björg Jóhannsdóttir Malmquist,
móðir Einars Einarssonar útgerðar-
manns. — Þá hafa þau Vilhjálmur Þór
kaupfélagstjóri og Rannveig kona hans
orðið fyrir -þeirri sorg að missa son sinn,
fárra nátta.
— Nýlega hafa þeir bræðurnir, Jó-
liannes á Lækjarbakka og Jón í Jaðri
Friðleifssynir, í Svarfaðardal, fengið
600 danskar kr., hvor um sig, úr hetju-
sjóði Carnegie’s, fyrir að bjarga dóttur
Sigurjóns læknis í Dalvík frá druknun.
Þessir vösku drengir stofnuðu sér í lífs-
hættu við björgunina.
— Prestastefna hófst hér 20. þ. m. (á
í>orláksmessu) og stendur yfir'í þrjá
daga, undir forsæti Geirs biskups. Auk
hans eru níu prestvígðir menn mættir:
Sig. P. Sivertsen prófessor frá Rvík, sr.
Ásmundur Guðmundsson, skólastjóri á
Eiðum, sr. Ásm. Gíslason, próf. á Hálsi,
sr. Helgi á Grenjaðarstað, sr. Jón Ara-
son í Húsavík, sr. Gunnar I Saurbæ, sr.
Stefán á Völlum, sr. Ingólfur í Ólafs-
firði og sr. Guðbrandur í Viðvík. —
Prestastefnan hófst kl. 1% miðviku-
dag með guðsþjónustu. Prédikaði sr. Ás-
mundur á Eiðum, en sr. Geir var fyrir
altari. Um kveldið kl. 9 flutti Sig.
Sívertsen prófessor erindi í kirkjunni
um lcristilega festu og fimtudagskvöld
kl. 9 flutti sr. Ásmundur á Eiðum annað
um trúarlíf Pascals. — Fundir prest-
anna eru haldnir fyrir luktum dyrum.
— Skipakomur. Island kom 14. þ. m.
að sunnan. Með voru: Sr. Geir og stú-
dentarnir Steindór Steindórsson og Jó-
hannes Áskelsson, er báðir leggja stund
á náttúrufræði við Hafnarháskóla.
Dvelja þeir Steindór og Jóhannes hér í
sumai’leyfinu. Brúarfoss kom að vestan
14. þ. m. Meðal farþega voru Brynleif-
ur Tobiasson, úr kosningaleiðangri sín-
um um Skagafjörð, Gísli Jónsson prent-
ari, frá Winnipeg, o. fl. Skipið fór á-
leiðis til Hafnar næsta dag. Með því
fóru Jónas Þorbergsson, ritstj. »Dags«,
og kona hans, Sigurlaug Jónasdóttir, til
Khafnar,
— Ungmennafélag Akureyrar fer
skemtiför næstk. sunnudag fram í Leyn-
ingshóla. Lagt verður af stað kl. 8 árd.
frá Bifreiðarstöð Akureyrar. Farmiðar
kosta kr. 2.50 og fást í verzl. »Geysir«
(sjá augl. hér í blaðinu).
— Magnús Kristjánsson, forstjóri
landsverzlunar og alþm., er staddur hér
í bænum þessa dagana.
— Sameiginlegur fundur stúknanna
hér í bænum verður haldinn næstk.
sunnudag kl. 4 síðd. í »Skjaldborg« —
Bjarni Hjaltalín segir sögu st. »lsafold-
Fjallkonan« nr. 1. — Stórtemplar, sem
er nýkominn í bæinn, mætir á fundinum.
Templarar eru beðnir að fjölmenna.
— Veðráttan er hin ákjósanlegasta það
sem af er sumrinu: sólskin og sunnan-
vindur nú síðustu dagana. Heyskapur
gengur ágætlega, þó að spretta sé varla í
meðallagi á harðvelli, sakir þurkanna. Búið
er að hirða tún sumstaðar.
— Sjávarafli ágætur. Meiri síld berst til
bræðslu, en verksmiðjurnar á Siglufirði
og í Krossanesi geta veitt viðtðku, svo
að skipin verða að bíða afgreiðslu. Síldar-
söltun á Siglufirði hefst 25. þ. m.
Tryggvi Pórhallsson ritstj. og
alþm. liggur veikur, og hefir hann
verið mjög þungt haldinn, en er
nú í afturbata og er talinn úr allri
hættu.
Stjórnarskifti.
Fullvíst er talið, að íhaldsstjórn-
in ætli innan skamms að beiðast
lausnar, með því að hún er orðin
í minnihluta í þinginu eftir kosn-
ingarnar 9. þ. m. Fréttir eru nú
komnar um kosningaúrslit í öllum
kjördæmum, nema Suður Þingeyjar-
sýslu, en kunnugir álíta, að Ing-
ólfur í Fjósatungu sé þar kosinn
með talsverðum meirihluta. — Gert
höfðu flestir ráð fyrir, að stjórnin
mundi sitja til næsta þings, eins
og venja hefir verið til undanfarið,
þegar líkt hefir staðið á. Erlendis
er það venjan í þingræðislöndum,
að stjórn, sem lendir i minnihluta
við kosningar, segir af sér þegar í
stað, og virðist núverandi stjórn
ætla að taka þessa reglu sér til
tyrirmyndar.
----o...—
Símskeyti.
Rvík 19. júlí.
Frá Berlín: Kviðdómur í Vínar-
borg sýknaði 3 keisarasinna, er
skutu á lýðveldissamkomu og drápu
tvo mgnn. Sýknunin olli afskapleg-
um æsingum og götubardögum.
150 féllu. Sólarhrings allsherjarverk-
fall, en áframhaldandi síma- og járn-
brautarverkföll. Ástandið batnað, þó
enn alvarlegt.
Pétur Jónsson hefir sungið hér
við mikla aðsókn, fengið ágæta
dóma. Mun fara norður með »Dr.
A(exandrine« næst.