Dagur - 28.07.1927, Page 3
32. tbl.
DAQUR
121
.>*55555555555555555555555bbbb,1bbbbbbbbbbbi,bbbbbbbbbbbbbbbb«»dbdbbb»bbb»1bbdbbb,*
í !55555!5!5!!!S5S55!!!5!5fi855!!!!55!5!!!!!!!!!!!!!!5!!B5laBBBBBBI1BBBBBBlBBBBB ^
■■■
BHa
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
BBI
■ UD
»■■
■ ■■
BBM
aaaj
■■■
■■■
■■■
Ryels Verzlun
hefir nú á boðstólum gríðarstórt úrval af tvisttauum,
hvítum léreftum, einbreiðum, tvíbreiðum og fjórbreiðum,
hörléreft í Iök, óbl og dúnféreft, boldang, flónel, last-
ingu, svarta og misl., kjólatau, ótal teg., tricotinenærföt,
nýtízku, fyrir börn og fullorðna, flibba, bindi, manchett-
skyrtur, trefla, rúmteppi, hvít og misl., borðdúka og
kaffidúka, hvíta og mislita.
Baldvin Ryel.
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
■■■
» ■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■HBHHHHHBHHHHHHBHeiHBHHHHHHHHHH H
^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■HBHBHHHHS5SS5aa5555555S555 £
^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■hhhhbh5555S55S5S555555555555555S5»+
Fyrirlestur,
er nefnist
»Vegur kærieikans«,
flytur
Grétar Fells
annaö kvöld (29. júlí) kl. 9 í Skjaldborg.
Aðgangur ókeypis.
séra Stefán Kristinsson, Völl-
um,
séra Gunnar Benediktsson,
Saurbæ,
séra Ingólfur Þorvaldsson,
ólafsfirði og
séra Guðbrandur Björnsson,
Viðvík.
Ennfremur sátu fundinn pró-
fessor séra Sigurður Sívertsen og
séra Ásmundur Guðmundsson,
skólastjóri á Eiðum. Fundurinn
hófst með guðsþjónustu í kirkj-
unni kl. 1 /2 síðd., þar sem séra Ás-
mundur Guðmundsson predikaði
út af Mark. 8. kap., 27.—29. v., en
vígslubiskup þjónaði fyrir altari
og var lítanían sungin. Að guðs-
þjónustunni lokinni setti vígslu-
biskup fundinn og bauð fundar-
menn velkomna.
Þá flutti séra Ásmundu'r Guð-
mundsson erindi um Guðbrand
Þorláksson Hólabiskup, þar sem
þennan dag var 300 ára dánaraf-
mæli hans. Mintust allir fundar-
nnenn hins mikla og ágæta biskups
með því að standa upp.
Þessi mál voru tekin fyrir:
1. Breytingar á helgisiðabókinni.
Prófessor Sigurður Sívertsen
reifaði málið og lagði fram bráða-
birgðatillögur til breytinga á helgi-
siðabók íslenzku þjéðkirkjunnar,
frá nefnd þeirri, er skipuð var á
prestastefnunni 1925. Málinu var
vísað til nefndar, er lagði síðar
fram á fundinum álit sitt. Um-
ræður urðu miklar, og að þeim
loknum var séra Stefán Kristins-
son kosinli til þess að vinna úr
tillögum um breytingar á helgi-
siðabókinni, er kæmu frá prestum
hins forna Hólastiftis, og senda
þær til aðalnefndarinnar í Reykja-
vík.
2. Prestafélag Islands.
Formaður Sigurður prófessor
Sívertsen skýrði frá hag og starf-
semi félagsins á liðnu ári: Félagið
hefði gefið út Hundrað hugvekjur
til kvöldlestra í 3000 eintaka upp-
lagi, og væru þær nú nálega upp-
seldar. Ennfremur gæfi það út á
þessu ári, auk Prestafélagsritsins,
litla bók um heimilisguðrækni. Fé-
lagið vildi framvegis beita sér fyr-
ir útgáfu bóka til eflingar kristni
þjóðarinnar, t. d. föstuhugvekna
og skýringa nýja testamentisins.
Því næst skýrði formaður frá
starfi ferðaprestanna, og í því
sambandi var samþykt tillaga um
það, að fjárveiting til ferðapresta
héldist framvegis.
Þá sagði formaður frá þeirri
breytingu á lögum félagsins, að
deildir mætti stofna um land alt,
er stæðu í sambandi hver við aðra
og við aðalfélagið í Reykjavík.
l'aldi hann líklegt, að slíkt fyrir-
komulag mundi efla félagið og
væri ein slík deild þegar stofnuð í
Múla-prófastsdæmum. Eftir all-
miklar umræður var skipuð nefnd
til að athuga málið frekar og koma
fram með tillögur um deildastofn-
un og hvort halda ætti áfram
prestafélagi hins forna Hólastift-
is. Voru þessar tillögur hennar og
náðu samþykki fundarins:
a) Prestafélag hins forna Hóla-
stiftis haldi áfram að starfa og nái
yfir sama svæði og áður og haldi
fundi að minsta kosti annað hvort
ár.
b) Stofnaðar verði tvær deildir
í Prestafélagi íslands á Norður-
landi, önnur fyrir Húnavatns- og
Skagafjarðar,- hin fyrir Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarprófasts-
dæmi, með líku fyrirkomulagi og
deild sú, sem þegar er stofnuð í
M úlaprófastsdæmum.
Var því næst stofnuð slík deild
fyrir Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
prófastsdæmi og kosnir í stjórn
hennar: vígslubiskup Geir Sæ-
mundsson, prófastur Ásmundur
Gíslason, séra Stefán Kristinsson.
3. Kristindómsfræðsla bama.
Framsögumaður í því máli var
séra Ásmundur skólastjóri Guð-
mundsson. Eftir nokkrar umræð-
ur var samþykt svohljóðandi til-
laga:
Fundurinn leggur það til, að á
næstu fjárlögum verði veitt alt að
kr. 4000.00 til þess að hæfur mað-
ur, að dómi kirkjustjórnarinnar
og guðfræðideildar háskólans, geti
helgað krafta sína óskifta samn-
ingu nýrrar barnalærdómsbókar.
U. Sábnabókarviðbætir.
Framsögumaður séra Ásmund-
ur Guðmundsson. Eftir nokkrar
umræður var þessi tillaga sam-
þykt:
Fundurinn æskir þess, að við
næstu prentun sálmabókarinnar
vérði prentaður viðbætir nýrra
góðra sálma.
5. Kristindómur og stjórnmál.
Prófastur séra Ásmundur Gísla-
son hóf umræður, urðu þær fjör-
ugar og tóku margir til máls. Var
að lokum borin upp og samþykt í
einu hljóði þessi tillaga:
Fundurinn heitir á presta og
aðra þá, er kristindóminum
vilja vinna, að hefja samtök um
það, að í stjórnmálum vorum megi
ríkja meiri kærleikur og sannleiks-
ást.
6. Aukatekjur presta.
Séra Ingólfur Þorvaldsson hóf
umræður um málið. Var því vísað
til nefndar, og bar hún fram
svohljóðandi álit og tillögu:
Nefndin lítur svo á, að prests-
starfð verði óandlegra við það, að
borgað sé fyrir skírn, fermingu,
hjónavígslu og greftrun, og auk
þess komi það gjald jafnt að kalla
niður á fátækum mönnum og efn-
uðum og iðulega þeim, er síst
skyldi. Fyrir því leyfir hún sér að
bera fram svohljóðandi tillögu:
Fundurinn skorar eindregið á
kirkjustjórnina að beita sér fyrir
því, að sérstök borgun fyrir auka-
verk presta falli niður að lögum,
en föst laun þeirra hækki sem
svarar því, er áætla má, miðað við
fólksfjölda, að aukatekjur nemi
í hverju prestakalli. Þóknun fyrir
tækifærisræður haldist sem áður.
Samþykt í einu hljóði.
7. Breytingar á prests-kosninga-
lögunum.
Prófessor Sigurður Sívertsen
hóf umræður. Þessar tillogur voru
samþyktar:
a) Fundurinn telur deilur í sam-
bandi við prestskosningar hættu-
legar kristni landsins og leyfir sér
því að skora á kirkjustjórnina að
hlutast til um að því ákvæði verði
bætt inn í prests-kosningalögin, að
söfnuðir hafi rétt til þess að kalla
sér prest, og sé sú köllun bundin
við vilja meiri hluta safnaðar og
komi þá í stað kosningar. Umsókn-
ir um prestakall komi þá fyrst til
greina, er söfnuði hefir ekki tekist
að kalla sér prest innan hæfilega
'langs tíma að dómi kirkjustjórn-
arinnar.
b) Þar sem fundurinn telur að
það geti verið heppilegt, að prest-
ar þjóni ekki til lengdar sam^,
prestakalli, þá leyfir hann sér að
skora á kirkjustjórnina að hlutast
til um það, að prestum verði með
lögum veitt heimild til þess að
skifta um prestaköll, ef hlutaðeig-
andi söfnuðir veita til þess sam-
þykki sitt.
c) Fundurinn skorar á kirkju-
stjórnina að hlutast til um, að
breytt sé svo lögum um kosningu
presta, að prestskosning taki eigi
svo langan tíma og nú á sér stað,
einkurn í þeim héruðum landsins,
sem fjarri eru Reykjavík. Virðist
'fundinum, að umsóknartími mætti
vera styttri og upplestur kjörseðla
fari fram heima í héraði.
8. Viðhorf við trúmálaágreiningi í
landinu.
Flutningsmaður séra Ásmundur
Guðmundsson skólastjóri. Kom
fram svohljóðandi tillaga og var
samþykt:
Fundurinn telur brýna nauðsyn
þess, að þeir, sem vilja vinna
að eflingu kristindóms í landi
voru, sameinist um kjarna hans,
Krist sjálfan, krossfestan og upp-
risinn, og fagnaðarerindi hans, en
deili sem minst um aukaatriði og
síst á ódrengilegan hátt. Skoðana-
munur og röksemdaleiðslur geta
leitt til bjartara sannleiksljóss, er
bróðurhugur ríkir, en persónuleg-
ar aðdróttanir og getsakir eru ó-
hæfa.
9. Heimilisguðrækni.
Samþykt eftirfarandi tillaga:
Fundurinn felur stjórn deildar
Prestafélagsins í Þingeyjar- og
Eyjafjarðarprófastsdæmum að
skrifa kvenfélögum á deildarsvæð-
inu og beiðast aðstoðar þeirra til
eflingar heimilisguðrækni.
Sigurður prófessor Sívertsen og
Ásmundur Guðmundsson skóla-
stjóri fluttu sitt kvöldið hvor er-
indi fyrir almenning í kirkjunni.
Síðasta kvöldið voru fundar-
menn saman til altaris.
-----o-----
F r é 11 i r.
Skólastjórar alþýðuskólanna á
Eiðum og Laugum, sr. Ásmundur
Guðmundsson og Arnór Sigur-
jónsson, eru báðir staddir hér í
bænum. Var sr. Ásmundur hér á
prestafundi, en Arnór er að sjá
um útgáfu ársrits Laugaskóla.
Hallgrímur Hallgrímsson mag-
ister kom hingað til bæjarins á
mánudag og dvelur hér fram und-
ir helgina.
Sgurður Jónsson stórtemplar
hefir dvalið hér vikutíma. Kom
hann frá Siglufirði, þar sem hann
hafði viðdvöl um hríð.
Vígslubiskupinn, sr. Geir Sæ-
mundsson, veiktist snögglega laust
fyrir síðustu helgi og liggur enn
þungt haldinn.
Tryggvi Þórhallsson ritstj. og
alþm. er nú á góðum batavegi.
Ásgeir Ásgeirsson alþm. hefir á
hendi ritstjórn »Tímans« sem
stendur.
»Nova« kom frá Noregi austan
um land í fyrrinótt og fór aftur
um hádegi í gær vestur og suður.
Meðal farþega héðan var Sigurður
Jónsson stórtemplar.
— »Esja« kom í nótt og fór £ dag.