Dagur - 22.09.1927, Side 2
150
DAGUR
40. tbl.
K j ö t s a I a n
fer fram úr sláturhúsi okkar á Akureyri alla virka
daga, meðan sláturtíðin stendur yfir. Verðið er kr.
1,10 kilóið en getur lækkað um alt að 20 aurum
kilóið eftir því hvernig gengur með sölu kjötsins
í Bretlandi. — Verði endurgreitt af kjötverðinu,
skal kjötnótan sýnd og endurgreiðslunnar vitjað
fyrir 1. ágúst n. k.,annars tapastallur réttur til hennar.
Kaupfélag Eyfirðinga,
mmímmmímmmmm
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin aila daga
frá kU 10-6.
Guðr, Funch-Rasmussen.
þar sem storma lægir og hugir
stillast.
Og nú verður mér enn að nýju
-reikað inn í land minninganna,
þar sem tárperlur liðinna harma
glitra á stráunum. Og er eg hlusta á
vængjablak horfinna ára, minn-
ist eg einnig þín. Þú hafðir svo
lengi starað spurnaraugum í
dökkvann, sem rís fyrir sjónum
okkar hinum megin grafar. Þú
hafðir kallað þögulum hugarópum
inn í heim duldra raka. Sólin
blessuð bar þig yfir allar torfær-
ur inn í birtunnar heim. Drottins
eilífa sól blessi þig og gleðji þig
og vinina þína alla!
Jónas Þorbergsson.
----o----
Húsavík.
Húsavík mun vera eitthvert fegursta
sjávarþorp á íslandi. Hún liggur undir
vesturrótum Húsavíkurfjalls og milli
tveggja Iághæða, eins og grænt men
í faðmi landsins. Porpið er frábærlega
vel ræktað og gróið. Með hverju ári,
sem nú líður breiða túnin sig í þrjár
áttir út frá þorpinu. Húsavíkurhöfði,
sem til skamms tíma var iliræmdur
harðbali, af því að hestar ferðamanna
gátu aldrei fengið þar fylli sína, er að
breytast í iðja grænt tún.
Þessar stórstígu ræktunarframfarir
eru ungar, aðeins 2—3 ára. Hvað
veldur? Pað veldur, að Húsvíkingar
eru teknir að hirða allan fiskiúrgang,
hvert tangur og tetur, og hagnýta til
ræktunar. Til skamms tíma var á
Húsavík, eins og í öðrum veiðistöðv-
um norðan lands, öllu slógi kastað í
fjöruna. Þar úldnaði það í röstum og
er maðki sló í kasirnar varð fjaran öll
og sjávarbakkinn kvik af maðki. Ó-
daun þeim og óþrifnaði, sem fylgir
þessháttar athæfi, verður ekki lýst með
of sterkum orðum. Fyrir 2—3 árum
tóku Húsvíkingar að ráða verulega bót
á þessu ástandi. Pá tóku þeir að flytja
slógið á túnin. Reyndist það, sem
vitanlegt er, hinn bezti áburður. í
fyrra sumar tók Sigurður Bjarklind
kaupfélagsstjóri sig til og bannaði að
varpa neinu slógi í fjöruna af bryggju
og upplagspöllum félagsins. Ástæður
fyrir banninu voru: í fyrsta lagi ó-
þrifnaðurinn, sem fylgdi hinni gömlu
aðferð. í öðru lagi átti slorið þátt í
að grynka höfnina, með því að sandur
og Ieðja dróst í beinarastir í flæðar-
málinu.
Regar þetta fyrsta spor var stigið,
gaf hreppsnefnd þorpsins út bann, er
gilti um alla strandlengjuna. Síðan
hefir ekki haus né dálki verið kastað í
fjöruna.
Á upplagspöllum og bryggjum
þorpsins eru settir trékassar og í þá
varpað öllum úrgangi. Regar lokið er
aðgerð fiskjarins í hvert sinn, eru
kassarnir tæmdir og slóginu ekið á
túnin og nýræktarlöndin. Bezta ráun
gefur sú aðferð, að ausa miklu af
slógi á löndin óræktuð og láta þau
auka gróður sinn 1—2 ár. Plægja síð-
an í flag og láta gróa, sáin grasfræi
og höfrum eða ósáin upp af fyrra
gróðri. Um 120 dagsl. hafa á þennan
hátt verið teknar til ræktunar í Húsa-
vík síðastliðin 2 ár. Þar af er um
helmingur kominn í meiri og minni
rækt og gert ráð fyrir að hinn helm-
ingurinn verði ræktaður meira og
minna á næstu tveimur árum. Af
þessari nýrækt hafa þeir Sigurður
Bjarklind kaupfélagsstjóri og Björn
læknir Jósefsson um 30—40 dagsl.
með höndum.
Pessi vinnubrögð þorpsbúa verka á
tvennan hátt til þrifnaðar og hagsbóta.
í fyrsta lagi er þorpið eitt hið ánægju-
legasta og líklega þrifalegasta á öllu
íslandi. í öðru lagi grær land óð-
fluga út frá þorpinu og á þátt í að
bæta afkomu þorpsbúa og bera þá
yfir misfellutíma veiðimenskunnar.
Þannig leggur sjórinn til nýtt verð-
mæti, sem með réttri hagnýtingu verk-
ar til þess að tryggja framtíð sjávar-
útvegsins á þann hátt að styrkja að-
stöðu fólksins við sjóinn, svo að það
þurfi síður að hvarfla til annara veiði-
stöðva, ef afla tekur undan á Húsavík.
í öllum veiðistöðvum hér við Eyja-
fjörð og á Siglufirði herjar hinn stak-
asti óþrifnaður. Tugir og hundruð
smálesta af slógi og fiskiúrgangi úldn-
ar þar í fjörunum frá ári til árs, með-
an landið býður lítt gróið og nytja-
laust að baki þorpanna. Ofurkapp
rányrkjunnar á sjónum blindar augu
manna fyrir siðmennilegum aðferðum
við hagnýtingu þess geysimikla auðs,
sem dreginn er úr djúpi hafsins. Hús-
víkingar munu vera að komast á þá
skoðun, að hirða beri slóg til hagnýt-
ingar eigi síður en fiskinn. Sú skoðun
þyrfti að útbreiðast til annara sjávar-
þorpa, þar sem svipað stendur á.
Mun svo reynast, þegar til lengdar
lætur, að til mestra og varanleg-
astra þjóðþrifa horfa þær athafnir, sem
láta tvö strá vaxa, þar sem áður óx
eitt.
------o------
F r é 11 i r.
— Eins og' getið var í síðasta blaði
tókst að stöðva brunann í Krossanesi
vonum framar. Stórt geymsluhús ásamt
einhverju af áhöldum verksmiðjunnar
brann. Vörur ónýttust og þar á meðal
mjög mikið af óbræddri síld er var
geymd og beið bræðslu í þrónum. Eór
mikið af henni í sjóinn, en það sem eft-
ir er, er skemt af eldi og jámarusli, er
varð laust við sprenginguna. Brotnuðu
þá og' rúður í gluggum næstu húsa og
lauslegir munir innan húss féllu niður
og skemdust. Skaðinn er talinn nema
hundruðum þúsunda króna.
— Tíðarfarið hefir verið mjög stirt
nú um skeið. Úr miðjum mánuðinum
gerði norðanáhlaup með miklum veður-
ofsa og úrfelli. Snjóaði þá í fjöll. Hefii'
síðan verið hryðjuveður öðruhvoru með
norðaustanátt og talsverðum kulda.
— Kristján Halldórsson úrsmiður frá
Stórutjörnum er aftur fluttur til bæj-
arins og hefir opnað úrverkstæði I Is-
landsbanka niðri.
— Þegar Suðurlandspóstur var síð-
ast á ferð vestur yfir Breiðamerkur-
jökul, sprakk jökullinn undir honum.
Féll 1 maður og 6 hestar í sprunguna.
Náðust 3 af hestunum aftur iifandi en
maðurinn Jón bóndi Pálsson á Svína-
felli í Öræfum og 3 hestar fórust.
— Slátrun hófst á þriðjudaginn í
Sláturhúsi Kf. Eyfirðinga.
— Haraldur Björnsson leikari er ráð-
inn til að starfa fyrir Leikfélag Akur-
eyrar næstkomandi vetur. Er hans
bráðlega von heim. Mun leikfélagið
ætla að taka snemma til starfa að þessu
sinni og' fyrsti leikurinn ákveðinn:
»Galdra-Loftur« eftir Jóhann Sigur-
jónsson.
— Um 300 marsvín voru nýlega rek-
in á land á Hellissandi.
— Síðastl. laugardag' voru gefin
saman í hjónaband hér í bænum ung-
frú Magnea Daníelsdóttir og Vilhjálm-
ui' Jónsson bílstjóri.
— Þessi rit hafa blaðinu borist ný-
lega. Tímaritið »Saga« úr Vesturlieimi.
Er hún að vanda læsileg og skemtileg.
Sögur frunwamdar og þýddar, kvæði,
dæmissögur, þjóðsagnir, úi-valsmolar úr
bókmentum, bókafregnir og margt smá-
vegis er þar saman komið. — »Hlín« er
í svipuðu formi og áður: Margvíslegir
fræðimolar ásamt ritgerðum, söguleg-
um fróðleik og skáldsögur o. fl. —
vÁrsrit Nemendasamibands Laugaskóla«
er talsvert stærra en í fyrra og í svip-
uðu formi. Verður þess rits væntan-
lega nánar getið hér í blaðinu.
—Fimm fjölskyldur hverfa brott úr
Akureyrarbæ í sumar og haust og eru
þær þessar. Fjölskylda Jóns Espholin,
Jónasar Rafnars, Freymóðs Jóhanns-
sonar, Önnu Magnúsdóttur og' Jónasar
Þorbergsonar. Jón, Anna og Freymóður
ilytja til Kaupmannahafnar.
— Dagur vill vekja athyg'li lesend-
anna á auglýsingu Jóns Þorsteinssonar
íþróttakennara frá Hofsstöðum, þeirri
er birtist í síðasta tbl. Vísast og til
greinar Helga Valtýssonar á öðrum
stað í þessu blaði.
— Gert er ráð fyrir að Dagur geti
haldið áfram að kcma út nokkurn veg-
inn viðstöðulaust og að nýr ritstjóri
taki við eigi síðar en um miðjan næsta
mánuð. Nýi ritstjórinn verður, að
minsta kosti til bráðabirgða, Þórólfur
Sigurðsson bóndi í Baldursheimi.
———o------
Simskeyti.
Rvík 21. sept.
Símað er frá London: Endan-
leg úrslit írlandskosninganna eru
enn ekki kunn, en talið líklegt að
fylgismenn ensk-írska samnings-
ins nái þingmeirihluta.
Frá París: Á fundi ráðuneytis-
ins var ákveðið, að slíta ekki þeg-
ar stjórnmálasambandi við Rússa.
Stjórnin vill halda áfram tilraun-
um um frakknesk-rússneskan ör-
yggissamning, en ókunnugt er
um, hvort ákvörðun hefir verið
tekin um að æskja þess, að Rússar
kálli heim Rakovskis sendiherra
sinn.
Reykjavík: Stjórnin hefir ný-
’lega skipað Pál Eggert ólason í
útvarpsnefndina. Hinir mennirnir
í nefndinni eru Gísli ólafsson og
Lúðvík Guðm'undsson. Þá hefir
stjórnin skipað í landbúnaðar-
nefndina Bernharð Stefánsson.
Frá Seyðisfirði: Nýlega drukn-
aði barn í mógröf að Hrafna-
björgum.
Frá ísafirði: Vélskipið Eggert
ólafsson misti út mann, Jón Jó-
hannesson frá Hnífsdal, í óveðr-
inu 16. þ. m. Maðurinn druknaði.
Báturinn var hætt kominn.
Hin viðurkendu ágætu
„Svendbo rg“-eldfœri
sem reynsla er fengin fyrir, að eru
eldiviðardrýgst og kostaflest allra
eldfæra á Norðurlðndum, eru nýlega
mjög mikið
fallin í verði
svo nú er gott tækifæri að fá sér
ódýra ofna og eldavélar.
Þeir, sem hafa talað við mig um
að fá ofna og eldavélar með »ís-
landi«, sem á að vera á Akureyri
10. október, eru beðnir að hitta
mig innan 25. septbr. Nokkrar
birgðir hefi eg enn fyrirliggjandi,
bæði af oínum og eldstóm.
Jón Stefánsson.
Strandgötu 35. — Akureyri.