Dagur - 06.10.1927, Blaðsíða 3
42. tbl.
DAGUR
159
I. BRYIJ ÓLFSSON & KYARAN.
HEILDSALA. UMBOÐSVBRZLDN.
SÍMNEFNl: VERUS. SÍMI: 175. PÓSTHÓLE (». ^ AKLREYRI, 1. OKTÓBER 1927.
TILKYNNING til kaupmanna og kaupfélaga á Norðurlandi.
Það tilkynnist hérmeð, að við höfum opnað hér á Akureyri skrifstofu, sem ætlað.er að annast viðskifti okkar á Norðurlandi. —
Við útvegum beint frá ágætum verksmiðjum og verzlunarhúsum erlendis allflestar vörutegundir, svo sem allskonar
kornvörur, nýlenduvörur, niðursuðuvörur, mjólk, ávexii nýja, þurkaða og niðursoðna, sœlgœti, vindla,
hreinlœtisvörur, vefnaðarvörur, veiðarfœri, manilla, hessianstriga, saumgarn, ullarballa, þakjárn o.m.fl.
— Einnig munum við ávalt hafa fyrirliggjandi hér á Akureyri birgðir af allsk. nauðsynjavörum o. fl. með svo vægu verði sem
frekast er unt. — Að þessu sinni er ókleyft að telja upp allar okkar fjölbreyttu vörutegundir, en gerið svo vel og lítið inn til
okkar í Hafnarstræti 100 (Hótel Gullfoss, neðstu hæð), símið okkur eða skrifið, og mun öllum fyrirspurnum verða svarað greiðlega. —
Virðingarfylst,
p. p. I. Brynjólfsson & Kvaran.
Ágúst Kvaran.
P. S. Með síðustu skipum höfum við fengið miklar birgðir af allskonar nauðsynjavörum. —
Viðskifti aðeins við kaupmenn og kaupfélög.
Orðsending
tn
Jónasar þorbergssonar.
Herra ritstjóri!
Við burtför yðar á dögunum,
héðan úr bænum, senduð þér ná-
ungum yðar kveðju, sem menn á-
litu að þér hefðuð samið eftir
»kristilegu grunnlínunni« yðar.
Þér voruð þar bljúgur í anda og
auðmjúkur og þótti mér fara vel
á því. Eg þóttist sjá, að enn sann-
aðist hið fornkveðna, »að engum er
alls varnað« og að iðrun eins og
annars, hefði verið yður ríkust í
huga við burtförina. En svo kem-
ur viðbótar-kveðja frá yður í sein-
asta blaði, og gerið þér mér þar
þeim mun hærrá undir höfði en
öðrum, að sú kveðja er að heita
má, helguð mér einmn. Má því
varla vera minna, en eg láti yður
vita, að eg hafi lesið »kveðjuna«,
þótt eg hafi að undanförnu látið
yður algerlega afskiftalausan,
þegar þér hafið verið að lýsa mér
og starfsemi minni fyrir lesend-
um »Dags«.
Efni »kveðjunnar« til mín, er
að reyna að gera mig tortryggi-
legan í augum almennings, vegna
þess að eg sé afgreiðslumaður
»Sameinaða félagsins« hér á Ak-
ureyri, tilraun til þess, að reyna
að fá fjoldann til að álíta mig
sitja á svikráðum við Eimskipafé-
lag íslands. Þar gerið þér víst ó-
vart meira úr mér og áhrifum
mínum en þér hafið ætlað, því
ekki er líklegt, að maður sem er
svo sneyddur viðskiptatiltrú, sem
þér segið um mig, sé þess megn-
ugur »að halda fótunum á Eim-
skipafélaginu« eins og þér svo
smekklega orðið það. En nú verð
eg að hryggja yður með því, að ef
eg væri að vinna á móti Eim-
skipafélagi íslands, væri eg jafn-
framt að vinna gegn hagsmunum
sjálfs mín. Eg er nefnilega meðal
stærstu hluthafa í félaginu. Og
það gæti illa samrýmst fjármuna-
græðgi minni, eins og þér hafið
oft og einatt með hjartnæmum
orðum lýst henni, ef eg vildi koma
í veg fyrir, eða vinna gegn því, að
þau hlutabréf mín, gæfu sem
mestan arð, að unt væri. Annars
skal eg fúslega lýsa yfir, að í mín-
um augum, er ekkert athugavert
við, að annast afgreiðslustörf fyr-
ir »Sameinaða« og munu margir
samherjar yðar og máske sumir
af húsbændum yðar, vera þar á
sama máli og eg. T. d. annast
»Kaupfélag Þingeyinga« af-
greiðsluna fyrir »Sameinaða« á
I-Iúsavík.
Þér glamrið svo hvíldarlaust
um óeigingirni og fórnfýsi, heimt-
ið þær dygðir svo stöðugt af öðr-
um, að þér hljótið að vera þeim
kostum búinn í ríkum mæli, ef
þér eruð ekki ómerkilegur blaðr-
ari, sem ekkert getur sjálfur,
nema að gelta að öðrum og heimta
af þeim, það sem þér eruð ekki
maður til sjálfur að láta í té. Því
spyr eg yður nú og vænti yður
verði ljúft, að veita refjalaust
svar: Hvað hafið þér unnið til
gagns fyrir Eimskipafélag ís-
lands? Hve mikið hundraðsgjald
af kaupinu yðar hjá »Degi« hafið
þér t. d. lagt í hlutabréf félags-
ins? Eg tek viljann fyrir verkið,
hvað sem kemur upp um það.
Flutningi á fólki, farangri og vörum,
sem þér ráðið yfir, ættuð þér áð láta
Eimskipafélag íslands sitja fyrir, sam-
kvæmt því sem þér heimtið af öðrum.
Haldið þér ekki, að margur hafi hlegið
af predikun yðar, séð heilindin og
samræmið, þegar þér hélduð héðan í
nýju vistina, með »Dronning Alexan-
drine« þess »Sameinaða« þótt »Goða-
foss« færi svo að segja um leið og
yrði nálega helmingi fljótari á leiðinni,
en danska skipið, sem flutti yður og
fólk yðar. Ekki hefur sú ferð orðið ó-
dýrari en með Goðafossi. Hversvegna
þá, að forsmá íslenzka skipið? Bjugg-
ust þér við, að yðar göfugu persónu
mundi líða betur, um borð í danska
skipinu ? Og fór það þá svo, að nautna-
löngun líkamans tröllsligaði þjóðræknis-
hneigðir kappans, þau augnablikin
sem þér voruð að kveðja Norðurland?
Þá eru nú Oddeyrarkaupin. Eg undr-
aðist er þér fóruð að vekja þann draug
upp enn á ný. Hugsaði, að það sem
farið hefir fram í málinu, hefði sann-
að öfgar yðar svo rækilega, að jafnvel
þér sjálfur, hefðuð látið sannfærast um,
að þér hafið vaðið reyk í því frá upp-
hafi. Eg segi ekki, móti • betri vitund.
Ókunnugum til skýringar, skal eg í
örfáum orðum, rekja hinn sanna gang
málsins:
Eg hafði ávalt ætlað mér, að stuðla
að því, að Akureyrarbær fengi Odd-
eyrina með sem beztum kjörum og
sá ekki annan veg gréiðari, en að eg
keypti allar eignir gömlu Gránuverzi-
unar hér og seldi svo bænum aftur
þann hluta Oddeyrar (túnin og strand-
lengjuna að sunnan, ásamt leigugrunn-
um o. s. frv.), sem menn álitu bæn-
um nauðsynlegast að eignast. Eg verð
að álíta, að eg hafi betur getað dæmt
um kaupgetu Akureyrarbæjar, til þessa,
en þér og ýmsir aðrir, sem mest hafa
gasprað, ábyrgðariaust, um það mál.
Reynslan hefir nú staðfest, að eg leit
rétt á þetta. Eg bauð bænura Odd-
eyrina, með tvennskonar borgunar-
skilmálum. Eftir allar þær svívirðing-
ar, sem þér hafið dróttað að mér, í
sambandi við þetta mál, hefði maður
getað vænst þess, að þér og aðrir
sem vildu láta bæinn kaupa Oddeyr-
ina, hefðuð verið búnir að tryggja
honum fé, til þess, að geta keypt, án
þess, að njóta hjálpar frá mér. En
svo varð ekki. Bærinn gat hvergi
fengið lán til kaupsins, með eins
góðum kjörura og eg gerði kost á
og hann sætti þeim svo, eins og rétt
var.
Eg hefi ekki lagt í vana minn,
að svara yður og ætla ekki að gera
framvegis. En eg ætla að árétta
þessar línur, með því, að láta
dómstólana athuga nánar, umrnæli
yðar um mig, í »Degi« 30. sept s.
1. Ef þér gætuð fengið þá hirting,
sem eg álít, að þér hafið unnið til,
gæti hún orðið yður til viðvörun-
ar framyegis, svo að þér lærðuð
að láta saklausa menn í friði og
hegða yður eins og siðuð mann-
eskja.
Akureyri 4. okt. 1927.
Ragnar ólafsson.
* Hér fellur úr kafli um annað efni.
Á. J.
ATHS.
Grein þessi verður síðar tekin
til athugunar hér í blaðinu.
Á. J.
Fréttir.
— Brúarfoss kom á miðvikudags-
morguninn vestan um. Tekur hann nú
hið frysta kjöt, sem kaupfélög Eyfirð-
inga og Vestur-Húnvetninga senda til
Eiiglands. Brúarfoss fer héðan kl. 12 í
kvöld.
— Goðafoss kemur á föstudagskvöld
eða laugardagsmorgun. Er þetta auka-
ferð og fer hann héðan til Reykjavíkur
aftur.
— Slátrun hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga verður lokið miðvikudaginn 12.
október.