Dagur - 27.01.1928, Blaðsíða 1
DAOUR
kemul' út á hverjum föstu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfélagi Eyfirð-
inga.
A í g r e i ð s lan
er hjá Jóni Þ. Þ6r,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XI. ár.
Akureyri, 27. Janúar 1928.
Nýstárleg
st/órnarfrumvörp.
Ríkisstjórnin hefir nú lagt 34
frumvörp fyrir Alþingi. Kennir þar
margra grasa, eins og vænta mátti.
— Eru augljós stefnuhvörfin frá
fálmi fyrverandi stjórnar, sem hvorki
virtist hafa ráð á að bera fram nýjar
hugsanir eða nýtilegar ráðstafanir
mála í frumvörpum sínum. — Pað
er athyglisvert að flest áf frumvörp-
um núverandi stjórnar miða til þess
að auka ræktun landsins og tryggja
hinar ýmsu starfsgreinar landbún
aðarins og samgöngur með strönd-
um fram; og einnig til umbóta á
réttarfarsmálum og menningu al-
mennings í hinum dreifðu bygðar-
lögum landsins.
Meðal þeirra frumvarpa sem lögð
hafa verið fyrir þingið síðustu dag-
ana, má nefna: Frumv. um bygg-
ingar og landnámssjóð. Samkvæmt
því er stjórninni heimilað að útvega
5 miljón króna lán handa sjóðnum
til að starfa með. Útlánaflokkar
sjóðsins eiga að vera þrír: Úr I.
flokki skulu veitt lán til bygginga í
sveitum, gegn 5% greiðslu vaxta
og afborgana á ári í 42 ár. Úr II.
flokki skulu veitt lán til að reisa
nýbýli á ræktuðu landi, gegn 3V20/0
vöxtum og sé það endurgreitt á 50
árum. Úr III. flokki skal veita lán
til byggingar nýbýla og ræktunar
á óræktuðu landi, lánin séu vaxta-
laus en höfuðstóllinn endurgreiðist
á 50 árum. — Gert er ráð fyrir
250 þús. kr. útgjaldalið á fjárlögum
hvers árs vegna útlána-ákvæða
þessara laga.
Pá má nefna frumv. um verzlun
á tilbúnum áburði. Með því er
stjórninni heimilað að taka einka-
sölu á útlendum áburði; og innan-
lands má þá aðeins selja hann til
bæjarfélaga, sveitafélaga, samvinnu-
félaga og búnaðarfélaga. Notendum
áburðarins er ætlað að snúa sér til
þessara stofnana um kaup og út-
vegun á áburðinum.
Á öðrum stað i blaðinu eru talin
ýms sljórnarfrumvörp, og má þar
einkum benda á: frv. um nýtt strand-
ferðaskip; frv. um rikisrekstur á
víðvarpi og frv. um stofnun menn-
ingarsjóðs, er styðji rannsókn
íalenzkrar náttúru og þróun þjóð-
legrar listar; andvirði upptækra
vínbyrgða og sektarfé rennur í
sjóðinn. Pað leynir sér ekki að
núverandi stjórn þorir að taka
þjóðmálin nýjum tökum og veita
frjóvgandi straumum yfir þjóðlífs-
akurinn. — Afstaða íhaldsstjórnar-
innar í þeim málum, sem hér eru
nefnd, var þannig, að hún beitti
sér á móti auknu landnámi og ný
býlastofnun; studdi erlent verzlun-
arfirma í Reykjavík til þess að
hafa hér einkaumboð á Noregs
saltpétursáburði; barðist á móti
byggingu strandferðaskips; fékk
hlutafélagi í Reykjavík einkaleyfi til
reksturs á útvarpsstöð, sem náði
yfir lítinn hluta af landinu; lét upp-
tækar vínbyrgðir Iiggja árum saman
í steininum eða verða að engu og
hirti lítið um að sekta bannlaga-
brjóta.
Straumhvörfin sýnast vera greini-
leg. íhaldsstjórnin barðist á móti
þessum áhugamálum landbúnaðarins
og sveitanna; Framsóknarstjórnin
beitir sér fyrir þeim.
------0------
A I þ i n g i.
í síðasta blaði var skýrt frá kosn-
ingum aðalforseta þingdeildanna; en
varaforsetar eru, í E.-d. Jón Bald-
vinsson 5. landsk. þm. og Ingvar
Pálmason 2. þm. S.-M.; í N.-d.
Porleifur Jónsson þm. A.-Skaft. og
Jörundur Brynjólfss. 1. þm. Árn.
Skrifarar i E,-d. eru Einar Árnason
1. þm. Ef. og Jónas Kristjánsson
6. Ik þm.; en í N.-d, Halldór
Stefánsson 1. þm. N.-M. og Magnús
Jónsson 1. þm. Rv.
Nefndarkosningar ’fóru fram 20.
þ. m. í báðum deildum og féllu
þannig: Efri-deild: Fjárhagsnefnd:
Ingvar Pálmason form., Jón Bald-
vinsson ritari, Björn Kristjánsson.
Fjárveitingan.: Einar ^rnason form.,
Páll Hermannsson ritari, Erlingur
Friðjónsson, Jóhannes Jóhannesson,
Ingibjörg H Bjarnason. Samgöngu-
málan.: Páll Hermannsson form.,
Einar Arnason ritari, Halldór Steins-
son. Landbúnaðarn.: Einar Árnason
form., Jón Baldvinsson ritari, Björn
Kristjánsson. Sjávarútvegsn.: Erl-
ingur Friðjónsson form., Ingvar
Pálmason ritari, Halldór Steinsson.
Mentamálan.: Páll Hermannsson
form., Erlingur Friðjónsson ritari,
Jón Porláksson. Allsherjarn.: Jón
Baldvinsson form., Ingvar Pálmason
ritari, Jón Porláksson.
Neðri-deild: Fjárhagsnefnd: Hall-
dór Stefánsson form., Hannes
Jónsson, Héðinn Valdimarsson ritari,
Ólafur Thórs, Sig. Eggerz. Fjárveit-
ingan.: Porleifur Jónsson form.
Ingólfur Bjarnason ritari, Pétur
Ottesen, Magnús Torfason, Jón
Sigurðsson, Bjarni Ásgeirsson, Har-
aldur Guðmundsson. Samgöngu-
málan.: Gunnar Sigurðsson form.
Hannes Jónsson ritari, Hákon Kristó-
fersson, Magnús Guðmundsson,
Sigurjón Ólafsson. Landbúnaðarn.:
Lárus Helgason form., Jörundur
Brynjólfsson, Bernharð Stefánsson,
Jón Ólafsson ritari, Einar Jónsson.
Sjávarútvegsn.: Sveinn Ólafsson
form., Jörundur Brynjólfsson, Jóhann
Jósefsson ritari, Ólafur Thórs, Sig-
urjón Ólafsson. Mentamálan.: Asgeir
Ásgeirsson form., Bernharð Stefáns-
son ritari, Magnús Jónsson, Jóhann
Jósefsson, Lárus Helgason. Alls-
herjarn.: Sveinn Ólafsson, Gunnar
Sigurðsson formi( Magnús Guð-
mundsson, Héðinn Valdimarsson
ritari, Hákon Kristófersson.
í sérstaka nefnd til þess að
athuga kjörbréf Jóns A. Jónssonar
voru kosnir: Sveinn Ólafsson form.,
Gunnar Sigurðsson, Héðinn Valdi-
marsson, Sig. Eggerz, Magnús
Guðmundsson.
Þessi stjórnarfrumvörp liafa verið
lögð'fyrir jþingið: ,
Fi-v. til fjárlaga fyrir árið 1929, er
nánar frá því sagt í símfréttum; frv.
um heimild fyrir stjóm. til þess að láta
smíða og reka strandferðaskip 4—500
smálesta, er hafi 70—80 teningsmetra
kaelirúm og 40—50 manna farþegarúm.
Kostnaður við bygging og rekstur
skipsins greiðist úr ríkissjóði. Frv. um
breyting á stj ómarskránni, sem sam-
þykt var á síðasta þingi, lagt fram til
endursamþyktar. Frv. um búfjártrygg-
ingar: sveita- og bæjafélögum skal
heimilt að stofna vátryggingarsjóði,
með skylduábyrgð fyrir kýr, kynbóta-
naut, kynbótahesta og hrúta. Skulu þeir
endurtrygðir í Búfjártryggingasjóði
íslands, er stofnaður verður 1929 með
15 þús. kr. tillagi úr ríkissjóði og greið-
ist það árlega í 20 ár samfleytt. Frv.
_um varnir gegn munn- og klaufnaveiki
og öðrum erlendum alidýrasjúkdómum.
Frv. um fækkun dýralækna. Frv. um
lífeyri fastra stai-fsmanna Búnfél. ís-
lands. Fi-v. um eftirlit með verksmiðj-
um og vélum. Frv. um friðun Þing-
valla. Frv. um bráðabyrgðabreytingu
á hegningarlöggjöfinnni. Frv. um heim-
ild fyrir stjómina til að láta reisa
betrunarhús og letigarð. Frv. til hjúa-
laga. Frv. til fjáraukalaga. Frv. um
samþykt landsreikninganna 1926. Frv.
um heimild fyrir ríkisstj. til að reisa
byggingu yfir opinberar skrifstofur í
Reykjavík. Frv. um framleng'ing gild-
andi laga um verðtoll. Frv. um með-
ferð skóga og kjarrs og friðun á lyngi.
Frv. til laga um kynbætur nautgripa.
Frv. um ríkisrekstur á víðvarpi. Frv.
um stofnun Menningarsjóðs til stuðn-
ings almennri menningu, rannsókn ís-
lenzkrar náttúru og þróun þjóðlegi-ar
listar. Til sjóðsins falli árlega alt and-
virði upptæks áfengis, sem ólöglega er
j 4. tbl.
flutt til landsins, og sektarfé fyrir
bannlagabrot. Frv. um að dýrtíðarupp-
bót starfsmanna ríkisins haldist til
1930. Frv. um breytingu á lögum um
25% gengisviðauka og að heimildin sé
framlengd til 1930. F.rv. um sundhöll í
Eeykjavík. Frv. um varðskip ríkisins
og' starfsmenn á þeim.
Síðustu Þingfréttir:
Efri-deild hefir skipað nefnd í
stjórnarskráranálið, í henni eru: Ingv-
ar Pálmason formaður, Erlingur Frið-
jónsson ritari, Páll Hermannsson, Jó-
hannes Jóhannesson, Halldór Steinsson.
Nefndin klofnaði þegar á'fyrsta fund-
inum, mun meirihlutinn vera andvígur
stjórnarskrárfrumvaiiiinu, en minni hl.
— Jóh. Jóh. og Halld. Steinsson —
vilja samþykkja það óbreytt.
Kjörbréfsnefndin, sem hafði til með-
ferðar kjörbréf Jóns A. Jónss., er þrí-
klofin, og lagði hún fram tillögur sínar
i fyrradag. Héðinn Valdimarsson legg-
uj' til að kosningin verði ógilt; Sveinn
Ólafsson og Gunnar Sigurðsson vilja
að þingið, eftir atvikum, úrskurði
kosninguna gilda, en benda þó í nefnd-
aráliti sínu á ýmsa óheyrilega ann-
marka á síðustu kosningu í N.- ísafj.s.
sem fremur muni varða meðferð fyrir
dómstólum þjóðarinnar; Magnús Guð-
mundsson og Sig. Eggerz vilja að þing-
ið samþykki kosninguna athugasemda-
laust.
Þegar stjórnin lagði fram í N.-deild
frumvarp um sundhöll í Reykjavík,
réðist Magnús docent. að stjórninni fyr-
ir athafnir hennar i ýmsum öðrum
málum, þó hann lýsti þakklæti fyrir
þetta frv. Urðu umræður langar og
harðskeyttar og tóku ýmsir þingmenn
þátt í þeim auk stjórnarinnar. Virðist
svo sem andstöðflokkur stjórnarinnar
í N.-d. etji dócentinum á foraðið hve-
nær sem tækifæri gefst til málskrafs
og tímatafa í deildinni, enda þótf dag-
skiármálin gefi ekkert tilefni til þess.
Eftir að f jármálaráðherra M. Kr.
hafði lokið aðalræðu sinni á Þriðju-
daginn um fjárhaginn, hélt dócentinn
uppteknum hætti um mælgi sína, en
það er mjög sjaldgæft að aðrar umræð-
ur fari. fram um leið og fjárlagafrum-
varp er lagt fyrir þingið. Þótti dócent-
inum óhæfa, að ætla fjárveitinganefnd
að vinna störf sín á styttri tíma en
viðgengist hefir undanfarið!
Mikið rifrildi varð í N.-d. milli jafn-
aðarmanna og íhaldsmanna, við 1. um-
væðu um skiftingu Gullbr- og Kjósar-
sýslu í tvö kjördæmi.
--------O--------
»Dauði Natans Ketilssonarc var
leikinn á Sunnudags- og Mánudags-
kveld s. 1., bæði skiftin fyrir fullu húsi.