Dagur - 10.02.1928, Side 1
DAOUR
kemur út á hverjum fostu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfélagi Eyfirð-
inga.
XI. ár.
Akureyri, 10. Febrúar 1928.
A f g r ei ð slan
er hjá Jóni Þ. Þ6r,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
6. tbl.
A I þ i n g i.
Auk þeirra slmjskeyta, er blað-
inu hafa borist og til áréttingar
sumum atriðum þeirra, hafa því
borist þessar fréttir af þinginu:
Einar Árnason flytur frumv.
um breyting á þingsköpunum.
Samkvæmt því mega þingmenn
vera í fleiri en tveimur föstum
nefndum (mun það ákvæði sér-
staklega eiga við Efri-deild); all-
ar ræður á Alþingi eiga að flytj-
ast úr ræðustól. Takmarka skal
ræðufjölda þannig: Framsögu-
rnenn og flutningsmenn mála
mega aðeins tala tvisvar við
sömu umræðu, en aðrir þingmenn
aðeins einu sinni.
Þá flytja þeir Erlingur Frið-
jónsson og Ingvar Pálmason frv.
um einkasölu á íslenzkri síld, og
er það frumv. að ýmsu frábrugð-
ið þeim frumv., sem komið hafa
fram um það efni á undanförnum
þingum.
Erlingur fiytur frumv. um
verkakaupsveð og mun lögð til
grundvallar tillaga sú, er sam-
þykt var á þingmlálafundi á Ak-
ureyri í vetur um það efni.
Um frv. Sveins ólafssonar um
loftskeytanotkun á íslenzkum
fiskiskipum, sem getið er í sím-
skeytunum, hafa orðið snarpar
umræður í Neðri-deild, einkum
milli ólafs Thors og dómsmála-
ráðherra. Mun hinn fymefndi
hafa viljað ganga að því dauðu,
þegar í stað. Lauk þeirri snerru
svo, að málinu var vísað til sjáv-
arútvegsnefndar.
Frumv. Ingvars um dómsmála-
starfsemli og fleira, sem getið er
í símskeytunuml, fer í þá átt, að
leggja niður bæjarfógetaembættið
og lögreglustjóraembættið 1 Rvík,
sem kosta mjög mikið fé, og
skifta þessum störfum í þrent:
lögmanns-, lögreglustjóra- ogtoll-
stjóraembætti, með 5000 kr. byrj-
unarlaunum, en fara hækkandi
upp í 6000 kr.
Þá er mikill frumvarpsbálkur
fram kominn í Efri-deild frá
þeim Ingvari og Erlingi um
breyting á bannlögunum.
Magnús dosent, sem gengið
hefir framl fyrir skjöldu íhalds-
manna og æpt að stjórninni í
hverju máli, er nú sagður farinn
að linast og. af honum berserks-
gangurinn.
-----o-----
Frá Bretlandi.
Forsætisráðherra Breta, Stan-
ley Baldwin, virðist eiga frekar
mæðusama daga sem stendur og
engu rólegri eða áhyggjuminni
daga fram undan. Hefir verka-
mannaflokkurinn undir forystu
Ramsay MacDonald, gert afar-
harðar árásir á stjómina í Nóv-
ember s. 1. og sló í svo hart, að
forseti varð tvisvar að fresta
fundi, í síðara skiftið til næsta
dags.
íkveikjuefnið var vantrausts-
yfirlýsing á hendur stjórninni,
borini fram af Ramsay MacDon-
ald. Var vantraustsyfirlýsingin
bygð á aðgerðarleysi stjórnar-
innar í því að létta atvinnuleysi,
og klaufaskap hennar: hvernig
hún hefði klúðráð í gersamlega ó-
reiðu deilunni milli kolanema og
námumanna í fyrra.
En aðalhvellurinn kom, er
stjórnin átti að svara vantrausts-
yfirlýsingunni. Kom þá forsætis-
ráðherra eigi sjálfur, heldur sendi
formann verzlunárráðsins, Sir
Philip Cunliffe Lister, fram til að
svara í sinn stað. Þótti stjómar-
andstæðingum sér misboðið með
þessu og þóttust ekkert eiga van-
taiað við Sir Philip. Komst hann
ekki að að tala fyrir köllunum á
»Baldwin« og »forsætisráðherra«.
Varð forseti að slíta fundi um
stund. En er Sir Philip kom aftur
fram til andsvara eftir hléið, í
stað forsætisráðherra, þá ætlaði
alt um koll að keyra, og gekk svo
unz forseti sá þann kost vænstan
að fresta fundinum til næsta
dags.
Þá gerir það ekki skemtilegra
útlitið fyrir Mr. Baldwin og ráðu-
neytið, að blaðakóngurinn enski
Rothermere lávarður, bróðir
Northcliffe heitins lávarðar, hef-
ir snúið baki við conservatívum,
eftir að Baldwin hafði skorað á
hann að sýna greinilega lit, hvort
hann væri conservatív eða ekki.
Svar Rothermere var grein í blað-
inu »The Weekly Dispatch«, og
telur hanni þar Loyd George eina
manninn, sem komið geti til mála
að geti leitt Bretland út úr því
allsherjar öngþveiti, sem vand-
ræðastjórn conservatíva sé búin
að koma landinu í. Rothermere er
innilega illa við jafnaðarmanna-
flokkinn, og er því Loyd George
eðlilega eini maðurinn, sem hanin
getur veitt stuðning, úr því að
hann trúir engum meðal con-
servatíva fyrir stjórninni. Hefir
heldur en ekki hlaupið þar á
snærið fyrir Loyd George, sem'
allir töldu farlama orðinn sem á-
hrifamann í pólitík.
OTan á þetta bætist það, að
Beaverbrokk lávarður, Canada-
stórlaxinn, virðist ekkert hrifinn
af aðgerðum, eða réttara sagt að-
gerðafumi bresku stjórnarinnar
út af kolaverkfallinu, ’ og hefir
látið það á sér skiljast, þótt ekki
hafi hann gengið í berhögg við
stjórnina eins og Rothermere.
-----o-----
Simskeyti.
Rvík 4. Febr.
Saia á afla botnvörpunga gengur
vel eins og áður.
Meiri hluti ailsherjarnefndar Neðri-
deildar viil samþykkja skiftingu
Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö
kjördæmi. Magnús Guðmundsson
flytur frumvarp um heimavistir í
Mentaskóla Reykjavíkur. Meiri hluti
allsherjarnefndar í Efri deild vill iáta
samþykkja heimildarlög um betr-
unarhús og letigarð. Ásgeir Ásgeirs-
son flytur frumvarp um hvalveiðar.
Jón Baldvinsson flytur þingsályktun
um að skora á ríkisstjórnina að
skýra frá niðurstöðu um rannsókn
á embæítisfærslu í Barðastrandar-
sýslu.
Prestskosning á Útskálum fór
þannig, að Eiríkur Brynjólfsson
kandídat hlaut 233 atkv., séra Ás-
mundur Guðmundsson skólastjóri
158 atkv., Ólafur Ólafsson kandidat
125 atkv., Einar Magnússon kandí-
dat 124 atkv., og aðrir þaðan af
minna. Kosningin því ógild.
Sigurður Thorarensen frá Kirkju-
bæ vann Ármannsskjöldinn. Porgeir
giímukóngur hlaut önnur verðlaun.
Rvík 6. Febr.
Rakarafrumvarpið var afgreitt til
Neðri-deildar. Stjórnarskrárbreyting-
in er feld í Efri-deild með 7 gegn
6 atkv. Með breytingunni voru:
Guðmundur Ólafsson, Björn Krist-
jánsson, Halldór Steinsson, Jóhannes
Jóhannesson, Jónas Kristjánsson,
Jón Porlákssom Ingibjörg greiddi
ekki atkv. Meiri hlutinn áleit engar
þær umbætur felast í frumvarpinu,
sem væru þess verðar, að þeirra
vegna ætti að hrófla við stjórnar-
skránni; taldi hann fullerfitt að
semja fjárjög til eins árs og sparn-
aði gerði hann iítið úr, vegna auka-
þinga, sem þyrfti að halda. Var
þessu andmælt af Jóni Porlákssyni
og Halldóri Steinssyni; taldi hinn
fyrnefndi eindreginn þjóðarvilja með
því, að frumvarpið næði fram að
ganga; en andstæðingarnir héldu
því fram, að fyrir þinginu lægi
fjöldi þingmálafundargerða, sem
mótmæltu frumvarpinu. Sveinn Ól-
afsson flytur frumvarp um loft-
skeytanotkun á íslenzkum fiskiskip-
um. Halldór Stefánsson flytur
þingsályktun um endurskoðun fá-
tækralaganna. Guðmundur Ólafsson
flytur frumvarp um hafnargerð á
Skagaströnd.
Frá útlöndum:
Pjóðernissinnaóeirðir hafa orðið
á Indlandi, en verið bældar niður
af hernum.
Washington: Kellogg kveður
Bandarikin reiðubúin til að undir-
skrifa alþjóðasamning, er banni kaf-
bátasmiði, nema í vísindaaugnamiði.
Genf: Tillögur Breta um breyting
á Washingtonsamningnum um átta
stunda vinnudag hefir verið frestað
til næsta árs.
Boston, Mass. Tuttugu stórar
byggingar í Fallriver eru brunnar.
Tjónið metið 10 miljónir dollara.
Rvík 7. Febr.
Letigarðsfrumvarpið var mikið
rætt í Efri-deild í gær. Jón Porláks-
son vildi láta vísa þvi til stjórnar-
innar með rökstuddri dagskrá, en
það var felt og frumvarpinu vísað
til þriðju umræðu; Jóhannes og
Ingibjörg greiddu atkvæði með því.
Haraldur Guðmundsson flytur
frumvarp um að leyfð sé atkvæða-
greiðsla við Alþingiskosningar utan
kjörstaðar. Ingvar og Erlingur flytja
þingsályktunartillögu um að skipuð
verði nefnd til þess að rannsaka
bréfaskifti milli stjórna Spánar o^
íslands og athuga hvort tiltækilegt
sé að afnema útsölustaði Spánar-
vína. Ingvar flytur frumvarp um
dómsmálastarfsemi, lögreglustjórn,
gjaldheimtu og fleira. Magnús dó-
sent flytur þingsályktun í Neðri-
deild þess efnis að mótmæla
gjörðum ríkisstjórnarinnar að því er
snertir Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Rvík 8. Febr.
Gulltollurinn norski, er svarar
til gengisviðaukans hér, er af-
numinn. Við þessa ráðstöfun
lækkar tollur á íslenzku kjöti,
sem selt er til Noregs, um 2/2
eyrir á hvert kg. kjöts.
—. ».......
Endurskoðendur Landgbankans hefir
stjórnin skipað, samkvæmt tillögum banka-
ráðsins, þá Ásgeir Ásgeirsson alþm. og
Björn Árnason lögfræðing.