Dagur - 03.08.1928, Blaðsíða 2

Dagur - 03.08.1928, Blaðsíða 2
130 DAGUR 33. tbl. m • • • # #•• • # • • • • •-#-# •- • •-• • -••-•-•-•-• •-•• n J\4álningavörur — nýkomnar. — Zinkhvita (kem. hrein og nr. I.). do. þur. Titanhvíta — olíurifin og þur. Mislit málning löguð í öllum litum. Emaillering — hvít. Fernis — terpentína — þurkefni. z Kítti — rifin krít — Okkur, rautt og gult. Gibs. Kaupfélag Eyfirðinga. SHiiiiiiiiiiiiilliiillið •m Myndastofan Qránuféiagsgötu 21 er opin aila daga frá kli 10-6. Guðr. Funch-Rasmussen. arsögu. Og nú gaf færið að vinna úr því. En hann var lifandi tnaður og marg-þættur. Pað var sem í honum byggi þrír menn. Hann var fræðimaður, sem faðir hans og föðurfaðir, en auk þess stjórnmála- og bardagamaður og fjáraflamaður. Hann var og, sem margir Húnvetningar, mjög metnaðargjarn. Var slíkt styrkur hans og veila. Er eigi ósennilegt, að honum hafi vaxið metnaðargirni af því, hve Iítillar virð- ingar hann naut í uppvexti. Hæfileikar hans, lífsfjör, fjölþættur áhugi og metnaður fengu eigi unað kyrlátum fræðaiðkunum eingöngu. Þeir þörfnuð- ust fjölbreyttara starfsviðs. Honum hefir og virst stærra að vinna fyrir framtíð þjóðar sinnar en fortíð, sem slíkt óneitanlega er. Fer hann skynsamlegum orðum um það efni í»ritgerð um Jón Sigurðsson, á aldar-afmæli hans 1911 (»Eimreiðin« 17. árg., bls. 158): »Hugsufli okkur t. d. samanburð á Rimmugýgi hans Skarphéðins og penn- anum hans Jóns Sigurðssonar! Hvort skyldi hafa höggvið stærra fyrir fóstur- jörðina? Frekar mundi fjöðurstafurinn hans Snorra þola samanburðinn, en þó tæplega geta jafnast við stálpenna Jóns. Rví þó ritfrægð Snorra jafnan muni varpa ljóma yfir land vort, þá er þó enn meira varið í hitt, að hafa með ritum sínum og ræðum hafið ættjörð sína upp úr doða og undirlægjuskap tii framtaks og sjálfstæðis, og þannig gróðursett þann meið, sem borið geíur blessunarríka ávöxtu allar ókomnar aldir«. Kveður hann því þann dóm upp um Jón Sigurðs- son, að hann hafi verið mestur allra sona Ijnds vors, síðan það bygðist. Auðséður er skyldleiki milli t'ræöistundana hans og stjórnmála- starfs. Er eftirtektavert, hver vís- indaefni hanh fæst við. Hann var fiábitinn vísnaskýringum og liand- ritakönnun. Hann fór nær lífinu. Hann valdi sér til rannsóknar þær greinir liðinnar menningar, sem honum í stjórnmálastarfsemi og þingsal lék mestur hugur á að efla i nútíð og framtíð: atvinnuvegi og margháttuð menningarkjör, er for- feður vorir áttu við að búa. Hann varð þingmaður Vestmanna- eyja vorið 1894. Hann hóf útgáfu ;Æimreiðarinnar« 1895 og var rit- sljóri hennar rúm 20 ár. Dreifði slíkt kröftuin hans frá vísindum og háskólastörfum. íslenzk stjórnmál uiðu honum á bezta skeiði æfinnar hugstæðust áhuga- og viðfangsefni. Lítið liggur því eftir hann í vísind- um, annað en fyrnefnd doktors-bók, hjá því sem vænta mætti af manni í hans stöðu. Hann samdi ný-ís- lenska málfræði á dönsku, er út kom 1922. Heiti tímarits hans, »Eimreiðin«, táknar eins konar stefnuskrá. Á þingi árið áður, aukaþinginu árið 1894, hafði ritstjórinn barist fyrir »stóra málinu« svonefnda eða fyrir járnbrautagerð á landi hér. Hraus mörgum hugur við svo stórfeidri samgöngubót. í fyrsta hefti fyrsta árgangs tímarits síns þýddi hann grein úr norsku uni nytseind og mikilvægi járnbrauta. Aftan við þýðing þá hnýtti hann nokkrum at- hugaorðum, Kveður hann vera eiga þá hina nýju stefnu í íslenskum samgöngumálum: að gera tvær að- aljárnbrautir, aðra frá Reykjavík austur í sýslur, hina úr Reykjavík norður um, alla leið til Akureyrar. Er hann hér ákaflega stórhuga. Telur hann stórkostlegar bætur á samgöngum vorum frum-skilyrði þess, að atvinnuvegir blómgist, auð- ur vaxi og íbúar fjölgi. Hann trúði fast á framfaramagn landsins. En slík trú er hverjufn stjórnmálamanni nauðsynleg. Hann _vildi efla hér sömu menning, sem hann bjó við erlendis. Það var skoðun hans, að slík menning væri vorri litlu þjóð jafn-ómissandi og erlendum þjóðum, og hún gæti dafnað hér og þrifist. Því vann hann fyrir lagning sæsíma og landssíma. Því barðist hann fyr- ir stofnun »stóra bankans«, sem ís- landsbanki var í fyrstu kallaður meðal almennings. En þótt hann teldi bætur á at- vinnuvegum vorum langmesta vaxt- arskilyrði þjóðar vorrar, ollu tillög- ur hans í þeim málum og afskifti hans af þeim eigi mestum hávaðan- um um stjórnmálastarf hans og sjálfan . hann. Stjórnarskrármálið varð aðalmál hans. Þetta stórmál gleypti um hríð mestalla krafta hans og áhuga. í það mál hleypti hann þeim hita, að ekkert einstakt mál er nú slíkt hita- né ofsamál. Hann kiauf þar þjóðina í tvo öndverða helminga, Dr. Valtýr hefir sjálfur — óbeiníinis — bent á góðgjarnleg- ustu skýring þess, að hann sótti svo fast róðurinn í því máli og vann ekki eingöngu að umbótum á at- vinnumálum. Hann sá enga leið að koma þar á verulegum endurbótum, nema stjórnarfar vort væri bætt. Hann Titar aldainótaárið 1900 (»Eimreiðin« VI., bls. 236): »Til þess að geta unnið að gagni að hverju sem er, verða menn að hafa nýtileg verkfæri, og fyrsta stigið er því að útvega sér þau, ef alt á ekki að lenda í eintómum handaskolum« ------»0g nokkru líku er að gegna með stjórnarfarið. Það er verkfær- ið, og að það sé í góðu lagi, er skilyrðið fyrir því, að hægt sé að vinna með nokkurri verklagni og að verulega góðum árangri að öllum frainfaramálum landsins«. Þá er Valtýr Guðmundsson koin á þing, hafði Benedikt Sveinsson forustu í stjórnarskrár-baráttu vorri. Hann er sannkallaður Jón Vídalín stjórnmála vorra, fullur elds og andagiftar og áreiðanlega mesti mælskumaður, sem setið hefir á al- þingi. Samkvæmt stjórnarskrár- frumvarpi hans skyldi hér vera landstjóri, er færi með vald kon- ungs hér heima, staðfesti lög, veitti embætti, hefði undír sér ráðuneyti, og væri einn ráðherranna forsætis- ráðherra. Á þeim árum sátu að völdum hinar verstu afturhalds- stjórnir í Danmörku, Synjuðu þess- ar hægrimannastjórnir stjórnar- frumvörpum Benedikts harðlega staðfestingar. Engra samninga freistaði þingið við stjórnir þessar, að því er eg ætla. Voru þær og eigi árennilegar til samninga né nokk- urrar málamiðlunar. Á þann Stórasand lagði Valtýr, óragur og einn síns liðs í fyrstu. Það varð hlutverk hans, að leita samn- inga við Danastjórn urn sjálfstæðis- mál vort og finna skipulag, er Dan- ir hétu samþykki, og hann og flokksmenn hans töldu horfa til bóta, svo að una mætti við til bráða- birgða. Ekki þóttust andstæðingar hans og féndur velkjast í vafa um, til hvers refarnir væri skornir, er hann hóf samninga við Danastjórn um stjórnarskrármál vort. Nú er engum ámælt fyrir að vilja ráðherra verða. En Valtý Guðmundssyni var ekki þolað slíkt fyrir nærfelt þrjátíu ár- um, eða það var gert að árásarefni á hann. En hvaða hvatir sem hon- um voru og verða eignaðar í stjórn- arsrkrár-baráttu hans, er víst, að hann var að eðlisfari miðlunarmað- ur og samningamaður og vel til samninga fallinn. Það var eitt ein- kenni hans, að hann var i senn skapdeildarmaður og bardaga- maður, alt af gunnreifur og alt af rólegur, hvernig sem brigsl og skammyrði hrutu um eyru honum og brjóst. Það var næsta líkt geðslagi hans og hyggindum, að vilja taka því, sem kostur var á. Hann taldi sjálfur stefnu sína »opportunisma«. »Einkenni þeirrar stefnu er i öllum löndum og í hverju máli sem er« — ritar hann —, »að rígbinda ekki kröfur sínar við neitt fast ákveðið, einskorðað fyrirkomulag, sem aldreí beri frá að þoka, heldur haga sér jafnan eftir kringumstædum* og lúta heldur að hinu minna, heldur en að fara allra umbóta á mis. Samkvæmt þessari stefnu vildi stjórnarbóta- flokkurinn (o: Valtýingar) ráða stjórnarskrármálinu til lykta á þeiin grundvelli, að þingið tæki í hvert sinn það hesta, sem fáanlegt væri í svipinn*<t. Er slík stefna hyggilegri en hvað hún er mikilmannleg og glæsileg. Dr. Valtýr átti og aðstöðu góða til samninga, þar sem hann var búsettur í Kaupmannahöfn. Á alþingi 1897 flutti hann frum- varp til laga um breyting á stjórn- arskrá vorri. Fór það miklu skemra í sjálfstæðiskröfum en stjórnarskrár- frumvarp Ben. Sveinssonar. Land- stjóra Benedikts og ráðuneyti hans var þar algerlega slept. Var það meginefni þessa frumvarps, Valtýsk- unnar, að sérstakur ráðherra skyldi skipaður fyrir ísland. En síðan við eignuðumst stjórnarskrá 1874, hafði dómsmálaráðherra Dana verið einn- ig íslands ráðherra. Ekki veitti frumvarp þetta oss innlenda stjórn. Þessi fyrirhugaði sérstaki fslands ráðherra átti eftir sem áður búsett- ur vera í Kaupmannahöfn. En koma skyldi hann á alþingi, taka þar þátt í umræðum, sem landshöfðingi gerði, og tala íslenska tungu eða vera, með öðrum orðum, íslending- ur. Þetta frumvarp Valtýs átti kon- ungs staðfesting vísa. Frumvarp þetta var upphaf flokka- skiftingar í íslenskum stjórnmálum. Er Valtýr réttnefndur faðir is- lenskrar flokkabaráttu. Ýmsar mót- bárur voru fluttar gegn frumvarpi hans. Ein var sú, að það flytti »valdið út úr landinu«. Lagalega varð æðsta vald vort eigi út flutt, því að það var í Kaupmannahöfn, þar sem ráðherra íslands var heinr- ilisfastur. En stofnun sérstaks ráð- herraembættis hefði, að líkindum, veikt hið æðsta vald í landinu sjálfu, landshöfðingjavaldið. Aftur gátu fylgt því ýmsir kostir, að þingmenn sjálfir semdi við ráðherra. Stóð hann og betur að vígi að koma fram málum vorum í Höfn heldur en landshöfðingi. Hins vegar var barnalegt að gera sér vonir þess, að þingræði kæmist á hér á íslandi, meðan það var eigi komið á í Dan- mörku. Þing hefði ekki haft meiri áhrif á ráðherraval en það hafði á skipun landshöfðingjaembættis, þó að Valtýskan hefði verið samþykt, en hægrimenn hins vegar farið ineð æðstu völd í Danmörk’u. En því varð að gera ráð fyrir í deilum um stjórnarskrárfrumvarp Valtýs. Hann sagði og sjálfur í »Eimreiðinni« 1899 (bls. 49), að »í bráð« væri »1 ítil von um« vinstrimannastjórn í Danmörku. Samt taldi hann sjálfur frumvarpi sínu það til gildis, að ráðherrann yrði að láta af völdum, ef báðar þingdeildir snerust inót honum.** Þó er sennilegt, að hann hefði orðið fyrsti sérstakur íslands- ráöherra, ef Valtýskan hefði sigrað 1897 eða 1899. Og hann hefði á- reiðanlega orðið meiri framkvæmda- * Leturbreytingar Valtýs. ** »Einu'eiðin« 1899, bls. 56.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.