Dagur - 23.08.1928, Blaðsíða 4
146
DÁGUR
37. tbt
Otío Erhard,
Hamburg
útvegar meðal annars:
CEMENT, PAKJÁRN, ÞáXPAPPA
Verðtilboð og aðrar upplýsingar gefur
Þorvaldur Sigurðsson,
Akureyri.
NAISSKEIÐ
fyrir eftirlitsmenn nautgriparæktarfélaga verður haldið í Reykjavík,
frá 12. Nóvember til 7. Desember n.k. Nokkur styrkur verður veittur
til ferða- og dvalarkostnaðar. Umsóknir sendist sem allra fyrst.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS.
Aðvörun.
Hér með er öllum bannað, að viðlögðum sektum samkvæmt
lögum, að festa upp auglýsingar á rafveitustaurana hér í bænum
eða grendinni.
Akureyri 16. Ágúst 1928.
Rafveitustjórinn.
Brenf og malað kaffí
framleiðum við úr beztu vöru og með nákvæmustu aðferðum.
Styðjið það, sem íslenzkt er. Fæst hjá Brynjólfsson & Kvaran,
Akureyri' Kaffibrensla Reykjavíkur.
Radioverzlui) íslands,
Pósthólf 233 Reykjavfk.
Útvegum með verksmiðjuverði radio-viðtæki frá beztu verksmiðjum í
Pýzkalandi og Ameríku. — Þriggja lampa tæki, með hátalara og öllu til-
heyrandi, til að heyra Akureyrarstöðina, hvar sem er í Eyjafirði, kostar
aðeins kr. 130. — Tæki fyrir aðrar sveitir nyðra, til að heyra Akureyri og
útlönd, kostar með hátalara og öllu tilheyrandi kr. 250. — 5 lampa tæki
kr. 350. — Kaupið ekki radio-tæki fyr en þér hafið fengið myndaverð-
lista okkar. — Sendist gegn 20 aura frímerki. Sjónarhæðarstöðin heyrist
á þessi tæki eins vel og aðrar stöðvar.
Sœnsk
handverkfæri
Skóflur allskonar, gaflar, undirristuspaðar,
höggkvíslar, rákajárn, gref, garðhrífur o. fl. o. fl.
-^s Sænskt stál er bezt.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA.
Notuð hrein íslensk
FEÍMERKI
kaupir Jón Björnsson í Kaupfélagi
Eyfirðinga. — Biðjið um verðlista.
Gjölcl fyrir blaðaskeytf lækkuðu að
miklum mun frá 1. þ. m. Kom lands-
símastjóri þessu til vegar í utanför
sinni í vor. Fyrir hvert orð í blaðaskeyt-
um milli íslands og Englands og Dan-
merkur verður gjaldið 12 aurar í stað
21 áður, en milli Islands og Noregs og
Svíþjóðar verður það 20 au., en var
áður 24 au.
Talið er að iækkun þessi nemi 1600
kr. á ári til fréttastofunnar einnar.
Norskt veiðiskip festist fyrir nokkru
á skeri við Kolbeinsey. Fóru skipverjar
þegar í bátana og hugðu skipinu engrar
björgunar von. Komust þeir úr bátunum
í skip, sem flutti þá til Siglufjarðar.
En um sama leyti og þeir komu þangað,
kom færeysk fiskiskúta þar inn með hið
strandaða skip í eftirdragi. Höfðu Fær-
eyingarnir fundið strandskipið á reki
nálægt Kolbeinsey og tóku það með til
lands.
Skýrsla ríkisgjaldanefndar kvað
bregða ljósi yfir margt, sem í myrkrun-
um hefir verið hulið. Rétt til smekks
má geta þess, að tekjur eins skrifstofu-
stjórans í stjórnarráðinu, greiddar úr
ríkissjóði árið 1926, voru sem hér segir:
Laun með dýrtíðaruppbót 9030 kr. —
Þóknun fyrir aukavinnu við útgáfu
stjórnartiðinda 2100 kr. — Fyrir reikn-
ingshald Kirkjujarðasjóðs 3000 kr. —
Fyrir reikningshald Landhelgissjóðs
4000 kr. Fyrir endurskoðun reikninga
Áfengisverslunar 2400 kr. Er þetta
samtals 20530 kr., og aukatekjurnar
því nálega 2% þús. hærri en föstu
launin.
Tekjur Magnúsar, Guðmundssönar,
fyrv. ráðherra, er hann lét greiða sér
úr ríkissjóði árið 1926, voru kr. 18,369.
42, eða til jafnaðar rúmar 1530 kr. á
mánuði.
Áfengisverslun ríkisins. Árið 1926
voru laun starfsmanna við áfengisversl-
unina nálega 113 þús. krónur. Af þeirri
upphæð tók forstjóri hennar, Mogensen,
18 þús. kr., og auk þess fékk hann 2500
kr. í ferðakostnað við eftirlit. Allur
reksturskostnaður verslunarinnar það ár
ram nálega 200 þús. kr.
Til samanburðar má geta þess, að
laun fastra starfsmanna við Landsversl-
uriina í Rvík voru sama ár rúml. 56
þús. kr., eða rétt um það bil helmingur-
inn af starfsmannalaunum við áfengis-
verslunina.
Naut,,,,! ^Pra,t
A. Schiöth.
Kaupakona óskast á gott
sveitaheimili ekki langt frá Akureyri.
Ritstj. vísar á.
Sumaraukinn.
Eg vil spyrja: Er sumaraukinn
nauðsynlegur? Er ekki hægt að
komast af án hans? Er hann til
hjá öðrum þjóðum? Mér finst
hann meir en óþarfur. Sumarkom-
an er svo óhentuglega sett, að hún
er látin vera færanleg frá 18. til
23. Apríl. Því má ekki setja sum-
arkomuna fasta 22. Apríl eins og
vetrarkomuna 22. Október? Sé
þetta litla viðvik gert, hverfur
sumaraukavikan og allar aukanæt-
ur, að mér sýnist. Mér finst ó-
heppilegt t. d. að bændur reki fé
sitt af fjalli viku of snérnma sum-
araukaviku-sumarið, en aftur viku
seinna næsta sumar. Þá fjallgöng-
ur eru settar, hættir fólk í heild
sinni að mestu störfum, eða yfir-
gefur heyskapinn, sem getur kom-
ið sér illa, þegar gras sprettur
seint og því seint byrjað að slá.
Það er eins og fólk átti sig ekki á
þessu, það trúir almanakinu, en
kvartar þó um, að langt sé haust-
ið.
Þá er að líta á, hve miklu tjóni
þessi búskaparregla veldur bænd-
um og jafnvel sjómönnum lika. Ef
eg geri reikning fyrir, að bóndi
heyi aðeins 5 hesta á dag í þessari
viku, og hver heyhestur reiknaður
á 10 kr„ verður það yfir vikuna
30 hestar heys, sem gera 300 kr.
Þetta er að vísu ekki mikið fé; en
reikni maður með 6000 bændum í
landinu, og eru þeir þó vístnokkru
fleiri, gerir þetta samtals 1800000
kr„ sem er andvirði 180 þús hey-
hesta, en það er fóður handa 90
þús. fjár, sem annars er hætt við
að þurfi að -leggja að velli, og það
að þarflausu, að því er eg fæ séð.
Það er hálfgerð óánægja í mér
yfir því að vera að binda sig við
gamlar kreddur. Þorsteinn surtur
var skarpur á sínum tíma, en er
nú orðinn úreltur.
Gæti nú ekki greinarkorn þetta,
þó stutt sé, vakið fólk til umhugs-
unar í þessu atriði?
S. 61.
-------o------
Fantasie
vindillinn er léttur og
þægilegur. Mest reykti
vindillinn hér á landi,
Auglýsið í D E G I.
M U N D L O S-s aumavélar
ERU BEZTAR.
Fást í verzluninni.
NORÐURLAND.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 5. Sími 182.
Prentsmiöja Odds Björnssonar.