Dagur - 08.11.1928, Blaðsíða 3

Dagur - 08.11.1928, Blaðsíða 3
48. tbl. DAGUE 189 Vatnsmælingar. Tek að mér vatnsmælingar á vatnsorku til rafveitu í sveitum og kaupstöðum. Geri áætlanir um orku fyrirhugaðra stöðva, kostnað þeirra og möguleg afnot, fyrir sanngjarna borgun, nú meðan veður leyfir. Akureyri 7. Nóvember 1928. FR. B. ARNGRÍMSSON, b.a. þykti kröfu um afturköllun tillög- úhnar um trúboðsfélögin, lækkun herkostnaðar, réttlátari skattalög- gjafar og að stjórnin viðurkenni öll stéttafélög, einnig þau, er snerta embættismenn ríkisins. Fundurinn ákvað að ráðherrar fiokksins megi ekki sitja í stjórn- inni áfram, nema eftir þessum kröfum sé farið. — Síðustu fregn- ir herma, að Poincaré hafi sagt af sér í gærkvöldi. Etnugos halda áfram og gera talsverð spjöll. Budapest: Ungverska stjórnin hefir lagt bann við að leika leik- rit eftir Bernhard Shaw í Ung- verjalandi, er það afleiðing af, að Shaw hefir sagt í bréfi til rithöf- undar eins í Ungverjalandi, að hann heldur vildi vera Ungverji búsettur í Tjekkoslovakíu en Tjekkoslovaki búsettur í Ung- verjalandi. London: Við sveita- og bæjar- stjórnarkosningar í Englandi í vikunni sem leið, fengu verka- menn meirihluta í 27 af 80 sveita- og bæjarstjórnum. Bukarest: Bratianustjórnin hef- ir beðist lausnar. Moskwa: Rússneskir vísinda- menn hafa fundið norrænar forn- minjar við Ladoga-vatnið á landa- mærum Finnlands og Rússlands. Oslo: Hjalmar Falk látinn. Reykjavík: Einar Arnórsson hefir svarað Héðni Valdimars- syni með grein um skattamálin í »Vísi«, kveður hann framkvæmd skattalaganna hafa verið strang- ari og sjálfri sér samkvæmari í Reykjavík en víðast annarstaðar á landinu. Seyðisfirði: Þ. 26. okt. flutti Einar Jónsson, verzl.m., mann úr botnvörpungnum »Hortensia« í land; sneri hann þegar aftur til skips, en eigi hefir spurst til Ein- ars síðan, þrátt fyrir leit og að slætt hefir verið á firðinum. Bát- urinn fanst sama kvöld mannlaus og áralaus og var fangalínan gerð upp. í fyrradags morgun kl. 8 kom Hull-togarinn »Syrina« til Seyð- isfjarðar með alvarlegan eld í kolarúminu. Slökkviliði bæjarins tókst að slökkva eldinn eftir 5 klukkustundir. Svipað kom fyrir þ. 25. sept. Þá kom Grimsby-tog- ari til Seyðisfjarðar með magnað- an eld í kolarúminu, þó varð eld- urinn slöktur. Bæði skipin koluðu til heimferðar á Seyðisf. Senni- lega hefir kviknað í vegna gas- myndunar. ------0------- Leikfélag Akureyrar. Síðan Haraldur Björnsson leik- ari kom heim frá Hafnar-veru sinni, ]þ. 12. f. m., hefir hann unn- ið að undirbúningi leiksýninga hér fyrir veturinn. — Nú um hríð hefir hann og ílokkur hans æft »Munka>rnir frá Mööruvöllum« eftir Davíð Stefánsson. »Munkarnir frá Möðruvöllum« er alveg vafalaust sá sjónleikur, sem einna mest er spunnið í af þeim, er birzt hafa á íslenzku hin síðari árin, má því búast við að mikið sé hægt að gera úr honum á leiksviði, ef vel og smekklega er með farið. Auðvitað hefir leikur- inn þær hliðar, sem varla mega við því að verða dregnar of mikið fram, en aftur á móti eru líka kostir hans márgir og góðir, og má efalaust búast við, að það ein- mitt verði þeir, er að þessu sinni fái að njóta sín til fullnustu, er smekkvís og leiksviðsvanur mað- ur stýrir leiknum. Geta má þess, að það mun verða vandað til sýningarinnar eins og frekast er kostur. Allir búningar, húsgögn o. a. er að hinu ytra lít- ur, verður í miðaldastíl og eins nákvæmt og föng eru á. Aðalhlutverkin leika: Kvaran (príórinn), Haraldur (óttar), Hólmfr. Sigvaldadóttir (Sigrún), Kristín Bjarnad. (Borghildur), Kröyer (1. ölmusum.), Árni ó- lafsson (2. ölmusum.) og Gísli (Þorgrím). Það er gert ráð fyrir að fyrsta sýning verði föstudag þ. 16. þ. m. -------0------- F r éíti r. Sjóöur hefir verið stofnaður við Krist- neshæli, er nefnist píanósjóður. Til- gangurinn með sjóðstofnun þessari er að safna fé til píanókaupa handa hæl- inu. Nokkurt fé hefir þegar safnast, en vantar þó mikið enn til þess að tak- markinu verði náð. Ætti nú almenning- ur að bregðast vel við og styrkja sjóð- inn með fégjöfum. Þó hver láti ekki mikið af hendi rakna, þá safnast þegar saman kemur. Stofnfundur hestamannafélagsins hér í bænum var haldinn á mánudaginn var. Stofnendur voru milli 20 og 30. í stjórn voru kosnir: Pálmi Hannesson (for- maður), Þorsteinn Þorsteinsson (gjald- keri) og Sig. Ein. Hlíðar (ritari). Fé- lagið heitir Léttir. Kæra kom fram á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn var yfir kosningu þeirra Tómasar Björnssonar og ólafs Jónsson- ar í bæjarstjórn Akureyrar. Meiri hluti bæjarstjórnarinnar úrskurðaði kæruna á rökum bygða og kosninguna ógilda. Minni hlutinn (fhaldsmenn) lýstu því þá yfir, að þeir áfrýjuðu úrskurðinum til stjórnarráðsins og mættu ekki á bæjarstjórnarfundi, fyr en stjórnin hefði felt úrskurð í málinu. Frá Blönduósi er símað, að Guðný Jóhannesdóttir, öldruð kona, varð bráð- kvödd að Beinakeldu í Húnavatnssýslu ! % % •^Stór úfsala hefst á morgunt9. Nóvember. Par verður meðal annars á boðstólum: 200 Karlmannaföt með 10 til 50°/o afslætti. 75 Unglingaföt — 10 — 33°/o — ^ 35 Drengjaföt — 10 — 33°/o — f 100 Karlm.-Vetrarfrakkar — 10 — 50°/o — 50 Ungl.-Vetrarfrakkar — 10 — 20°/o — 75 Karlm.-Taubuxur — 10 — 20% — f o. m. m. fl. — ATH. Verðið er miðað við greiðslu um leið. I NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ! BRAUNS VERZLUN. Páll Sigurgeirsson. ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦j Jrá Jlandsímanum. Par sem verið er að búa aðalsímaskrdna undir prentun, eru þeir símanotendur, sem kynnu að ailja koma að breytingu eða leiðréttingu d skrdnni, beðnir að tilkynna mér það fyrir 11. þ. m. — Ennfremur eru þeir, sem hafa i hyggju að fd sima d nœstunni, beðnir að tilkynna það fyrir sama tima, svo nöfn þeirra geti komist d skrdna. Akureyri 8. Nóvember 1928. SÍMASTJÓRINN. Nýir ávextir. Epli (kassa) frá kr. 1.60 kg. Appelsfnur » » 0.20 stk. Vfnber » » 2,25 kg. Sítrónur hjá Jóni Quðmann. PIÐ SPARIÐ 25°|0 með því að kaupa| alls- konar kven- og barna- nærfatnað í Ryels verzlun. þ. 5. þ. m. — Guðný sál. var fædd að Þorsteinsstöðum í Suður-Þingeyjarsýslu og alin upp í Yztuvík. Fluttist hún vest- ur fyrir allmörgum árum og hefir verið til heimilis í Húnavatnssýslu síðan. Af systkinum hennar eru tvö á lífi — bæði hér á Akureyri — þau Jón Jóhannesson og' frú Dómhildur, kona Magriúsar Kristjánssonar fj ármálaráðherra. Prestskosning fór fyrir nokkru fram í Þóroddstaðaprestakalli í Suður-Þing- eyjarsýslu. Úrslit kosningarinnar urðu þau, að settur prestur þar, síra Þor- móður Sigurðsson frá Yzta-Felli, hlaut löglega kosningu með 133 atkv. af 136, er greidd voru. Skófatnaður með óslítandi sólum eru brúnu leðurskórnir með hrágúmmíbotnum. — Allar stærðir fyrir börn, kven- menn og karlmenn, nýkomnar. Kaupfélag Eyfirðinga. Hlýjustu, beztu og ódýrustu vetrarfrakkarnir fást nú fjölbreyttastir hjá BALDVIN RYEL. B laðafrmnleiðsla. íhaldsflokkurinn hefir nú 10—12 blöð til umráða. Þetta þykir honum ekki nóg. Er flokkurinn nú að hleypa tveimur nýjum blöðum af stokkunum, öðru á Siglufirði, hinu í Hafnarfirði. Þessi ofvöxtur í blaða- framleiðslu flokksins bendir á sjúkt á- stand Ihaldsmanna. —

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.