Dagur - 07.02.1929, Page 2
22
D AGUR
I-# • • •-• • •-•-• -•-•-•-♦-•'-•-• -• •••
♦ ♦-♦♦• ••♦-♦-•• -
Farm af ágætum hörpuðum
1 eimkolum
fáum við um næstu mánaðamót. —
Kaupfólag Eyfirðinga,
•m
á i i ■
WMI
•m
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alia daga
frá kli 10-6.
Quðr. Funch-Rasmussen.
fyrir sunnan hefir stigið fyrsta
sporið í þessa átt að dæmum ná-
grannaþjóðanna. — Þetta félag,
sem nú er fyrirhugað fyrir Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslur, ætti
svo að verða næsta sporið. Ei- þá
vonandi, að margar slíkar félags-
stofnanir fari á eftir, þangað til
allar sýslur og öll kauptún lands-
ins eru bundin samskonar félags-
samtökum. Ættu þá öll félögin
að tengjast höndum og mynda
allsherjar samband fyrir alt land
— væri þá allvænlegt til fram-
kvæmda málsins.
Vonandi er, að undir merki
slíkra félaga skipi sér menn af
öllum stéttum og öllum flokkum,
og að enginn láti deilumál dags-
ins aftra sér frá að rétta hendina
út og taka framréttar hendur
annara, þegar um jafnmikið alls-
herjar-velferðarmál er að ræða.
— Hér ættu menn að hugsa: Eitt
verður þó ávalt að sitja í fyrir-
rúmi fyrir öllu öðru — hvering
sem stríðið þá og þá er blandið —
og þaö er að elska, oð byggja og
treysta á landið!
Undirtektir almennings gagn-
vart ávarpi því, er hér er birt að
ofan, mun sýna, hvort menn vilja
gæta þessarar skyldu við land sitt
eða ekki.
-------------
Rannsökn skólanefndar
á kærum þeim, er komið hafa á hend-
ur Steinþóri Guðmundssyni skólastjóra
er nú lokið. Hér birtum vér tillögur
þær, er fram hafa komið í málinu og
ræddar hafa verið af nefndinni. Eins
og sjá má af tillögunum, varð nefndin
ekki öll sammála. En það er óþarft hér
að skýra afstöðu meiri- eða minnihlut-
ans, þar eð hún kemur ljóst fram í til-
lögunum sjálfum.
Útdráttur
úr fundargerð skólanefndar Ak-
ureyrar 19. janúar 1929.
...Eftir nokkrar umræður um
málið, kom fram tillaga þess efnis
að gefa skólastjóra kost á að
segja af sér skólastjórastöðu, og
falli þá frekari rannsókn málsins
niður, ef hann tekur þann kost.
Tillagan feld með 2 atkv. gegn 2,
en einn greiddi ekki atkvæði.
Útdráttur ■
úr fundargerð skólanefndar Ak-
ureyrar, 21. janúar 1929.
...Á fundinum kom fram svo-
hljóðandi tillaga:
»Þar sem nefndin lítur svo á,
að frekafi rannsókn um kæruat-
riðin verði að fara fram hjá
nefndinni, og þá verður óhjá-
kvæmilegt að leita vitnisburðar
skólabarnanna í 6. bekk um fram-
ferði skólastjóra í bekknum, sér-
staklega viðureign hans við skóla-
barnið Guðbrand Hlíðar, telur
nefndin óviðkunnanlegt að börn
þau, sem þannig verða leidd sem
einskonar vitni gegn skólastjóra,
verði alt að einu áfram undir
stjórn hans sem skólastjóra og
kennara. Því ályktar nefndin að
bekkur þessi skuli, það sem eftir
er vetrarins, undanskilin skóla-
stjórn Steinþórs Guðmundssonar,
en stjórn þessa bekkjar falin ein-
hverjum af hinum kennurum skól-
ans. Sömuleiðis sé sérstakur kenn-
ari ráðinn til þess að hafa á hendi
kenslu í bekknum í ^tað skóla-
stjóra, það sem eftir er skólaárs-
ins.
Tillagan samþykt með öllum
atkvæðum.
Samþykt var að fela elzta kenn-
ara skólans, Ingimar Eydal, um-
sjón 6. bekkjar, það sem eftir er
skólaársins, í stað skólastjóra.
Formanni skólanefndar falið að
útvega kennara handa bekknum í
samráði við umsjónarmann bekkj-
arins.....
Útdráttur
úr fundargerð skólanefiidar Ak-
ureyrar, 5. febrúar 1929.
. .Á fundinum kom fram svo-
hljóðandi tillaga til fundarálykt-
unar:
»Nefndin telur það hafa komið
í ljós við rannsókn út af fram-
komnum kærum gegn skólastjóra,
Steinþói'i Guðmundssyni, að hann
sé ekki til þess fallinn, að hafa
með höndum stjórn og umsjón
barna, sem skólastjóri. Þykir því
ástæða til að óttast um framtíð
skólans undir hans stjórn.
T^ka ber og tillit til þess, að
skólastjóri, hefir áður tvívegis or-
sakað verulega erfiðleika í sam-
starfi sínu við suma kennara og
skólanefnd, þótt siglt yrði hjá
fullkomnum vandræðum í þau
skifti.
Af þessum sökum telur nefndin
nauðsyn á að, skifta um skóla-
stjóra við barnaskóla Akureyrar.
Hinsvegar verður það varla talið
nauðsynlegt, að skólastjóranum
sé vikið frá starfinu fyrirvara-
laust, einkum þar sem 6. bekkur
skólans — en þar hefir mest skor-
ist í odda milli skólabarna og
skólastjóra að þessu sinni — hef-
ir þegar verið undanskilin skóla-
stjórn hans og falin öðrum kenn-
ara til umsjónar. Virðist því
mega gera ráð fyrir, að menn
mundu telja þá úrlausn málsins
fullnægjandi, ef ekkert nýtt kem-
ur fyrir á þessum vetri,- að skóla-
stjóraskifti frá næsta hausti yrðu
þegar fullráðin, þótt núverandi
skólastjóri héldi stöðu sinni það
sem eftir er þessa skólaárs.
Nefndin leggur því til/ að
fræðslumálastjórnin segi skóla-
stjóra Steinþóri Guðmundssyni
upp stöðu sinni frá 1. Sept. 1929
að telja, eða sjái um að hann láti
þá af skólastjórastöðu sinni, og
að nýr skólastjóri verði ráðinn
frá þeim tíma.
Tillagan var feld með 3 at-
kvæðum gegn 2, að viðhöfðu
nafnakalli. Já sögðu Brynleifur
Tobiasson og Böðvar Bjarkan, en
nei: Jón Sveinsson, Jón Stein-
grímsson og Elísabet Eiríksdóttir.
Þeir nefndarmenn, er * feldu
framanritaða tillögu, óskuðu eftir
fresti til morguns, til þess að
koma fram með tillögu af sinni
hálfu. Var fundur ákveðinn á
morgun kl. 4.
Fundi slitið.
Útdráttur
úr fundargerð skólanefndar Ak-
ureyrar, 6. febrúar 1929.
....Lagði meirihluti nefndar-
innar fram svohljóðandi tillögu til
f undarályktunar:
»Við rannsókn á kæru Sigurðar
E. Hlíðar á hendur skólastjóra
barnaskólans á Akureyri, telur
skólanefnd sannað, að skólastjóri
hafi beitt allharðri líkamlegri
refsingu við skólapiltinn Guð-
brand Hlíðar. Virðist refsing sú,
er barnið hlaut, í því innifalin, að
skólastjóri sló það að minsta kosti
tvo kinnhesta með flötum lófa og
sló auk þess í búk þess, einnig
með flötum lófa. Auk þessa hefir
skólastjóri, samkvæmt frásögn
bekkjarsystkina Guðbrandar, þá
er Guðbrandur hrasaði á gólfið,
sett höfuð hans milli fóta sér, en
skólastjóri neitar að hann hafi
gert það, heldur kveðst hann hafa
tekið steinbítstaki á drengnum
með annari hendi.
Þó skólanefnd sé það ljóst, að
refsing sú, er .skólastjóri beitti,
eigi hafi verið harðari en refsing-
ar þær, sem alt til þessa hefir oft
og tíðum verið beitt í skólum hér
á landi, verður nefndin þó að telja
hana of harða í hlutfalli við brot-
y 6. tbl.
• ••••« - • •••••••••••
ið, sem aðeins var truflun á ró í
bekknum í kenslustund.
Ennfremur lýsir nefndin því
yfir, að hún telur að kennarar
megi eigi grípa til líkamlegi’a
refsinga gagnvart börnunum,
néma ítrustu nauðsyn beri til.
Rannsókn á kæru Sigurgeirs
Jónssonar hefir leitt það í ljós, að
skólastj. hefir þann sið að klípa
í eyru skólabarnanna í kenslu-
stundum, gefa þeim selbita og
jafnvel kippa í hár þeirra. Sam-
kvæmt framburði 6. bekkjar
barnanna, gerir skólastjóri þetta
aðallega í reikningstímum, og
segja þau að hann ge'ri þetta alls
ekki í refsingarskyni, þó ' það
stundum komi fyrir að þau finni
til af þessum handtökum hans.
Virðist nefndinni að hér sé um að
ræða leiðinlegan ávana hjá skóla-
stjóra, er hann ekki hafi gert sér
l.ióst að börnunum félli illa.
Rannsókn á k^æru Páls Sigur-
geirssonar hefir leitt það í ljós,
að skólastjóri kendi stjúpsyni
hans ekki neitt fyrri veturinn, er
gróf í eyra piltsins, en seinni vet-
urinn aðeins kristinfræði. Með til-
liti til þess, að skólabörnin hafa
borið, að eyrnaklip skólastjóra
hafi aðallega átt sér stað í reikn-
ingstímum,'er alveg ósannað að í-
gerð í eyrum piltsins Hauks
Helgasonar standi í sambandi við
eyrnaklip skólastjóra.
Þá vill nefndin taka það fram,
að þótt fyrir allmörgum árum
hafi verið nokkur misklíð milli
skólastjóra og sumra kennara
skólans, og jafnvel milli skóla-
stjóra og skólanefndar, .þá hafi
slíkt alt jafnast fyrir löngu og nú
í seinni tíð ekki borið á neinni
misklíð innan vébanda skólans.
Þótt skólanefnd samkvæmt
framansögðu hafi allmikið að at-
huga við framkomu skólastjóra í
þeim efnum, er kært var yfir, lít-
ur hún þó svo á, að skólastjóri
muni, er hann fær áminningu þar
um, geta lagfært þá bresti, er
komið hafa í ljós á kennarastarfi
hans, en skólastjórn hans hefir
nefndin ekkert út á að setja.
Loks virðist 8. gr. laga nr. 75
frá 25. nóv. 1919, um skipun
barnakennara og laun þeirra,
gera ráð fyrir að þegar einhver'*
ávirðing hendir kennara í starfi
sínu, þá beri skólanefnd að á-
minna hann og því ‘aðeins víkja
honum úr kennarastöðu, að hann
ekki láti skipast við þá áminn-
ingu.
Því leyfir skólanefnd sér að
gefa skólastjóra Steinþóri Guð-
mundssyni áminningu, fyrir að
hafa beitt of harðri líkamlegri
refsingu við barnið Guðbrand
Hlíðar, í kenslustund í 6. bekk
barnaskólans, 16. f. m. Jafnframt
átelur hún skólastjóra og bendir
honum á, að hann verði að leggja
niður ávana þann, er hann hefir,
að taka í eyru skólabarna og því
um líkt. Loks bendir skólanefnd
skólastjóra á það, að hann megi
búast við, ef hann eigi lætur skip-
ast við þessa áminningu nefndar-
innar, að verða sviftur starfinu«.
Tillagan var samþykt með 8