Dagur - 11.04.1929, Blaðsíða 3
15. tbl.
61
DAGUR
|mhBBBSHBíi
;
♦
♦
«-
♦
♦
♦
♦
•#
I
#
«
♦
Fermingarfötin
eru komin.
Blá matrosa- og jakkaföt.
Brauns Verzlun.
Páll Sigurgeirsson.
♦
#
#■
1 Verzlun Péturs H. Lárussonar |
Columbus Bananar j
karlmannaskófatnaðurinn er hollur og nær-
er sterkur og fallegur. andi ávöxtur.
Fleiri gerðir með Afbragð ofan á
2 breiddarnr. brauð.
NÝTT! NÝTT!
Karlm. Regnfrakkar
og
Waterproof-jakkar.
Við viljum sérstaklega vekja aihygli yðar á ofan-
greindum vörum. — Gerið svo vel og litið inn og
athugið þessar nýju tegundir. —
BRAUIVS verzlua.
Páll Sigurgeirsson.
lega og óvenjulega að við atkvæða-
greiðslu með nafnakalli um frum-
varp Héðins Valdimarssonar um
verkamannabústaði. Hafi eg fyrst
kallaó upp Hallgrím Davíðsson, til
þess að hann gæfi öðrum bæjar-
fuiltrúum »tóninn«, og síðan hald-
ið til vinstri handar »hringinn rang-
sælis, þar til komið var aftur að
H. D., sem sat næstur forseta á
hægri hönd«. Eins og flestum bæj-
arbúum mun kunnugt, er forseta-
stóllinn við vesturvegg bæjarþing-
salsins, og þegar svona hagar til
og greiðsla fer fram frá vinstri
hönd forseta og endar honum til
hægri, þá hefi eg ætíð heyrt það
nefnt að fara réttscelis, en »Verka-
maðurinnc kallar það að »halda
hringinn rangsælisc, en að eg kall-
aði H. D. fyrstan upp stafaði af
því, að í fundarsköpum fyrir bæj-
stjórnina er fyrirmæli um það, að
við nafnakall greiði skrifarinn fyrst
atkvæði. Nú var H. D. einmitt ann-
ar skrifarinn við þetta tækifæri og
Steinþór Ouðmundsson hinn. Með
því að láta þá greiða atkvæði fyrst
var eg einungis að þræða fundar-
sköpin og hafði engan hrekk í
huga. En »Verkamaðurinn< sýnist
áttaviltur á tvennan hátt. Hann er
áttaviltur í bæjarþingsalnum og hann
er áttaviltur í fundarsköpunum.
Ingimar Eydal.
Nýtt frumvarp um refagirðingar og
útflutning refa er flutt af landbún-
aðarnefnd Neðri deildar. — Eldhús-
dagsumræður hefjast á morgun. —
Niðurstaðan samkvæmt tillögum
fjárveitinganefndar er sú, að tekju-
afgangur samkv. fjárlagafrumvarpinu
var 53791,45 kr., hækkun tekju-
bálksins nemur 650000,00 kr., en
lækkun gjaldabálksins 8800.00 kr.;
samtals gerir þetta 712591.45 kr.
Hækkun gjaldabálksins nemur
557510.00 kr. og tekjuafgangur því
155081.45 kr. Nefndin hefir hækk-
að áætlun ýmsra skatta og tolla
og Alþingiskostnað hefir nefndin
hækkað um 25 þús. kr., vegna þess
að þinginu er stefnt saman á Ping-
völlum í sambandi við hátíðina
Kristneshæli eru veittar 7500.00 kr.
til umbóta.
Jónas Jónson heilbrigðismálaráð-
herra hefir skipað nefnd, til þess
að undirbúa starfrækslu Landspítal-
ans, sem gert er ráð fyrir að taki
til starfa haustið 1930. Enn fremur
hefir hann skipað aðra nefnd, sem
skal hafa umsjón með útgáfu heilsu-
rits með myndum, sem skólabörn-
um verður úthlutað ókeypis. Land-
læknir er formaður beggja nefnd-
anna.
ERLENT. Shanghai: Nanking-
herinn hefir tekið Hankow mót-
spyrnulaust.
London: Henderson hefir haldið
ræðu, þar sem hann kvað socialista
mundu samankalla. alþjóðlegan af-
vopnunarfund, ef þeir kæmust til
valda eftir kosningarnar.
Bæði Bretar og Bandaríkjamenn
gera tilkall til suðurpólslanda, enn-
fremur Argentína.
New York: Feilibylur fer yfir
Minnesota Wisconsin, 20 farist og
50 meiðst.
-----o———
Útlent.
Foch dauður.
Franski herforinginn Foch var
skipaður yfirforingi Bandamanna-
hersins mikla gegn Miðveldunum
sfðasta ófriðarárið, 1918. Var sæmd-
ur marskálkstign. Hann var fæddur
árið 1851, 2. okt., liðsforingi 1873,
herforingi (Oeneral) 1907, foringi
herráðsins franska í hermálaráðu-
neytinu 1917 eftir Pétain, yfirforingi
allra Bandamannaherja (Qeneral-
issimus) 24. apríl 1918, forseti yfir-
herráðsins franska í jan. 1919,
sæmdur brezkri marskálkstign í
ágúst 1919, fyrstur allra útlendinga.
Foch dó úr hjartaslagi.
Fréltapistlar.
S íms keyti.
(Frá Fréttastofu íslands).
Rvík 9. Apríl.
ALPINOI. Frumv. um breyting á
lögum um skráning skipa er af-
greitt sem lög» — Ingibjörg og
Jónas Kr. bera fram frumv. um
íbúðir í jarðhúsum; miðar frumv.
að því eð útrýma kjallaraíbúðum á
30 árum. — Hinn 6. þ. m. samþ.
Neðri deild þá breytingu að kalla
Landbúnaðarbankann Búnaðarbanka.
Feld var breytingartillaga um að
heimila lán til smábátaútvegsbænda
og stofnfé minkað úr 2 milj. kr.
niður í l>/4 miljón kr. — Nafni
sveitabankans hefir verið breytt í
lánsfélög. — Umræður um raforku-
veiturnár standa enn yfir. Frumvarp-
inu verður sennilega visað til
stjórnarinnar. — Neðri deild ræðir
ábúðarlögin, sem þeir Jörundur og
Bernharð bera fram; í þeim eru
ýmsar stórfeldar breytingar; lífstíð-
arábúð lögboðin, en landsdrotni þó
heimilt að taka jörð til ábúðar
handa sjálfum sér, barni sínu eða
fósturbarni, með árs fyrirvara. Lands-
drotni er einnig skylt að eiga öll
hús á leigujörðum o. s. frv. —
Parna á flugvellinum var maður
kominn í nýjan heim. En hvernig
verður þar um að litast árið 2028?
Miklar hafa breytingarnar orðið síð-
ustu öldina, en liklega verða þær
ennþá stórfenglegri hér eftir. Og
við vonum, að sá tími komi, að
allar uppgötvanir verði hagnýttar
mönnunum til sannarlegrar farsæld-
ar. Liðinn tími ber því miður þess
vottinn, að oft hafa þau öfl, sem
mennirnir hafa í þjónustu sinni,
verið notuð öðrum til ófarnaðar og
hverskonar niðurdreps. Betur að
framfarirnar í mannheimum á siðum
fólksins og ugi andlega þróun væru
jafnmiklar og á hinu verklega sviði.
En — þvi er ekki að heilsa, að í
réttu hlutfalli standi hvort við annað,
og þó miðar í áttina. Við þau
hænufet eru vonir vorar bundnar.
Eg veit varla hvar eg á næst að
bera niður I Berlínarborg. Lesendur
mínir hafa fáir ánægju af því, þó
að eg skýri frá stofnun þeirri, er eg
oftast kom í þetta sinn í Berlín, en
það var »Institut fiir Erziehung und
Unterricht«. Par er saman komið
hið mesta kensluáhalda- og kenslu-
bókasafn, sem eg hefi séð á einum
stað. Pessi stórfenglega kenslu- og
uppeldismálastofnun er, eins og
geta má nærri, mjög lærdómsrík.
Par er sýning opin ár og síð hinna
fjölbreyttustu kenslutækja og skóla-
bóka. Úir þar og grúir af ritum um
kenslu- og uppeldismál. Forstöðu-
maðurinn, Ladovig prófessor, tók
mér ágætlega, leiðbeindi mér með
framúrskarandi alúð og sýndi mér
margar deildir stofnunarinnar.
Átti eg tal við hann um áfengis-
málið, og sagði hann mér hrein-
skilnislega, að hann hefði um eitt
skeið æfinnar komist í helzti mikinn
kunningsskap við Bacchus, en nú
kvaðst hann hafa sagt sig úr lögum
við hann og hyski hans. Taldi hann
kennarastéttina siðferðilega skylda
til þess að beitast gegn áfengisböl-
inu í öllum löndum.
Eg heimsótti kunningja minn, dr.
Kraut, er eg þekti frá bindindisþing-
unum í Dorpat og Antwerpen.
Hann er lærður í forníslenzku, en
hefir langa hríð staðið framarlega í
flokki bindindismanna á Pýzkalandi
og starfar nú í herbúðum þeirra, er
heitir »Die Reichshauptstelle gegen
den Alkoholismusc. Pað er höfuðból
þýzkra samherja i bindindismálum
Nog starfar í nánu sambandi við
Stórstúku Pýzkalands af óháðri
reglu Ooodtemplara. Eg kom á þrjá
templarastúkufundi i Berlín og fiutti
fyrirlestur um ísland á þeim öllum,
og á einum þeirra sýndi eg einnig
skuggamyndir héðan. Var mér tekið
forkunnarvel, og kyntist eg þar
mörgum góðum samherjum. —
Landa hitti eg í Berlín, Stefán
Pétursson frá Hésavík, er hefir
styrk úr sjóði Hannesar Árnasonar,
hinn efnilegasta lærdómsmann, og
Pórð lögfræðing Eyjólfsson, sem
stundar framhaldsnám i lögum við
háskólann. — Mér varð dálítið hverft
við einu sinni, er eg var að drekka
kaffi á »Josty«, gríðarstóru kaffihúsi
við Potsdamertorg, og lesa blöð, að
kallað var á mig með nafni á önd-
vegis-íslenzku. Par var kominn
Pórður. Aldrei hljómar »ástkæra,
ylhýra málið* eins dásamlega og í
útlendum stórborgum, langt frá
yorri feðrafold.
Einn daginn, þegar eg um mið-
aftansleytið kom úr ríkisbókasafninu
prússneska »Unter den Linden*, (en
svo heitir fínasta gatan í Berlín), og
ætlaði að halda áleiðis til ríkisþing-
hússins, er liggur spölkorn frá
Brandenburg — hliði, er lokar göt-
unni öðrum megin, var svo marg-
ment á götunni, að eg komst ekki
þversfótar. Eg spurði einhvern ná-