Dagur - 16.05.1929, Qupperneq 2
I
82
DAGUR
21. tbl.
>•••••••••••••(
J\ÆáIningav0rur
og
veggfóður
NYKOMIÐ.
Kaupfélag Eyfirðinga,
Hiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiié
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-ó.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Það er engin furða þó allur
þorri alþýðumanna noti sér þessi
góðu hlunnindi og þessvegna er
það, að öll sjúkrahús landsins eru
íullsetin og meira en það. Og þó
nú ný sjúkrahús séu bygð, fyllast
þau óðara eins og aldrei verði
kröfunum fullnægt.
Vegna hins sívaxandi kostnað-
ar, sem af þessum lögum leiðir,
hafa margir hugsað sem svo:
þessi lög eru vitlaus og þarf hið
bráðasta að afnema þau eða
breyta þeim, — sérstaklega þó
berklavarnalögunum. En þó lög-
gjafar vorir hafi hvað eftir annað
lagt heilann í bleyti til að finna
ráð sem dugi, hefir það enn ekki
tekist og eg vænti að þess verði
langt að bíða. Fólkið hefir lært að
meta þau gæði, sem sjúkrahúsin
hafa að bjóða. Fólkið vill hafa góð
ög mörg sjúkrahús — og löggjaf-
arnir verða að hlýða, því fólkið
' ræður.
Eg fyrir mitt leyti hefi löngu
séð að til vandræða horfði með
að fullnægja kröfum fólksins um
sjúkrahúspláss, ef lengí heldur á-
fram eins og undanfarin ár. Eg
hefi stungið upp á því, að stjórn-
arvöld landsins vildu hlynna meir
og meir að hjúkrun í heimilunum
með því að skipa lærðar og vel-
launaðar farandhjúkrunarkonur í
öllum læknishéruðum. Það mundi
áreiðanlega bera þann árangur að
létta mundi á sjúkrahúsunum, og
væri að mörgu leyti ákjósanlegt.
Því jafnframt því sem hjúkrun-
arkonur þessar stunduðu sjúkl-
inga heima, ættu þær að ganga
um, meðal fólksins, og leiðbeina
mönnurn í hollustuháttum og heil-
brigðismálum.
En þessi uppástunga mín hefir
enn ekki fengið byr undir vængi,
og eg sé það fyrir, að enn bíði
mörg ár áður en hún komist til
framkvæmda. Því þó ekki sé- um
að kenna skilningsleysi og fylgis-
leysi þeirra sem með völdin fara,
þá er sá vandi óleystur að menta
nógu margar hjúkrunarkonur til
þessa starfs. Því enn eru svo fá-
ar hjúkrunarkonur á takteihum,
að varla nægir handa sjúkrahús-
um landsins, og þær hjúkrunar-
konur sem til eru hafa . því nær
engar fengið þá auka- og fram-
haldsmentun, sem þarf til að
standa vel í stöðu sinni, sem far-
andhjúkrunarkonur og heilbrigð-
isfulltrúar (Health Visitors og
Public Health Nurses). í hinum
enskutalandi heimi og á Norður-
löndum eru hjúkrunarkonur af
þessu tagi hvarvetna að taka til
starfa, og þykir starf þeirra bera
hinn blessunarríkasta ávöxt.
Hvað sem nú þessum spursmál-
um líður og þó við íslendingar
getum hrósað okkur af fleiri
sjúkrahúsplássum að tiltölu við
fólksfjölda en rfokkur önnur þjóð
í heimi (við höfum 8—9 sjúkra-
húsrúm á hverja 1000 íbúa) og þó
við, hvað heilsuhæli snertir, séum
komnir langt fram úr öðrum
þjóðum (við höfum 2 rúm á hvert
þúsund íbúa — Danir, sem ann-
ars standa hæst, hafa aðeins 1
rúm á hver 2000 íbúa eða helm-
ingi færri rúm að tiltölu en við).
Og þó engin þjóð komist framar
okkur að veita ókeypis sjúkrahús-
vist og læknishjálp á ríkiskostn-
að, þá (og líka þessvegna) þurf-
um við stöðugt fleiri og stærri
sjúkrahús. En ekki sízt vanhagar
okkur hér á Akureyri um slíkt —
því sjúkrahúsið Gudmanns minni
er úrelt orðið og óhentugt, enda
ógerlegt að byggja við það og það
veitir ekki af því eingöngu fyrir
berklasjúklinga. Og það má telj-
ast nauðsynlegt orðið að greina
þá sjúklinga algerlega frá öðrum.
Eg geri ráð fyrir, að ýmsir
muni dussa við öllu þessu, telja
sér það óviðkomandi og halda mig
fara með öfgar og óþarfa mál-
flutning. Þó þykist eg viss um, að
allir þeir, sem eitthvað hafa dval-
ið sjúkir á Akureyrarspítala muni
mér samdóma í ofanrituðu. En
allir heilbrigðir bæjar- og sýslu-
búar ættu að minnast þess, að þá
og þegar kann fyrir þeim að
liggja að leggjast sjúkir — og
þurfa þá að knýja á dyr sjúkra-
hússins. Og þá vilja þeir vissulega
láta fara vel um sig. Þessvegna
heiti eg á alla góða menn og kon-
ur, að styrkja þetta mál, því ekk-
ert gagnar að eg skrifi- nema
margir málsmetandi menn vakni
og vekji bæjarstjórn, sýslunefnd
og Alþingi til samhjálpar í þessu
efni. Hér er ekki farið fram á
nein samskot (þó gjarnan mættu
einhverjir gefa fyrir sálu sinni).
Sjúkrahúsið er orðið svo efnað,
að það getur sjálft lagt fram góð-
an skerf. Og loks skal eg taka
fram, að eg skrifa þetta ekki af
neinum sérlegum eigingjörnum
hvötum — enda sé eg þá bliku á
lofti, að eg kunni þá^ og þegar
að verða útlægur gerr frá allri
spítalaþjónustu hér (sbr. nefnd-
arálit spítalamálanefndar bæjar-
stjórnar nýlega). Hins vegar vil
eg lýsa því yfir, að þó einhverjir
telji mig orðinn »gamlan lækni«
og lítt liðgengan lengur, þá finn
eg mig enn hafa nóga krafta og
þrek til að þjóna bæði héraði og
sjúkrahúsi enn um hríð, og það
engu síður en að undanförnu.
(Meira).
Dalton-
skólar.
Um uppeldismál.
Eftir
Jón Sigurðsson kennara.
(Framh.).
Dalton uppeldis-
aðferð er ein af
þeim uppeldisstefn-
um, sem nú er rætt
mest um í heiminum, og hefir hún
á mjög skömmum tíma haft meiri
áhrif og víðtækari á viðhorf skóla
til æskunnar, en dæmi eru til áð-
ur úm skólanýung. Dalton-aðferð
flytur þó ekkert algerlega nýtt,
en skilningur hennar á sjálfshvöt
æskunnm- til starfs og dáÖa, er nú
þegar viðurkendur. Mest er upp-
eldísaðferð þessi, sem skólastefna,
útbreidd í Ameríku og á Eng-
landi, þó er hún meira notuð sem
endurbót gamals skólafyrirkomu-
lags en heilsteypt skólakerfi og
venjulega aðeins við börn frá 10
ára aldri. Núna í maí 1929 er
stefna þessi, sem skólakerfi,
réttra 10 ára, og er það kent við
Dalton í Massachusetts í Amer-
íku, en þar starfaði kona sú, sem
setti kensluaðferð þessari fast
form, ungfrú Parkhurst. En með-
al merkustu frumhöfunda þessar-
ar stefnu er hinn frægi ameríski
heimspekingur Emerson, d. 1882,
enska skáldið John Ruskin, d.
1900 og Edison. Þó er stefna þessi
mikið sniðin eftir skoðunum
Rousseau. Eftir mínum skilningi
á skapferli okkar fslendinga, ætti
þessi uppeldisaðferð að geta orðið
okkur mjög happadrjúg. Eg ætla
hér aðeins að skýra aðalbreyting-
una, sem verður á skólunuml þar
sem Dalton-aðferð er viðhöfð og
grundvallaratriðin, sem stefnan
byggist á.
Skóla með gamla fræðslufyrir-
icomulaginu sóttu og sækja ungir
menn til að nema þar það, sem
s k ó 1 i n n hefir að bjóða, en Dal-
ton-skóla/r sníða námsefnin eftir
þörfum n e m e n d a n n a. Þeir
byggja sína fræðslustarfsemi á
framtaki nememdanna og sjálf-
stæðu starfi þeirra, þar sem kenn-
arar gömlu skólanna knýja nem-
enduima áfram við sundurbútað
lexiunám. Daltonskólmnir segja,
að skólaskyld börn séu of stór til
að ganga blindandi troðnar braut-
ir eða vera lyft yfir torfærur; að
þaM verði að ganga á eigin fótum,
því að það herði þau og vekji hjá
þeim traust á sjálf sig og veiti
þeim þann áhuga og þá ánægju,
sem öllu námi séu nauðsynleg.
Þeir eggja nemendurna og
hvetja til dáða. En viðfangsefnin
verða að samsvara- þroska barn-
anna, og til þesá verða börnin að
hafa valfrelsi og fá að vinna verk
sitt á eigin ábyrgð. Dalton-sinnar
segja: aðeins sjálfstætt starf
veitir sannan þroska, og aðeins sá
þioski, sem næst með sjálfstæðu
starfi, sem unnið er á eigin á-
byrgð, getur ráðið og skýrt vandas-
efni lífsins, þegar á hólminn kem-
ur.
Frumhugsun Dalton-aðferðar er
að veita æskunni frelsi. Frelsi til
að þroskast að eðlilegum og heil-
brigðum hætti. Frelsi til að vinna
að verkefnum sínum og áhugaefn-
um, án þess að skólareglur kæfi í
miðju kafi nývaknaðan áhuga.
Stundatafla er ekki til í Dalton-
skólum og engar afmarkaðar
kenslustundir. Skólinn vill nota á-
huga og starfsþrek æskunnar sem
unt er, og ekki hrekja barnið frá
áhugaefni sínu til nýs kennara,
sem heimtar önnur óskyld störf.
Dalton-aðferð leggur verkefni
fyrir börnin, en börnin eru frjáls
hvernig þau haga starfinu, til að
leysa það af hendi. Það er á á-
byrgð nemandans eins. Þarna
finnur barnið að á það er reynt
og því er treyst, ,og einmitt það
knýr barnið til að leggja fram
krafta sína óskifta, og það leitar
af eldlegum áhuga eftir þeirri
beztu leið til að komast að mark-
inu, sem því er sett. Og börn með
vakandi áhuga eru dásamlega
glöggskygn á beztu og heppileg-
ustu leiðina. Eg veit að margir,
sem trúa á form gömlu fræðslu-
skólanna, vildu spyrja: en aginn,
hvað gerir Dalton-aðferð fyrir
hann? Því svarar stefnan á þessa
leið: Þörfin á aga í skólum stafar
af áhugaleysi nemendanna fyrir
því sem lært er í skólanum og því,
að börnunum þykir ekki nógu
vænt um námið og kennarann.
Það finnur ekki í námsefninu
Vatnssalerni,
Vaska,
Skolpleiðslur,
Vatnsleiðslur,
er bezt að kaupa hjá
TÓMASI BJÖRNSSYNI.
'dl