Dagur - 11.07.1929, Qupperneq 1
D AGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaupfélagi Eyfirö-
inga.
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XII
ár. |
► ♦ » # • -•
Akureyri, 11. Júlí 1929.
Pétur Jónsson,
Stórstúkii íslands.
Tuttugasta og níunda ársþing
Stórstúku íslands var háð í Rvík
dagana 22.—-26. f. m. 103 fulltrú-
ar mættu; fullur helmingur full-
trúanna var víðsvegar að af
landinu, hinir úr Reykjavík og
Hafnarfirði.
Þingið hófst með guðsþjónustu
í Fríkirkjunni; þar prédikaði
Kristinn Stefánsson guðfræði-
kandidat og lagði út af orðunum
1. Mósebók, 4. kap., 9. vers:
»Iivar er Abel bróðir þinn? En
hann mælti: Það veit eg ekki. Á
eg að gæta bróður míns?« Sýndi
hann í ræðu sinni fram á, að hið
göfuga mannúðarstarf Good-
tempiar Reglunnar væri einmitt
innifalið í ábyrgð þeirri, er vér
höfum gagnvart vorum minstu
biæðrum í mannlegu félagi. —
Stórkapelán, síra Árni Sigurðs-
son þjónaði fyrir altari.
Eftir guðsþjónustuna gengu
fulltrúarnir niður í Templarahús,
og var þingið sett, kjörbréf rann-
sökuð og stig veitt. Næsta dag
hófust umræður um mál þau, er
fyrir lágu, eftir að embættismenn
höfðu gefið skýrslur sínar.
Mörg mál voru tekin til með-
ferðar á þessu þingi, og þrátt fyr-
ir ýmsan ágreining um smáatriði,
sem kom í ljós við umræðurnar,
birtist þó í öllu einhuga og öflug-
ur vilji á að berjast til sigurs fyr-
ir mannúðar- og menningarmál-
efnum Reglunnar. — Ef til vill
hefir bindindisstarfsemi hér á
landi aldrei verið jafn stefnuföst
og einhuga sem einmitt nú, og
Templarar hafa aldrei farið í
launkofa með markmið sitt, að út-
rýma öllu áfengi og áfengisnautn
úr landinu, og að fylgja fram
bannlögunum, þangað til að þau
— í sambandi við árvakra bind-
indisstarfsemi og bindindis-
fræðslu — eru búin að gera sjálf
sig óþörf. — Þegar vér erum
komnir svo langt í siðmenningu,
að öll áfengisnautn er óhugsanleg
meðal allra manna með heil-
brigðri skynsemi og heilbrigðum
tilhneigingum þarf engra bann-
laga við, og þá getur komið til
mála að nema þau úr gildi. En
þangað til munu Templarar og
aðrir bindindisvinir í landinu
standa sem einn maður á verði
gagnvart öllum árásum andbann-
inga. Og 6 meðan Templararegl-
an, Ungmennafélögin og — heil-
brigð skynsemi eru öflug í land-
inu, er hætt við að meirihluti at-
kvæða þjóðarinnar fengist ekki
gegn bannlögunum. — Hin 84%
atkvæða gegn bannlögunum, í
skólum G. H. (óuðm. Hannesson,
prófessor?)* virðast ekki vera
neinn óyggjandi spegill af vilja
þjóðarinnar — ekki einu sinni
unga fólksins — í þessu efni; G.
H. virðist um of líta á skóla sína,
sem einskonar andlegan mæli-
kvarða og þungamiðju þjóðarinn-
ar. — Einhver annar hefði ef til
vill getað látið svipaða atkvæða-
greiðslu fara fram í einhverjum
öðrum tveim skólum og fengið al-
veg gagnstæða niðurstöðu — og
mér er nær að halda að svo mundi
hafa farið víðast hvar, þar sem
það hefði verið reynt. —
Ýmsar tillögur voru samþyktar
á þinginu. Meðal þeirra voru
þessar:
»Stórstúkuþingið samþykkir að
beita sér fyrir fjársöfnun til þess
að tryggja Reglunni umráðarétt
yfir einu herbergi í fyrirhuguðum
stúdentagarði í Reykjavík«.
»Stórstúkuþingið beinir því til
framkvæmdanefndarinnar, að
hlutast til um, að bindindis-
fræðsla sú, er lög mæla fyrir,
verði framkvæmd í öllum barna-
skólum landsins«.
»Stórstúkuþingið felur fram-
kvæmdanefndinni að útvega Regl-
unni tryggan og góðan aðgang að
hinni væntanlegu útvarpsstöð til
afnota fyrir Regluna og að
tryggja sér ræðumenn«.
»Stórstúkan tjáir sig eindregið
fylgjandi friðarstarfsemi og tel-
ur æskilegt að Stórfræðslustjóri
sendi næsta vetur erindi til stúkn-
anna um það mál.
»Stórstúkuþingið ályktar að
fela framkvæmdanefndinni, að
beita sér fyrir því, að Hagstofan
gefi árlega út áfengisskýrslur«.
f framkvæmdanefnd voru kos:
in:
Stórtemplar: Páll J. ólafson, tann-
læknir.
Stórkanslari: Helgi Sveinsson, fast-
eignasali.
Stórvaratemplar: Frú Guðrún Ein-
arsdóttir, Hafnarfirði.
Stórritari: Jóhann ögmundur Odds-
son.
Stórgæzlumaður unglingastarfsemi:
Magnús V. Jóhannesson, fátækrafulltr.
* Morgunbl. 16. jún£ 1929.
hinn víðfrægi óperusöngvari,
kemur hingað til Akureyrar með
fslandi í dag. Hann hefir að und-
anförnu skemt Reykvíkingum
með söng sínum og hafa þeir tek-
ið honum með mikilli aðdáun sem
verðugt er. Nú ætlar hann að láta
íbúa höfuðstaðar Norðurlands
njóta góðs af komu sinni þeim til
föðurlandsins og syngja fyrir þá.
Má nærri geta að þeir láta ekki
svo sjaldgæft og gott tækifæri
ganga sér úr greipum, heldur
fylla húsið. Það er mikill heiður
fyrir íslenzku þjóðina að eiga
slíkan listasöngvara sem Pétur
Jónsson, er hefir komist svo langt
að verða frægur og eftirsóttur 1
sjálfu föðurlandi hinnar hæstu
söngmentunar, Þýzkalandi.
Pétur Jónsson hefir tekið upp
þá nýbreytni hér að syngja nær
eingöngu íslenzka texta. Mælist
það eflaust vel fyrir og eykur að-
sóknina að söng hans að mun, því
Stórgæzlumaður löggjafarstarfs: síra
Björn Þorláksson.
Stórgjaldkeri: Helgi Helgason, verzl-
unarstjóri.
Stórfræðslustjóri: Gunnar Andrew, í-
þróttakennari, fsafirði.
Stórfregnritari: Friðrik Bjömsson,
afgreiðslumaður.
Stórkapelán: Vilhelm Knudsen, verzl-
unarfulltrúi.
ekki er þess að vænta, að almenn-
ingur skilji útlenda texta. Er
þetta nærgætnislega gert af
Pétri, þar sem þetta mun hafa
bakað honum talsverða fyrirhöfn.
Söngskráin verður sem hér
segir:
R. Wagner: Gralsöngurinn úr
óp. Lohengrin (ísl. texti). Puc-
cini: Stjömuaría úr óp. Tosca og
önnur aría úr sömu óp. (ísl.
texti). — B. Þorsteinsson: Syst-
kinin. Sv. Sveinbjörnsson: Huldu-
mál. Á. Thorsteinsson: Ingjaldur
í skinnfeldi. Sigf. Einarss.: Aug-
un bláu. — De Curtis: Sól á sæn-
um (ísl. texti). Leoncavallo: Mat-
tinata (ísl. texti). — R. Wagner:
Sigurljóð Walters úr óp. Meist-
arasöngvararnir frá Niirnberg
(ísl. texti). — Leoncavallo: Aría
úr óp. Bajazzo. Verdi: Aría úr óp.
Othello.
Eins og sjá má hér að ofan, er
söngskráin mjög fjölbreytt.
skólastjóri, skyldi eiga sæti í fram-
kvæmdanefndinni.
Stórstúkuþinginu var slitið kl.
2 á aðfaranótt þess 27. og hafði
þá staðið yfir í 5 daga.
Það er trú og von allra Templ-
ara og sjálfsagt allra bindindis-
vina landsins að starfsár það, er
Ennfremur var samþykt að fyrver-
andi Stórtemplar, Sigurður Jónsson