Dagur - 11.07.1929, Síða 3
29. tbl.
DAGUR
115
okkar þannig glímd er án efa
»heimsins fegursta glíma« og þeir
sem halda að íslenzkri glímu fylgi
jafnan þjösnaskapur og meiðsli,
hefðu átt að sjá þessa glímu. Man
eg ekki eftir að hafa nokkru sinni
séð jafnmarga glímumenn í senn
glíma jafn-vel, enda voru þarna
landsins beztu glímumenn, t. d.
Sigurður Thorarensen, glímu-
kóngur íslands og Jörgen Þor-
bergsson, sem frægur er orðinn
fyrir snarpa, svipfagra og
drengilega glímu. Bændaglíman
var hin fegursta. Rann þó sumum
sveinanna kapp í kinn, en eigi
sást það á brögðum þeirra né
vörnum. Er það án efa bezt glímd
bændaglíma, sem eg hefi séð.
Það er í ráði að þessi íþrótta-
mannaflokkur fari til Þýzkalands
í sumar og sýni þar listir sínar.
Veit eg að þeir verða landi og
þjóð til sóma og bera orðstír ís-
lenzku glímunnar víða.
ÞÖkk fyrir komuna hingað, Ár-
menningar! Komið heim aftur
heilir og frægir í haust!
M. P.
Síms keyti.
(Þrá Fréttastofu íslands).
Rvík 9. júlí.
Nýr hreyfill hefir verið settur
í flugu Ahrenbergs; er hann nú
ferðbúinn, en fer þó sennilega
ekki af stað 1 dag, þar sem flug-
veður er ekki sem best yfir Græn-
landi.
Frá Cramer hefir ekkert áreið-
anlegt frétst; sennilega er hann
enn í Canada vegna illviðra norð-
ur þar.
Súlan fór af stað héðan kl. 4/2
síðdegis um fsafjörð til Akureyr-
ar og fer þaðan til Austfjarða á
morgun samkvæmt áætlun; vænt-
anleg til baka á fimtudag.
Forsætisráðherra kom með
Lyra úr utanlandsför sinni.
Vegna sjúkdóms síns hefir hann
tæplega fótavist þessa viku.
Útflutt í júní fyrir 3.524.450
kr.; alls nemur útflutningur til 1.
júlí 21.540.660 kr. Fiskbirgðir
207.420 skp. 1. júlí Aflinn.á sama
tíma 329.262 skp.
Meðalkaupgjald kaupamanna á
Suðurlandi verður sennilega 40
kr. um vikuna, en kaupgjald
kvenna 23 kr.
óðinn tók þýzkan togara 3. þ.
m. og fór með hann til Vestmeyja.
Sekt kr. 12.500 og afli og veiðar-
færi upptækt. — Togarinn hefir
áfrýjað dómnum.
Fréttir.
Dánardær/ur. Hinn 2. þ. m. andaðist
Jón Jónsson frá Drangsnesi að heimili
dóttur sinnar og tengdasonar, Jóns
Kristjánssonar útgerðannanns hér í
bæ. Hann var grandvar maður, greind-
ur og vel að sér og fékst fyrrum mikið
við kenslustörf. Hann var kominn fast
að áttræðu. Jarðarför hans fer fram á
morgun.
Vatnsveita bxjarins. Samþykt var á
bæjarstjórnarfundi 5. þ. m. að bygg.ja
nú þegar vatnsgeymi ofan við Glerá, er
rúrni 500 teningsm. vatns. Er þetta
gert samkvæmt tillögu Árna Pálssonar
verkfræðings. Á vatnsgeymir þessi að
bæta úr vatnsskorti þeim, er gert hefir
vart við sig að undanförnu. Verkið er
áætlað að kosti 17 þús. kr.
Rafveitan. Á sama fundi var sam-
þykt tillaga frá rafmagnsnefnd um
kaup á hráolíuvél til hjálpar við raf-
veituna og nefndinni heimilað að verja
alt að 40 þús. kr. til kaupa á slíkri vél
og annars kostnaðar í sambandi við
uppsetningu hennar.
Barnaskólabyggingin. Húsameistari
ríkisins hefir áætlað kostnað við barna-
skólabygginguna hér, umfram tilboð
þau sem fyrir liggja, á þessa leið:
Hitastöð, vatns- og skolpleiðslur, á-
samt salernum og þvotta-
skálum kr. 12.000
Rafleiðslur án lampa — 2.500
Málning — 8.000
Samtals kr. 22.500
Auk þess áætlar fjárhagsnefndin
fyrir launum umsjónarmanns og öðrum
aukakostnaði um 10.000 kr.
Handbært fé til byggingarinnar er á
þessu ári:
Lán frá Bikuben kr. 113.000
Byggingarsjóður — 36.900
Framlag bæjarsjóðs í ár — 20.000
Vextir á þessu ári — 1.100
Brezkwr vararxðismaður var 20. f.
m. skipaður herra Arthur Gook í stað
Ragnars sál. Ólafssonar.
Súlan kom ekki hingað fyr en um há-
degi í gær; tafðist á Húnaflóa vegna
þoku. Ákveðið er, að hún leggi upp í
póstferðir frá Reykjavík á hverjum
þriðjudegi, norður og austur um land.
Slysfarir. Bam datt út af bryggju í
Ólafsfirði og druknaði. Ósyndur maður
gerði tilraun til að bjarga baminu, en
druknaði einnig.'
Knatt.spymu milii Færeyinga og Vals
í Rpykjavík á mánudagskvöldið lauk
svo, að Valur gerði 4 mörk gegn einu.
»Arcadadia«, enskt ferðamannaskip,
kom hingað í morgun. Á skipinu eru
350 manns.
Samtals kr. 171.000
Fyrir síðasta bæjarstjórnarfundi
lágu tvö tilboð í bygginguna samkvæmt
útboðslýsingu og teikningu, annað frá
Jóni Guðmundssyni og Einari Jóhanns-
syni að upphæð 186 þús. kr., hitt frá
Eggert Melstað og Guðmundi ólafssyni
að upphæð 179 þús. kr. Trygging var
fyrir höndum af beggja hálfu, 10% af
tilboðsupphæðinni. — Samþykt var með
6 atkvæðum gegn 5 að taka hærra til-
boðinu. — Þeir eru ekki svo sparir á
aurunum.
Á Ytri-Bægisá hefir verið opnuð 3.
flokks símastöð auk þeirra, er getið var
í síðasta blaði; láðist að geta þess þá.
Sláttur er í byrjun hér um sveitir.
Grasspretta víðast orðin sæmileg. Sum
tún hér á Akureyri þegar slegin og
jafnvel hirt.
Hjónaband: Ungfrú Guðbjörg Helga-
dóttir hjúkrunarkona og Jón Sigurðs-
son myndasmiður frá Dagverðareyri.
Samkoma var haldin á Möðruvöllum
í Hörgárdal 30. júní sl. til minningar
um 100 ára afmæli Friðriks Jónssonar
á Ytri-Bakka og Hansínu konu hans.
Fyrir minningarathöfn þessari stóð
ungfrú Anna, dóttir Friðriks sál.
Margt manna var saman komið við
þetta tækifæri.
Á víðavangi.
Vakri-Skjóni og Íhalds-Brunka.
Flestir munu kannast við þá fyndni
síra Jóns Þorlákssonar á Bægisá, að
láta væntanlegan reiðskjóta sinn heita
Vakra-Skjóna, og það jafnvel þótt
reiðskjótinn yrði brún meri.
Vakri-Skjóni hann skal heita,
honum skal jeg nafnið veita,
þó að meri það sé brún!
Svo kvað síra Jón endur fyrir
löngu,
Þessi fyndni hefir nú endurtekið
sig. Eins og kunnugt er, hefir stjórn-
málaflokkur sá, er kent hefir sig við
íhald að undanförnu, tekið sér nýtt
nafn og kallar sig nú Sjálfstæðis-
flokk. Telur hann það nafn veglegra
og líklegra til að láta betur í eyr-
um landsmanna. Jón Porláksson
hinn yngri & Co. þykist nú hafa
fengið sér nýjan pólitiskan reið-
skjóta, og það á svo sem ekki að
vera nein brún íhaldsbykkja, heldur
bráðólmur sjálfstæðisfákur, regluleg-
urVakri Skjóni. Á þessum nýjagamm
sínum þeytast nú uppgjafa ihalds-
menn um landið, berja óspart fóta-
stokkinn og bera sig borginmann-
lega. Olöggskygnir menn þykjast
samt sjá, að hér sé enginn Vakri-
Skjóni á ferðinni, enginn nýr gæð
ingur, heldur bara hún g a m 1 a
Íhalds-Brunka, sett nokkrum
krítarklessum, til þess að villa
mönnum sýn, að sið óhlutvandra
hestaprangara.
Nú margmenna forkólfar íhalds-
flokksins á gömlu Brunku; Sig.
Eggerz hefir forsætið, þ. e. situr
fremstur, með breiðu brosi, og svo
hver af öðrum; aftur á Iend húka
ritstjórar íhaldsblaðanna, allir, nema
Jón Björnsson og Jóhannes Stefáns-
son Birkiland; þeir hanga í stertin-
um á Brunku, og þykir hvað öðru
vel hæfa, taglið og taglhnýtingarnin
Allur þessi söfnuður kveður við ein-
um rómi: Vakri-Skjóni hann skal heita.
Síldareinkasalan.
Róstur nokkrar hafa að undan.
förnu átt sér stað i sambandi við
einn af framkvæmdastjórum Einka-
sölunnar, Einar Olgeirsson. Útgerð-
armenn hér í bæ, 9 að tölu, lögðu
fyrir útflutningsnefnd áskorun um
að segja Einari upp starfa sinum
við Síldareinkasöluna, þar sem þeir
telja, að hann hafi stórkostlega van-.
rækt starf sitt i þjónustu hennar.
Um þetta atriði farast »ísl.« svo
orð 5. þ. m.
»Meðan E. O. hefir verið hér
heima og unnið að pólitískri starf-
semi, í stað þess að vinna skylduverk
sín í útlöndum, hefir hver markað
Sportföt.
Sportbuxur.
Sporthúfur.
Sportsokkar.
Sportskyrtur.
Bakpokar,
mjög ódýrt.
Ennfremur
vinnubuxur og
milliskyrtur
með gjafverði í
Páll Sigurgeirsson.
urinn eftir annan gengið úr greip-
um íslendinga, er þeir þó áður
höfðu hald á. Þannig hafa Norð-
menn náð þeim kryddsíldarsambönd-
um er Einkasalan hafði í fyrra og
selt þeim alla þá síld, er þau vilja —
20—30 þúsund tunnur; — ogfinsku
kaupendurna (kaupendunum mun
það eiga að vera) að sykursöltuðu
síldinni, sem unnust í fyrra, hafa
Norðmenn aftur náð til sín. Getur
þetta aðeins stafað af því, að sá
maðurinn, sem átti að vera vöku-
maður Einkasölunnar á þessum slóð-
um — E. O. — var ekki á verði.«
Pessu svarar E. O. svo í »Verka-
manninum« 6. þ. m.:
»Staðhæfingar »ísl.« skulu nú
hraktar lið fyrir lið:
1. Einkasalan er nú þegar búin
að selja meira af krydd- og sykur-
síld til Svíþjóðar en búið var í fyrra
um þetta leyti, svo þar er enginn
markaður tapaður.
2. Einkasalan er búin að tryggja
sölu til Finnlands á meiri sykur-
síld en gert var í fyrra í júlílok,
þrátt fyrir erfiðari aðstöðu sök-
um tollundanþágu í Finnlandi fyrir
finska síidarkaupmenn.
3. Einkasalan hefir þegar gert
samning um forsölu til Pýskalands
á 4 sinnum meira af síld en gert
var í fyrra og með mun betra verði
— og auk þess undirbúið sölu til
Ameríku.
Staðhæfingar »ísl.« eru því til-
hæfulausar blekkingar, sagðar gegn
betri vitund, til þess að sverta
Einkasöluna og forstjóra hennar.
Pær eru hér með fallnar, grund-
völlur »ísl.« fyrir ákæru nímenning-
anna horfinn — og ekkert eftir
nema hinar pólitísku sakir«.
Einar Olgeirsson fór utan með
Brúarfossi um síðustu helgi í erind-
um Einkasölunnar og býst við að
verða utan fram á haust.
Amóyt' Sigurjónsson skólastjóri á
Laugum er staddur hér í bænum og
starfar að undirbúningi á útkomu Árs-
rits Laugaskóla.
Mikið efni verður að bíða næsta blaðs
vegna þrengsla.
Island er væntanlegt hingað kl. 7 til
8 í kvöld. .f
Pétur Jónsson óperusöngvari syngur
í Samkomuhúsinu kl. 9 í kvöld.