Dagur - 03.04.1930, Blaðsíða 2
62
DSGTJK
16 tbl.
Viðskiftaraenn vorir eru hér með
mintir á, að eins og venja er til verða
sölubúðir vorar og skrifstofur, lokaðar
meðan stendur á aðalfundi dagana 14,
15. og 16. þ. m.
Kaupfélag Eyfirðinga.
sijóra K. E. A., féll það niður, og
engin tillaga kom fram um þetta.
F»að var því ekki »reynt að fá það
samþykt að kaupendur væru látnir
borga heimflutninginnc. Pað atriði
er líka rangt hjá >bæjarbúa<.
Að lokum þetta:
Treysti ritarar »Verkamannsins<
sér ekki til að afla hugmynd sinni
um stofnun kúabús fyrir bæinn
fylgis, án þess að segja ósatt um
það, sem fram fer á ársfundum
Mjólkursamlags K. E, A, þá sýnist
þetta áhugamál þeirra vera í miklu
óefni þegar í byrjun.
Fundarmaöur.
-----o——
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu íslands.)
Myndastofan
Oránufélagsgötu 22 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
og tæpast snert á verki utanbæjar:
»því þann dag skal helgan halda,
þá einu sinni að bróðir minn heim-
sækir mig« sagði fóstri minn. Man
eg, að vinnumenn stungu saman
nefjum og kváðu þann gamla mundu
feigan vera. En hann lifði lengi
eftir þetta og var óvenjulegur bjarg-
vættur með hey næsta vor.« Við
verðum að fara að eitthvað líkt
þessu. Ekki þarf að kvíða því, að
við verðum að jafnaði troðin um
tær af gestum, vegna þúsund ára
minninga, og af því gestir þessir
koma ekki á óvart, þá sæmir eigi
að vera óviðbúinn, og af því búið
er að segja okkur til hlutverksins,
þá sæmir ekki annað en leysa það
af hendi af ítrasta megni og af því
að forystugarparnir hafa þegar reist
merkið, og bera það áleiðis, þá
sæmír ekki annað en að skipa sér
undir það og veita þeim brautar-
gengi: bóndinn og fólk hans frá
samantektinni, ef svo vill verkast,
þótt það kunni að fá ofan í flekk-
inn fyrir bragðið. Og konan frá
stónni, þó að grauturinn verði
sangur og brauðið brent, þegar
sezt er að snæðingi, að öllu búnu.
Hvað svo sem óumflýjanlegum
önnum og störfum líður, þá verður
að hafa þetta hugfast: Sýningin, og
sýningarnar eru ákveðnar í ár og
aú ári, og það er ætlast til að ís-
lenzk — norðlenzk — Þingeysk al-
þýða leggi til þeirra drjúgan skerf.
Undan þeirri kröfu verður ekki
komist nema til þess að líða skip-
brot á sæmd sinni. Par stoða eng-
in kvein og engar harmatölur. Úr
því við vorum svo heppin — eða
óheppin — að lifa þessa miklu
stórhátíð, eða aðfangadag hennar,
þá verður að taka afleiðingunum.
Frá því er ekkert undanfæri, nema
að bjarga sér á flótta eða gera verk-
fall eins og hver annar óvalinn þorp-
aralýður. »Ættlandið vonar að hver
maður geri skyldu sína.« Pað hið
fræga orðtak, er enn í gildi. Almenn-
ingsheill eræðri einkahagsmununum.
halda verður á lofti sóma landsins
út og upp á við, þegar svo stendur
á sem hér, pótl í einhverju verði á-
fátt heima fyrir, |. U,
Einhver »bæjarbúi< fræðir lesend-
ur »Verkamannsins« á þessa leið:
»Vissa er fyrir, að hækkun mjólkurverðs
bænum er í aðsigi, ef ekki eru gerðar
tryggar og öflugar rár^stafanir til
að hindra það.« Að því er »bæjar-
búa« segist frá, byggist þessi
»vissa< um hækkun mjólkurverðs-
ins á því að »sagt er að á nýlega
höldnum aðalfundi Mjólkursamlags
K. E. A., hafi komið fram tillaga
um að hækka nú þegar verð á
mjólk samlagsins upp i 40 aura
literinn. Hafi mál þetta haft svo
mikið fylgi á fundinum, að nærri
hafi legið að hækkunin yrði knúin
í gegn. Og þegar það fékst ekki,
var reynt að fá það samþykt, að
kaupendur, sem mjólkin er nú flutt
heim til í bílum samlagsins, væru
látnir borga heimflutninginn.< Og
enn bætir »bæjarbúi< við: »Það
því engum vafa undirorpið, að verð
samlagsmjólkurinnar verður hækkað
við fyrsta tækifæri, ef samtök bæj-
arbúa verða ekki svo sterk, að þau
geti haldið því niðri.«
Svo mörg eru þessi orð.
Eg vil nú í allri vinsemd benda
þessum fræðara »Verkamannsins« á
það, að þó eitthvað heyrist »sagt«,
þá er oft engin »vissa« fyrir, að
það sé satt. Og því er nú svo háttað
með þessa frásögn »bæjarb.« að
hún er tómt SlÚfllir. Að vísu kom
fram tillaga á ársfundi samlagsins,
sem skilja mátti á þá leið, að í
henni fælist ósk um hækkað út-
söluverð mjólkur, en sú tillaga fékk
ekki betri byr fundarmanna en það,
að flutningsmaður hennar sá þann
kost vænstan að taka hana aftur,
svo hún komst aldrei undir atkvæði
fundarins. Skýtur því frásögn »bæj-
arbúa<, sem «egir, »að nærri hafi
legið að hækkunin yrði knúin í
gegn«, nokkuð skökku við sann-
leikanum, þar sem honum er alveg
snúið við.
Um borgun kaupenda á heim-
flutningi mjólkurinnar, sem »bæjarb.«
ræðir um, er það að segja, að fyrir-
spurn kom fram á fundinum um
það, hvort engin leið væri til þess
að minka reksturskostnað samlags-
ins, svo sem með því að mjólkur-
kaupendur væru látnir sækja mjólkina
í samlagið. En eftir að það mál
hafði verið skýrt af framkvæmdar-
Rvík 1. apríl.
Ounnar Sig. ber fram þingsályktun
um lækkun vaxta. Landbúnaðarnefnd
neðri deildar flytur frumvarp um
matá kjðti. Jörundur flytur lagabálk
um lax- og silungsveiði. Porleifur
flytur frv. um túnyrkju í Nesjum í
Hornafirði. Breyting á slysatrygg-
ingarlögunum er afgreidd sem lög.
Eldhúsumræðum vat ekki lokið i
gærdag.
Óðinn fann í gærmorgun vélbát-
inn Snarfara, sem vantaði siðan á
miðvikudag og var talinn af; fann
varðskipið bátinn 30 sjómilur undan
Reykjanesi og flutti hann til Sand-
gerðis.
Rrjú lík hefir rekið af Ernestine,
er strandaði á Selvogi. Strandmenn-
irnir eru komnir hingað.
Aflabrögð botnvörpunga eru í
bezta lagi. Verðlag á fiski i marz
hefir ekki lækkað svo nokkru nemi.
Sumir ætla, að afli i marz verði
meiri en dæmi eru til áður.—Fyrsti
frystifarmur frá sænsk-íslenzka félag-
inu fer út nú i vikunni.
Svokallað »kynferðismál« hér er
eitthvert ljótasta mál, sem fyrir hefir
komið hér. Samkvæmt skýrslu lög-
reglustjóra virðast tildrög þess vera
sem hér segir:
Karlmaður 53 ára að aldri lokkar
til sín telpukrakka síðastl. sumar og
hefir mök við barnið, sem síðan
venur komur sínar til mannsins,
ásamt tveimur öðrum telpum, sem
hún fékk með sér, og þá fjórðu
einu sinni. Prjár af telpunum eru
nú orðnar 11 ára, en ein þeirra 13 ára^
Ein þeirra hefir síðan orðið fyrir
hinu sama af öðrum karlmönnumj
sem eru 30, 35 og 61 árs aðaldri.
Tvær telpurnar hafa síðan tekið að
bjóða sig fyrir peninga og haft mök
við 5 unglinga á aldrinum 14—16
ára. Á milli allra þessara manna er
ekkert samband. Prjár af telpunum
eru smitaðar af kynsjúkdómi. Allir
h:4jir fullorðnu karlmenn, sem við
málið eru- riðnir, eru geymdir f
fangahúsinu. Málið er enn undir
rannsókn. Lögreglustjóri segir, að
of snemt sé að gefa skýrslu um,
hverjar endanlegar ráðstafanir verði
gerðar { þessu alvarlega máli, en
það verði gert opinberlega, sam-
stundis og rannsókn sé full lokið
og hinir seku fengið sinn dóm.
Vestmannaeyjum: Ægir tók þýzk-
an togara í landhelgi. Hlaut hann
12.500 kr. sekt og alt gert upptækt.
Dðmnum hefir verið áfrýjað.
Dublin: Búist er við að De Val-
era myndi stjórn.
Berlín: Briining hefir rnyndað
stjórn.
Varsjá: Slavek hefir myndað
stjórn.
Oslo: Norsk Hydro hefir ákveðið
að auka hlutafé sitt upp í 100
miljónir úr liðlega 70 miljónum.
o
og blástakkar hans.
Nýja Bíó byrjar að sýna núna
um helgina hina stórfeldu kvik-
mynd með ofanskráðu nafni, sem
talin er einhver allra frægasta
sænsk kvikmynd sem framleidd
hefir verið og komið á markaðinn
á síðustu tímum. Er hún í tveim-
ur köflum og eru 11 þættir í hin-
um fyrri kaflanum, en 7 í hmum
síðari.
Gefur myndin, K A R L XII,
útsýn yfir eitthvert glæsílegasta
tímabilið í sögu Svíaríkis og færir
fram á sjónarsviðið mörg af stór-
mennum sögunnar, svo sem Karl
XI., Pétur Zar hinn mikla, Rússa-
keisara, Ágúst Pólverjakonung,
hina fögru Auroru Königsmark,
fjölskylduna Ulfstann á Bergás
og fleiri sögulegar persónur,
sem veraldarsagan segir frá og
Sögur herlæknisins sýna þó allra
bezt og í skýrustu ljósi. Fyrri
kafli myndarinnar byrjar 1697, er
Karl ellefti deyr og konungshöll-
in í Stokkhólmi brann, en ríkis-
erfinginn, Karl XII., tekur við
stjórnartaumum, þá ungur og ó-
ráðin gáta. Sýnir myndin síðan
hinn viðburðaríka lífsferil hans og
sigra, — frá skrautinu í hirðsöl-
unum — viðskiftum við hina
fögru Auroru Königsmark, lífinu
í sænsku herbúðunum, orustuvöll-
unumi og þátttöku hans í hinum
heimsfrægu orustum, sem verald-
arsagan greinir frá. Ennfremur
sýnir myndin gullfallegt landslag,
herragarða og bóndabýli og er
víða yndisleg æfintýri, sem gera
myndina óumræðilega skemtilega.
ANNAR KAFLINN sýnir bar-
dagann við Pultava — fangelsis-
vistina í Tyrklandi — heimferð og
umsátrið um Fredrikssten og að
síðustu dauða Karls XII. og útför
hans. Er sagt að þessi hluti mynd-
arinnar taki hinum fyrri fram
bæði að leik og efni.
Frægir leikarar einir fara með
aðalhlutverkin, svo sem Gösta Ek-
man, sem leikur Karl XII, og þyk-
ir hafa með afbrigðum vel náð
persónuleik hans og framgöngu
svo sem bezt má verða. Pétur zar
leikur Rússinn Nicolai Levesky
og er leik hans jafnað við karak-
terleik Emil Jcmnings í svipuðum
hlutverkum. Mona Mortensen,
einhver frægasta sænska leikkon--
an leikur önnu Ulfstann og Pau-
line Brunius hina fögru Auroru
Königsmark.