Dagur - 07.08.1930, Síða 4
162
Dj&QUB
46. tbl.
S ims key ti.
(Frá FB.)
Rvík, 4. ágúst.
Flugmennirnir Hirth og Weller
hættu við að fljúga lengra en hing-
að. Peir segja, að danska steinolíu-
félagið hafi brugðist sér; það hafi
lofað að senda hingað létt flugvéla-
benzfn, en það sé enn ekki komið.
Ennfremur hafi þeir fengið skakkar
og villandi upplýsingar frá danska
flugfélaginu og Orænlandsverzlun-
inni um lendingarstaði á Orænlandi,
og að þeir hafi fyrst komíst að því
hér, að þeir geti ekki lent í Juli-
enehaab, sem ráðgert hafi verið. —
Hirth fer til Ameríku í kvöld með
skipinu Minnedosa, sem flytur
Vestur-Islendinga á vegum Pjóð-
ræknisfélagsins vestur um haf, en
Weller fer til Danmerkur nú í vik-
unni.
Rvik, 5. ágúst.
Atvinnumálaráðherra hefir skipað
nefnd, er undirbúi löggjöf til al-
þýðutryggingar. Nefndina skipa Ás-
geir Ásgeirsson, Haraldur Ouð-
mundsson og Jakob Möller. — At-
vinnumálaráðuneytið hefir ennfrem-
ur skipað raforkumálanefnd, til að
gera tillögur til löggjafar um raf
orkuveitur. Nefnd þessa skipa Ein-
ar Árnason ráðherra, Oeir Zoega
vegamálastjóri, Steingrímur Jónsson
rafmagnsstjóri, Jakob Gíslason verk-
fræðingur, Jón Porláksson verkfræð-
ingur, Sigurður Kristinsson forstj.
og Sigurður Jónasson lögfræðingur.
Steingrímur Jónsson vinnumað-
ur á Breiðabólstað á Síðu druknaði
30. júli í Hvalsýki; var hann þar
við 3ja mann að selveiði.
Mánaðarhitar í Bandaríkjunum
hafa valdið 500 milj. dollara upp
skerutjónii Sextíu manns hafa beð-
ið bana í Chicago og þar í grend
undanfarna daga. Hitinn sumstaðar
45 stig á Celsíus.
------o-----
Frá Indlandi.
(Bréf frá Gandhi). Nl.
Eg veit að þér notið ekki laun yðar,
og senniiega gefið þér þau til síð-
asta eyris til guðsþakka. En það
verður að gjöreyða skipulagi, sem
felur í sér möguleika slíks voðalegs
misræmis. — Og það, sem hér hefir
verið sagt um landsstjóralaunin, á
við um alt stjórnarfarið. Ef unt á
að vera að koma fram skattalækkun
svo nokkru nemi, verður að þrýsta
niður kostnaðinum við alla stjórn
landsins. En til þess verður fyrst
og fremst að breyta stjórnarfarinu.
En það er ómögulegt án sjálfstæðis.
Tilkynningin frá 26. janúar, sem
gefin var út af hundruðum þúsunda
indverskra alþýðumanna, er að því
er mér virðist, bygð á þeirri sann-
færingu. Pér skiljið að í augum þessa
fólks þýðir sjálfstæði, lausn undan
óbærilegri byrði.
En mér virðist enginn af stærri
stjórnmálafiokkum Englands við því
búinn, né fús til þess að létta ráns-
hendinni af Indlandi, þrátt fyrir ein-
róma andstöðu almenningsálitsins í
Indlandi. Bretiand mun verja verzl-
un sína og aðra hagsmuni með öll-
um þeim ráðum, er auði og vaidi
standa til boða. Indíand verður þvi
að safna svo mikilli orku, að það
geti losað sig úr þessum banvænu
faðmlögum|.
Pað er opinbert leyndarmál, að
flokkur sá, er beita vili ofbeldi, vex
nú dagvöxtum hér í landi þótt enn
kunni hanri að sýnast lítt skipu-
lagður og lítiis megnugur. Takmark
hans er hið sama og takmark mitt.
En það er óbifanleg sannfæring
mín, að þeir megni ekki að færa
hinum mállausu miljónum hina lang-
þráðu hjálp, og framar en nokkru
sinni fyr er eg þess fullviss að of-
beldisleysið eitt, fái unnið bug á
skipulögðu ofbeldi brezkra stjórnar-
valda. Reynsla min, svo takmörkuð,
sem hún vafalaust er, hefir sannað,
að i ofbeldisleysinu getur falizt und-
ursamleg orka. Pað er ætlan mín
að beita þessari orku jafnhliða gegn
ofbeldi brezkra stjórnarvalda og ó-
skipulögðum kröftum hins vaxandi
flokks, er beita vill ofbeldi. Að haf-
ast ekkert að myndi vera hið sama,
sem að leggja í hendur þessara
beggja hver verður framtíð Indlands.
En þar sem eg trúi óbifanlega á
máttofbeldisleysisins, væri það synd
af mér að bíða lengur. Ofbeldisleysi
mitt mun verða í því fólgið, að
neita að hlýðnast fyrirmælum enskra
yfirvalda né aðstoða þau í neinu,
án þess að leggja hendur á neinn
eða bera hönd fyrir höfuð sér. Heima-
menn mínir munu byrja ásamt mér,
en þessi hreyfing á að breiðast út
um alt landið, til allra þeirra, sem
vilja hniga til liðs við mig, að sam-
vizkusamlega athuguðu máli.
Og svo mikill er metnaður minn,
að með ofbeldisleysinu hygst eg
munu sannfæra ensku þjóðina um
ranglæti það, er hún hefir beitt Ind-
verja. Eg vil ekki gera þjóð yðar
neitt ilt. Mér er jafn ant um að
þjóna henni sem minni eigin. Og
eg hefi altaf þjónað henni, — að
vísu i bl ndni þangað til 1919. En
jafnvel eftir að augu mín höfðu
opnast og eg hafði komið á stað
þeirri þjóðhreyfingu að vinna ekki
með yður að neinu máli, var það
ætlan mín að þjóna henni. Og ef
svo fer, sem eg ætla, að menn snú-
ist til fylgis við stefnu mína, þá
munu þjáningar og ofsóknir þær,
sem þeir verða að líða, stinga sam-
vizku alls mannkynsins eins og stál-
broddar, áður en enska þjóðin tek-
ur að bæta fyrir brot sín við oss.
Eg skora virðingarfylst á yður að
greiða fyrir því, að bætt verði úr
ranglæti því og hörmungum, sem
eg hefi minst á, og jafnframt að
stuðla að því, að komið verði á ráð-
stefnu milli Indverja og Englend-
inga, er hvorirtveggja sé jafnréttháir
um tillögur og ályktanir og hafi
það eitt markmið að finna hið rétta
og skapa skilyrði til þess að koma
því í framkvæmd.
En ef þér komið ekki auga á nein
ráð, eða yður þykir efni þessa bréfs
að engu hafandi, legg eg af stað
hinn 11. þ, m. ásamt aðstoðarmönn-
Um mínum tíl þess að reisa menn
til mótþróa við saltskattinn og salt-
einokunina. Af öllum sköttum álít
eg fátækum mönnum þenna óbæri-
legastan. Og þar sem sjálfstæðis-
hreyfingin á fyrst og fremst að
ALFA-LAVAL 1878-1928.
í 50 ár hafa ALFA-LAVAL skilvindur verið beztu oggvönd-
uðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA-LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotið yfir 1300 heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir það
að A L F A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum.
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar til
mjólkurvinslu, kaupa hiklaust Alfa-Laval mjaltavélar, skilvindur,
strokka, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband isl. samvinnufélaga.
Bifreiðagúmmí.
Dunlop-risadekk.
VERÐLÆKKUN.
Dekk á vörubíla 32x6 sverasta gerð kr. 205.00
— - — 30x5 — — — 130.00
— - fólksbíla 30x4.50 — — — 60.00
— - — 29x5 — — — 65.00
— - — 29x4.75 — — — 59.00
— - — 29x4.50 — — — 58.00
Slöngur, þykkar, rauðar 32x6 kr. 18.00
— — — 30x5 — 14,00
— — — 30x4.50 — 7.50
— — — 29x4.40 — 7.50
— — — 29x4.75 — 7.50
— - — 29x5 — 8.25
Páum innan skamms ódýrari gerðir.
Kaupfélag Eyfirðinga.
að koma hinum snauðu í landinu
til aðstoðar, ætla eg að byrja á því
að berjast við þetta böl. Pað meiga
undur heita, að vér höfum þolað
það svo lengi. Eg veit að yður er
innan handar að verða mér fyrri til
og láta taka mig fastan. Jæja, ef til
þess kemur, vona eg, að í stað mín
standi tugir þúsunda reiðubúnir til
þess að taka upp á skipulegan hátt
baráttuna fyrir óhlýðni gegn skatt-
lögunum og taki fúsir á sig allar
þær refsingar, sem þessi lög, sem
hafa verið smánarblettur á stjórnar-
fari voru, léggja við afbrotum gegn
þeim.
Pað er ætlan mfn að baka yður
svo lítil óþægindi, sem mér verður
framast auðið. Kærast væri mér að
þau yrðu engin. Ef yður vírðist þetta
bréf mitt að einhverju hafandi, og
kynnnð að óska að ræða við mig
um málið og þar af leiðandi að
frestað yrði birtingu þessa bréfs, bið
eg yður að senda mér símskeyti.
Og viljið þér ekki gjöra eina tilraun,
áður en það er um seinan, jafnvel
þótt þér sjáið engin úrræði við þvi
er um getur f bréfi mínu. Petta er
enganveginn sagt sem hótun, heldur
fylli eg með því einfalda óg heilaga
skyldu, áður en eg sný við blaðinu
og hef að óhlýðnast borgaralegum
lögum. Og fyrir því læt eg ungan,
enskan vin minn færa yður þetta
bréf. Hann ann málstað Indlands
og trúir á sigur ofbeldisleysisins,
og forsjónin virðist hafa sent mér
hann til þess að gegna þessu mikil-
væga erindi.
Yðar einfægur
M. X. Gandhi.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 5.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Aðalstræti 16.
Prentsmiðja Odds Björnsaonar.