Dagur - 18.12.1930, Síða 2
242
ITAGUE
66. tbl.
gllffflflffllfffffffflffg
Saumavélar
af ýmsum gerðum og tegundum,
Fótvélar, »Juno« og «Husqvarna«, bórð og fætur
úr eik eða ahorn, mesta stofuprýði og viður-
kendar ágætar tegundir.
Til sýnis í hornglugganum í nýja verzlunarhúsinu.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeildin.
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiE
My ndastof an
Oránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmu&sen.
Verkfall og skemiiiilarvargar.
Samband ísl. samvinnufélaga
starfrækir garnahreinsunarverk-
smiðju í Rvík. Milli 30 og 40
stúlkur hafa unnið þar að undan-
förnu, ráðnar fyrir fast mánaðar-
kaup, sem samsvarar 70 au. á
klst. Vinnan stendur yfir 5 til 6
mánuði. í síðustu viku gerðu
flestar vinnustúlkurnar verkfall
fyrir utan að komandi áhrif, og
var því borið við, að kaupið væri
undir taxta.
Á föstudagsnóttina var brotist
inn í verksmiðjuna, vatnskranar
■opnaðir til þess að eyðileggja salt,
er var í verksmiðjunni. Urðu
skemmdir svo miklar að nemur
þúsundum króna. Hafa skemmd-
arvargar bolsanna verið hér að
verki. Kom hér fram götustráka-
eðli það, er foringjar flokksins
hafa plantað í hugum félaga
sinna.
Um leið og þetta skeði, s.etti
verkamannafélagið D^gsbrún,
með Héðin Valdimarsson í
broddi fylkingar, bann á alla
vöruflutninga að og frá S. í. S.
Kom nýlega pappírssending til
Sambandsins og í öðru lagi gær-
ur með »Suðurlandi« og fékkst
hvorugt afgreitt siðast er fréttist.
Ætla yfirgangsseggirnir á þenna
hátt að hindra starfsemi Samb.
ísl. samvinnufélaga og leggja það
í rústir. Má nærri geta að keppi-
nautum S. f. S., stórkaupmönnun-
um í Reykjavík, falla þessar að-
farir vel í geð og blessa í huga sér
ofbeldistilraunir Héðius Valdi-
marssonar og fylgifiska hans.
Látin er hér á spítalanum Friðrika
Friðriksdóttir ekkja eftir Sigtrygg Sig-
urðsson, er fyrrum bjó á Úlfá og Hall-
dórsstöðum í Hólasókn. Ein af dætrum
þeirra er húsfrú Sigurlína á Æsustöð-
um í Eyjafirði.
Friðrika sál. var orðin áttræð að
aldrii
Bœkur sendar Degi.
Kallíiöir, smásögur eftir E/avíðPor-
valdsson. — Sögurnar eru 7 talsins.
í fyrra kom út eftir sama höfund
Björn formaður o. fl. sögur. Um Kal-
viði má margt gott segja, en þó er
ekki sýnileg veruleg framför frá fyrri
sögunum og er Davíð enn nokkuð
óráðin gáta sem skáldsagnahöfund-
ur. Flestar eru sögurnar daprar
yfirlitum og fjörlitlar. Fó sker ein
þeirra sig úr hinum hvað þetta
snertir. Það er »Hans bókhaldarU.
Það er langbezta sagan. í frásögn-
inni er fjör og smellin fyndni. Ætti
Davíð að temja sér að skrifa fleiri
sögur með þeim blæ, því kýmni
sýnist láta honum vel.
Beröu mig upp til skýja nefnast ellefu
æfintýri eftir hina alþekktu skáld-
konu Huldu (Unni Benediktsdóttur).
Æfintýrin eru Ijómandi falleg og vel
rituð og bæði að efni og formi sér-
lega aðlaðandi til lesturs, einkum
fyrir bðrn og unglinga. Margar
myndir prýða bókina.
Álftirnar kvaka nefnist kvæðabók eftir
Jóhannes úr Kötlum. Bókin kom
út í fyrra, en hefir nýlega verið
send blaðinu. Jóhannes er löngu
kunnur að góðu sem Ijóðskáld, og
mörg kvæðin í þessari Ijóðabók
hans íkvaka* fallega.
Landnám nefnist bók, er út kom
fyrir alllöngu, en af sérstökum
ástæðum, sem hér verða ekki
greindar, hefir farist fyrir að geta
um, en ekki er það af þeim orsök-
um að hún eigi það ekki skilið, því
hún er að ýmsu fróðleg og merki-
leg. Höfundurinn er Jón H. Þor-
bergsson bóndi á Laxamýri, einn
af helztu forgöngumönnum búnað-
arframfara hér á landi og fullur
áhuga um þau efni.
í bók sinni, Landnám, hefir Jón
safnað saman ýmsum fróðléik um
eyðibýli víðsvegar af landinu og
skýrt frá stofnun nýbýla, sem kom-
ist hafa á fót í sveitum landsins á
siðari tímum. Hvetur höfundur fast
til aukinnar ræktunar og landnáms
og kemur víða við.
Bókinni fylgja nokkrir uppdrættir
af nýbýlum eftir Jóhann Kristjáns-
son.
Allir þeir, sem unna ræktun lands-
ins og láta sig nýbýlamálið ein-
hverju skifta, ættu að lesa Landnám
Jóns H. Þorbergssonar.
Bænir. Svo að segja hvert manns-
barn á íslandi mun kannast við
prédikanasafn Haralds Nielssonar,
»Árin og eilífðin«, sem gefið var
út í tveimur heftum. í »Árfh og
eilifðin l.« fylgdu engar bænir ræð-
unum og söknuðu þess margir. Nú
hefir ekkja H. N,, frú Aðalbjörg
Sigurðardóttir, bætt úr þessu með
þvi að gefa út bænir tilheyrandi
fyrra hefti ræðusafnsins. Fann hún
handritið að bænum þessum með
einkennilegum hætti eins og skýrt
er frá í formála bókarinnar. —
Nokkrar tækifærisbænir fylgja með.
Telja má víst, að allir þeir mý-
mörgu, er bundið hafa órjúfandi
tryggð við prédikanasafnið »Árin
og eilífðin«, taki tveim höndum við
bænakveri því, er hér um ræðir.
Sem sýnishorn skal hér tilfærð
bænin:
Jólabamiö og pú.
Þú, sem öld eftir öld hefir verið
Ijós himinsins, drottinn Kristur, kom
með geisla náðar þinnar niður til
vor i dimmu jarðlífsins. Þú einn
veizt til fulls, hve náðþurfa kristni
þín er nú. Vér viljum lofa þig og
vegsama fyrir það, að þú steigst
niður úr dýrð þinni, gerðist fátækur
vot vegna, svo að vér mættum
auðgast af fátækt þinni. Það, sem
þú gafst heiminum, er enn dýrmæt-
asta eign fjölda sálna, og allar þær
sálir, sem fyrir boðskap þinn og
samfélagið við þig hafa fest trú á
gæzku guðs Og vísdóm, þær þrá
að eignast enn meira af lunderni
þínu.
Kom þú enn til vor, kom eins
og sólin kemur ylhlý til vorígeisl-
um sínum. Kom og veit oss gleði
barnsins og móttækileik barnsins,
svo að minningarhátíð fæðingar
þinnar á vora jörð verði til þess að
færa oss feti framar að takmarki
voru. Kom og veit oss frið þinn,
sem getur fyllt jafnvel hryggasta
hjartað og særðasta. Kom með
huggun þína til allra þeirra, er bera
byrðar syndar eða kvíða, sjúkdóms
eða annara erfiðleika.
Oef oss öllum, glöðum og hug-
dðprum, anda þakklátsemi og lof-
gerðar, svo að vér fáum metið
réttilega allar gjafir föður þíns og
föður vors. Lyftu hug allra þeirra,
sem hér sýna þér lotningu, að hjarta
föðurelskunnar, svo að vér fáum
gleðileg jól. Bænheyr oss sakir elsku
þinnar. Amen.
úr Kaupfélagi Eyfirð-
inga eru áreiðanlega þær
beztu, en þó ódýrastar.
Kaupið strax, því birgðir
eru takmarkaðar.
Vefnaðarvörudeildin.
dólamessur í Möðruvalla-
klaustursprestakalli.
Aðfangad. kl. 6, Möðruvðllum.
Jóladag — 12, Glæsibæ.
Sama dag — 6, Hjalteyri.
2. jóladag — 12, Möðruvöllum.
Fr éttir.
Hnifsdalsmálið. Hæstiréttur hefur
loks kveðið upp dóm í Hnífsdalsmálinu.
Hálfdan er dæmdur í 10 mán. fangels-
isvist, Egg'ert í 3. mánaða fangelsi, en
Hannes sýknaður.
Dánardxgur. Látinn er Frímann Jó-
hannesson bóndi á Gullbrekku í Saur-
bæjarhreppi. Hann var á áttræðisaldri.
Skarlatssótt hefur komið upp hér í
Menntaskólanum. Hefur veikin lagst
þungt á, og er einn nemandi, Helga
Pétursdóttir, dáinn úr veikinni. Mennta-
skólanum, Gagnfræðaskólanum og
Barnaskólanum hefur verið lokað vegna
sótthættu. Af sömu ástæðu skoraði bæj-
arstjórnarfundur á þriðjudaginn á heil-
brigðisstjórnina að banna kvikmynda-
sýningar, samkomur, kirkjuferðir og
fundahöld hér í bæ fyrst um sinn.
Pingvallaflokkur Hermanns Stefáns-
sonar sýndi fimleika o. fl. í Samkomu-
húsinu á sunnudagskvöldið og var gerð-
ur að hinn bezti rómur. Á samkomu
þessari flutti Snorri Sigfússon skóla-
stjóri stutt erindi um þýðingu leikfim-
innar og lauk miklu lofsorði og verðugu
á starf Hermanns Stefánssonar fim-
leikakennara. — Lúðrasveitin spilaði
nokkur lög.
Prentvillur nokkrar hafa slæðst inn í
síðasta blað, en þó flestar meinlausar.
Þar, sem getið var um lát Björns
Björnssonar í Hafrafellstungu, stóð
Arnarfirði, en átti að vera Axarfirði.
Dagur kemur að líkindum ekki út
aftur fyr en úr nýjári. Gert er ráð fyr-
ir að blaðið komi út einu sinni í viku,
eða 52 heil blöð yfir árið, en á þessu ári
eru komin út yfir 60 heil blöð, án þess
að verð blaðsins hafi hækkað.
Pétur Jónsson læknir fór utan með
Drottningunni síðast og dvelur utan-
lands í vetur.
Gott Ijós. Góð vinna.
Sparið ekki gott Ijós!
Ucntn Æ* mm* m mg Ah<?9ða*
pyU>xjL þxeSi bcatu/v.