Dagur


Dagur - 16.05.1931, Qupperneq 2

Dagur - 16.05.1931, Qupperneq 2
88 DAGUR 22. tbl. til þeirra beint vegna þess, að þeir voru þá að þrotum komnir vegna þeirra stórtapa, sem þeir höfðu orð- ið fyrir af vöidum útgerðar- og verzlunarmanna. Er nú vitanlegt að þetta fé og margfait meira er alger- lega tapað vegna fjárbrasks og eyðslusemi þessara tveggja stétta. Þenna mismun á meðferð þessara tveggja stóriána er mönnum hollt að festa sér i minni. -----0---- Stjórntnálaumræður. (Niðurl.) Um kjördæmaskipunina sagði J. ]., að nú hefðu jafnaðarmenn og íhaldsmenn tekið höndum saman um að breyta henni á þann vegað níðast á bændakjördæmunum. Þó Rvík hefði ekki nema 4 þingmenn beinlínis, þá væri aðgætandi að helmingur allra þingmanna væri bú- settur i Rvík, væru reykvískir þegnar. Það væri þvi engin ástæða til að óttast það að hagsmunir hennar yrðu fyrir borð bornir í þinginu. Það væri ekki Reykjavík sjálf, sem Framsóknarmenn berðust á móti, heldur hið svonefnda Reykjavíkur- vald, sem áður væri lýst; það >vald< þyrfti að laga og lækna. Öll var ræða Jónasar Jónssonar hin rökvissasta og laus við allt orðaskvaldur, sem einkenndi mjög ræður andstæðinga hans. Næstur talaði Brynjólfur Bjarna- son. Kvað hann þá engan tilverurétt eiga, sem ekki nenntu að vinna. Töldu sumir að nærri sér myndi hann höggva með þessum orðum. Siðan vóg B. B. að öllum hinum flokkunum með stóryrðum. Þegar kommúnistar kæmust til valda, fengju verkamenn vaxtalaus lán og fátækum bændum yrðu gefnar upp skuldir sínar. Kommúnistar væru hinir einu frelsarar alþýðunnar. Sig. Eggerz talaði í 15 mínútur. Afsakaði hann það, að ísiandsbanki hefði farið á hausinn undir sinni stjórn Og gaf bankanum þann vitn- isburð, að hann hefði verið vígi allrar þjóðarinnar. Síðan fór hann að tala um sjálfstæðið og Dani og varð svo grátklökkur, að lítið skild- ist af því, er hann sagði. Allt kvað hann orðið innantómt undir stjórn Framsóknar, en hið innantómasta af öllu var þó þessi ræða Sig. Eggerz. Ólafur Friðriksson fann það ráð gegn dýrtíðinni í Reykjavík að byggja þar svo mikið af húsum, að húsa- leigan félli. Svanga verkamenn kvað hann ekki hafa lyst á ódýra »Þórs- fiskinum«, af því að hann færi ekki upp i munninn á þeim eftir réttum skipulagsleiðum! 1 annað skifti er Jónas Jónsson talaði, las hann upp vottorð þau, er birt voru í síðasta blaði og af- sönnuðu fleypur Ólafs Thors um Kaupfélag Eyfirðinga. Síðan vék hann nokkuð að þingrofinu og stjórnarskrárbrotskenningu Einars Arnórssonar.sem engan óháðan lög- fræðing hefði getað fengið til styrkt- ar sínu máli. Ennfremur sýndi ræðu- maður fram á, hvernig E. A. hefði falsað tilvitnun í rit eftir KnudBer- lin. Síðan iýsti hann fjármálarógi, sem íhaldsmenn hefðu lostið upp um Framsóknarstjórnina og gekk svo frá honum að honum mun ekki skjóta upp aftur. Með fáum orðum brá J. J. einnig birtu yfir ræðu Magn. Jónssonar þetta kvöldogvakti eftir- tekt á, að hvergi hefði bólað á nokkurri framtíðarhugsjón í henni. Þá benti hann á falstilraunir M. J. í sambandi við veðsetningu toll- teknanna og að siðustu lýsti hann því, hvernig fhaldsmenn hefðu reynt að stöðva landbúnaðarmálin á þingi, á meðan þeir gátu. Er þá lokið yfirliti um stjórn- málaumræður flokkanna þessi þrjú kvöld. Það, sem sérstaklega hefir vakið eftirtekt i sveitum landsins og kaup stöðum, er hið áberandi hug- kvæmdaleysi ræðumanna íhalds- flókksins. Aðeins eitt áhugamál blasti við í ræðum fhaldsmanna; það var að fella Framsóknarstjórn frá völdum, svó að þeir gætu sjálf- ir komizt að kjötkötlunum. Allt snerist um hið liðna hjá þessum mönnum, en engin framtíóarhug- sjón á ferðinni. Auðvitað er þetta ósvikið íhaldseinkenni og þarf eng- um að koma það á óvart. Þá má ekki gleyma hinu stöðuga nöldri fhaidsmanna út af því, hve miklu fé hafi verið varið til framkvæmda og umbóta i tíð Framsóknarstjórn- arinnar. Allt það fé, sem gengið hefir til framfara í sveitum lands- ins, nefna þeir eyðsiufé. Alkunn eru orðatiltæki fhaldsmanna um að stjórnin hafi »eytt« fé til vega, brúa, síma, vita, bygginga, ræktunar, skipa- kaupa, skóla o. s. frv. Allt, sem rennur til almenningsþarfa, telja þessir menn að fari í eyðslu, til ónýtis. Kemur á þann hátt í Ijós vilji fhaidsins um að fámenn stór- laxastétt sitji að öllu fjármagninu, en allur almenningur eigi að lifa af náð hinna stóru. -----0----- «—■ K. E. a. mmmummBmmm Á hvífasunnuborðið Nýslátrað nauta- oggrísakjöt (af 5 mánaða). ^ Lambakjöt frosið — Hakkað kjöt — Hænsn — KJÖT- ^ UJ FARS — FISKIFARS — Hangikjöt — Kæfa — Skinke ^ — Pylsur — Ostar — Sardinur — Sultutau — Grænar )> Látið ekki dragast að panta sláttuvélar og aðrar heyvinnu- vélar. Valið er vandalaust því vér seljum bæði Herkúies og Deering-vélar sem hafa reynst hver annari betur. Samband ísl. samvinnufélaga. ALPA LAVAL mjólkursigti og sigtisbotnar (vattbotnar) eru ó- missandi til þess að framleiða hreina og heil- nœma mjólk. Samband 'isl. samvinnufélaga. Á viðavangi. Stjórnmálafélag Árskðgshrepps. Á öðrum stað hér í blaðinu er getið um stofnun Framsóknarfélags Arnarnesshrepps, Nú hafa borizt samskonar fréttir úr Arskógshreppi. Á sunnudaginn var héldu hreppsbúar þar stjórn- málafund og ræddu meðal annars um fjármálin og kjördæmaskipunar- málið. Treystist enginn til að mæla »Sjálfstæðinu« eða sambræðslu þess og jafnaðarmanna bót. Á uppstigningardag var síðan haldinn framhaldsfundur og var þá stofnað félag, er nefnist »Stjórn- málafélag Árskógshrepps*. Stofn- endur voru 36 og er það há tala í byrjun, þar sem hér er um lítið hreppsfélag að ræða. Ættu nú önnur hreppsfélðg í Eyjafjarðarsýslu, og víðar, ekki að verða eftirbátar Arn- arnesshrepps og Árskógshrepps um stofnun Framsóknaifélaga. Framboð. í Eyjafjarðarsýslu verða f kjöri til næstu Alþingiskosningar: Frá Framsókn, Einar Árnason og Bernharð Stefánsson. -- Frá Sjálf- stæðisflokknum (íhaldinu), Einar Jónasson oddviti í Olæsibæjarhreppi og Oarðar Þorsteinsson lögfræð- ingur í Reykjavik. — Frá Jafnaðar- mannaflokknum, Ouðmundur Skarp- héðinsson skólastjóri á Siglufirði óg Halldór Friðjónsson á Akureyri. — Frá kommúnistaflokknum, Elísa- bet Eiríksdóttir kennslukona á Ak- ureyri og Steingrímur Aðalsteins- son í Glerárþorpi. Þingmálafundir í kjördæminu hefj- ast upp úr hvítasunnunni (sjá aug- lýsingu í síðasta blaði). Mótmæli Ihaldsmanna. Ný fregn úr Reykjavík hermir, að þeir fáu ihaldsmenn, sem til eru f Eyjafjarðarsýslu, hafi sent Magnúsi Ouðmundssyni mótmæli gegn þvf, að Qarðar Þorsteinsson yrði fram- bjóðandi í því kjördæmi, en Magn- ús svarað um hæl, að það væri al- veg sama hverja fhaldið byði þar imgsmmKEA mammm | Kjöt-ogfiskifas I ® fæst alla ™ ^ virka daga. fram, því að þeir væru aliir jafnt vígðir ósigrinum og væri þvi ó- nauðsynlegt að vanda val þeirra, bara til að falla við sáralítið fylgi. En ætli hið sama eigi sér ekki stað með fylgi Ihaldsins í flestum eða öllum öðrum sveitakjördæm- um landsins? , Ritstjóri: Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 5. Ak. Prentsmiðja Odds Bjömawnar. 19*1

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.