Dagur - 06.06.1931, Blaðsíða 2

Dagur - 06.06.1931, Blaðsíða 2
112 DAGUR 29. tbl. KBHHIHHHIHWIfflfB | Sparið yður | p® verk og efni við húsa og verkstæðis- S£ smíðar með því að kaupa og nota fgj KROSSVIÐ og MASONIT. i§« v^rðtilboð og upplýsingar fúslega U* látnar í té. — Pantanir af- greiddar um land allt. »2 Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeildin. My ndastof an Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kl. 10 — ö. Guðr. Funch-Rasmussen. Brot úr m Alpinyis. Rœktunarsjóðslögin. Um hið sama segir J. Þ. út af ummælum Jóns Bald. um mótbár- ur Landsbankans: »Eg verð að segja, að mér þykir háttv. þm. hneigja sig fulldjúpt fyrir stjórn Landsbankans, þegar hann vill vísa þessu máli frá, vegna þess að bankastjórarnir eru honum ekki sammála um þetta atriði«. Kennir hér heldur en ekki ó- samræmis í kenningum íhalds- manna um skyldur Landsbankans. Tillögur nefndarinnar voru all- ar samþykktar, en br.till. Tr. Þ., þær sem aðallega skiptu máli, voru felldar, svo sem að vaxtabréf Ræktunarsjóðs skuli skattfrjáls og að gæzlustjórar hans séu skip- aðir eftir tillögum Bf. fsl. Var svo frv. vísað til 3. umræðu með 22 gegn 2 atkv. Við 3. umræðu komu fram margar br.tillögur við frv. frá ýmsum þm., þar á meðal frá Jóni Þorl., t. d. um að tekjur. af þjóð- jörðum rynnu ekki til sjóðsins, og að Landsbankinn væri ekki skyld- ur að kauþa með nafnverði þau vaxtabréf, sem honum var ætlað að kaupa, heldur eftir gangverði, sem ráðherra samþykki. Tr. Þ. ber fram till. um, að vaxtabréf fyrsta flokks skuli skattfrjáls, en Magn. Guðm. legg- ur til, að lán, sem veitt eru, meðan verið er að selja þann flokk vaxtabréfanna, skuli undanþegin varas j óðsgj aldi. Tr. Þ. ber einnig fram þá till., að gæzlustjórar sjóðsins skuli skipaðir samkv. till. búnaðar- þings. Ýmsar aðrar br.till. komu fram, en skiptu fæstar miklu máli. Af þeim till. J. Þ., sem um var getið, var sú fyrri felld með 18 gegn 10 atkv., en sú síðari tekin aftur. Fyrri till. Tr. Þ. var felld með 17 gegn 6 atkv., en till. M. G. sam- þykkt með samhlj. atkv. — Síðari till. Tr. Þ. samþ. með 15 gegn 13 atkv. íhaldsmanna. Br.till. frá Jóni Bald. um að sjóðnum væri heimilt að lána Bf. ísl., til að koma upp 4 tilraunabú- um, allt að 100 þús. kr. hverju, var felld með 14 gegn 14 atkv. Frv. svo breytt afgreitt til Ed. með 22 samhlj. atkv. Landbúnaðarnefnd Ed. gerði till. til breytinga um nokkur at- riði. Var eitt af þeim það að fella niður, að gæzlustjórastöðurnar skyldu veittar eftir till. búnaðar- þings. Einnig leggur nefndin til að fellt verði að lán, sem veitt eru meðan verið er að selja fyrsta flokk vaxtabréfanna, séu undan- þegin varasjóðsgjaldi, en í þess stað sett það ákvæði, að gjald þetta falli niður, ef vextir þess flokks, sem lánin eru veitt úr, eru 6% eða hærri, og færist niður, ef þeir eru milli 5y2% og 6%, svo að vextirnir, að viðbættu gjaldinu, fari ekki fram úr 6%. Allar br.till. nefndarinnar voru samþykktar. Sú, sem fyrst er get- ið, með 8 gegn 6 atkv. — Frv. síðan endursent Nd. Þar bar Tr. Þ. fram br.till. um að taka upp aftur tvennt af því, er Ed. hafði fellt niður, það að gæzlustjórar skyldu skipaðir sam- kvæmt till. búnaðarþings, og að Ræktunarsjóðurinn yrði samein- aður Ríkisveðbankanum, ef stofn- aður yrði. Báðar tillögurnar voru felldar með 15 gegn 12 atkv. Frv. síðan samþykkt með 23 gegn 2 atkv. Fyrir þá, sem vilja kynna sér þetta mál, er nauðsyn að átta sig vel á þeim mun, sem er á upphaf- legu frumvarpi stjórnarinnar og frv. Tryggva Þórhallssonar. Hið fyrnefnda hefði gert Rækt- unarsjóðinn að litlu öðru en nýrri veðdeild, sem hefði ekki getað veitt lán með viðunandi kjörum. En fyrir atbeina Tr. Þ. tókst að auka stofnfé sjóðsins að miklum mun og tryggja einnig, að Lands- bankinn keypti allmikið af vaxta- bréfum hans (nærfellt l/2 milj. á næstu 10 árum). Var Jóni Þor- lákssyni ógeðfellt að beygja sig fyrir þessu, en lét þó undan, er Bíll til sölu. Til sölu er gamall Ford-vöruflutningabííl með völtupalli, í góðu lagi, með lágu verði. — Tækifæri fyrir sveitabændur að fá sér ódýrt flutningstæki. — Upplýsingar hjá ritstjóra Dags. Atiglcjsing. Óhlutbundin kosning til Alþingis fyrir Akureyrarkjördæmi, fer fram í Samkomuhúsi kaupstaðarins föstudaginn 12. þ.m. og hefst kl. 12 á hád. — Þegar að kosningunni lokinni, þá um kvöldið, verða atkvæðin talin upp á sama stað. Skrifstofu Akureyrarkaupstaðar, 5. júní 1931. Yfirkjörstjórnin. Svarðarútmæling byrjar nú á laugardaginn 6. júní og verður hagað þannig: Útmælt í Eyrarlandsgröfum á laugardögum kl. 6—8 e.h. —»— » Naustagröfum á mánudögum kl. 7—8 e.h. —»— » Kjarnagröfum á þriðjudögum kl. 7—8 e.h. —»— » Bændagerðisgröfum á laugardögum kl, 6—8 e.h. Akureyri 6. júní 1931. Bæjarstjórinn. hann sá, að meiri hluti deildarinn- ar var honum andstæður í þessu. Hitt tókst stjórninni að sjá um, að búnaðarþing ætti ekki tillögu- rétt um, hverjir stjórnuðu sjóðn- um og að við hann yrðu settar á fót fastar stöður strax, en ekki gengið út frá að hann sameinað- ist Væntanlegum Ríkisveðbanka, þegar að því kæmi að hann yrði stofnaður. ----o---- Úr Reykjavík. með sérinngangi er til leigu nú þegar á besta stað í bænum. Benedikt Einarsson söðlasmiður vísar á. Sogsvirkjunin. Sigurður Jónas- son hefir fyrir hönd þýzks raf- magnsfirma gert bæjarstjórn Reykja- víkur tilboð um að virkja Sogið. Engin ríkisábyrgð heimtuð. Bærinn hefir rétt til eftirlits og endurskoð- unar á rekstrinum og hlutdeild i ágóða, ef hann fer yfir ákveðið tak- mark. Ennfremur getur bærinn keypt mannvirkin, hvenær sem er. Þingmannafjölgun í Rvík. Magnús Jónsson lofaði á kjósenda- fundi i Reykjavik á sunnudaginn að vinna að því að fjölga þing- mönnum Reykjavíkur upp f ELLEFU. Möller hótar byltingu. »Vísir«, blað Jakobs Möllers, efsta manns á lista Ihaldsmanna i Rvík, hótar byltingu, ef Framsókn fær meiri- hluta við kosningarnar. - o Persónuleg níðgrein um frambjóðendur Framsókn- arflokksins birtist i »íslendingi« í gær. Greinin er nafnlaus, en talin rituð af frambjóðanda íhaldsins í kjördæminu, hinum sjálffallna Garðari Þorsteinssyni. Er hér með skprað á aðstand- endur »íslendings« að leggja kapp á að útbreiða greinina sem mest um kjördæmið fyrir kosningar, því áreiðanlega fælir hún kjós- endur frá að kjósa þá Garðar Þorsteinsson og Einar Jónasson, en herðir í þeim að kjósa þá EINAR ÁRNASON og BERN- HARÐ STEFÁNSSON. Níðpési frá íhaldinu um Tr. Þórhallsson og Framsóknarflokkinn kvað vera væntanlegur út á meðal almenn- ings á næstu dögum. Talið er að ráðandi menn í íhaldsflokknum hafi ákveðið að dreifa honum ekki út fyr en sem allra næst kosni'ngum, svo að ekki ynnist tími til að reka aftur róginn og ósannindin, sem framleidd eru í verksmiðju fhaldsins í Rvík. Ritstjóri: Ingimar Eydal, Gilsbakkavtg 5. Prentsmiöja Odda BjBmsBonar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.